Morgunblaðið - 19.09.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 19.09.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900,- ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900,- 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 79.900,- XE-A217BXE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ár á Íslandi VæNtANLE GuRVerð kr. 74.900,- Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Útlit er fyrir mjög spennandi þing- kosningar í Bandaríkjunum 6. nóv- ember og kannanir benda til þess að demókratar hafi meðbyr, séu jafnvel líklegir til að fá meirihluta í fulltrúa- deild þingsins. Ólíklegra er hins veg- ar að þeir fái meira en helming þing- sætanna í öldungadeildinni. Til að ná meirihluta þurfa demókratar að bæta við sig a.m.k. 23 sætum í full- trúadeildinni og tveimur í öldunga- deildinni. Fréttaskýrandi The Wall Street Journal segir að flestir þeirra repú- blikana sem eigi á hættu að missa sæti sín í fulltrúadeildinni séu fulltrúar úthverfakjördæma þar sem margir kjósendanna séu óánægðir með Donald Trump forseta. Þing- mennirnir þurfi því að finna leiðir til að fá atkvæði þessara kjósenda þótt þeir séu andvígir forsetanum. Fréttaskýrandinn, Reid J. Ep- stein, bendir á að í síðustu tuttugu fulltrúadeildarkosningum á miðju kjörtímabili forseta landsins hafi flokkur hans tapað þingsætum í átján. Að meðaltali missti flokkur sitjandi forseta 29 sæti í fulltrúa- deildinni. Repúblikanar töpuðu t.a.m. 30 fulltrúadeildarmönnum í kosningunum árið 2006 á miðju kjör- tímabili George W. Bush þegar hann var með álíka lítið fylgi í könnunum og Trump nú. Epstein segir að þing- menn í flokkunum tveimur spái því að demókratar bæti við sig 15 til 50 sætum í þingdeildinni. Með mikið fylgi meðal repúblikana Nýleg könnun Washington Post og CNN bendir til þess að 52% skráðra kjósenda ætli að kjósa demókrata í kjördæmum sínum í þingkosningunum og 38% þeirra ætla að kjósa repúblikana. Í slíkum könnunum eru þátttakendurnir spurðir hvort þeir séu líklegir til að kjósa demókrata eða repúblikana í kjördæmum sínum án þess að nöfn frambjóðendanna séu nefnd. Til að eiga möguleika á fá meirihluta í fulltrúadeildinni er talið að demó- kratar þurfi að vera með verulegt forskot í slíkum könnunum, eða um það bil sjö prósentustig. Þótt munur- inn sé nú tólf prósentustig hefur hann breyst mikið á síðustu vikum og stundum verið mun minni, þannig að ekki er víst að demókratar haldi forskotinu. „Ófyrirsjáanlegir atburðir geta gert sigurmöguleika demókrata að engu,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Larry Sabato, forstöðumanni rann- sóknastofnunar Virginíuháskóla í stjórnmálafræði. Könnun, sem CNN birti í vikunni, bendir til þess að aðeins 36% kjós- endanna séu ánægð með frammi- stöðu Trumps í forsetaembættinu, sex prósentustigum færri en í sams konar könnun í ágúst. Á meðal óflokksbundinna kjósenda minnkaði stuðningurinn við forsetann enn meira, eða úr 47% í 31%. Kannanir benda hins vegar til þess að stuðn- ingurinn við Trump sé mjög mikill meðal félaga í Repúblikanaflokknum, eða um 80%. Þótt talið sé líklegra að repúblik- anar haldi meirihlutanum í öldunga- deildinni sagði Mitch McConnell, leiðtogi þeirra í deildinni, fyrr í vik- unni að ekki væri víst að það tækist. Hann kvaðst telja að demókratar gætu náð þingsætum af flokknum í Flórída, Nevada, Norður-Dakóta, Tennessee og Vestur-Virginíu. Hann sagði að baráttan um þau væri tvísýn og líkti henni við „hnífabardaga í húsasundi“, að sögn AFP. Kjörsóknin mismikil Cliff Young, forstjóri rannsókna- fyrirtækisins Ipsos Public Affairs, telur að þrír kjósendahópar geti ráð- ið úrslitum í þingkosningunum. Hann nefnir í fyrsta lagi konur sem hann segir vera miklu ólíklegri til að styðja Trump en karlmenn. Hann telur að miðstéttarfólk í úthverf- unum geti einnig skipt sköpum. Þessi hópur hafi yfirleitt stutt repúblikana vegna stefnu þeirra í skatta- og efna- hagsmálum en margir þeirra kunni að sitja heima vegna óánægju með framgöngu Trumps. Young nefnir að lokum mikinn stuðning Trumps með- al félaga í Repúblikanaflokknum sem eru líklegri til að mæta á kjörstað í kosningum á miðju kjörtímabili for- setans en minnihlutahópar þar sem fylgi demókrata er mikið. Gerald F. Seib, fréttaskýrandi The Wall Street Journal, segir það geta staðið demókrötum fyrir þrifum að þeim veitist oft erfiðara en repúblik- önum að fá stuðningsmenn sína til að kjósa í kosningum á miðju kjör- tímabili forsetans. Hann bendir á að í þingkosningunum á miðju fyrra kjör- tímabili Baracks Obama árið 2010 var kjörsóknin meðal demókrata 40% minni en í forsetakosningunum tveimur árum áður. Það sama gerðist árið 2014, þegar síðara kjörtímabil Obama var hálfnað. Eina undantekn- ingin á þessari fylgisþróun á síðustu árum varð í kosningunum 2006 þegar demókratar náðu meirihluta í báðum deildum þingsins. Óvinsældir Trumps gefa demó- krötum byr fyrir kosningarnar  Konur, miðstéttarfólk og mikil kjörsókn repúblikana gætu skipt sköpum Heimild: ballotpedia Kosningarnar í Bandaríkjunum Kosið er um 33 sæti af 100 Kosið er um öll sætin 435 Kosið er um 36 af 50 embættum Ríkisstjórar Laus sæti Skipting þingsæta Mismikil barátta Demókratar Óháðir Ekki kosið Óörugg sæti Örugg sæti Repúblikanar 16 193 33 236 47 51 Öldungadeild þingsins Fulltrúadeild þingsins 6 2* *Hafa stutt demókrata 1 Stjórnvöld í Kína tilkynntu í gær að þau myndu leggja refsitolla á banda- rískan varning að andvirði 60 milljarða dala eftir að Donald Trump Banda- ríkjaforseti ákvað að leggja verndartolla á kínverskar vörur að andvirði 200 milljarða dala vegna ósanngjarnra viðskiptahátta Kínverja. Kínversku tollarnir eiga að nema 5-10% og taka gildi á mánudaginn kemur. Rafeindatæki, hljóð- og sjónvarpsbúnaður Vélar og vinnutæki Húsgögn Samgönutæki önnur en járnbrautar- og sporvagnar Stál og álvörur Leður Plast Lífræn efni Gúmmí Vörur úr ódýrum málmum 47,95 milljarðar 38,50 25,83 11,39 7,57 7,30 6,36 4,56 3,31 3,29 Verndartollar Trumps á varning frá Kína Nýir verndartollar á vörur að andvirði alls 200 milljarða dala eiga að taka gildi 24. september. Tollarnir eiga að nema 10% fram að áramótum og þá hækka þeir í 25% fallist Kínverjar ekki á kröfur Bandaríkjastjórnar. Eftir innflutningsgreinum (skv. bráðabirgðalista) Andvirði innflutningsins í dölum á síðasta áriTíu helstu Heimild: Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna Kínverjar svara tollum Trumps Sýrlandsher skaut rússneska her- flugvél niður fyrir mistök yfir Mið- jarðarhafi í fyrrakvöld eftir að Ísr- aelsher hafði gert loftárásir á herstöð í strandhéraðinu Latakíu, að sögn stjórnvalda í Ísrael og Rússlandi. All- ir í vélinni, 15 manns, létu lífið. Her Ísraels staðfesti að hann hefði gert loftárásir á herstöðina til að koma í veg fyrir að búnaður til vopna- framleiðslu yrði fluttur á vegum Ír- ana til liðsmanna Hizbollah, samtaka sjíta í Líbanon. Einræðisstjórnin í Sýrlandi hefur notið stuðnings ír- anskra hersveita, Hizbollah og rúss- neska hersins. Rússneska vélin var könnunarvél af gerðinni Il-20 og var á leiðinni á herflugvöll nálægt Latakíu þegar fjórar ísraelskar herþotur gerðu loft- árásirnar. Rússar sögðu að Ísraelar hefðu varað þá við árásunum með minna en mínútu fyrirvara og rúss- neska vélin hefði ekki fengið nægan tíma til að forða sér. Þeir sökuðu einnig ísraelsku herþoturnar um að hafa stefnt rússnesku vélinni í hættu með því að nota hana sem skjól fyrir loftvarnabyssum Sýrlandshers. Her Ísraels neitaði þessu og sagði að her- þoturnar hefðu verið komnar í loft- helgi landsins þegar rússneska vélin var skotin niður. Samkomulag um Idlib Atburðurinn varð eftir að forsetar Rússlands og Tyrklands samþykktu á fundi í rússnesku borginni Sotsjí að koma á hlutlausu belti milli yfir- ráðasvæða stjórnarhersins og upp- reisnarmanna í Idlib-héraði, síðasta stóra vígi andstæðinga einræðis- stjórnarinnar. Allir liðsmenn ísl- amskra öfgasamtaka eiga að fara frá héraðinu samkvæmt samkomulaginu sem á að taka gildi 15. október. Ant- onio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði sam- komulaginu, sagði það afstýra átök- um sem gætu stofnað milljónum manna í hættu. Rússnesk vél skotin niður  Rússar kenna Ísra- elum um atburðinn AFP Mótmæli Sýrlendingar í Idlib mót- mæla árásum stjórnarhersins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.