Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018
Skáldsagan Meistararnir eftirHjört Marteinsson veitireinstaka innsýn i þaðhvernig heimur hinna full-
orðnu litur út með augum barns.
Rósi er tíu ára gamall og svo virðist
sem hann sé al-
farið alinn upp af
afa sinum og
nafna, Rósant.
Hirti tekst á ein-
stakan hátt að
skrifa söguna svo
hún virðist raun-
verulega koma
beint úr hug-
arheimi barns, en
í sögunni fær les-
andinn einungis
að vita hvað er að gerast í kringum
Rósa á hverri stundu, sem og innsýn
í nokkrar minningar sem tengjast
því á einn eða annan hátt.
Sagan snýst um nokkurra mánaða
tímabil í lífi nafnanna, Evrópumót
öldunga í frjálsum íþróttum sem
fram fór í Finnlandi 1972, sem og
æfingar og undanfara ferðalagsins.
Rósi litli fylgist með afa sínum og
æfingafélögum hans æfa af kappi
fyrir mótið, en afinn er feikilega góð-
ur kringlukastari og Evrópumethafi,
þökk sé happakringlunni sem eig-
inkona hans heitin gaf honum. At-
burðarásin hefst fyrir alvöru þegar
heimsfrægur sænskur kringlukast-
ari, Rikki brúskur, heimsækir Ís-
land í tilraun til að setja nýtt heims-
met með hjálp íslenska vindsins og
Rósant afi dæmir.
Það eru ákveðin forréttindi að fá
að fylgjast með upplifun Rósa af
heimi hinna fullorðnu, en á sama
tíma og hann skynjar og skilur allt
sem gerist í kringum hann skilur
hann samt svo lítið. Hann skynjar
tilfinningar afa síns mætavel en það
er ýmislegt í samskiptum hinna full-
orðnu sem er honum óskiljanlegt.
Meistararnir er passlega létt og
skemmtileg lesning, þrátt fyrir
nokkur dauðsföll sem henda bæði af
náttúrulegum og ónáttúrulegum or-
sökum. Stundum gæti lesandinn
jafnvel þurft að staldra við og velta
fyrir sér hvort það sem hann er að
lesa um sé raunverulegt eða spunnið
úr ímyndunarafli Rósa.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úr hugarheimi barns
Skáldsaga
Meistararnir bbbbn
Eftir Hjört Marteinsson
Forlagið, 2018. Kilja, 217 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR Rithöfundurinn
Hjörtur
Marteinsson.
Sjálfsvíg er vandmeðfariðumfjöllunarefni. Rann-sóknir hafa ítrekað sýnt aðsjálfsvíg eru „félagslega
smitandi“, því þeim fjölgar þegar
þau eru til umfjöllunar í fjölmiðlum.
Af ótta og jafnvel vanmætti bregða
margir skiljanlega á það ráð að vilja
ekki ræða þetta erfiða málefni, sem
getur einmitt orðið ennþá þungbær-
ara fyrir þá sem eiga um sárt að
binda og þá sem sjá ekkert nema
svartnættið fram undan.
Í einleiknum Allt sem er frábært
beina enska leikskáldið Duncan
Macmillan og írski skemmtikraft-
urinn Jonny Donahoe sjónum að
þessu vandasama viðfangsefni af
virðingu og húmor. Verkið segir
sögu manns sem er aðeins sjö ára
þegar móðir hans reynir í fyrsta, en
ekki síðasta, sinn að svipta sig lífi.
Af lýsingum að dæma glímir móð-
irin við geðhvarfasýki með tilheyr-
andi upp- og niðurtúrum. And-
spænis dauðanum bregst dreng-
urinn við með því að búa til lista yfir
allt sem er frábært í heiminum og
gerir lífið þess virði að lifa því. Til að
byrja með rata inn á listann einfald-
ir hlutir eins og ís með dýfu, en list-
anum deilir drengurinn með móður
sinni í von um að geta bjargað lífi
hennar. Eftir því sem fram líða
stundir rata flóknari hlutir inn á
listann sem endurspegla aldur og
þroska drengsins allt fram á fullorð-
insár.
Rúmum áratug síðar gerir móð-
irin aðra tilraun og í þetta sinn
bregst sonurinn ekki við með barns-
legri bjartsýni heldur réttlátri reiði.
Áður en yfir lýkur verður áhorf-
endum ljóst hversu gríðarlega mikil
áhrif veikindi móðurinnar hafa haft
á soninn, sem í örvæntingarfullri til-
raun til að halda móður sinni stöð-
ugri reynir að hemja tilfinningar
sínar og vera sjálfur ávallt í jafn-
vægi. Hann kemst þó ekki hjá því að
fyllast bæði reiði og vanmætti gagn-
vart aðstæðum sínum. Hvernig er
hægt að koma í veg fyrir að önnur
manneskja sjái það sem einu lausn
vanlíðunar sinnar að svipta sig lífi?
Stærsti ótti hans er hins vegar að
honum gæti sjálfum einhvern tím-
ann liðið jafn illa og móðurinni og
brugðist við með sama endanlega
hætti.
Verkið vekur áhorfendur óneit-
anlega til umhugsunar um hvaða
áhrif það hefur á börn að alast upp
við andleg veikindi foreldra með til-
heyrandi áhyggjum og álagi sem
aftur getur framkallað andleg veik-
indi hjá börnunum sjálfum. Þannig
glímum við sem samfélag ekki að-
eins við „félagslegt smit“ sjálfsvíga,
heldur einnig andleg veikindi sem
„erfast“ hæglega sem lærð hegðun
sé ekkert að gert til að hjálpa börn-
unum að takast á við vandasamar
kringumstæður sínar.
Af ofangreindu mætti auðveldlega
halda að hér væri á ferðinni þung
eða erfið sýning. Svo er hins vegar
ekki því efniviðurinn er matreiddur
af hlýju og húmor. Samkvæmt for-
skrift höfunda taka áhorfendur
óvenjustóran þátt í uppfærslunni og
ganga inn í ýmis hlutverk lykilfólks í
lífi sögumannsins, sem Valur Freyr
Einarsson túlkar. Sökum þessa
verða engar tvær sýningar eins,
enda býður spuninn upp á samtal.
Enginn ætti samt að kvíða því að
vera boðið að taka virkan þátt í
framvindunni, því Valur Freyr hefur
einstakt lag á að leiða áhorfendur í
gegnum senurnar og grínið verður
aldrei á kostnað þátttakenda.
Ólafur Egill Egilsson leikstjóri
hefur valið að raða áhorfendum all-
an hringinn í kringum meginleik-
rýmið. Skertar sjónlínur sem óneit-
anlega fylgja slíkri uppröðun eru
ríkulega bættar með aukinni nánd.
Sem betur fer er Valur Freyr ekki
bundinn við miðrými salarins heldur
ferðast upp og niður eftir tröppum
milli sætisraða og jafnvel aftur fyrir
áhorfendur þegar því er að skipta.
Hann tekur á móti áhorfendum í
upphafi kvölds og deilir út broti af
listanum yfir allt sem er frábært
sem leikhúsgestir eru beðnir að lesa
upphátt þegar hann nefnir númerið
sem skráð er á miðann. Spuna-
formið og uppröðun salarins minna
áhorfendur á hvað við sem samfélag
erum í raun tengd og vitum aldrei
nema sessunautur okkar glími við
depurð, kvíða eða sjálfsvígshugsanir
hvort heldur er á eigin skinni eða
sem aðstandandi.
Íslensk þýðing og staðfærsla
Kristínar Eiríksdóttur virkar með
ágætum. Sömuleiðis lagaval list-
rænna stjórnenda sem undirstrikar
vel líðan sögumannsins hverju sinni.
Einfaldur búningur og fábrotin um-
gjörð Brynju Björnsdóttur þjóna
efniviðnum vel. Þórður Orri Péturs-
son á sérstakt hrós skilið fyrir út-
hugsaða lýsingu. Þannig virkaði vel
að myrkva salinn mun seinna en
venjulega til að auðvelda áhorf-
endum að sjá hver annan, heitir og
kaldir litir voru notaðir með góðum
árangri til að undirstrika ólíkar til-
finningar sögumanns og loks ber að
nefna skemmtilega ljósalausn loka-
senunnar.
Valur Freyr er eins og fiskur í
vatni í þessari sýningu þar sem hann
leikur, syngur og dansar léttilega í
gegnum vandmeðfarinn efniviðinn.
Hann býr yfir mikilli breidd sem
leikari og hefur á umliðnum árum
sýnt að hann fer jafn auðveldlega
með að leika tengdamóður sína, eins
og hann gerði í Tengdó árið 2012, og
fulltrúa hins miskunnarlausa valds í
dystópíunni 1984 á liðnum vetri.
Sviðssjarmi hans og áreynsluleysi,
en ekki síst einlægni, henta ein-
staklega vel í Öllu sem er frábært.
Í samræmi við efniviðinn er ekki
boðið upp á neinar einfaldar lausnir
í sýningunni. Áhorfendur eru aftur á
móti minntir á að hamingjan býr í
litlu hlutunum. Þeir, sem tekst að
gleðjast yfir hversdagslegum hlut-
um, halda vel nestaðir út í lífið. Að
lokum er ekki úr vegi að deila ráði
sögumannsins til þeirra sem eru að
íhuga að svipta sig lífi, en það hljóm-
ar svo: „Ekki gera það. Þetta lagast.
Það verður kannski ekkert frábært.
Ekki strax. En það verður betra.
Smám saman. Það er alltaf von.“
Það er alltaf von
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Samtal „Samkvæmt forskrift höfunda taka áhorfendur óvenjustóran þátt í uppfærslunni og ganga inn í ýmis hlut-
verk lykilfólks í lífi sögumannsins, sem Valur Freyr Einarsson túlkar,“ segir í rýni um Allt sem er frábært.
Borgarleikhúsið
Allt sem er frábært bbbbn
Eftir Duncan Macmillan ásamt Jonny
Donahoe. Þýðing og staðfærsla: Kristín
Eiríksdóttir. Aðlögun og frekari stað-
færing: Ólafur Egill Egilsson og Valur
Freyr Einarsson. Leikstjórn: Ólafur Egill
Egilsson. Leikmynd og búningar: Brynja
Björnsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Péturs-
son. Hljóð: Baldvin Þór Magnússon.
Leikari: Valur Freyr Einarsson. Frumsýn-
ing á Litla sviði Borgarleikhússins
föstudaginn 14. september 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 20/9 kl. 20:00 57. s Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s
Fös 21/9 kl. 20:00 58. s Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s
Besta partýið hættir aldrei!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 3. s Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 9. s
Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s
Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Lau 29/9 kl. 20:00 8. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 Frums. Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s
Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s
Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Fim 11/10 kl. 20:00 10. s
Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Fös 12/10 kl. 20:00 12. s
Velkomin heim, Nóra!
Elly (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s
Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s
Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s
Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s
Síðasta uppklappið.
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is