Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á lambið
ICQC 2018-20
Lestur Bandaríkjamanna á skáld-
sögum og smásögum hefur náð áður
óþekktum lægðum, skv. niður-
stöðum könnunar sem fjallað er um
í dagblaðinu The Guardian. 8%
færri lesa slíkar bókmenntir nú en
fyrir fimm árum. Samkvæmt könn-
uninni hefur lesturinn minnkað
hlutfallslega mest hjá konum, þel-
dökkum og fólki á aldrinum 18 til 24
ára, eins og segir í frétt blaðsins.
Reglulegar kannanir á lestri
Bandaríkjamanna hafa verið gerðar
allt frá árinu 1982 og tóku 30.000
manns þátt í þeirri sem fjallað er
um í frétt The Guardian. Í nið-
urstöðum kemur fram að 11,7%
fullorðinna segjast hafa lesið ljóð á
síðastliðnu ári, sem er 76% fleiri en
árið 2012. Staðan er öllu verri þegar
kemur að skáldsögum og smásög-
um, sem fyrr segir, en slíkar bækur
lásu 47% þátttakenda árið 2008,
fyrir tíu árum, en 41,8% í fyrra.
54,6% kvenna lásu skáld- og smá-
sögur árið 2012 en 50% fimm árum
síðar, svo dæmi sé tekið.
Niðurstöðurnar ættu ekki að
koma svo mjög á óvart því sala á
skáldsögum og smásögum hefur
dregist saman um 17% í Bandaríkj-
unum undanfarin fimm ár.
AFP
Í bókabúð Viðskiptavinur í bandarískri bókabúð virðir fyrir sér bók blaða-
mannsins Bobs Woodwards um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Á borð-
inu til hliðar má hins vegar sjá eina af bókunum um Kaftein ofurbrók.
Minnkandi lestur
á skáld- og smásögum
Bandarísku Emmy-verðlaunin voru
afhent í Los Angeles í fyrrakvöld
og voru það þættir sjónvarpsstöðv-
arinnar HBO, Game of Thrones,
sem hlutu flest verðlaun eða níu
alls. Á eftir fylgdu gamanþáttarað-
irnar Saturday Night Live og The
Marvelous Mrs Maisel með átta
verðlaun hvor, The Assassination
of Gianni Versace: American
Crime Story sem hlaut sjö verð-
laun og fimm verðlaun hlutu Ant-
hony Bourdain: Parts Unknown,
Jesus Christ Superstar Live In
Concert, RuPaul’s Drag Race og
The Crown.
Þrír Bretar hlutu verðlaun
Vefur breska ríkisútvarpsins,
BBC, vekur athygli á því hversu
margir Bretar hlutu verðlaun, leik-
konurnar Thandie Newton og
Claire Foy og handritshöfundurinn
Charlie Brooker. Newton hlaut
verðlaun sem besta leikkona í
aukahlutverki í dramaþáttum fyrir
leik sinn í Westworld og Foy verð-
laun sem besta leikkona í aðal-
hlutverki fyrir túlkun sína á El-
ísabetu II Englandsdrottningu í
The Crown. Brooker fékk svo
verðlaun sem besti handritshöf-
undur stuttrar þáttaraðar, Black
Mirror, ásamt William Bridges.
Velski leikarinn Matthew Rhys
hlaut verðlaun sem besti aðalleik-
ari í dramaþáttum, fyrir leik sinn í
The Americans, og Peter Dinklage
var valinn besti leikarinn í auka-
hlutverki dramaþátta fyrir leik
sinn í Game of Thrones.
Winkler hlaut loksins verð-
laun
Í flokki gamanþátta voru það
þættirnir The Marvelous Mrs Mai-
sel sem voru fengsælastir og hlutu
m.a. verðlaun fyrir bestu leikkonur
í aðal- og aukahlutverki, besta
handrit og leikstjórn. Þá var
bandaríski leikarinn Henry Win-
kler kampakátur með að hljóta sín
fyrstu Emmy-verðlaun, 42 árum
eftir hafa verið tilnefndur í fyrsta
sinn. Verðlaunin hlaut hann sem
besti leikari í aukahlutverki í gam-
anþáttaröð, fyrir leik sinn í Barry.
Jeff Daniels var líka sáttur, hlaut
verðlaun sem besti leikari í auka-
hlutverki í stuttri þáttaröð fyrir
leik sinn í vestraþáttunum Godless.
122 verðlaunaflokkar
Í flokki spjallþátta var það John
Oliver sem hreppti verðlaunastytt-
una fyrir þætti sína Last Week To-
night with John Oliver. Þakkaði
hann streymisveitunni Netflix, sem
framleiddi þættina, fyrir að leyfa
listamönnum að vera listamenn.
Verðlaunaafhendingin var sú
seinni af tveimur því fyrir viku var
stór hluti þeirra afhentur, svoköll-
uð Creative Arts Emmy-verðlaun.
Alls eru 122 verðlaunaflokkar og
tæki því heldur langan tíma að
veita öll verðlaunin á einu kvöld og
líklega fáir sem hefðu úthald í að
horfa á herlegheitin. Í fyrrakvöld
voru 26 verðlaun afhent af 122.
helgisnaer@mbl.is
AFP
Kampakát Helstu leikarar og leikkonur þáttanna Game of Thrones fögnuðu uppskerunni í Los Angeles.
Verðlaunaleikkonur Thandie Newton hlaut verðlaun fyrir besta leik í
aukahlutverki í dramaþáttum og Regina King fyrir besta leik í aukahlut-
verki í stuttri dramaþáttaröð, fyrir leik sinn í Seven Seconds.
Game of Thrones hlaut
flest Emmy-verðlaun
26 verðlaun voru afhent í Los Angeles í fyrrakvöld
Fyndnir Bill Hader og Henry Winkler hlutu verðlaun fyrir sömu þáttaröð,
Barry, Hader sem besti leikari í aðalhlutverki og Winkler í aukahlutverki.