Morgunblaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 4
Þróun tveggja undirliða vísitölu, 2008-2018
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2015 2016 2017 20182014
200 kr.
190
180
170
160
150
140
130
120
Heimild: Hagstofa Íslands
Bensín 95 okt.
Dísilolía
Vísitölur bensíns og dísilolíu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á Brent-Norðursjávarolíu hef-
ur síðustu daga farið yfir 80 dali fatið
og hefur ekki verið hærra síðan 2014.
Heimsmarkaðsverð á olíu hrundi á
síðari hluta árs 2014. Verðið árið
2014 varð hæst í júní er það fór í
115,71 dal. Það náði svo lágmarki í
janúar 2016 er það fór í 27,1 dal.
Heimsmarkaðsverðið hefur síðan
verið á nokkuð stöðugri uppleið og
fór í um 83 dali síðdegis í gær.
Lækkun olíuverðs var meðal ann-
ars rakin til aukinnar framleiðslu í
Bandaríkjunum. Nýjar leiðir til olíu-
vinnslu úr leirsteini áttu þátt í því.
Nú segja greinendur að viðskipta-
þvinganir Bandaríkjastjórnar gegn
Íran hafi ýtt undir olíuverðið.
Rætt um 100 dali á fatið á ný
Stjórnandi hjá Bank of America
Merill Lynch sendi minnisblað til
viðskiptavina á mánudaginn var. Þar
segir að vaxandi líkur séu á að sagan
frá 2008 endurtaki sig. Þá fór olíu-
verð í hæstu hæðir en hrapaði svo.
Rætt var um það í bandarískum
fjölmiðlum í vikunni sem leið að olíu-
verðið gæti farið í 100 dali á ný.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir ekkert í kortunum sem bendi
til að olíuverð muni lækka í bili.
„Frá sjónarhóli tæknigreiningar
er fremur útlit fyrir frekari verð-
hækkanir. Aðferðafræði tæknigrein-
ingar lýtur að því að greina mynstur
í verðþróun og hegðun markaðsaðila.
Það er gert óbeint í gegnum verð og
veltu á markaði. Sem stendur eru
engin merki um viðsnúning. Það má
segja að tæknigreining sé alltaf dá-
lítið á eftir markaðnum. Hún er hins
vegar fullkomlega hlutlæg. Hún
byggist til dæmis hvorki á vanga-
veltum um framtíðaratburði né um-
ræðu í fréttum. Hvað varðar Brent-
olíuna er líklegt að fyrirstaða eða
viðnám gegn hækkun verði 89-96
dalir á fatið,“ segir Yngvi og vísar til
mögulegs þaks í olíuverðinu á næst-
unni. Þó sé óvíst hvort þessi fyrir-
staða haldi þegar litið er til lengri
tíma. „Markaðsaðilar hafa enda til-
hneigingu til að setja inn pantanir á
markaðinn í kringum fyrri öfgagildi
á markaðnum. Í þessu tilviki þá sölu-
pantanir á olíu,“ segir Yngvi.
Hefur ýtt undir verðbólgu
Bensín, 95 okt, og díselolía eru
meðal undirliða vísitölu neysluverðs
sem verðbólgan er samsett úr.
Hækkun olíuverðs hefur því ýtt
undir verðbólgu undanfarið.
Elvar Ingi Möller, sérfræðingur á
greiningardeild Arion banka, bendir
aðspurður á að eldsneytiskostnaður
íslensku flugfélaganna sé ýmist ann-
ar stærsti eða stærsti kostnaðarliður
þeirra. Því hafi hærra olíuverð áhrif
á rekstur þeirra, líkt og þau hafi
fundið fyrir síðastliðin misseri.
„Horfur eru á að íslensku flug-
félögin borgi um eitt þúsund krónur
með hverjum flugfarþega á þessu
ári. Það skýrist einkum af því að
flugfargjöld hafa ekki hækkað til
samræmis við óhagstæða þróun ytri
áhrifaþátta, sér í lagi þróun elds-
neytisverðs. Slíkt ástand getur ekki
varað til lengdar. Því er ljóst að flug-
fargjöld þurfa að óbreyttu að hækka.
Það getur gert Íslandsferðina dýrari
og því mögulega haft áhrif á þróun
fjölda ferðamanna.
Við notum mikla olíu. Olíuinn-
flutningur í fyrra nam til að mynda
78 milljörðum sem var rúmlega 11%
af heildarvöruinnflutningi. Ríflega
helmingur innflutningsins er í formi
þotueldsneytis og miðað við aukin
umsvif og verðhækkanir er ekki ólík-
legt að vægið hafi aukist á þessu ári.“
Olíuverðið ekki hærra síðan 2014
Verð á Brent-Norðursjávarolíu er komið yfir 80 dali Það hefur hækkað stöðugt frá árinu 2016
Hagfræðingur segir fátt benda til lækkunar Hærra olíuverð ekki komið fram í flugfargjöldum
Hæsta, lægsta og lokagildi mánaðar 2004-2018
160
150
140
130
120
110
100
90
80
70
60
50
40
30
201820172016201520142013201220112010200920082007200620052004
20
10
0
12 mánaða
meðaltal.
Vísbending
um leitni.
Markaðsaðilar hafa tilhneigingu
til að setja viðskiptapantanir
nærri fyrri öfgagildum:
Mögulegt viðnám gegn hækkun
á verðbilinu 89-96 dalir á fatið.
$
Heimildir: Thomson Reuters, AnalyticaVerð á Brent-Norðursjávarolíu í dollurum á fatið
Yngvi
Harðarson
Elvar Ingi
Möller
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Veður víða um heim 28.9., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 9 rigning
Akureyri 10 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 alskýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 14 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
London 15 heiðskírt
París 17 léttskýjað
Amsterdam 14 léttskýjað
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 14 heiðskírt
Vín 21 heiðskírt
Moskva 11 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 29 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 24 heiðskírt
Aþena 18 skýjað
Winnipeg 2 skýjað
Montreal 18 léttskýjað
New York 13 þoka
Chicago 15 skýjað
Orlando 31 skýjað
29. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:32 19:06
ÍSAFJÖRÐUR 7:38 19:09
SIGLUFJÖRÐUR 7:21 18:52
DJÚPIVOGUR 7:01 18:35
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Vestlæg átt, 3-10 og víða léttskýjað.
Hiti 2 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum NA-til.
Á mánudag Hvöss sunnanátt og talsverð rigning
eða slydda, einkum S-lands. Vestlægari síðdegis.
Norðlæg átt, víða 8-15 m/s. Rigning eða slydda og síðar él á N- og NA-landi, en rofar til S- og V-
lands síðdegis. Gengur í norðvestan 15-23 m/s á Austfjörðum og SA-landi í kvöld. Kólnar í veðri.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
„Dómurinn féll í gær, og ríkisstjórnin vildi
bregðast strax við honum og því samþykktum
við þessa yfirlýsingu með þeirri afsökunar-
beiðni sem þar er,“ sagði Katrín Jakobsdóttir
forráðherrasætisráðherra í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Starfshópur þriggja ráðuneyta
Ríkisstjórnin samþykkti jafnframt á fundi
sínum að skipaður yrði starfshópur fulltrúa for-
sætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðu-
neytis og dómsmálaráðuneytis er fengi það
hlutverk að leiða viðræður og sáttaumleitanir
við aðila málsins og aðstandendur þeirra vegna
þess miska og tjóns sem þau hafa orðið fyrir.
Aðspurð hvort það hefði komið til tals á rík-
isstjórnarfundinum að hún eða aðrir ráðherrar
myndu hitta fyrrverandi sakborninga sagði
Katrín: „Það var ekki rætt sérstaklega, því okk-
ur fannst mikilvægt að bregðast strax við með
þeirri afsökunarbeiðni sem við sendum frá okk-
ur.
Jafnframt ákváðum við að skipa starfshóp
þriggja ráðuneyta til að leiða viðræður og sátta-
umleitanir við aðila málsins. Það liggur fyrir að
við viljum að það verði strax ráðist í að gera
þessi mál upp með einhverjum hætti.
Í tengslum við vinnu starfshópsins sem mun
fara fram vegna þessa, kann vel að vera að við
ráðherrarnir í forsætisráðuneytinu, fjármála-
og efnahagsráðuneytinu og dómsmálaráðu-
neytinu, munum eiga fund með aðilum máls-
ins.“
Mikilvægt að bregðast strax við
Ráðherrar munu hugsanlega hitta fyrrverandi sakborninga síðar
Morgunblaðið/Hari
Hæstiréttur Fjöldi manns var viðstaddur
dómsuppkvaðningu Hæstaréttar í fyrradag.
Yfirlýsing forsætisráðherra fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar er svohljóðandi:
„Nýfallinn sýknudómur Hæstaréttar Ís-
lands í málum allra dómfelldu í endur-
upptökumáli í Guðmundar- og Geirfinns-
málinu var ræddur á fundi ríkis-
stjórnarinnar í dag. Ríkisstjórnin fagnar
málalyktum í einu umdeildasta sakamáli
Íslandssögunnar.
Ég beini orðum mínum til fyrrum sak-
borninga, aðstandenda þeirra og annarra
sem átt hafa um sárt að binda vegna
málsins.
Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykk-
ur afsökunar á því ranglæti sem þið hafið
mátt þola.“
Ríkisstjórnin
biðst afsökunar
FAGNAR MÁLALYKTUM