Morgunblaðið - 29.09.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 29.09.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 Weleda hreinar náttúrulegar olíur Njóttu þess, að dekra við húðina ! Meiri ánægja, meiri næring, meiri vörn. Weleda olíurnar hafa áhrif á líkama og sál. Weleda olíurnar mýkja húðina með virkum náttúruefnum. Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir Netverslun: heimkaup.is, heilsuhusid.is, lyfja.is, mstore.is Weleda.is HREIN OLÍA, HREIN ÁNÆGJA, HREIN UMHYGGJA Viðbrögð ýmissa vinstrimannavið skýrslu Félagsvísinda- stofnunar fyrir fjármálaráðherra, sem Hannes Hólmsteinn Gissurar- son tók saman, voru í senn dapur- leg og fyrirsjáanleg.    Skýrslan hafðivarla verið birt og því augljóslega alls ekki lesin, þeg- ar þessir skríbent- ar, sem nær undan- tekningarlaust voru eldheitir stuðnings- menn þess að þjóð- in hengdi á sig Ice- save-skuldina, voru búnir að fella neikvæða dóma um skýrsluna, gjarnan með alls kyns vitleysis- legum stóryrðum.    En það var svo sem ekki við þvíað búast að fólk sem lengi hefur alið með sér biturð djúpt í skotgröfum sínum gæti fjallað efn- islega um athyglisverðar upplýs- ingar.    Í skýrslunni er sannarlega nóg afslíkum upplýsingum, til dæmis ummæli Mervyns King, fyrrver- andi bankastjóra Englandsbanka, um að viðbrögð Breta gagnvart Íslandi hafi verið Bretum til minnkunar.    Annað athyglisvert sem mánefna er að Bretar hafi verið búnir að setja reglur sem bönnuðu útibúi Landsbankans í Lundúnum að flytja fé úr landi nema með skriflegu leyfi. Þess vegna hafi beiting hryðjuverkalaganna verið alveg óþörf út frá þeim rökum sem bresk stjórnvöld settu sjálf fram.    Hvernig stendur á því að ekkier hægt að ræða slíka hluti efnislega og taka upp málstað Íslands? Er það ekki mikilvægara en persónulegt skítkast? Hannes H. Gissurarson Dapurleg en fyrir- sjáanleg viðbrögð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Alls fengu 43.144 einstaklingar greiddan ökutækjastyrk árið 2017, sem var 1145 fleiri en árið áður. Fram kemur í Tíund, tímariti emb- ættis ríkisskattstjóra, þar sem fjallað er um álagningu skatta árið 2018, að aldrei hafi fleiri framteljendur talið fram ökutækjastyrk en nú. Þeim fækkaði nokkuð eftir hrunið árið 2008 en frá árinu 2010 hefur þeim fjölgað aftur. Alls töldu 36.485 fram frádrátt á móti ökutækjastyrk. Ökutækja- styrkurinn sjálfur jókst um 3,6% en frádrátturinn aðeins um 2,7%. Fleiri fá greidda dagpeninga Þá kemur fram í Tíund, að árið 2017 fengu 31.176 greidda dagpen- inga, 1031 fleiri en árið áður. Árið 2007 fengu 29.843 greidda dagpen- ininga en tveimur árum síðar hafði þeim fækkað um 8900. Síðan hefur þeim, sem fá þessar greiðslur vegna kostnaðar við ferðalög, fjölgað ár frá ári. Landsmenn voru með 12,1 milljarð króna í tekjur í útlöndum árið 2017. Er það 3,4 milljörðum minna en þeir voru með árið áður. Tekjur í útlönd- um jukust hægt og örugglega upp úr aldamótum en tóku síðan kipp um miðjan fyrsta áratug aldarinnar og jukust síðan til ársins 2015 þegar þær námu 19,5 milljörðum. Síðan hafa þær aftur minnkað. Aldrei fleiri með ökutækjastyrk  Þeim hefur fækkað sem telja fram frádrátt á móti styrknum Morgunblaðið/Hari Bílar Þeim fjölgar sem telja fram bílastyrk. Alls 43.144 það í fyrra. „Ég kem með nýjar áherslur, ný viðhorf. Fyrir- rrennari minn og öll stjórnin sinnti góðu starfi og við erum með fram- úrskarandi starfsmenn þann- ig að ég tek við góðu búi. Auðvit- að er það breytt ásýnd að ég hafi verið kosin,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, sem í gær var kosin for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, fyrst kvenna. Hún fékk 91 atkvæði í kjöri á landsþingi sambandsins sem lauk á Akureyri í gær en Gunnar Einars- son, bæjarstjóri í Garðabæ, fékk 49 atkvæði. Aldís tekur við embættinu af Halldóri Halldórssyni, fyrrver- andi borgarfulltrúa og áður bæjar- stjóra á Ísafirði, sem var formaður í tólf ár. Aldís segir að ný stjórn muni nú fara yfir stefnumörkun landsþings- ins og ákveða hvernig staðið verði að málum við að fylgja þeim eftir. „Eins og fyrirrennari minn og stjórn mun- um við leggja áherslu á að bæta fjár- málaleg samskipti ríkis og sveitarfé- laga. Sveitarfélögin fái aukna tekjustofna til að sinna þeim mikil- vægu verkefnum sem þau fást við,“ segir Aldís um áherslur nýs for- manns. Hún nefnir að þingið hafi lagt áherslu á að gistináttagjald renni til sveitarfélaganna, eins og rætt hafi verið um, og að það gerist fyrir lok ársins. Hún nefnir að brýn nauðsyn sé á auknum tekjum, meðal annars í ljósi lagabreytinga sem séu íþyngjandi fyrir sveitarfélögin. „Við vinnum að fjölda verkefna sem munu styrkja sveitarstjórnar- stigið og ekki síður bæta lífskjör íbú- anna,“ segir hún. Mikið rætt um sameiningar Efling sveitarstjórnarstigsins með sameiningu sveitarfélaga var eitt stærsta mál þingsins. Ekki var ákveðið að grípa til ákveðinna ráð- stafana í því efni, aðeins ályktað að engar stefnumarkandi ákvarðanir yrðu teknar án þess að landsþing hefði um það lokaorð. Aldís segir að ýmis gögn liggi fyrir um málið. Stjórnin muni fara yfir þau og sveit- arstjórnarmenn af öllu landinu muni koma að málum áður en ákvörðun verði tekin. helgi@mbl.is Með nýjar áhersl- ur og viðhorf  Aldís nýr formaður sveitarfélaga Aldís Hafsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.