Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Laust eftir klukkan 13 í gær var
gjaldtöku við Hvalfjarðargöngin
hætt. Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra kom þá akandi
úr Reykjavík og var síðastur vegfar-
enda til að aka gegnum göngin gegn
gjaldi. Ráðherrann fékk svo það
hlutverk að slökkva á innheimtubún-
aði ganganna, sem til dæmis les veg-
lykla sem hafa verið í mörgum bíl-
um.
Blóm til Ítalanna
Á eftir ráðherranum í röð við
gjaldskýlið voru hinn ítalski Lucka
Ercole og félagi hans, sem vissu
varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar
ráðherrann afhenti þeim blómvönd
með þeim orðum að þeir væru hinir
fyrstu sem færu í gegnum göngin
gjaldfrjálst. Óku hinir ítölsku félagar
svo brott, brosandi með blómin.
Á sunnudag afhendir Spölur ehf.
íslenska ríkinu Hvalfjarðargöngin
formlega og þá verða samningar þar
að lútandi undirritaðir við athöfn við
norðurmunna ganganna. Og ríkið
fær göngin skuldlaus; en það var sl.
fimmtudag að Spölur gerði upp lang-
tímalán og fyrirtækið er nú á núlli.
Góð reynsla af Speli
Drjúg umferð var um Hvalfjarðar-
göngin í gær, eða um þúsund bílar
frá klukkan 7:30 fram til klukkan
13:15 þegar samgönguráðherra
renndi að. Hann borgaði 1.000 krón-
ur, en það verð fyrir staka ferð hefur
verið óbreytt frá upphafi frá því
göngin voru tekin í notkun í júlí 1998.
Eru ekki önnur dæmi um viðlíka
stöðugleika í gjaldskrá fyrirtækja á
Íslandi.
„Reynslan af þessu verkefni hér í
Hvalfirði er góð. Starfsemi Spalar
hefur verið áfallalítil og við getum
horft með jákvæðum augum til
hennar, nú þegar við blasa stór verk-
efni í samgöngumálum þar sem
einkaframkvæmd kemur til greina.
Þar get ég nefnt til dæmis tvöföldun
Hvalfjarðarganga og Sundabraut,“
sagði Sigurður Ingi.
Samgönguráðherrann borgaði síðastur
Loksins gjaldfrjálst í Hvalfjarðargöngunum Verða formlega afhent ríkinu á morgun Veg-
gjaldið var 1.000 krónur í tuttugu ár Reynslan af einkaframkvæmd er jákvæð, segir ráðherra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fögnuður Hinn ítalski Lucka Ercole var fyrstur manna til að aka gjaldfrjálst í gegnum Hvalfjarðargöngin og fékk að auki blómvönd frá Sigurði Inga
Jóhannssyni samgönguráðherra, sem síðastur greiddi fyrir gangaferð. Milli þeirra er fyrir miðju Heimir Már Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2.
Gjaldskýlið Karl Karlsson og Sigrún Karlsdóttir voru á síðustu vaktinni.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ökutæki hafa farið alls tæplega 36
milljón ferðir um Hvalfjarðargöng
á þeim rúmlega 20 árum sem þau
hafa verið í notkun. Innheimt
veggjald frá upphafi er rúmlega 21
milljarður, án virðisaukaskatts.
Talan í gærmorgun var
35.834.647 ferðir frá upphafi, sam-
kvæmt upplýsingum Gylfa Þórðar-
sonar forstjóra Spalar.
Mest umferð á ári var 2017,
2.549.994 ferðir. Mest umferð í ein-
um mánuði var í júlí 2017, alls
307.672 ferðir. Í þeim mánuði var
umferð yfir 8.000 ferðir alla daga
nema einn. Mest umferð á sólar-
hring var 21. júlí 2017, eða 13.325
ferðir.
Tilkoma Hvalfjarðarganga hefur
haft mikil áhrif á íbúaþróun í ná-
grenni þeirra. Til sannindamerkis
má nefna að árið 1998, árið sem
göngin voru opnuð, voru íbúar
Reykjavíkur 106.753. Árið 2018
voru þeir orðnir 126.041. Aukn-
ingin á 20 árum er 18,1%. Árið 1998
voru íbúar á Akranesi 5.125 talsins.
Árið 2018 eru þeir orðnir 7.259.
Aukningin er 41,6%. Íbúaþróun á
Akranesi er talin vera að stórum
hluta vegna Hvalfjarðarganga.
Möguleg jarðgöng undir Hval-
fjörð komast í fyrsta sinn á prent í
opinberri skýrslu árið 1972. Nefnd
á vegum samgönguráðherra nefndi
botngöng eða jarðgöng sem mögu-
leika til að bæta samgöngur milli
höfuðborgarsvæðisins og Vestur-
lands.
Nefnd samgönguráðherra um
langtímaáætlanir í jarðgangagerð
nefnir í skýrslu árið 1987 að miklar
líkur séu á að jarðgöng undir Hval-
fjörð verði þjóðhagslega hagkvæm.
Hreinn Haraldsson, síðar vega-
málastjóri, kynnir fyrstu útreikn-
inga og rannsóknaráætlun fyrir
Hvalfjarðargöng.
Jarðgangagerð hófst 1996
Hlutafélagið Spölur var stofnað
árið 1991. Spölur bauð verkið út ár-
ið 1994 og jarðgangagerð hófst árið
1996. Fossvirki sf. var verktaki í
Hvalfjarðargöngum. Fyrirtækið
var sameignarfélag Ístaks hf.,
sænska verktakafyrirtækisins
Skanska AB og danska verktaka-
fyrirtækisins E. Pihl & Søn AS.
Laugardaginn 11. júlí 1998 voru
Hvalfjarðargöng opnuð til umferð-
ar við hátíðlega athöfn beggja
vegna fjarðar. Hvalfjarðargöngin
voru fyrstu neðansjávargöngin á Ís-
landi og fyrsta einkaframkvæmd í
íslensku vegakerfi.
Spölur mun afhenda ríkinu Hval-
fjarðargöng til eignar og rekstrar
við formlega athöfn við norður-
munna ganganna á morgun, sunnu-
daginn 30. september kl. 15.
36 milljónir ferða
undir fjörðinn
2017 metár í Hvalfjarðargöngum
21 milljarður innheimtur á 20 árum
Tímamót Ráðherra slökkti formlega á innheimtubúnaði ganganna í gær.
Aukið frelsi
– aukin hamingja
Helgarnámskeið 2.-4. nóvember 2018 með
Rósu Richter sálfræðingi og listmeðferðarfræðingi.
Námskeiðið hentar þér: ef þú hefur endurtekið reynt að breyta
óæskilegri hegðun eða mynstri en hefur svo dottið í sama farið aftur
og aftur. Með hjálp listarinnar og EMDR meðferð munum við hefja
mikilvæga úrvinnslu á því sem liggur á bak við vandann og byggja
upp nýja von og framtíðarsýn. EMDR (Eye Movement Desensitization
and Reprocessing) er viðurkennd sem hraðvirkasta leið til að vinna
úr erfiðum atburðum eða upplifunum sem hafa sett mark sitt á líf
okkar. Þú munt læra einfalda en mjög virka aðferð sem þú getur
notað eftir námskeiðið til að fást við erfiðar tilfinningar. Rósa mun
einnig kenna grunn í hugleiðslu og núvitund.
Hafa gaman, leika þér og sleppa tökunum. Það þarf ekki að vera leiðinlegt að vinna
í sjálfum sér, og langt í frá. Á námskeiðinu verður sungið, dansað, leirað, málað, hlegið
og sköpunarkraftinum gefinn laus taumur. Listin kallar fram allan tilfinningaskalann og
endurvekur barnið og skapandann sem býr innra með okkur.
Einnig er innifalið: ljúffengur og hollur matur, gisting í tvær nætur, aðgangur að baðhúsi
og sundlaugum. Verð pr. einstakling er 59.000 kr.
Rósa Richter sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur
Ljósmyndari: Helena Stefánsdóttir
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
Námskeið
2.-4. nóv.
2018