Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 11

Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 11
Verð 38.980 Stærðir 36-52 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar opinberra stofnana sem veita leyfi til fiskeldis funduðu í gær um stöðuna í sjókvíaeldi í Patreks- firði og Tálknafirði í kjölfar þess að úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála felldi úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til handa Arnarlaxi og Arctic Fish til eldis á samtals 17.500 tonnum af laxi. Engin niðurstaða var komin í gær um það hvað Mat- vælastofnum bæri að gera. Arnarlax fékk undir lok síðasta árs starfsleyfi Umhverfisstofnunar og rekstrarleyfi Matvælastofnunar til að auka eldið úr 3.000 tonnum í 10.700 tonn í þessum fjörðum. Jafn- framt fékk Arctic Sea Farm heimild sömu stofnana til að framleiða 6.800 tonn en fyrirtækið hafði ekki verið með starfsemi þar áður. Fyrirtækin voru búin að bíða lengi eftir leyfum og allt var sett á fullt. Arnarlax setti fyrstu seiðin út í sjókvíar á þessum staðsetningum sl. vor en Arctic Fish áformar að setja út seiði næsta vor. Bæði fyrirtækin eru með mikla seiðaframleiðslu í þeim tilgangi að auka framleiðsluna. Áttu að meta fleiri kosti Úrskurðarnefndin felldi úr gildi rekstrarleyfi beggja fyrirtækjanna, í kjölfar kæru náttúruverndar- samtaka, landeigenda og veiðirétt- arhafa á Norðvesturlandi. Rökin voru þau að aðeins hefðu verið met- in áhrif eins valkosts í umhverfis- mati. Því hefði matsskýrslan og álit Skipulagsstofnunar ekki verið lög- mæltur grundvöllur fyrir veitingu leyfa til framkvæmda. Ákvörðun Umhverfisstofnunar um veitingu starfsleyfis var einnig kærð en ekki liggur fyrir niðurstaða í því máli. Viktor Pálsson, forstöðumaður samhæfingarsviðs Matvælastofn- unar, segir að fundað hafi verið um málið í gær, meðal annars með fulltrúum Skipulagsstofnunar. Ekki sé komin niðurstaða í það hvernig beri að bregðast við. Spurður að því hvort Arnarlax þyrfti að slátra fiski upp úr sjókvíunum segir Viktor of snemmt að svara því og vísar í þá athugun sem unnið er að. Hann get- ur heldur ekki svarað því hvert sé gildi fyrra leyfis Arnarlax, sem unn- ið var eftir áður en leyfið var stækk- að. Viktor tekur undir þau orð að úr- skurðurinn kalli á breytt vinnu- brögð við útgáfu rekstrarleyfa. Mat- vælastofnun hafi byggt á áliti Skipulagsstofnunar. Ef starfsfólk Mast þurfi að fara sjálfstætt yfir umhverfismat kalli það á mikla vinnu og fjölgun starfsfólks. Sálarlausar ákvarðanir Kjartan Ólafsson, formaður stjórnar Arnarlax, segir að stjórn- endur fyrirtækisins séu að meta stöðuna og taki til þess næstu daga. Hann segir laxeldismenn uggandi yfir stöðunni. „Hvergi í því ferli sem áætlanir fyrirtækjanna hafa farið í gegnum Stofnanir og fyrir- tæki fara yfir stöðuna  Úrskurðarnefnd ógildir laxeldisleyfi í Patreks- og Tálknafirði  Óvíst um afleiðingar fyrir greinina Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slátrun Stór og fallegur lax úr vestfirskum sjókvíum bíður pökkunar. hefur verið nefnt að bera þurfi sam- an fleiri eldisaðferðir. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar kemur mér því algerlega í opna skjöldu,“ segir Einar K. Guðfinnsson, formaður Landssambands fiskeldisstöðva. Hann segist ekki þekkja fordæm- isgildi þessa úrskurðar gagnvart öðrum leyfum til sjókvíaeldis. Sveitarstjórnarfólk á Vestfjörðum og þingmenn Norðvesturkjördæmis bregðast hart við úrskurðinum. Pét- ur G. Markan, formaður stjórnar Vestfjarðastofu, segir að hann hafi mikil áhrif og líkir honum við ham- farir. Svo miklar afleiðingar hafi hann á atvinnulíf og þróun mannlífs. „Það er eins og stjórnsýslan og landspólitíkin sé búin að þróa með sér hæfileika til að taka sálarlausar ákvarðanir þar sem fólkið gleymist. Það er sálarlaus ákvörðun að aftur- kalla leyfi sem hefur þessar afleið- ingar vegna formgalla.“ Segir Pétur að Vestfirðingar hafi hugsað sér að byggja á fiskeldi til framtíðar. Búið sé að fjárfesta í greininni fyrir tugi milljarða og það skili sér inn í samfélagið á ýmsan hátt. Þessi ákvörðun hafi þær afleið- ingar að draga verði úr starfsemi og setji uppbygginguna úr jafnvægi. Þingmenn Norðvesturkjördæmis vilja að ríkis- stjórnin bregðist við úrskurði um ógildingu lax- eldisleyfa á Vestfjörðum. Annað hvort verði réttar- áhrifum úrskurðarins frestað með reglugerðar- breytingu á meðan farið er yfir málið eða fyrirkomulaginu breytt með lögum. Þingmannahóp- urinn fundaði í hádeginu í gær. „Við treystum því að ekki sé verið að setja vexti þessarra fyrirtækja skorður. Úrskurðurinn lýtur að langmestu leyti að stjórnsýslu stofnana,“ segir Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. „Þetta er grafalvarleg staða. Rekstrarleyfi er fellt úr gildi sem þýðir að í raun mega starfsmenn ekki fara út á kvíarnar til að fóðra fiskinn. Þetta hleypir uppbyggingu fiskeldis í mikla óvissu,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Vilja fresta áhrifum ÞINGMENN KJÖRDÆMISINS Haraldur Benediktsson Skoðið LAXDAL.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 Vatnsvarðar vetrar- yfirhafnir TÝNDUR Tígri, eins árs gulbröndótti kötturinn okkar er týndur. Hann hvarf seinni hluta föstudags 21. sep frá Efstalundi, í Garðarbæ. Hann er með brúna ól og fjólublátt merki með nafninu sínu, heimilisfangi og símanúmerinu okkar. Hann elskar heimilið sitt svo það er ekki líkt honum að fara að heiman og snúa ekki til baka. Íbúar í nágrenni við Efsta- lund, vinsamlega athugið hvort Tígra er að finna á lóðinni í kringum húsið ykkar, inn í bílskúr, inn í geymslu eða hvar svo sem köttur gæti mögulega hafa lokast inni. Værum innilega þakklát ef þið hefðuð augun opin fyrir okkur og ef finnið hann þá vinsamlega passið hann og hringið í síma 852 1203 eða 863 1205. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kjóll Kr. 6.900 Str. S-XXL - 2 litir Gísli Jónsson dr.med. Sérgrein hjartasjúkdómar og lyflækningar hefur flutt læknastofu sína frá Domus Medica á Álfaskeið 16, Hafnarfirði. Tímapantanir virka daga 9-17 í s. 517 05 05 Útsala Opið í dag kl. 12-15 Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 www.praxis.is • Opið mán. og mið. 13-17, fim. 16-18 • Síminn alltaf opinn 2870 Pantið vörulistahjá okkurpraxis@praxis.is 50% afsláttur af öllum úlpum Aðeins í dag, laugardag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.