Morgunblaðið - 29.09.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 29.09.2018, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 ✝ Guðjón VídalínMagnússon fæddist í Vest- mannaeyjum 28. febrúar 1986. Hann lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja í faðmi fjölskyldu sinnar 10. september 2018. Foreldrar hans eru Magnús Sigur- nýjas Magnússon, f. 26. maí 1956, og Sigurlína Sigurjóns- dóttir, f. 15. maí 1959. Systkini Guðjóns eru: Signý Magnús- dóttir, f. 22 febrúar 1978, Birg- ir Magnússon, f. 5. júlí 1984, og Magnús Sigurnýjas Magnússon, f. 27. nóvember 2002. Guðjón skilur eftir sig einn son, Tómas Inga, f. 2.9. 2011, móðir hans er Alexandra Evu- dóttir, f. 17. nóvember 1990. Guðjón fór ung- ur út í atvinnulífið. Hann vann hjá Vélaverkstæðinu Þór frá 16 ára aldri auk þess að stunda sjónmennsku um tíma. Útför Guðjóns fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum í dag, 29. september 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. Þú fæddist klukkan 3 að nóttu hinn 28. febrúar 1986. Systir þín fór í fýlu, hún vildi stelpu en ekki strák. Samband ykkar stórlagaðist þegar aldurinn færðist yfir. Flestar ákvarðanir varð að bera undir Signýju til að tryggja að þær væru réttar. Stóri bróðir þinn, sem var nærri tveggja ára, þurfti að teyma alla sem komu til að sýna þeim hann Gillagil. Þú sýndi þess fljótt merki að skapið var stórt, stundum. Þú varst frá fyrstu tíð mikill matmaður sem gaman var að gefa að borða. Seinn til gangs en fljótur að renna eftir að þú fórst að hlaupa um. Búhamarinn á þessum tíma iðaði af lífi, krakkar í öllum hús- um, alltaf nóg að snúast. Það var fótboltinn sem þú elskaðir, hraunið með sínum ævintýrum, það var ágætt að maður vissi ekki um sum þeirra fyrr en löngu seinna. Árin liðu og börnin uxu úr grasi. Þú fórst ungur að vinna, fyrst hjá pabba þínum, síðan í fiskvinnslu og 16 ára fórst þú að vinna hjá Vélaverkstæðinu Þór og vannst þar lengst. Vinnan átti vel við þig, þér fannst gaman að vera með púlsinn á því sem var að gerast. Varst á sjó í nokkra mán- uði sem kom undir þig fótunum og á vélsmíðaverkstæði í bænum á meðan þú dvaldir þar með þín- um. Þór var samt alltaf þinn stað- ur. Síðustu árin þegar þú varst í Ísfélaginu leið þér vel, vissulega erfitt en þú naust þess. Ekki má gleyma öllum þeim tíma sem þú eyddir í að hjálpa pabba þínum. Þau voru ófá handtökin, helgarn- ar og kvöldin sem þú gafst honum til að laga og gera við. Pabba þinn er viss um að kranabíllinn eigi eftir að sakna þín. Þú varst vand- virkur og vildir að hlutirnir pöss- uðu, þú þoldir ekkert slór. Árið 2011 eignaðist þú Tómas Inga. Tómas var þér allt, þú sást ekki sólina fyrir honum og varst fyrst faðir. Þið eydduð miklum tíma við leik og störf. Voru kósí- kvöldin ykkar umtöluð. Það var góð mynd, nammi, jafnvel bragðarefur og snakk og síðasta árið urðu það nú frekar kósíhelg- ar en kvöld. Þegar þú veiktist á síðasta ári var það þvílíkt högg, við vissum strax að þetta yrði erfitt. En verkaskiptinginn var einföld, þú ætlaðir að sjá um að berjast við krabbann, við áttum að sjáum um annað. Þú keyptir þér nýjan bíl, á honum ætlaðir þú að ferðast með Tómas um landið þegar sigurinn yrði unninn, en ekki fer allt eins og við viljum. Vissulega varstu hræddur, leiður, sorgmæddur og þreyttur en mest af öllu varstu leiður að geta ekki séð um Tómas. Nú er það okkar verk að styðja við hann og við munum hjálpast að við að gera það eins vel og við getum. Það er alltaf erfitt að kveðja og dauðinn er í huga okkar enda- punktur en ég trúi því að hann sé upphafið að öðru og meira. Vissu- lega náðir þú ekki að fara með Tómas þinn í ferðalagið um land- ið þitt og við munum ekki fá frá þér snap eða skilaboð – en þú ert farinn í ferðalag. Við munum hitt- ast seinna og þá munt þú leið- beina okkur um nýjar slóðir og hjálpa okkur að aðlagast nýjum aðstæðum. Ég veit að þú nýtur frelsisins laus við kvalir og pínu og gerir það sem þér finnst best, hreyfir þig og býrð þér gott heim- ili. Þín mamma og pabbi. Að skrifa minningarorð um litla bróður minn er eitthvað sem ég átti aldrei von á að þurfa að gera. Söknuðurinn er mikill en eftir standa minningarnar um yndislegan strák sem fór allt of snemma frá okkur. Ég á eftir að sakna þess að fá símtölin eða skilaboðin um að nú væri hann á leið í bæinn og það væri mikilvægt að hafa góðan mat, helst steik og ekki væri nú verra að fá smá rauðvín með. Aldrei átti ég von á því að eiga eftir að sakna tuðsins frá honum eða símtalanna um það hvort svör eða ráðleggingar Birgis bróður eða mömmu væru réttar. Í dag held ég að ég myndi gera hvað sem er til þess að fá slíkt símtal, heyra smá tuð og glettin skot á hina og þessa – allt í gamni gert. Hvað ég er þakklát fyrir ferð- irnar okkar saman og fríið okkar á Spáni sumarið 2017. Þar fund- um við veitingastað sem við vor- um svo sátt við að þeir voru eigin- lega ekki prófaðir fleiri í ferðinni. Þar fékkst góður matur, kaldur bjór og hann var með barnahorni fyrir krakkana. Þetta varð okkar staður „mundu systa, það var ég sem fann þennan stað“ sagði hann margoft og glotti. Honum líkaði það að hafa hlut- ina í rútínu, ekki vera að leita of langt yfir skammt, þarna var búið að finna það sem skipti máli, góð- an mat! Við fórum saman stór- fjölskyldan til Tenerife um síð- ustu páska. Í þeirri ferð kom vel í ljós úr hverju Guðjón var gerður, þrátt fyrir að vera mikið veikur þá fór hann með mér út að hlaupa, stundum þurfti nú aðeins að stoppa á veitingastaðnum hans og fá sér einn grænan drykk, mataráhuginn var aldrei langt undan. Hann lét ekki veikindin stoppa sig í því að gera tímann ógleymanlegan fyrir litla strák- inn sinn í þessari ferð, því það var það sem skipti öllu máli. Ég á líka eftir að sakna þess að hafa þá feðga hjá okkur um áramótin. „Systa, sagði hann alltaf, „þið verðið að hafa brennu, Tómas Ingi er svo spenntur fyrir því“. Elsku litli Tómas var alltaf efstur í huga. Guðjón var mikill fjölskyldu- maður. Hann langaði í stóra fjöl- skyldu og hefði hann sómt sér vel í því hlutverki eins og sást best á því hversu vel hann sinnti föður- hlutverkinu. Litli strákurinn var honum allt. Honum leið best með Tómasi, að borða góðan mat og enda daginn á því að horfa á mynd með Tómasi sínum. Eftir að Guðjón veiktist bjó hann hjá okkur í tvo mánuði. Í dag er þessi tími ómetanlegur. Við fórum út að labba á hverjum degi og áttum gott hversdagslíf saman. Það er svo auðvelt að vera reiður út í lífið, reiður yfir því að þetta skuli hafa verið örlögin en ég veit innst inni að það væri ekki það sem Guðjón myndi vilja. Hann hefði viljað að orkan færi í að halda utan um hvert annað og rifja upp minningar um tímann sem við fengum þó saman. Það er það veganesti sem ég ætla með áfram í lífið og leggja mig fram um að efna loforðið sem ég gaf honum, að tryggja það að Tómasi Inga líði vel. Í dag verð ég leið, en ég mun hugga mig við að þú ert laus við allar þjáningar. Á morgun mun ég halda af stað áfram út í lífið og leggja mig fram við að halda þeim minningum sem við eigum saman á lofti. Þín Systa alltaf, Signý Magnúsdóttir. Guðjón mágur minn er fallinn frá, langt fyrir aldur fram eftir snarpa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Ég minnist Guðjóns fyrst og fremst fyrir það hve traustur og áreiðanlegur hann var. Hann var vinur vina sinna, mikill fjöl- skyldumaður og tók föðurhlut- verkið mjög alvarlega, var pabbi fram í fingurgóma. Guðjón var gríðarlega dugleg- ur og vinnusamur. Það var bæði gaman og krefjandi að fá hann í heimsókn til okkar Signýjar í Reykjavík. Yfirleitt hringdi hann á undan sér og pantaði steik og rauðvín. Skipti þá engu hvort það var laugardagur eða þriðjudagur, hann var í bæjarferð og það átti að hafa aðeins fyrir honum. Það var reyndar í góðu lagi þó að stundum fyndist manni þetta full- mikil tilætlunarsemi. Hann vann alltaf vel fyrir steikinni og var yfirleitt mættur snemma út í garð að vinna. Áður en við vissum af voru úti- hurðirnar komnar af hjörunum, upp á búkka og Guðjón byrjaður að pússa. Þá var bara að vinda sér í að finna lakk og hjálpa honum að klára verkið. Það var einhvern veginn þannig í þessum aðstæð- um, hann rauk af stað og gerðist sjálfskipaður verkstjóri. Svo var bara sest niður í kaffi- og mat- artímum, ekkert droll. Eftir svo- leiðis daga er líka allt í góðu lagi að verðlauna sig með góðri steik. Ef maður stóð sig ekki með eitt- hvað að hans mati þá var maður auðvitað bara „með allt í skrúf- unni“ eins og hann orðaði það. Það var stutt í sjóarann í Guðjóni, honum lá hátt rómur og lét heyra í sér ef hann var ósáttur við eitt- hvað. Til dæmis ef kaffið var ekki nógu heitt (við suðumark) eða bjórinn nógu kaldur (við frost- mark) þá lét hann vita af því hátt og skýrt, hvort sem hann var gestur í heimahúsi eða á veitinga- húsi. Þegar Guðjón dvaldi hjá okkur í nokkrar vikur eftir skurðaðgerð fyrir um ári síðan sótti hann ein- mitt kaffihúsið í hverfinu stíft, kallaði það kaffihúsið sitt. Sama gilti um veitingastað á Spáni þeg- ar við fórum þangað saman í frí í fyrrasumar, það var yfirleitt farið á sama veitingastaðinn, veitinga- staðinn hans. Gilti þá einu hvort hann kom þangað fyrst eða ekki, honum líkaði staðurinn og stað- urinn var hans. Þetta eru góð dæmi um tryggð Guðjóns og kannski ákveðna sérvisku líka. Hann bjó alla tíð í Vestmanna- eyjum, hann var afskaplega tryggur ömmu sinni á meðan hún lifði, hann var tryggur sínum vinnuveitendum og leitaði gjarn- an ráða hjá fjölskyldumeðlimum með stórt sem smátt. Hann treysti þeim sem stóðu honum nærri. Mér gáfust góð og dýrmæt tækifæri til að verja tíma með Guðjóni, sérstaklega síðastliðið eitt og hálfa árið. Skemmtilegast- ir voru golfhringirnir sem við tók- um á Spáni í fyrrasumar og á Te- nerife um síðastliðna páska. Hann naut þess í botn að spila þessa velli og ég mun lifa lengi á því að hafa átt möguleika á að upplifa það með honum. Í dag fylgjum við Guðjóni síð- asta spölinn. Eftir stendur minn- ingin um góðan dreng sem fór frá okkur allt of snemma. Hvíl í friði, elsku vinur, Hermann Guðmundsson. Elsku drengurinn minn, ég er að reyna að koma orðum á blað, sit niðri í klefanum mínum úti á sjó, búinn að hlusta á Wild Horses með Rolling Stones tutt- ugu sinnum á endurspilun og sé ekki út um gleraugun fyrir tár- um. Þrátt fyrir að vera búinn að kveðja þig fyrir hvern einasta túr sem ég fór á sjó, vera vel upp- lýstur og undirbúinn, þá er bara svo sárt að fá þær fregnir að þú sért farinn. Þegar við vorum ungir kom mjög fljótt í ljós hvaða mann þú hafðir að geyma, varst góður í öllu sem þú tókst þér fyrir hend- ur, hvort sem það var fótbolti, hjólabretti eða hvað sem er. Þið bræðurnir hafið alltaf verið duglegir að vinna og eruð dugleg- ustu strákar sem ég veit um. Það var ekkert annað í boði, þegar þið voruð yngri, en að mæta í vinnu eftir skóla í flutningaþjónustu Magnúsar, sem pabbi ykkar og mamma ráku, og hjálpa til. Öll árin okkar saman í Véla- verkstæði Þórs voru ómetanleg, þar sem við vorum mótaðir af Jósúa Steinari, Edda, Einari Ottó og mörgum öðrum, sem kenndu okkur að smíða færibönd og allt sem viðkom stáli, en þó aðallega að rífa kjaft og svara fyrir okkur, eða eins og Jósi sagði alltaf: „Þeir sem ekki svara fyrir sig hafa ekki neinn persónuleika!“ Það vantaði ekkert upp á það hjá okkur, sér- staklega þér, þú gast alltaf svarað fyrir þig og það skipti engu máli hvern þú varst að tala við eða hvort þú hefðir rétt fyrir þér; þú hækkaðir bara róminn og labb- aðir svo í burtu, alveg handviss um að hafa kaffært viðkomandi. Þegar kom að stelpum vantaði mig oft bara popp og kók á meðan ég horfði á þig henda fram gull- hömrum eins og „hvað er að frétta af pabba þínum“ eða kall- aðir stelpurnar nafni pabba síns, mjög fyndnar pickup-línur sem gerðu lítið gagn. Þær stelpur sem þekktu þig urðu bálskotnar í þér af því að þú varst eðalstrákur með allt á hreinu, klár og vel gefinn. Á ákveðnum tímapunkti minnkaði samband okkar þrátt fyrir að hafa unnið saman alla daga og verið saman allar helgar því ég flutti til Reykjavíkur og bjó þar m.a. með Birgi bróður þínum um tíma, en flutti sem bet- ur fer aftur heim til Eyja og fór á sjóinn. Þú fórst að búa og eignaðist Tómas Inga og föðurhlutverkið fór þér afar vel, þú gerðir alltaf allt fyrir strákinn þinn og hann er heppinn að hafa átt þig. Pottþétt- ari manni hef ég aldrei áður kynnst, snyrtimennskan upp á tíu, alltaf vel tilhafður, nýklippt- ur, með sjampólykt og gel í hárinu. Þrátt fyrir að ég væri mikið á sjó í gegnum veikindin leyfðirðu mér að fylgjast vel með og við töl- uðum mikið saman. Ég var hræddastur um að krabbameinið næði yfirhöndinni, sem það svo gerði. Söknuðurinn verður alltaf gíf- urlega mikill og ég mun aldrei gleyma hlátrinum, töktunum og dugnaðinum sem einkenndi þig og þinn einstaka persónuleika. Minning þín mun alltaf lifa, elsku karlinn minn. Þinn vinur, Sveinbjörn Óðinsson (Svenni). Guðjón Vídalín Magnússon Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag. Okkar ástkæra RANNVEIG JÓNSDÓTTIR, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, áður Kleppsvegi 6, Reykjavík, lést aðfaranótt 25. september. Útför hennar verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda og vina, Helga Loftsdóttir Sigurbjörn Þorbergsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN AGNES SAMSONARDÓTTIR, Ninna, skólaritari, frá Þingeyri, lést á líknardeild Landspítalans 25. september. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju, fimmtudaginn 4. október klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans. Linda Samsonar Gísladóttir Örn Smári Gíslason Sigrún Gunnsteinsdóttir Davíð Gíslason Benjamín Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARDÍS ÓLÖF ARELÍUSDÓTTIR, Skagaströnd, sem lést á hjúkrunarheimilun Sæborg miðvikudaginn 12. september, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 5. október klukkan 14. Börn, tengdabörn og ömmubörn Ástkær móðir mín, ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 20. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánu- daginn 1. október klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarsjóð langveikra barna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðjón Ágúst Luther

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.