Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
Með ástúð og kærleik þú allt að þér
vafðir
og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir
þótt móðuna miklu þú farin sért yfir
þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir.
Við kveðjum þig, amma, með söknuð í
hjarta,
en minning um faðmlag og brosið þitt
bjarta.
Allar liðnar stundir um þig okkur
dreymi
og algóður Guð á himnum þig geymi.
(Sigfríður Sigurjónsdóttir)
Þín ömmubörn,
Sigrún Magnúsdóttir,
Kristinn Magnússon og
Erla Magnúsdóttir.
Hjartans amma.
Amma okkar var ótrúleg kona,
ósérhlífin, vinnusöm, hjartahlý og
sterk. Það var alltaf gott að koma
til ömmu og afa í Goðheimum þar
sem þau hugsuðu svo vel um okk-
ur barnabörnin. Þau voru afskap-
lega samheldin hjón og studdu
börn og barnabörn í einu og öllu
og gáfu okkur þessi einstöku fjöl-
skyldubönd sem við stórfjölskyld-
an eigum. Við frænkurnar áttum
þar náttfatapartí og svo má ekki
gleyma sleikjóunum, sem barna-
börnin fengu ávallt þegar þau
komu í heimsókn í Goðheimana,
og kókópöffsinu í hornskápnum í
eldhúsinu.
Amma okkar var algjör dugn-
aðarforkur. Hún fór í Húsmæðra-
skólann á Hallormsstað og var til
fyrirmyndar sem húsmóðir sem ól
upp sjö börn og vann jafnframt
alla tíð og kvartaði aldrei, sama
hvað gekk á. Hún var mikil fé-
lagsvera, vildi helst ekki missa af
afmæli í fjölskyldu sem telur um
100 manns og var yfirleitt hrókur
alls fagnaðar. Við minnumst þess í
brúðkaupi einu þegar amma var á
níræðisaldri, klukkan að ganga
tvö um nótt og allir að bjóðast til
að keyra hana heim, hvort hún
væri ekki þreytt. Þá svarar amma;
„Nei, hér er gaman.“
Amma hafði einstaklega hlý-
legt bros sem yljaði um hjartaræt-
ur. Við stelpurnar í fjölskyldunni
áttum með henni margar stundir
þar sem hún spáði fyrir okkur í
bolla og við nutum þess að sitja við
hlið hennar og velta fyrir okkur
framtíðinni. Það var alltaf bjartur
bolli. Á Þorláksmessu hafði hún
þá hefð að halda skötuveislu fyrir
karlmennina í fjölskyldunni. Þar
sem mikið var hlegið og haft gam-
an.
Hún var einstaklega gjafmild
og oftar en ekki bjó hún sjálf til
gjafirnar handa afkomendunum
en hún var einkar handlagin. Hún
prjónaði lopapeysur á fjölskyld-
una og til sölu, málaði mörg mál-
verkin og á postulín svo eitthvað
sé nefnt.
Hjá henni var alltaf verk í
vinnslu á trönunum þegar maður
kíkti í kaffi á Lindargötuna. Fram
á síðasta dag undi hún sér við
handverkið.
Að vera skírð í höfuðið á ömmu
sinni er gjöf sem Fjóla fær seint
fullþakkað og þykir einkar vænt
um. Það hefur veitt henni styrk
alla tíð.
Í minningunni er amma okkar
alltaf brosandi og hlæjandi, og
þannig munum við minnast henn-
ar með elsku.
Hvíl í friði, elsku amma.
Fjóla, Jóhannes og Heiðrún.
Elsku amma Fjóla.
Þú skilur eftir ótal margar
minningar hjá okkur systkinunum
en það var alltaf svo notalegt að
koma til þín í heimsókn og þú
tókst svo vel á móti okkur. Okkur
þykir mjög vænt um allar fallegu
stundirnar sem við áttum saman
og þegar við hugsum til baka
munum við alltaf eftir þér með
bros á vör. Þú varst hrókur alls
fagnaðar og þar sem amma Fjóla
var, þar var sko gaman. Hvort
sem við vorum í skemmtilegum
matarboðum hjá mömmu og
pabba, í hörku baráttu í rommý
eða á ferð um landið var ómetan-
legt að eiga ferðafélaga á lífsins
leið og ömmu eins og þig. Þú varst
listakona mikil og skilur eftir þig
fullt af fallegum munum sem eru
okkur mjög dýrmætir.
Við kveðjum þig, elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Við kveðjum þig með miklum
söknuði,
Guðlín, Bryndís og Pálmi.
Elsku amma Fjóla
Við vorum leið þegar við frétt-
um að þú værir dáin og grétum.
Það var gaman þegar amma
hélt upp á 90 ára afmælisdaginn
sinn, þá var hún svo glöð. Við vor-
um glöð þegar við hittum hana og
hversu mikið hún knúsaði okkur
alltaf. Það var alltaf gaman að
koma í heimsókn til hennar á
Lindargötu og á elliheimilið.
Amma var ósköp falleg og með
falleg augu.
Takk fyrir að vera góð amma
og hugsa vel um okkur.
Þín langömmubörn,
Una Jódís og Kristján Týr.
Elsku langamma.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minninar streyma
um hjörtu þau, er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið mesta gafst þú hverju sinni.
Þinn traustur faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra,
nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá,
í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við söknum þín.
Jakob Þór, Guðrún Perla,
Bragi Þór og Manúela Ýr.
Fjóla og Hrefna móðir mín
voru skólasystur frá húsmæðra-
skólanum á Hallormsstað og voru
vinkonur alla tíð síðan. Alltaf gist-
um við fjölskyldan frá Fagradal
hjá Fjólu og Kristni manni hennar
í Goðheimunum þegar við fórum
til borgarinnar. Þau áttu sjö börn
en alltaf var pláss fyrir okkur og
líka vel tekið á móti okkur því
gestrisin voru þau hjón.
Að ganga með sjö börn og ann-
ast þau er ekki einfalt verkefni,
það gerði Fjóla með sóma. Hún
varð fyrir þeirri hræðilegu lífs-
reynslu að missa hana fallegu
dóttur sína, Svövu, á besta aldri.
Kristin mann sinn lifði hún líka.
Mér fannst þau alltaf vera svo ást-
fangin.
Mamma og Fjóla voru snilling-
ar að sauma föt, saumuðu saman
og fallegur var fermingarkjóllinn
minn. Og alltaf fór Fjóla með
mömmu í kvenfataverslunina
Verðlistann því engar voru þannig
verslanir í sveitinni.
Þrjú börnin hennar voru sum-
arlangt hjá okkur í Fagradal
hvert á eftir öðru, Pálína, Magnús
og Reynir, og á ég góðar og
skemmtilegar minningar frá þeim
sumrum.
Börnum hennar öllum og að-
standendum votta ég samúð mína,
góð og falleg kona er farin frá okk-
ur en minning hennar mun ætíð
lifa í huga okkar.
Ólöf Þóra Steinólfsdóttir.
✝ Ingibjörg Sum-arliðadóttir
fæddist í Viðvík á
Hellissandi 18. júlí
1931. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Brákarhlíð í
Borgarnesi 12.
september 2018.
Foreldrar Ingi-
bjargar voru hjónin
Matthildur G.
Rögnvaldsdóttir, f.
18. júlí 1908 í Fagradalstungu í
Saurbæ, d. 12 júní 2001, og Sum-
arliði Andrésson, f. 25. apríl
1901 í Lindarbrekku á Hellnum,
d. 10. ágúst 1969. Systur Ingi-
bjargar: 1) Guðrún Sumar-
liðadóttir, f. 5 mars 1930, d. 4.
nóvember 2004, gift Leó Ott-
ósyni, f. 16 mars 1930, d. 28. des-
ember 1998. 2) Svana Sumar-
liðadóttir, f. 11. september 1942,
gift Magnúsi G. Davíðssyni, f.
11. apríl 1945.
Eiginmaður Ingibjargar var
Svavar K. Kristjánsson veitinga-
maður, f. 29. júlí
1913, d. 16. október
1978. Ingibjörg og
Svavar eignuðust
fjögur börn: 1) Son-
ur, f. 6. september
1955, d. 9. sept
1955. 2) Sunna
Hildur, f. 15, des-
ember 1957, d. 27.
janúar 1979. 3)
Helga Nína, f. 12
september 1959,
gift Inga Þ. Ólafssyni, f. 10.
október 1946. 4) Svava Björg, f.
18. desember 1965, gift Guð-
mundi V. Guðsteinssyni, f. 12.
febrúar 1967. Barnabörn Ingi-
bjargar eru orðin sex og lang-
ömmubörnin eru sex. Svavar,
eiginmaður Ingibjargar, eign-
aðist fimm börn í fyrra hjóna-
bandi, þau eru: 1) Garðar, 2)
Hreiðar, 3) Edda, 4) Smári, 5)
Hulda.
Útför Ingibjargar fór fram
frá Borgarneskirkju 20. septen-
ber 2018.
Gott er ein með guði að vaka,
gráta hljótt og minnast þín,
þegar annar ylur dvín,-
seiða liðið líf til baka,
og láta huggast, systur mín!
Ennþá blærinn ástarþýði
andar sálu þinni frá,
ennþá heyri ég hjarta slá;
– enn mig styrkja í innra stríði
augu djúp og göfug brá.
Við skulum leiðast eilífð alla,
– aldrei sigur lífsins dvín.
Ég sé þig, elsku systir mín.
Gott er þreyttu höfði að halla
að hjarta guðs – og minnast þín.
( Jóhannes úr Kötlum)
Kveðja.
Þín systir,
Svana
Sumarliðadóttir.
Ingibjörg
Sumarliðadóttir
Minn kæri vinur
Gunni Már er lát-
inn langt um aldur
fram, ekki orðinn
60 ára, þetta eru hræðilegar
fréttir en ekki óvæntar. Gunni
var búinn að vera veikur í
nokkur ár og við sem þekktum
hann vissum að þetta var alvar-
legt.
Gunnari kynntist ég þegar
hann kom í vinnu til okkar í
Vöku sennilega í kringum 1980.
Hann vann alltaf hjá SVR, síð-
ar Strætó, en var alltaf talsvert
í aukavinnu hjá okkur. Alltaf
hress og skemmtilegri vinnu-
félaga var ekki hægt að hugsa
sér. Einnig voru okkar áhuga-
mál lík á þessum árum. Við fór-
um í allmargar jeppaferðir
saman, t.d. alltaf inn í Land-
mannalaugar á hverju ári.
Þessar ferðir voru ógleyman-
Gunnar Már
Jóhannsson
✝ Gunnar MárJóhannsson
fæddist 5. október
1958. Hann lést 14.
september 2018.
Útför Gunnars var
gerð 25. september
2018.
legar. Einnig fór-
um við á Grímsfjall
fyrir sirka 18 árum
og var sú ferð erf-
ið. Bíllinn hans
Gunna braut öxul
eftir að færðin var
orðin ansi þung og
síðan varð ég að
skilja minn bíl eftir
til þess að við
kæmumst í skál-
ann. Mig minnir að
Gunni hafi náð sínum bíl til
byggða í þriðju tilraun, við vor-
um voða montnir af okkar bíl-
um sem voru Dodge Van-sendi-
bílar á 38“ dekkjum. Minn bíll
var bara með stærri vél, ég var
með 360 en hann bara 318.
Það eru sannarlega stór
skörð komin í hópinn sem vann
í Vöku í kringum síðustu alda-
mót. Í vor dó Pálmi Guðmunds-
son og nú Gunni Már, báðir
ekki orðnir sextugir.
Að lokum vil ég bara segja
að Gunni Már var sannur vinur.
Elsku Helga, Sigríður og Ósk-
ar, ykkar missir er mikill. Inni-
legustu samúðarkveðjur frá
mér og Sigrúnu.
Steinar Már Gunnsteinsson.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær bróðir okkar, mágur, frændi
og unnusti,
REIDAR ÓSKARSSON,
Rafnkelsstaðavegi 8, Garði,
lést á Hvammstanga þriðjudaginn
18. september. Útför verður frá
Útskálakirkju í Garði fimmtudaginn 4. október klukkan 14.
Þórdís Husby Örlygur Þorkelsson
Ragnar M. Husby Edda Baldvinsdóttir
frændsystkini
og Laufey Sigurðardóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTÍN ÓLA KARLSDÓTTIR
frá Háfi í Djúpárhreppi,
lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu,
31. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins Lundar á
Hellu fyrir góða umönnun.
Guðbjörg Ólafsdóttir Vilhjálmur Þórarinsson
Fannar Ólafsson Hulda Pétursdóttir
Hallur Ólafsson Steinunn Jónsdóttir
Karl Ólafsson Kristín Guðmundsdóttir
Hólmfríður Ólafsdóttir
Þorkell Ólafsson Inga Geirsdóttir
Þórarinn Ólafsson
Sævar Ólafsson
Guðmundur Ólafsson
Magnús Ólafsson Elín Gestsdóttir
og afkomendur
Ástkæri maðurinn minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON
framkvæmdastjóri
öryggismála Securitas,
Lyngprýði 2, Garðabæ,
lést á krabbameinsdeild LSH að kvöldi
fimmtudagsins 20. september umkringdur ástvinum sínum.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 3. október
klukkan 13.
Sérstakar þakkir færum við öllu því yndislega starfsfólki sem
annaðist hann af alúð.
Sigríður Huld Konráðsdóttir
Guðmundur Örn Árnason Elísabet Mary Arnaldsdóttir
Erla María Árnadóttir Róbert Karl Hlöðversson
Íris Björk Árnadóttir Kristján Jón Jónatansson
Unnur Svanborg Árnadóttir
Sigríður Hulda Árnadóttir Sveinbjörn Claessen
Árni Konráð Árnason Birgitta Björt Garðarsdóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Stekkjarholti 22, Akranesi,
andaðist á Höfða, dvalar- og hjúkrunar-
heimili, 25. september.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
11. október klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Höfða, dvalar- og
hjúkrunarheimili, Akranesi.
Drífa Garðarsdóttir Jóhannes Eyleifsson
Skúli Bergmann Garðarsson Lilja Kristófersdóttir
Halldóra Garðarsdóttir Gunnlaugur Sölvason
Guðrún Garðarsdóttir Karl Örn Karlsson
Friðgerður Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VALUR AÐALSTEINN JÓHANNESSON,
Skeiðarvogi 141, Reykjavík,
lést 22. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 5. október klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu
minnast hans er bent á MS-félag Íslands.
Sigrún Pétursdóttir
Emma Ingibjörg Valsdóttir Valtýr Björn Thors
Þóra Valsdóttir Ronald P.F. Janssen
Pétur Valsson Björn Erlingur Flóki Björnsson
Pétur Valur, Tomas og Daníel