Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Það stendur mjög mikið til því ég verð með þrjú afmæli,“ segir ÍrisÓlöf Sigurjónsdóttir textíllistamaður, en hún á 60 ára afmæli ídag. „Ég bý á Laugasteini í Svarfaðardal á sumrin og verð með
boð þar í dag. Svo flyt ég á mánudaginn suður til vetrardvalar og verð
með boð í Reykjavík 5. október og af því að þetta eru bæði kvennaboð
þá býð ég sonum, bræðrum, mágum og svilum í súpu og snaps laugar-
daginn 6. Þá fæ ég að vera ein með köllunum.“
Íris Ólöf hefur verið forstöðumaður byggðasafnsins Hvols á Dalvík
undanfarin 16 ár en sagði upp 1. september síðastliðinn. „Ég er að fara
að kenna eina önn í Myndlistaskólanum í Reykjavík, ég hef ekki kennt
áður en er með kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Svo erum við
nokkrir listamenn að fara að opna sölusíðu á netinu. Það er því margt í
bígerð.“
Auk þess að vera textíllistamaður og með kennararéttindi er Íris Ólöf
textílforvörður, en þeir passa upp á að textílar séu varðveittir með ýms-
um aðferðum og koma í veg í fyrir frekari skemmdir á þeim. „Ég er því
textílkona fram í fingurgóma, en svo finnst mér mjög gaman að útivist
og söng en ég er í Söngfjelaginu.“
Eiginmaður Írisar Ólafar er Hjörleifur Hjartarson tónlistarmaður og
börn hennar eru Ragnheiður Jónsdóttir tónmeistari, Árni Jónsson
myndlistarmaður og Finnbogi Jónsson, sem er í veitingabransanum,
Stjúpbörn Írisar Ólafar eru Grímur Jónsson stærðfræðingur, Ása
Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndaleikstjóri, Baldur Hjörleifsson tónlist-
armaður, Hjörtur Hjörleifsson tónlistarmaður og Árni Hjörleifsson
nemi. „Svo er komið eitt barnabarn sem heitir Pétur Vésteinn Gunnars-
son og er Ása Helga móðir hans. Þetta er ein stór og góð fjölskylda.“
Á Dalvík Frá vinstri: Íris Ólöf, Gunnar, Ása Helga, Pétur Vésteinn,
Hjörleifur, Ragnheiður, Árni, Finnbogi og Baldur.
Ætlar að halda
þrjú afmælisboð
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir er sextug í dag
B
jörgvin Friðgeir Magn-
ússon fæddist í Reykja-
vík 29.9. 1923 og ólst
fyrst upp í Skugga-
hverfinu, á Smiðjustíg
10: „Það urðu snemma þáttaskil í
mínu lífi því móðir mín lést úr berkl-
um 23 ára er ég var fjögurra ára. En
það var lán í þessum harmleik að
móðurforeldar mínir tóku mig í fóst-
ur, Magnús Vigfússon, verkstjóri
hjá Reykjavíkurbæ.og Sólveig Jóns-
dóttir. Þau áttu jörðina Kirkjuból
við Laugarnesveg og þar ólst ég
upp. Þá var Laugarneshverfið
byggðakjarni í nágrenni bæjarins
sem samanstóð helst af byggð við
þessa löngu götu.
Ég missti hins vegar samband við
föður minn og systkini en ólst upp
með Jóni Björgvinssyni sem afi og
amma tóku í fóstur er hann var árs-
gamall. Við Jón vorum tvöfaldir
Björgvin F. Magnússon, fyrrv. skólastjóri – 95 ára
Á Bessastöðum Björgvin fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir nokkrum árum en Edda, dóttir hans, var
sæmd orðunni sl. sumar. Hér er Björgvin, ásamt Eddu, barnabörnunum og langafabörnum og forseta Íslands og frú.
Eitt sinn og ávallt skáti –
bjartsýnn og tillitssamur
Morgunblaðið/Eggert
Í vinnunni Björgvin mætir enn til vinnu hjá Viðlagatryggingum, 95 ára.
Reykjavík Luna Dua Dreaj
fæddist 14. október 2017
kl. 5.05. Hún vó 3.015 g og
var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Rajmonda
Aníta Zogaj og Valon Dreaj.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is