Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
100% Merino ull
Þægileg ullarnærföt á góðu verði
Stærðir: S – XXL
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA Þegar frost
er á fróni
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Heimkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri
Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum
Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Höfn • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samræður við vini verða ánægjulegar
í dag en munu samt sem áður koma á óvart.
Stundum breytast hugsanir manns og svo
breytist maður sjálfur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hættir til að vera of föst/fastur fyrir
og það leggur stein í götu þína. Vertu lítillát/
ur, ljúf/ur og kát/ur og þá mun þér farnast vel
á öllum sviðum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er eitt og annað í gangi í fé-
lagslífinu en þig langar meir til þess að halda
þig til hlés. Sýndu dugnað í starfi og dirfsku í
persónulegum málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kann að kosta þig mikla vinnu að
komast fyrir allar staðreyndir ákveðins máls.
Það getur kostað málamiðlanir að leita til
annarra um framkvæmd hluta.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er tíminn til að viðra vandamál sem
þú hefur lengi falið. Vertu hvergi smeyk/ur því
þú ert með allt þitt á hreinu. Treystu skilning-
arvitunum ef ósamkvæmar upplýsingar eru
bornar á borð fyrir þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fólk sem er að reyna að ganga í augun
á þér móðgar þig hugsanlega alveg óvart. Þér
finnast þetta vera erfiðir tímar og þú átt bágt
með að einbeita þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hætt við deilum innan fjölskyld-
unnar í dag því fólk stendur fast á sínu. Ein-
beittu þér að markmiðum þínum og láttu allar
neikvæðar hugsanir lönd og leið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þegar yfirmaðurinn getur ekki
verið nákvæmur í skipunum er ekkert við því
að gera nema nota ímyndunaraflið. Sumt er
manni ekki gefið að skilja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Villtustu draumar þínir geta ræst.
Þú þarft á hvíld að halda og hefðir gott af því
að njóta samvista við vini þína og fjölskyldu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Búðu þig undir að dagurinn verði
alls ekki eins og þú ætlar þér. Taktu ekki af-
stöðu í deilu sem geisar nú á vinnustað þínum
og vertu ekki of hörð/harður við sjálfa/n þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Besta ráðlegging dagsins er að
einbeita sér að sínum skyldum og ábyrgð.
Sýndu umburðarlyndi og þolinmæði í sam-
skiptum þínum í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að haga væntingum þín-
um alltaf í samræmi við það sem þú veist
mögulegt. Stundum er rétta aðferðin sú að
þoka sér áfram skref fyrir skref.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Fylki sínum fylgir glaður.
Flokknum trúr er þessi maður.
Býr í þínu brjósti og mínu.
Breytir jafnan skapi sínu.
Helgi R. Einarsson svarar:
Freista þess ég finni
falda lausn er kynni
felast mér í minni
og man nú eftir sinni.
Svar mitt:
Fylki sinni fylgir glaður.
Flokks er sinni þessi maður.
Merkir líka sinni sefi.
Sinni margoft skipt ég hefi.
Þá er limra:
Hann Drómundur gamli á Dröngum
var dapur í sinni löngum
og einmana æ,
fór aldrei af bæ,
en sat þar í sínum öngum
Og að lokum er ný gáta eftir Guð-
mund:
Morgunstundin, mild og hlý,
manni kemur gott skap í,
sólin skín um borg og bý,
birtist gáta enn á ný:
Harla síð á herra flík.
Hæfir tíðum svanna slík.
Missa breyskur klerkur kann.
Kenna má á sjónum þann.
Hér er limra eftir Helga R. Ein-
arsson, „Óhappið“:
Það bárust að Guðnýju böndin
er yfirgaf gjaldkerann öndin.
Það var af því
að þrengingum í
henni laus var oft höndin.
Þessi staka Jóns S. Bergmann er
aldrei of oft kveðin:
Klónni slaka ég aldrei á
undan blaki af hrinu,
þótt mig hrakið hafi frá
hæsta takmarkinu.
Síra Sveinn Skúlason orti:
Sárbeitt eru syndagjöld,
sjón og heyrnin dvínar,
örðugt gera ævikvöld
æskubrellur mínar.
Gömul vísa í lokin:
Komdu hingað, kona góð,
og kættu mig í geði.
Þér á ég að þakka, fljóð,
það sem ég hef af gleði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fæstir vita framenda sinni
Í klípu
„EINHVER ALVARLEG HLIÐARÁHRIF?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ ER PÍSKURINN MINN AÐ GERA
HÉRNA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fyrsti leikurinn hans!
HÆ, MAMMA. VEISTU HVAÐ?
ÉG Á KÆRUSTU!
HALLÓ? HALLÓ?
HVAÐ GERÐIST?
MAMMA DATT MEÐ ANDLITIÐ
Í KARTÖFLUSTÖPPUNA
MIG HEFUR
DREYMT UM
ÞAÐ
UM MIÐNÆTTI Í GÆR VAR ÉG
MEÐ KONU DRAUMA
MINNA!
HVENÆR
HITTIRÐU
HANA
NÆST?
VONANDI UM TÍU Í KVÖLD, ÞEGAR ÉG VERÐ
NÝSOFNAÐUR!
Víkverji var fyrir skömmu á ferðinniá þjóðvegum landsins. Umferð
var nokkuð þung, en þó ekki þannig að
ylli töfum. Á móti honum kom dráttar-
vél, sem eðli málsins samkvæmt var
ekið nokkuð undir hámarkshraða. Það
getur verið þolinmæðisverk að aka
fyrir aftan dráttarvél, jafnvel þótt það
sé sunnudagur, sól skíni í heiði og
haustlitir blasi við.
x x x
Skyndilega brast þolinmæði þess,sem næstur dráttarvélinni var,
og hann ákvað að drífa sig fram úr.
Lét hann sig einu varða um umferð-
ina, sem kom á móti. Fram úr skyldi
hann. Víkverji ætlaði ekki að trúa sín-
um eigin augum þegar hann sá allt í
einu bíl koma beint í flasið á sér og
varð ekki um sel. Ekki dró úr að bíll-
inn var nokkuð stór og aftan í honum
hékk boldangshestakerra.
x x x
Víkverji negldi niður og óþolinmóðiökumaðurinn með hestakerruna
náði fyrir vikið með naumindum að
komast fram úr áður en hann og Vík-
verji skullu saman.
x x x
Stundum er talað um að mönnumliggi lífið á. Það átti greinilega við
í þessu tilfelli. Maðurinn með hesta-
kerruna var greinilega í svo miklum
flýti að hann var tilbúinn að leggja líf
og limi undir.
x x x
Víkverji verður oft vitni að því aðökumenn fara mikinn. Þeir skjót-
ast fram úr, sikksakka milli akreina
og ímynda sér að þeir séu á einhverri
kappakstursbrautinni. Þegar öku-
ferðinni lýkur stíga þeir hnarreistir
út úr sjálfrennireið sinni og halda að
þeir séu jafnokar Michaels Schumac-
hers eða Alains Prosts (ef þessir tveir
eru dottnir úr minni lesenda má finna
einhverja aðra í staðinn).
x x x
Þeir gera sér ekki grein fyrir því aðtil þess að þeir gætu keyrt án
þess að lenda í árekstri og komust
slysalaust á áfangastað þurftu aðrir
að víkja og hægja á sér. Lán þeirra
var að ekki óku allir eins og þeir.
vikverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóh: 17.3)
Atvinna