Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
Sýning á myndum ljósmyndarans
Jean-Marie Ghislains og kafarans
Leinu Sato af kynnum þeirra af
hvölum var opnuð í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær. Sato stundar
köfun án súrefnisbúnaðar.
Í dag kl. 14 verður svo heimildar-
myndin Mére océan, eða Hafmóðir,
sýnd í sal Alliance Française að
Tryggvagötu 8. Sato mun þar segja
frá myndinni og sitja fyrir svörum.
Myndin er með frönsku tali og
enskum texta og er sýningin í boði
franska sendiráðsins, Alliance
Française í Reykjavík og Reykja-
víkurborgar. Hún hlaut styrk frá
Whales of Iceland og Special Tours
Iceland en Icelandair styrkti The
Elemen’Terre verkefnið sem sýn-
ingarnar tengjast.
Sato svarar spurningum um Hafmóður
Kynni Kafarinn Sato og forvitinn hvalur.
Sýningunni
Einskismanns-
land – Ríkir þar
fegurðin ein?
lýkur á morgun í
Listasafni
Reykjavíkur á
Kjarvalsstöðum
og í Hafnarhúsi
og verður sama
dag kl. 15 boðið
upp á leiðsögn á
Kjarvalsstöðum um sýninguna með
safnstjóranum Ólöfu K. Sigurðar-
dóttur.
Ólöf mun leiða gesti um sögu-
legan hluta sýningarinnar en í hon-
um má sjá málverk eftir 15 lista-
menn af víðernum landsins auk
ljósmynda, skissa og kvikmynda frá
hálendinu, eins og segir í tilkynn-
ingu. Sýningin er tvískipt, sögu-
legur hluti hennar á Kjarvals-
stöðum en verk eftir listamenn 21.
aldarinnar í Hafnarhúsi. Hún er
hluti af Listahátíð í Reykjavík og
100 ára afmæli fullveldis þjóðar-
innar.
Aðgöngumiði á safnið gildir á
leiðsögnina.
Leiðsögn á lokadegi Einskismannslands
Ólöf K.
Sigurðardóttir
Kammersveit Reykjavíkur kemur
fram á tónleikum á Kvoslæk á
morgun kl. 15 og bera þeir yfir-
skriftina Svanur ber undir bring-
udúni banasár. Á efnisskránni
eru verk eftir Mozart, Jón Ás-
geirsson og Felix Mendelsohn
Bartholdy. Kammersveitina skipa
fiðluleikararnir Rut Ingólfsdóttir,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Hildi-
gunnur Halldórsdóttir og Júlíana
E. Kjartansdóttir, víóluleikar-
arnir Guðrún Hrund Harðardóttir
og Svava Bernharðsdóttir, selló-
leikararnir Inga Rós Ingólfsdóttir
og Sigurður Halldórsson og
kontrabassaleikarinn Richard
Korn.
Kammersveitin Heldur tónleika á Kvoslæk á morgun. Hér sést hún í rjómablíðu.
Svanur ber undir bringudúni banasár
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari
heldur upp á sjötugsafmæli sitt á
þessu ári með eigin tónleikaröð. Í
henni flytur hún öll verk Mozarts
fyrir píanó og fiðlu. Tónleikarnir
eru tíu í heildina og hafa ýmsir pí-
anóleikarar komið fram með Guð-
nýju. Tónleikar hafa verið haldnir á
síðasta sunnudegi hvers mánaðar í
Hannesarholti og hefjast kl. 12.15.
Á morgun verða haldnir tónleik-
ar og leikur Jane Sutarjo með Guð-
nýju að þessu sinni. 28. október
verður það svo píanóleikarinn Rich-
ard Simm og 25. nóvember Bjarni
Frímann Bjarnason.
Frekari upplýsingar má finna á
Facebook-viðburði tónleikaraðar-
innar og á vefsíðu Hannesarholts,
hannesarholt.is.
Sutarjo og Guðný
leika Mozart
Dúett Guðný og Jane Sutarjo.
Bandaríski orgel-
leikarinn James
David Hicks held-
ur tónleika á veg-
um Listvinafél-
ags Hallgríms-
kirkju í dag kl. 17
í kirkjunni. Hicks
mun frumflytja
verk eftir tvö ís-
lensk tónskáld,
„Lingua“ (2018)
eftir Gunnar Andreas Kristinsson og
„Himna smiður“ (2017) eftir Sigurð
Sævarsson.
Hicks mun einnig leika verk
Kristian Blak, Fredrik Sixten, Nils
Lindberg, Lars Karlsson, Anders
Börjesson, Jesper Madsen og „Fant-
asíu um Ísland, farsæla frón“ eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur.
„Yfirskrift tónleikanna er Norræn
orgeltónlist en James hefur undan-
farin ár lagt ríka áherslu á að auðga
orgelbókmenntir Norðurlandanna
með því að panta verk frá norræn-
um tónskáldum. Þessi verk hefur
hann einnig hljóðritað fyrir geisla-
diska, leikin á mörg frægustu orgel
Norðurlandanna og mun hann taka
upp á geisladisk Klais-orgel Hall-
grímskirkju á næstunni og kemur
það út hjá útgáfufyrirtækinu Pro
Organo,“ segir í tilkynningu.
Hicks flytur nor-
ræna orgeltónlist
James David
Hicks
RIFF - Reykjavík
International
Film Festival
Á hennar herðum
Bíó Paradís 13.00
Litháen og fall
Sovétríkjanna
Bíó Paradís 13.00
Bjargræði
Bíó Paradís 13.15
Erlendar
stuttmyndir 2
Bíó Paradís 14.45
Konunglegur kostur
Bíó Paradís 15.00
Framhjáhald
Bíó Paradís 17.00
Leitin að Ingmar
Bergman
Bíó Paradís 18.00
Snertu mig ekki
Bíó Paradís 18.00
Yfir markið
Bíó Paradís 19.15
Hreinsun
Bíó Paradís 20.00
M
Bíó Paradís 20.30
Tumbbad
Bíó Paradís 21.00
Donbass
Bíó Paradís 21.45
Barbara Rubin og
New York neðan-
jarðarsenan
Bíó Paradís 22.30
Andvökusögur
Bíó Paradís 23.00
Night School 12
Metacritic 76/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.40
Sambíóin Álfabakka 17.40,
19.30, 20.00, 21.50, 22.20
Sambíóin Egilshöll 15.20,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.20
Peppermint 16
Metacritic 29/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.10
Smárabíó 19.40, 22.20
Borgarbíó Akureyri 22.15
Loving Pablo 16
Metacritic 42/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.40, 22.10
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.20
Juliet, Naked 16
Metacritic 67/100
IMDb 7,0/10
Háskólabíó 18.20, 20.40
Little Italy 12
Metacritic 55/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
The Nun 16
Metacritic 46/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 22.20
The Meg 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 46/100
IMDb 6,1/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Sambíóin Kringlunni 21.50
The House with a
Clock in Its Walls
Metacritic 57/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 10.40,
12.50, 13.00, 15.00, 15.20,
17.10, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20, 17.40, 20.00
Sambíóin Kringlunni 12.20,
14.40, 17.00, 19.20
Sambíóin Akureyri 13.00,
15.20, 17.40, 20.00
Sambíóin Keflavík 13.00,
15.20, 17.40, 20.00
Crazy Rich Asians
Metacritic 74/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 19.20
The Predator 16
Metacritic 49/100
IMDb 6,1/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Smárabíó 20.10, 22.50
Mission: Impossible
- Fallout 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 21.40
Alpha 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 63/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 15.30, 17.50
Össi Laugarásbíó 13.40, 15.40,
18.00
Smárabíó 13.10, 15.20,
17.30
Háskólabíó 15.40
Mæja býfluga Smárabíó 12.50, 15.00,
17.20
Laugarásbíó 14.00, 16.00
Christopher Robin Metacritic 59/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Egilshöll 13.00
Sambíóin Kringlunni 12.30,
14.40
Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00
Hótel Transylvanía 3:
Sumarfríið Metacritic 54/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 14.00
Smárabíó 13.00
A Simple Favor 12
Smárabíó 20.00, 22.00,
22.40
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.40
Kona fer í stríð
Metacritic 81/100
IMDb 7,7/10
Morgunblaðið bbbbb
Háskólabíó 18.00
Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára
breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim
fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir
þær báðar.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.10
Smárabíó 12.50, 13.30, 15.50, 16.30, 19.00, 19.30, 22.30
Háskólabíó 15.30, 17.50, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30
Lof mér að falla 14
Smáfótur Metacritic 58/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 10.40,
11.00, 11.20, 13.00, 13.30,
14.20, 15.20, 15.40, 17.40,
17.50, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
14.00, 15.20, 17.40
Sambíóin Kringlunni 12.50, 15.00, 17.20
Sambíóin Akureyri 13.30, 15.40, 17.50
Sambíóin Keflavík 13.30, 15.40, 17.50
Háskólabíó 15.30, 18.10
Mamma Mia! Here
We Go Again Sophie rekur nú gistiheim-
ilið og lærir um fortíð móð-
ur sinnar en er ófrísk sjálf.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 17.40
Háskólabíó 15.20, 20.30
Borgarbíó Akureyri 17.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio