Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Síða 2
Hvað er að frétta?
Það er bara fínt að frétta, ég byrjaði að vinna hjá
fyrirtækjaþjónustu Nova í sumar, sem er búið að
vera brilljant. Svo á ég átta ára dóttur sem á mikið
af mínum tíma enda höfum við bæði jafngaman af að
hanga saman. Svo er ég að keppa með KF Mjöðm í
Gulldeildinni, við vorum að tapa úrlitaleiknum í þeirri
deild núna á föstudag, því miður, en við komumst
allavega í úrslitaleikinn. Svo er ég búinn að vera að
æfa fyrir Jeff Who?-tónleikana. Þetta er búið að
vera frábært sumar, mikið að gera en þetta er
allt skemmtilegt.
Hvernig nálgastu haustið?
Mér finnst langbest að nálgast haustin eins og
sumrin bara; spila fótbolta og borða mikið af
góðum mat. Ég hlusta á sömu tónlist burtséð frá
árstíma, ég þyrfti samt aðeins að fara að upp-
færa lagalistana kannski. Haustin eru samt í
mínum huga eins og sumar þar til veturinn kem-
ur, ég skipti árinu bara upp í sumar og vetur.
Hvernig tilhugsun er að koma aftur
saman með genginu í Jeff Who?
Það er búið að vera frábært að koma saman aftur
og spila. Án þess að vera að búa til of miklar vænt-
ingar eða setja pressu á okkur erum við samt betri
núna en nokkru sinni! Við erum sex í bandinu núna
því okkur langaði að fá Tobba [Þorbjörn Sigurðsson]
sem var upprunalegi hljómborðsleikarinn okkar inn í
þetta. Hann og Valdi [Valdimar Kristjónsson], eða Florian
og Ralf eins og við köllum þá (fyrir þá sem ekki vita þá eru
það Kraftverk-gaurarnir), virka saman eins og eitt massíft
hljóðfæri. Þannig að það er einhver uppsöfnuð orka að koma
fram núna, sem er afar skemmtilegt.
Er eitthvað sem einkennir
aðdáendur Jeff Who?
Nei það er eiginlega það skemmtilegasta við okkar aðdáenda-
hóp, hann er alls konar! Við vorum svo heppnir á sínum tíma að
geta verið nokkurs konar „crossover“-band, vorum spilaðir á
Bylgjunni og FM-957 án þess að missa X-ið-hlustendahópinn þar
sem við byrjuðum, eins og það á náttúrlega að vera. Mér finnst
það frábært og það er það sem ég elska mest við okkar aðdá-
endur; engir stælar neins staðar.
Að lokum. Hvað hefurðu helst í huga til að
vera glaður og hamingjusamur í lífinu?
Þótt það sé algjör klisja þá er það samt Birta dóttir mín sem
gerir mig langhamingjusamastan. Þannig að halda áfram að eyða
sem mestum tíma með henni, jú og hitta vinina þess á milli. Ætli ég
þurfi svo ekki á einhverjum tímapunkti að finna mér kærustu, ég
gæti alveg farið að vera til í það.
Morgunblaðið/Eggert
BJARNI HALL
SITUR FYRIR SVÖRUM
Betri en nokkru sinni
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Sú lenska að vilja helst draga athygli að sér þegar útlitið er best er senni-lega sammannleg. Við erum flest þannig innstillt að vilja til dæmisfrekar láta smella af okkur mynd þegar við erum búin að laga hárið, fá
okkur kaffi og vakna almennilega heldur en á þeirri sekúndu sem við stígum
fram úr rúminu. Og það er betra að sýna bara frá fjölskyldustundum á sam-
félagsmiðlum þar sem allir eru kátir og á fullu við að treysta fjölskyldubönd-
in. Stirð samskipti, meðvirkni og almennt ættingjatengt vesen er betra að
hafa bara fyrir sig. Það þarf allavega ekki að vera á netinu, hægt að leysa
bara úr í hljóði og birta svo mynd úr jólaboðinu þegar allir eru orðnir sáttir.
Fólk hefur gaman af því að segja frá því á samfélagsmiðlum þegar börn-
unum þeirra gengur vel, þau fá verðlaun eða eru að borða einhvern framandi
mat! „Siggi – að borða sushi. Hann
fékk að velja matinn ...þetta barn
elskar sushi!“ Það er merkilega oft
sem fólk setur inn myndir á Facebo-
ok og Instagram af börnunum sínum
að borða sushi. Það þykir nefnilega
voða fínt ef börnin borða það. Eng-
inn setur mynd af barni með pitsu-
sósu í hárinu í megaviku með færsl-
unni: „Sjá þetta pitsukrútt – Siggi
eeeelskar pepperóní!“ Slíkt er betra
að fari hljótt. Barnið er sett í bað
strax eftir matinn, pitsukassinn fer
rakleitt í pappírstunnuna og ekki
söguna meir. Engin mynd tekin af
þessu tilefni. Þetta gerðist, en óþarfi
að flíka því eða ræða það frekar. Og
alls ekki segja frá því á samfélags-
miðlum.
Á samfélagsmiðlum birtist þín saga þannig að það er auðvitað bara þitt val
hvernig þú segir hana. Kemur engum við (reyndar hafa börnin sjaldnast
nokkuð um þetta að segja, en það er annar handleggur). Ráðamenn og aðrir
sem höndla með almannafé hafa hins vegar ekki þetta val, þótt margir þeirra
virðist halda það. Alltof margir fjölmiðlamenn kannast við það að þurfa að
toga upplýsingar með töngum uppúr stjórnmálamönnum ef upplýsingarnar
sem beðið er um sýna þá ekki í nægilega góðu ljósi, en fá ofgnótt mynda og
lýsinga af atburðum sem kannski litlu skipta. Fyrir ráðamenn er ekki í boði
að fleygja pitsukassanum beint í ruslið og beina ljóskastara að sushi-
rúllunum á huggulegum bakka. Allar hliðar þurfa að vera sýnilegar og upp-
lýstar en ekki á botninum í pappírstunnunni þar sem enginn leitar.
Það er freistandi að láta bara taka myndir af sér í góðri lýsingu.
Morgunblaðið/Hari
Pitsukassinn á
botni tunnunnar
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Á samfélagsmiðlumbirtist þín saga þann-ig að það er auðvitaðbara þitt mál hvernig þú
segir hana. Ráðamenn og
aðrir sem höndla með al-
mannafé hafa hins vegar
ekki þetta val, þótt margir
virðist halda það.
Sigríður Jónsdóttir
Já, ég hef ekki keypt einn einasta
plastpoka í september. Ég er alltaf
með fjölnota poka á mér.
SPURNING
DAGSINS
Hefurðu
dregið úr
plastnotk-
un í sept-
ember?
Lukas Lauridsen
Nei, eiginlega ekki. Ég vissi ekki um
átakið „plastlaus september“. Ég er
frá Danmörku og næ ekki enn að
fylgjast með íslenskum fréttum.
Adolf H. Berndsen
Ég myndi segja það en aðalmálið í
þessari umræðu er að draga úr
neyslunni.
Sigrún Þórisdóttir
Já, ég er alltaf með fjölnota poka í
veskinu. Ef ég verð að nota plastpoka,
til dæmis fyrir nesti dóttur minnar,
nota ég sama pokann aftur og aftur.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndin
er frá AFP
Hljómsveitin Jeff Who? kemur saman eftir nokkurn dvala og spilar á
tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði laugardagskvöldið 22. september.
Jeff Who? gaf síðast út plötu 2008. Bjarni Hall er söngvari sveitarinnar
og annar gítarleikara.