Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Side 4
Frá því Rannsóknastöðinni Rifi á Rauf-arhöfn var komið á laggirnar fyrir fjórumárum hefur mikilvægi hennar fyrir byggðina í nágrenni Melrakkasléttu orðið sífellt meira. Á milli tvö og þrjú hundruð gistinætur á Raufarhöfn á hverju sumri má rekja til gesta á vegum þessarar litlu stöðvar sem hefur aðeins einn starfsmann en gegnir þó stóru hlutverki. Erlendir vísindamenn sækja í að stunda rann- sóknir á svæðinu. Hrönn G. Guðmundsdóttir, umhverfisfræð- ingur og starfandi forstöðumaður rann- sóknastöðvarinnar, segir lykilatriði í starfsem- inni að skila einhverju til samfélagsins. Hlutverk Rifs sé í raun þríþætt; að efla rann- sóknir, miðla upplýsingum og styðja nærsamfélagið. „Það hefur verið markmið frá upp- hafi að efla og auka veg nátt- úrufarsrannsókna á Mel- rakkasléttu. Við leggjum sérstaka áherslu á vistkerf- isrannsóknir og viljum stuðla að því að Mel- rakkasléttan verði ákveðin miðja í norð- urslóðarannsóknum á Íslandi. Hún ber öll helstu einkenni norðurslóða hvað náttúrufar og veður varðar,“ segir Hrönn. Rannsakendur frá Noregi og Íran Vísindamenn og skólahópar víðsvegar að hafa sótt í að koma norður í því skyni að stunda vís- indarannsóknir á náttúrufari Melrakkasléttu, loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á norð- urslóðum. Á þessu ári hafa meðal annars komið hingað rannsakendur frá Þýskalandi, Noregi og Íran á vegum rannsóknarstöðvarinnar. Hrönn telur að mikil tækifæri felist í frekari uppbygg- ingu vísindastarfs á þessum slóðum. „Við höfum undanfarið unnið að því að koma upp náttúrufarsvöktun og vinnum sérstaka vöktunaráætlun á Melrakkasléttu í samstarfi við CAFF, vinnuhóp um varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika á vegum norðurheimskautsráðs- ins, og rannsóknastöðvar á Grænlandi og í Kan- ada undir hatti vísindasamstarfs sem heitir Int- erAct. Undir þessu samstarfsneti var unnin vöktunaráætlun á Melrakkasléttu og vinnan hjá okkur næstu ár er að koma þessari vöktun af stað. Þá er hugmyndin að þarna geti orðið til gögn sem geti varpað ljósi á ástand vistkerf- anna á norðurslóðum og breytingar á þeim. Ég held að þetta sé komið til að vera og það séu miklir möguleikar á að þetta vaxi og dafni og verði bara mjög mikilvæg stoð í náttúrufars- rannsóknum hér á Íslandi,“ segir Hrönn. Munar um nokkur hundruð gistinætur Rannsóknastöðin Rif dregur nafn sitt af jörð- inni Rifi, nyrstu jörð á Íslandi, sem stöðin hefur til umráða. Hún var sett á fót eftir að Rauf- arhöfn komst í hóp svokallaðra brothættra byggða. Náttúrustofa Norðausturlands vann þá greinargerð þar sem lagt var til að rann- sóknastöð yrði komið á fót á þessu svæði til að styðja við byggðina og náttúruna. „Hún var stofnuð 2014 en fyrst um sinn var enginn starfsmaður, í júlí 2015 kom inn starfs- maður í 70% starfshlutfall og núna í tvö ár hefur verið hér starfsmaður í fullu starfi. Við auðvitað Tækifæri í nyrstu byggðum vonumst eftir því að starfsmönnum fjölgi og ég tel að verkefnin kalli á það. Starfsemin hefur vaxið mjög mikið á þessum fjórum árum,“ segir Hrönn. Vísindamenn geta fengið aðstöðu til sinna rannsókna gegnum rannsóknastöðina og nú þegar er áhrifa þessara heimsókna farið að gæta á Raufarhöfn. „Okkur fylgir eftirspurn eftir þjónustu. Vísindamenn þurfa að borða, gista o.s.frv. Þetta eru líklega um 2-300 gisti- nætur, á hverju sumri og vonandi meira á næstu árum,“ segir Hrönn og bendir á að það muni um slíkt fyrir smærri byggðarlög. Hún segir allt út- lit fyrir að aðsóknin í að koma og stunda rann- sóknir á Melrakkasléttu muni aukast. Hrönn nefnir sem dæmi að í sumar hafi 16 manna nemendahópur komið á vegum stöðv- arinnar til Raufarhafnar og margir smærri hóp- ar og einstaklingar. „Bæði vonumst við til að erlendir vís- indamenn komi en líka að íslenskar rannsókn- arstofnanir muni taka að sér þessa vöktun sem stefnt er að í vöktunaráætlun Rifs og fari í auknum mæli að stunda hérna rannsóknir.“ Mikilvægt að skila til samfélagsins En starfsemin skilar sér ekki einungis í fjölgun gistinátta og auknum rannsóknum á náttúrulífi Sléttunnar heldur segir Hrönn líka skipta máli að skila einhverju til nærsamfélagsins gegnum fræðslustarf og samvinnu, til dæmis með sam- starfi við grunnskólann á Raufarhöfn. Annað samfélagsverkefni er hreinsun strand- lengjunnar, en á dögunum stóð Rif fyrir hreins- un strandlengjunnar í samstarfi við Áhalda- húsið á Raufarhöfn og með stuðningi Norðurþings, í tengslum við alþjóðlegan hreins- unardag (e. World Cleanup Day). Íbúar tóku þátt og samtökin Veraldarvinir einnig. „Ein af ástæðunum fyrir því að mig langaði að fara í hreinsun var einmitt að gera eitthvað með fólkinu hér, að tengja þetta saman, vísinda- starfið og samfélagið. Það lá beinast við að við tækjum þátt með því að hreinsa ströndina því strandlengjan er það sem einkennir og prýðir svæðið hérna hvað helst. Melrakkasléttan er mjög opin fyrir hafstraumum þannig að það er mjög margt sem berst á fjörurnar.“ Margt varð á vegi þeirra á þessum hreins- unardegi og segir Hrönn áberandi hversu mikið af plasti tengdu sjávarútvegi berist á fjörurnar. „Það er rosalega mikið plast alls staðar. Það er bæði nýtt og gamalt. Það er ekki mikið leng- ur af svona heimilissorpi. Þetta er aðallega eitt- hvað sem hlýtur að falla af skipum. Mikið af veiðarfærum. Rosalega mikið af netum, neta- kúlum og öllu sem tengist sjávarútvegi. Selir, fuglar og fiskar drepast í þessum netum. Kind- ur drepast líka í þeim þegar þau rekur á fjör- urnar. Netin geta skapað hættu og það er mikið af þeim,“ segir Hrönn. Mikil hefð er fyrir því á Melrakkasléttu að fylgjast með fuglum og ferðum þeirra enda er Melrakkasléttan mikilvægt umferðarsvæði far- fugla en með tilkomu rannsóknastöðvarinnar hefur sjónum einnig verið beint að fleiri þáttum hins merka náttúrulífs sléttunnar. „Rannsóknir á fuglum halda áfram en við höf- um einnig lagt áherslu á gróðurfarsrannsóknir og frá því í fyrra einnig rannsóknir á smádýr- um. Við höfum unnið mikið kynningarstarf inn- an þessa alþjóðlega samstarfsnets sem við til- heyrum til að vekja athygli á svæðinu og það virðist vera að skila sér.“ Starfsemi Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn hefur aukist jafnt og þétt síðustu fjögur ár og skilar sínu til byggðarinnar. Mikil tækifæri eru fólgin í því að gera Melrakkasléttu að miðstöð norðurslóðarannsókna á Íslandi. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Sýning á plasti og öðru rusli úr fjörunum við Mel- rakkasléttu sem Guðmundur Örn Benediktsson stóð fyrir í sumar vakti athygli, en hún var af- rakstur fimm ára söfnunar og með henni vildi hann beina sjónum að skaðsemi plastmengunar. Ljósmyndir/Rannsóknastöðin Rif INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018  Að efla og auka náttúrurannsóknir á Melrakkasléttu, m.a. með hliðsjón af skuldbindingum Íslands í norðurslóða- samstarfi.  Að safna saman og miðla upplýs- ingum um náttúrufar á svæðinu til al- mennings, stjórnvalda og alþjóða- samfélagsins.  Að styðja nærsamfélagið með því að taka þátt í samfélaginu, m.a. með fræðslu auk stuðnings við nátt- úrutengda ferðamennsku. RANNSÓKNARSTÖÐIN RIF HEFUR ÞRÍÞÆTT HLUTVERK Heimamenn tóku til hendinni á alþjóðlegum hreinsunardegi og hreinsuðu strandlengjuna. Hrönn G. Guðmundsdóttir Enginn býr lengur á nyrsta bæ landsins, Rifi, en á jörðinni eru nær óþrjótandi möguleikar á hvers konar rannsóknum og vöktun á sviði náttúruvísinda.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.