Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 4
Frá því Rannsóknastöðinni Rifi á Rauf-arhöfn var komið á laggirnar fyrir fjórumárum hefur mikilvægi hennar fyrir
byggðina í nágrenni Melrakkasléttu orðið sífellt
meira. Á milli tvö og þrjú hundruð gistinætur á
Raufarhöfn á hverju sumri má rekja til gesta á
vegum þessarar litlu stöðvar sem hefur aðeins
einn starfsmann en gegnir þó stóru hlutverki.
Erlendir vísindamenn sækja í að stunda rann-
sóknir á svæðinu.
Hrönn G. Guðmundsdóttir, umhverfisfræð-
ingur og starfandi forstöðumaður rann-
sóknastöðvarinnar, segir lykilatriði í starfsem-
inni að skila einhverju til
samfélagsins. Hlutverk Rifs
sé í raun þríþætt; að efla rann-
sóknir, miðla upplýsingum og
styðja nærsamfélagið. „Það
hefur verið markmið frá upp-
hafi að efla og auka veg nátt-
úrufarsrannsókna á Mel-
rakkasléttu. Við leggjum
sérstaka áherslu á vistkerf-
isrannsóknir og viljum stuðla að því að Mel-
rakkasléttan verði ákveðin miðja í norð-
urslóðarannsóknum á Íslandi. Hún ber öll
helstu einkenni norðurslóða hvað náttúrufar og
veður varðar,“ segir Hrönn.
Rannsakendur frá Noregi og Íran
Vísindamenn og skólahópar víðsvegar að hafa
sótt í að koma norður í því skyni að stunda vís-
indarannsóknir á náttúrufari Melrakkasléttu,
loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á norð-
urslóðum. Á þessu ári hafa meðal annars komið
hingað rannsakendur frá Þýskalandi, Noregi og
Íran á vegum rannsóknarstöðvarinnar. Hrönn
telur að mikil tækifæri felist í frekari uppbygg-
ingu vísindastarfs á þessum slóðum.
„Við höfum undanfarið unnið að því að koma
upp náttúrufarsvöktun og vinnum sérstaka
vöktunaráætlun á Melrakkasléttu í samstarfi
við CAFF, vinnuhóp um varðveislu líffræðilegs
fjölbreytileika á vegum norðurheimskautsráðs-
ins, og rannsóknastöðvar á Grænlandi og í Kan-
ada undir hatti vísindasamstarfs sem heitir Int-
erAct. Undir þessu samstarfsneti var unnin
vöktunaráætlun á Melrakkasléttu og vinnan hjá
okkur næstu ár er að koma þessari vöktun af
stað. Þá er hugmyndin að þarna geti orðið til
gögn sem geti varpað ljósi á ástand vistkerf-
anna á norðurslóðum og breytingar á þeim.
Ég held að þetta sé komið til að vera og það
séu miklir möguleikar á að þetta vaxi og dafni
og verði bara mjög mikilvæg stoð í náttúrufars-
rannsóknum hér á Íslandi,“ segir Hrönn.
Munar um nokkur
hundruð gistinætur
Rannsóknastöðin Rif dregur nafn sitt af jörð-
inni Rifi, nyrstu jörð á Íslandi, sem stöðin hefur
til umráða. Hún var sett á fót eftir að Rauf-
arhöfn komst í hóp svokallaðra brothættra
byggða. Náttúrustofa Norðausturlands vann þá
greinargerð þar sem lagt var til að rann-
sóknastöð yrði komið á fót á þessu svæði til að
styðja við byggðina og náttúruna.
„Hún var stofnuð 2014 en fyrst um sinn var
enginn starfsmaður, í júlí 2015 kom inn starfs-
maður í 70% starfshlutfall og núna í tvö ár hefur
verið hér starfsmaður í fullu starfi. Við auðvitað
Tækifæri í nyrstu byggðum
vonumst eftir því að starfsmönnum fjölgi og ég
tel að verkefnin kalli á það. Starfsemin hefur
vaxið mjög mikið á þessum fjórum árum,“ segir
Hrönn.
Vísindamenn geta fengið aðstöðu til sinna
rannsókna gegnum rannsóknastöðina og nú
þegar er áhrifa þessara heimsókna farið að
gæta á Raufarhöfn. „Okkur fylgir eftirspurn
eftir þjónustu. Vísindamenn þurfa að borða,
gista o.s.frv. Þetta eru líklega um 2-300 gisti-
nætur, á hverju sumri og vonandi meira á næstu
árum,“ segir Hrönn og bendir á að það muni um
slíkt fyrir smærri byggðarlög. Hún segir allt út-
lit fyrir að aðsóknin í að koma og stunda rann-
sóknir á Melrakkasléttu muni aukast.
Hrönn nefnir sem dæmi að í sumar hafi 16
manna nemendahópur komið á vegum stöðv-
arinnar til Raufarhafnar og margir smærri hóp-
ar og einstaklingar.
„Bæði vonumst við til að erlendir vís-
indamenn komi en líka að íslenskar rannsókn-
arstofnanir muni taka að sér þessa vöktun sem
stefnt er að í vöktunaráætlun Rifs og fari í
auknum mæli að stunda hérna rannsóknir.“
Mikilvægt að skila til samfélagsins
En starfsemin skilar sér ekki einungis í fjölgun
gistinátta og auknum rannsóknum á náttúrulífi
Sléttunnar heldur segir Hrönn líka skipta máli
að skila einhverju til nærsamfélagsins gegnum
fræðslustarf og samvinnu, til dæmis með sam-
starfi við grunnskólann á Raufarhöfn.
Annað samfélagsverkefni er hreinsun strand-
lengjunnar, en á dögunum stóð Rif fyrir hreins-
un strandlengjunnar í samstarfi við Áhalda-
húsið á Raufarhöfn og með stuðningi
Norðurþings, í tengslum við alþjóðlegan hreins-
unardag (e. World Cleanup Day). Íbúar tóku
þátt og samtökin Veraldarvinir einnig.
„Ein af ástæðunum fyrir því að mig langaði
að fara í hreinsun var einmitt að gera eitthvað
með fólkinu hér, að tengja þetta saman, vísinda-
starfið og samfélagið. Það lá beinast við að við
tækjum þátt með því að hreinsa ströndina því
strandlengjan er það sem einkennir og prýðir
svæðið hérna hvað helst. Melrakkasléttan er
mjög opin fyrir hafstraumum þannig að það er
mjög margt sem berst á fjörurnar.“
Margt varð á vegi þeirra á þessum hreins-
unardegi og segir Hrönn áberandi hversu mikið
af plasti tengdu sjávarútvegi berist á fjörurnar.
„Það er rosalega mikið plast alls staðar. Það
er bæði nýtt og gamalt. Það er ekki mikið leng-
ur af svona heimilissorpi. Þetta er aðallega eitt-
hvað sem hlýtur að falla af skipum. Mikið af
veiðarfærum. Rosalega mikið af netum, neta-
kúlum og öllu sem tengist sjávarútvegi. Selir,
fuglar og fiskar drepast í þessum netum. Kind-
ur drepast líka í þeim þegar þau rekur á fjör-
urnar. Netin geta skapað hættu og það er mikið
af þeim,“ segir Hrönn.
Mikil hefð er fyrir því á Melrakkasléttu að
fylgjast með fuglum og ferðum þeirra enda er
Melrakkasléttan mikilvægt umferðarsvæði far-
fugla en með tilkomu rannsóknastöðvarinnar
hefur sjónum einnig verið beint að fleiri þáttum
hins merka náttúrulífs sléttunnar.
„Rannsóknir á fuglum halda áfram en við höf-
um einnig lagt áherslu á gróðurfarsrannsóknir
og frá því í fyrra einnig rannsóknir á smádýr-
um. Við höfum unnið mikið kynningarstarf inn-
an þessa alþjóðlega samstarfsnets sem við til-
heyrum til að vekja athygli á svæðinu og það
virðist vera að skila sér.“
Starfsemi Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn hefur aukist jafnt og þétt síðustu fjögur ár og skilar sínu til
byggðarinnar. Mikil tækifæri eru fólgin í því að gera Melrakkasléttu að miðstöð norðurslóðarannsókna á Íslandi.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Sýning á plasti og öðru rusli úr fjörunum við Mel-
rakkasléttu sem Guðmundur Örn Benediktsson
stóð fyrir í sumar vakti athygli, en hún var af-
rakstur fimm ára söfnunar og með henni vildi
hann beina sjónum að skaðsemi plastmengunar.
Ljósmyndir/Rannsóknastöðin Rif
INNLENT
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
Að efla og auka náttúrurannsóknir á
Melrakkasléttu, m.a. með hliðsjón af
skuldbindingum Íslands í norðurslóða-
samstarfi.
Að safna saman og miðla upplýs-
ingum um náttúrufar á svæðinu til al-
mennings, stjórnvalda og alþjóða-
samfélagsins.
Að styðja nærsamfélagið með því að
taka þátt í samfélaginu, m.a. með
fræðslu auk stuðnings við nátt-
úrutengda ferðamennsku.
RANNSÓKNARSTÖÐIN RIF
HEFUR ÞRÍÞÆTT HLUTVERK
Heimamenn tóku til hendinni á alþjóðlegum hreinsunardegi og hreinsuðu strandlengjuna.
Hrönn G.
Guðmundsdóttir
Enginn býr lengur á nyrsta bæ landsins,
Rifi, en á jörðinni eru nær óþrjótandi
möguleikar á hvers konar rannsóknum
og vöktun á sviði náttúruvísinda.