Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Qupperneq 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
Stór hluti fórnarlambanna í London
á þessu ári er ungt fólk en í 40 til-
fellum af þeim 100 morðum sem
framin hafa verið í borginni eru
fórnarlömbin undir 25 ára aldri, þar
af þrjú börn undir átta ára aldri.
Vel hefur gengið að finna ger-
endur. Á þessu ári hafa 102 karl-
menn og níu konur verið kærð en
fleiri hafa verið kærð en morðmálin
eru þar sem í nokkrum málanna
komu margir að drápunum.
Memunatu Warne, 46 áratveggja barna móðir íWoolwich í London, varð
hundraðasta fórnarlamb í morðöldu
sem virðist ganga yfir borgina á
þessu ári. Ekki hafa fleiri morðmál
komið inn á borð lögreglu í tíu ár og
hafa borgaryfirvöld af þessu stórar
áhyggjur. Borgarstjóri Lundúna,
Sadiq Khan, lýsti því yfir í fyrradag
að takast ætti á við ofbeldið eins og
alvarlegan sjúkdóm sem væri að
sýkja samfélagið. Í yfirlýsingu borg-
arstjórans vísaði hann til þess hvern-
ig yfirvöld Glasgow hafa tekist á við
sína ofbeldisglæpi með góðum ár-
angri og sagði sérstakan starfshóp
lögreglunnar í ofbeldismálum (e. Vio-
lence Reduction Unit, VRU) ætla að
nota sömu nálgun þar sem forvarnir
skipta ekki síst máli.
Ekki eru þó allir sannfærðir um að
þetta plan gangi eftir þar sem nánari
útfærslu þykir vanta. Borgarstjórinn
segir að ætlunin sé meðal annars að
ráðast í forvarnir og að skólar, heil-
brigðiskerfið, lögreglan og fleiri
stofnanir verði virkjaðar í að stíga af
meiri ákveðni og fyrr inn í ofbeldis-
mál sem ljóst er að gætu endað með
mannsláti.
Alvarlegra heimilisofbeldi
En hvernig á að vera hægt að sjá fyr-
ir morð og hvernig eiga þessar stofn-
anir að geta séð hvar þarf að stíga
fyrr inn í? Stór hluti þeirra sem látið
hafa lífið eru fórnarlömb heimilis-
ofbeldis og gengjastríða. Heimilis-
ofbeldi er vaxandi áhyggjuefni þar
sem dauðsföllum tengdum fjöl-
skylduerjum hefur fjölgað mikið,
raunar eru fórnarlömb í þeim að-
stæðum jafnmörg og þau sem látast í
bardögum glæpagengja að því er
kemur fram í úttekt Guardian. 15
fórnarlambanna hafa verið konur,
sex karlmenn. Á þessu sviði sjá yfir-
völd borgarinnar fyrir sér að hægt
væri að stíga fyrr inn í aðstæður.
Glasgow fyrirmynd
London horfir til Glasgow því sú borg
og Skotland í heild hefur náð frábær-
um árangri í baráttu gegn ofbeldis-
verkum. Árið 2005 sýndi skýrsla
Sameinuðu þjóðanna að ofbeldi í
Skotlandi var mest meðal allra þró-
aðra ríkja heims og voru þá þrefalt
meiri líkur á að ráðist væri á mann í
Skotlandi en Bandaríkjunum að því
er Times greindi frá á sínum tíma.
Tíu árum síðar hefði varla getað
verið ólíkara umhorfs hjá Skotum og
morðum hefur fækkað um helming
og hefur VRU í Skotlandi unnið þar
mesta þrekvirkið, ekki síst með sér-
stöku VRU-prógrammi. Þar hefur
fræðsla í skólum og samstarf við fé-
lagsþjónustu og heilsugæslu verið
áberandi. Ofbeldismenn sem náð
hafa beinu brautinni hafa haldið fyr-
irlestra og borgaryfirvöld stigið inn í
aðstæður ungs fólks sem er í áhættu
vegna félagsskapar og aðstæðna,
boðið störf og aðstoð og kortleggja
einnig þá sem eru líklegir til að
fremja voðaverk og bjóða fram að-
stoð að fyrra bragði. Þeir sem lokið
hafa afplánun vegna ofbeldisbrota
eiga einnig auðveldara með að koma
út í samfélagið að nýju þar sem þétt-
ara net stuðnings bíður þeirra. Þeim
eru boðin störf, aðstoð með húsnæði
og ýmiss konar þjálfun og rannsóknir
hafa sýnt að þeir eru ólíklegri til að
brjóta af sér aftur. BBC fjallaði ítar-
lega um þennan viðsnúning í vikunni.
Hnífar koma oftar við sögu
Það var ekki nú í ár sem morðum
snarfjölgaði svo. Síðasta ár var
slæmt en þá voru framin 117 morð í
borginni og höfðu þá ekki verið jafn-
mörg í 10 ár. Á sama tíma í fyrra
höfðu 99 morð verið framin, einu
færri en nú.
Hnífaárásir koma við sögu í þrem-
ur af hverjum fimm manndrápum á
árinu, sama og var uppi á teningnum
í Glasgow þegar verst lét þar. Þannig
hafa 64 látist af völdum hnífstungna
nú í ár og á síðasta ári létust 80
manns af sömu orsökum. Banvænar
hnífstungur eru samanlagt fleiri í
London en í öllu Englandi og Wales,
samkvæmt tölum bresku lögregl-
unnar.
Martin Hewitt, aðstoðarlögreglu-
stjóri Lundúna, sagði á ráðstefnu
sem haldin var í sumar um hnífa-
árásir að þær væru mun ofbeldisfyllri
en áður. Fyrir fimm árum hefði hann
aðeins getað lýst hnífstungumálum
sem minniháttar en í dag væru fórn-
arlömb árásanna margstungin, með
stórum hnífum.
Faðir ungs drengs sem lenti í það
alvarlegri árás í London að fjarlægja
þurfti annan fótinn á honum, segir í
viðtali við BBC í vikunni að það að
bera stóra hnífa og sýna ofbeldisfulla
hegðun sé nánast í tísku hjá
ákveðnum hópum ungs fólks í borg-
inni og þar ríki ákveðin lögleysa, ung-
mennin virði ekki lög, hlusti ekki á
foreldra og ekkert traust sé milli for-
eldra og barna.
Fyrsti fjórðungur ársins hefur ver-
ið verstur í London og að meðaltali
voru þrjú morð framin í hverri viku.
Hefði sú þróun haldið áfram væru
fórnarlömbin orðin 180 núna, sem
væri það versta frá árinu 2005 að því
er kemur fram í Guardian.
Ofbeldi sem
sýki London
Yfirvöld í London hafa áhyggjur af stigvax-
andi ofbeldi í borginni. Horft er til Glasgow
sem áður var sú borg Evrópu þar sem ofbeldi
var mest en tókst að snúa við alvarlegri
þróun í ofbeldisglæpum.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
AFP
Breska lögreglan hefur aldrei lagt hald á jafnmikið magn af hnífum og á
þessu og síðasta ári, flestir í eigu ungs fólks.
Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, ætlar að horfa til þess hvernig yfirvöld Glasgow hafa tekist á við sína ofbeldisglæpi.
Stór hluti
ungt fólk
ÁSTRALÍA
Ástralska matvöruverslanakeðj-
an Woolworth hefur fjarlægt
saumnálar úr verslunum sínum
af öryggisáastæðum. Ástæð-
an er hið furðulega mál sem
skekur þjóðina en saumnálar
hafa fundist í jarðarberjaöskjum
í sex fylkjum. Þá hafa saumnál-
ar einnig fundist í eplum og
banönum á nokkrum stöðum.
Rannsókn á málinu hófst eftir
að Ástrali nokkur greindi frá
því að vinur hans hefði gleypt
nál í jarðarberi með tilheyrandi
sársauka í meltingarfærum.
DANMÖRK
KAUPMANNAHÖFN Thomas F. Borgen, bankastjóri
Danske Bank, sagði af sér í vikunni. Bankinn gerðist
sekur um ábyrgðarleysi vegna mögulegs peninga-
þvættis í Eistlandi en í sumar var greint frá því að
Danske Bank væri sakaður um að hafa aðstoðað
við að þvætta 8,3 milljónir bandaríkjadala í
gegnum dótturfélag sitt í Eistlandi. Fjármunirnir
voru raktir til nokkurra ríkja í Austur-Evrópu.
FRAKKLAND
PARÍS Franska lögreglan lagði hald
á 20 tonn af litlum minjagripum,
fyrst og fremst Eiffel-turnum, í
vikunni en kínverskir heildsalar eru
grunaðir um að fl ytja inn varninginn
fyrir ólöglega sölumenn. Aðgerðirn-
ar voru samstarfsverkefni frönsku
lögreglunnar og franskra innfl ytj-
enda sem leiddu til skyndiáhlaups í vikunni. Níu voru handteknir.
BANDARÍKIN
KALIFORNÍA Skurðlæknir,
Grant William Robicheaux, og
kærasta hans, Cerissa Laura
Riley, hafa verið ákærð fyrir að
nauðga tveimur konum. Rann-
sakendur telja fórnarlömbin
þó skipta hundruðum þar
sem myndbönd af mögulegum
fórnarlömbum fundust í síma
sakborninganna en myndböndin
skiptu þúsundum. Unnið er að
því að bera kennsl á þær konur
sem sjást á myndböndunum.