Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Qupperneq 16
VIÐTAL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
S
lá á stundvíslega á þráðinn til Dan-
merkur klukkan 9 að íslenskum
tíma. Ég geng út frá því að einhver
blaðafulltrúi eða almannatengill
svari, þannig að ég hleypi brúnum
þegar hann kemur sjálfur í símann. „Já, þetta
er Mads,“ segir hann glaðlega. Létt er yfir
Mads Mikkelsen á þessum morgni enda hefur
haustið ekki ennþá skollið af fullum þunga á
Dönum, eins og okkur hérna á hjara veraldar.
„Já, ég er bara hress. Ert þú ekki þokka-
legur?“
Ekki svo að skilja að veðrið dragi kjarkinn
úr Mads. „Ég hlakka óvenju mikið til að koma
til Íslands að þessu sinni. Sjálfur hef ég komið
mörgum sinnum, fyrst 1996 eða 1997, og á orð-
ið nokkra kunningja þarna upp frá en konan
mín er á hinn bóginn að koma í fyrsta skipti.
Gaman verður að sýna henni landið,“ segir
Mads en eiginkona hans er danski danshöf-
undurinn Hanne Jacobsen. Þau byrjuðu að
rugla saman reytum árið 1987 og gengu í heil-
agt hjónaband árið 2000.
Þess utan á að heiðra leikarann fyrir fram-
úrskarandi listrænan leik á RIFF-kvik-
myndahátíðinni sem hefst á fimmtudaginn
kemur og er hann jafnframt heiðursgestur.
Þar sem hann er margverðlaunuð heims-
stjarna á sviði kvikmyndaleiks er ekki úr vegi
að spyrja Mads hvort viðurkenningar af þessu
tagi hafi einhverja þýðingu fyrir hann lengur.
„Gríðarlega þýðingu,“ svarar hann ákveðið.
„Ísland er partur af norrænu fjölskyldunni og
fyrir vikið gleður það mig sérstaklega að fá
viðurkenningu frá Íslendingum. Ég er mjög
stoltur. Mér hefur alltaf liðið eins og heima hjá
mér á Íslandi.“
Spurning hvort kynningarstjóri RIFF ræsir
ekki Tólfuna til að taka á móti kappanum í
Leifsstöð í vikunni með hópsönginn ómþýða,
„Ég er kominn heim!“, á vörum og vík-
ingaklapp í lófum. Bara hugmynd.
Þið veitið því annars athygli að ég kalla við-
mælanda minn Mads en ekki Mikkelsen, eins
og siður er meðal útlendinga og manni var
kennt hér á blaðinu í gamla daga. En mað-
urinn er eitthvað svo kammó, af þessum fyrstu
kynnum að dæma, að mér finnst eftirnafnið
hreinlega ekki passa. Þess utan er varla hægt
að segja að Danir séu útlendingar á Íslandi,
alltént ekki á aldarafmæli fullveldisins.
Hátíð fyrir listina
Langt er síðan RIFF festi sig í sessi og sjálfur
þekkir Mads ágætlega til hátíðarinnar. Spurð-
ur hvort hann heyri rætt um hana í bransanum
ytra svarar hann: „Nei, ekki þannig lagað.
Fólk talar bara um hátíðir þegar því er boðið á
þær. Meira er rætt um stóru hátíðirnar, eins
og Cannes, Feneyjar og Toronto, enda senda
kvikmyndagerðarmenn sínar myndir þangað.
Slíkar hátíðir snúast hins vegar meira um við-
skipti en kvikmyndagerð og einmitt þess
vegna eru hátíðir eins og RIFF svo mik-
ilvægar; þær hverfast um listina sjálfa en ekki
markaðinn. Það kann ég að meta.“
Íslandstengingarnar eru víðar. Þannig leik-
ur Mads á móti íslenskri leikkonu, Maríu
Thelmu Smáradóttur, í einni af sínum nýjustu
myndum, Arctic, sem einmitt er tekin upp á Ís-
landi. Fleiri leikarar koma ekki við sögu í
myndinni.
„Þú hefur væntanlega ekki séð myndina
ennþá, þar sem hún er ekki komin í almennar
sýningar,“ segir Mads en Arctic var frumsýnd
á Cannes-hátíðinni síðasta vor. „Hlutverk
Maríu er mjög krefjandi. Persóna hennar er
varla með lífsmarki, þannig að hún þurfti að
dansa á línunni; milli þess að vera meðvitund-
arlaus og vakandi. Hlutverkið hefur mikla þýð-
ingu fyrir framvinduna, þannig að verulega
reyndi á Maríu sem stóð sig frábærlega. Hún
fann þetta viðkvæma en flókna jafnvægi og
neglir þetta.“
Mads var glaður að sjá Maríu þegar hún
mætti á settið. „Ég var einn að leika í mynd-
inni í þrjár vikur, þannig að mér létti verulega
þegar annar leikari bættist í hópinn og hjálp-
aði mér að keyra myndina áfram.“
Hann spáir hinni ungu leikkonu bjartri
framtíð á hvíta tjaldinu. „Hún er frábær leik-
kona og falleg stelpa, þannig að henni eru allir
vegir færir. Ég mælist alltaf til þess að fólk
leiki í heimalandi sínu, sérstaklega þegar það
er að hefja ferilinn, þannig að María ætti að
leika eins mikið og hún getur heima á Íslandi.
Þegar hún hefur haslað sér völl þar getur hún
farið að horfa til annarra landa.“
Mads hefur sagt í viðtölum að hann hafi ekki
í annan tíma tekið upp kvikmynd við erfiðari
aðstæður og áréttar það hér. „Bæði það að
vera svona lengi einn að leika, eins og ég gat
um, auk þess sem samskipti okkar Maríu eru í
raun takmörkuð í myndinni, og svo hitt að
náttúran fór ekki mjúkum höndum um okkur.
Íslenska veðrið skiptir stöðugt um ham, eins
og þú þekkir, og fyrir vikið er afar erfitt að
skipuleggja hvern dag fyrir sig. Kuldinn var
svakalegur og vindurinn hreinlega sturlaður á
köflum; við lentum til dæmis í því að bílhurð
flaug af. Ekki var meira tekið upp þann dag-
inn. Hver áskorunin rak sumsé aðra. Eftir
þrjár vikur gáfumst við hreinlega upp á því að
skipuleggja dagana fram í tímann; tókum bara
því sem að höndum bar á hverjum morgni.
Maður deilir ekki við íslenska veðrið.“
Spurður hvort hann hafi fylgst með íslensk-
um kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum, sem
hafa verið í mikilli sókn úti í hinum stóra heimi
undanfarin misseri, andvarpar Mads. „Nei, því
miður. Ætli ég sé ekki sá leikari í heiminum
sem fylgist minnst með; ég sé aldrei neitt.
Hvorki bíómyndir né sjónvarpsþætti.“
Hann hlær.
„Ég veit þó að Íslendingar hafa verið að
gera góða hluti og kannast við nokkra Íslend-
inga í bransanum. En ég verð að sjá mynd-
irnar og sjónvarpsþættina síðar.“
Mads er þekktur fyrir fjölhæfni sína en
bregður sér í gervi stjórnmálamanns þegar
hann er spurður hvort hann kunni betur við
risastórar Hollywood-myndir eða litlar dansk-
ar myndir. „Ég er oft spurður að þessu og
svarið er alltaf það sama: Ég er svo gæfusam-
ur að geta gert hvort tveggja og þurfa ekki að
velja á milli. Ég geri bara það sem mér þykir
mest spennandi hverju sinni, sem eru mikil
forréttindi fyrir leikara. Ræturnar eru í Dan-
mörku og hér líður mér alltaf vel en eftir að ég
færði út kvíarnar hef ég fengið ómetanleg
tækifæri frammi fyrir fleiri áhorfendum sem
ég er óendanlega þakklátur fyrir.“
Svo skarast þessir heimar stundum. Hann
bendir til dæmis á að Arctic sé engin stór-
mynd, í fjárhagslegum skilningi, enda þótt hún
sé gerð af manni sem býr í Los Angeles, Joe
Penna. „Hann er raunar frá Brasilíu og þetta
er fyrsta myndin hans í fullri lengd. Svo er
myndin tekin upp á Íslandi, eins og við höfum
talað um, vegna þess að enginn annar staður
kom til greina. Svona margslungin og fjöl-
þjóðleg verkefni gefa mér mikið.“
Kann ágætlega við skúrkana
Á umliðnum árum hefur Mads ósjaldan verið í
hlutverki skúrksins, sérstaklega í Hollywood-
myndunum, og fengið mikið lof fyrir. Þykir
gjarnan gæða þá óræðni og mennsku sem er
alls ekki sjálfgefið þegar heimurinn hefur til-
hneigingu til að vera svart-hvítur. Spurður
hver lykillinn að eftirminnilegum skúrki sé
svarar hann: „Þeir þurfa að vera margslungnir
og hafa eitthvað til málanna að leggja. Sama
má raunar segja um góðu gæjana, þannig að
ég nálgast skúrkinn og góða gæjann í raun og
veru alls ekki á ólíkan hátt. Lykillinn er að
grafa djúpt í handritið og finna kjarnann.
Gæða persónuna lífi, hvort sem hún vill vel eða
illa.“
– En þú ert oftar „góði gæinn“ heima í Dan-
mörku.
„Já, það er rétt. Ég er sjaldnar skúrkurinn
hér heima, þó það komi auðvitað fyrir. Það er
tíska að norrænir leikarar fari með hlutverk
vondu karlanna í Hollywood, hvort sem það er
út af hreimnum eða hvort við lítum bara svona
grimmilega út.“
Hann hlær.
„Persónulega kann ég ágætlega við skúrk-
ana; maður vill auðvitað ekki festast í sama
hluverkinu. Eins og ég segi þá er ég afar þakk-
látur fyrir tækifærið í Hollywood og ef það
þýðir að ég þarf að vera vondi karlinn þá er
það ekkert vandamál af minni hálfu.“
Ætli Ólafur okkar Darri sé ekki á sama
máli?
Mads hefur líka brugðið sér í gervi sögu-
legra persóna, eins og tónskáldsins Igors Sta-
Mads Mikkelsen í hlut-
verki sínu í kvikmynd-
inni Arctic sem tekin
var upp á Íslandi.
Ljósmynd/Helen Sloan
Mads Mikkelsen
ásamt eiginkonu sinni,
Hanne Jacobsen.
AFP
’ Segja má að „dogmað“ hafi komið okkur Dönum á kortið fyrir um tuttugu árum og allar götur síðan hefur gefist velað vera danskur leikari á alþjóðavettvangi. Danir eru í tísku.