Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
MATUR
40 ml Pisco
30 ml greipaldinsafi
30 ml límónusafi
10 ml sykursíróp
nokkur fersk hindber
Blandið öllu saman í hristara
ásamt klökum og hristið. Hellið í
glas gegnum sigti og berið fram
með ferskri límónu og myntu.
Diskó
Daisy
Barþjónninn Helgi
Aron leggur áherslu á
að nota fersk hráefni.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Að búa til góðan kokteil er eins og aðelda góða máltíð,“ segir Helgi AronÁgústsson, barþjónn á Pablo Disko-
bar. „Hristararnir eru potturinn og pannan,
klakarnir eru hitinn. Aðalhráefnið í máltíð yrði
kannski steik eða fiskur, í kokteilum er það
spírinn, vodgi, gin, tequila, romm, pisco og
fleira,“ segir Helgi.
„Meðlæti er auðvitað nauðsynlegt, þú mynd-
ir ekki bjóða upp á steik eina og sér. Meðlætið
í kokteilum er líkjörarnir, þeir eru ekki að-
albragðið en þurfa að passa vel við. Sykur og
lime sjá um jafnvægið í drykknum, svolítið
eins og sósan. Síðan þarftu að bera máltíðina
vel fram, þegar þú ferð út að borða viltu að
diskurinn líti vel út, svo við reynum að láta
drykkinn líta vel út.“
Helgi Aron er yfirbarþjónn á Pablo Disko-
bar en staðurinn leggur mikið upp úr að bjóða
upp á góða kokteila með suðuramerískum blæ.
Pablo Diskóbar hefur verið starfandi í tæp
tvö ár, en barinn litríki er fyrir ofan veitinga-
húsið Burro, sem rekið er af sömu aðilum.
„Hjá okkur á Pablo er allt heimagert, við
framleiðum okkar eigin líkjör og okkar eigin
síróp, við notum aðeins ferska ávexti og fersk
ber, allt nema spírarnir er heimagert,“ segir
Helgi Aron sem í tilefni haustsins deildi nokkr-
um kokteiluppskriftum með Sunnudags-
blaðinu.
Haustkokteilar
frá diskóbar
Haustið er fullkominn tími fyrir kokteila, að minnsta kosti fyrir
Helga Aron Ágústsson, barþjón á Pablo Diskobar. Helgi deildi
með Sunnudagsblaðinu nokkrum skemmtilegum uppskriftum.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Mezcal
Margarita
45 ml Mezcal
25 ml límónusafi
10 ml sykursíróp
Blandið öllu saman í
hristara ásamt klökum og
hristið vel. Hellið í glas í
gegnum sigti og berið fram
með ferskri appelsínusneið.
45 ml dökkt romm
15 ml appelsínulíkjör
30 ml limesafi
30 ml ananassafi
10 ml sykursíróp
2 skvettur af Angostura bitter
Blandið öllu saman í
hristara ásamt klaka og hrist-
ið vel. Hellið í glas í gegnum
sigti og berið fram með
myntu.
Kayo
SYKURSÍRÓP
1 lítri af vatni
1 kg sykur
Sjóðið saman í potti þangað til
sykurinn hverfur.