Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018 HEILSA Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 91,0 kg 89,1 kg Upphaf: Vika 1: Vika 2: ..... 29.970 15.620 ..... 12.508 13.182 0 klst. 2 klst. 3 klst. HITAEININGAR Prótein 26,9% Kolvetni 36,9% Fita 36,2% Hver kannast ekki við að hafa lagt afstað í líkamsræktarátak, fullur eld-móðs en fundið sig skömmu síðar með hamborgara í annarri og rjómaís í hinni. – Kannski ekki svo myndrænt í raunveruleik- anum en þó þannig að þrátt fyrir fögur fyr- irheit leitar maður gjarnan í þægindin og óhollustu sem með ótrúlega lymskulegum hætti laumar sér inn í hversdagslega og stund- um tilbreytingarlausa dagskrána. En svo kem- ur að því hjá flestum að einhverjum botni er náð – maður fær eins konar ógeð á metnaðar- og stefnuleysinu og neyðist til þess að horfast í augu við að eitthvað verði til bragðs að taka (annað en það sem finna má í bragðaref og béarnaise-sósu). Horfast stíft í augu við sjálfan sig Þegar ég hugsa um andartök af því tagi (og ég upplifði eitt slíkt nú á haustdögum, þegar ég ákvað að taka til, losna við 10 kg og skrifa um það að auki í Mogga) koma mér gjarnan í hug kynngimögnuð orð Njarðar P. Njarðvík, sem lét þau falla við öllu alvarlegri aðstæður en þær sem ég stóð í fyrir skemmstu. Á einum stað segir hann: „Sérhver manneskja verður að horfast svo fast í augu við sjálfa sig að hún neyðist til að líta undan. Og horfa svo aftur. Án þess að líta undan.“ Það kemur í ljós að þessi orð eiga einstak- lega vel við þegar fólk ákveður loks, oft eftir mikið japl, jaml og fuður, að taka til í sínum ranni. Mörg skipbrot, vonbrigði, viðurkenning á aðstæðum sem vitna um lélegt form og versnandi heilsu, en loks andartak þar sem maður horfist í augu við vandamálið og virðist gera sér grein fyrir hvað þurfi til, eigi að tak- ast að snúa blaðinu við. Og með því að horfast í augu við aðstæðurnar eins og þær raunveru- lega eru er hægt að leggja mat á hvað sé að og í kjölfarið hvað þurfi svo færa megi hlutina til betra og heilbrigðara horfs. Yfirleitt einföld úrlausnarefni Það vex flestum sem ekki eru í góðu formi í augum að koma sér á þann stað að verða sáttir við sjálfa sig. Tvennt kemur til: Vanafesta og tími. Það er gott að hvíla í vananum og hann er yfirleitt innan ríflegs þægindaramma. Svo er það tíminn. Það tekur yfirleitt talsverðan tíma að snúa stöðunni við og sjá mælanlegan árang- ur. Sú staðreynd dregur fólk gjarnan undra- fljótt aftur að þægindalífinu þar sem minna þarf að hafa fyrir hlutunum. En sé viðfangsefnið ekki óyfirstíganlegt er hægt að brjóta það niður í smærri markmið. Það á ekki síst við þegar fólk er að ná tökum á þyngdarstjórnun. Það hljómar kannski undra- einfalt að léttast um 10 kg eða 15. En það tek- ur tíma og það gerist ekki af sjálfu sér. Þess vegna má brjóta markmiðið upp. 10 kg mark- miðið má þess vegna gera að 10 smærri mark- miðum eða jafnvel fimm. Það er mun auðveld- ara að losna við tvö kíló en 10. Og það tekur skemmri tíma. Þá er styttra í að maður geti fagnað áfangasigri. Þess vegna hef ég brugðið á það ráð að brjóta verkefnið niður í fimm hluta. Fyrst að komast niður í 90,7 kg og þaðan niður í 88,7. Þannig ætti mér, koll af kolli, að takast að þoka mér í átt að stóra markmiðinu. Næstum fjögur kíló farin nú þegar Og viti minn. Fyrsta vikan reyndist í algjörum meðvindi og af mér fuku 1,9 kg. Viðkvæði flestra var, sem vænta mátti, að þarna væri vatnið að renna af kroppnum. Og það kann að vera, en hvort sem það var vatn eða lýsi reynd- ist ég tæpum tveimur kílóum léttari en vikuna á undan. Ég var næstum því búinn að ná fyrsta undirmarkmiðinu. Það hefði eflaust náðst ef ég hefði ekki saltað hakkið svona mikið á fimmtu- daginn! Og nú, þegar enn er liðin vika af verkefninu, eru aftur fokin 1,9 kg. Miklu meira en ég leyfði mér að vona og það án gríðarlegs aðhalds. Holl og góð hreyfing, að mestu undir leiðsögn frá- bærs þjálfara, en mataræðið í góðu jafnvægi einnig. Á móti meiri hreyfingu vikuna á undan borðaði ég einnig tæpum 700 hitaeiningum meira síðustu sjö dagana. Það var allt innan marka og greinilegt að aukin hreyfing og minna af sykri gerir gæfumuninn. Gott að fagna litlu sigrunum Og þegar vel gengur er líka ástæða til að gera sér glaðan dag, verðlauna sig fyrir að hafa náð settum markmiðum. Ég hef því ákveðið, í ljósi þess að nú hlýtur að hægja á þyngdartapinu, að finna upp á leiðum til að fagna í hvert sinn sem ég segi bless við tvö kg á vigtinni. Það þarf ekki að vera neitt stórt en eitthvað sem ég leyfi mér ekki alla daga. Þarna er ég síst að vísa til einhvers matarkyns en fremur annars konar upplifunar eða einhvers þess sem mig langar í en ég ekki á. Kannski ný íþróttaföt og kannski nýtt belti – það gæti reynst nauðsyn- legt ef fram heldur sem horfir. Vanda þarf mark- miðasetningu Þegar maður hefur ákveðið að taka heilsuna í gegn skiptir máli að setja sér mark og mið. Án þess er hætt við að maður færist ekki úr stað eða hlaupi bara í hringi. En of mikill metnaður á fyrstu stigum getur reynst skeinuhættur. Það þurfa allir að setja sér markmið, jafnvel þótt smá séu í sniðum. Það er eina leiðin til árangurs. Morgunblaðið/Árni Sæberg Það eru ýmsar kenningar uppi um hvort maður eigi að vigta sig á hverjum degi eða láta lengra líða á milli. Ég ákvað strax að fylgjast náið með þró- un mála og framvindu verkefn- isins. Mælikvarðinn og mark- miðið enda augljós; 10 kg á sex mánuðum. Ég skundaði því út í Elko og fetaði mig í átt að deildinni sem hefur að geyma smærri heim- ilistæki. Þar var hægt að finna ógrynnin öll af baðvogum. Sum- ar þeirra svo fullkomnar að þær nefnast snjallvogir og geta þekkt allt að 16 notendur og mælt BMI-stuðul og tengst far- síma í gegnum Bluetooth! Ekki veit ég til hvers þessum búnaði hefur verið komið fyrir í tæki sem hefur jafn augljósan og einfaldan tilgang en ég keypti einfalt tæki á útsölu og virðist það virka nokkuð vel. Ég skrái á hverjum morgni þyngd mína í Æfingafélagann sem ég geymi í símanum. Og þar get ég fylgst með þróun mála yfir lengra tímabil. Sveiflur upp og niður eftir dögum, 100 grömm hér, 200 þar, skipta ekki máli. Ef þróunin til lengri tíma er niður á við, þá verð ég sáttur. VIGTIN ER EKKI ÓVINUR Á VEGFERÐINNI Langtímaleitni er það sem öllu skiptir Getty Images/iStockphoto „Þvílíkur munur! Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“ Elsa M. Víðis Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is Valið besta bætiefni við streituhjá National Nutrition í Kanada Betri svefn Melissa Dream er vísindalega samsett náttúrulyf, hannað til að stuðla að djúpri slökun og værum svefni. Þessi blanda inniheldur ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.