Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Síða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Síða 35
23.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 12.-18. SEPTEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 SkiptidagarGuðrún Nordal 2 Verstu börn í heimi 2David Walliams 3 Heilabilun á mannamáliHanna Lára Steinsson 4 MúmíuráðgátanMartin Widmark 5 Óboðinn gesturShari Lapena 6 Independent PeopleHalldór Laxness 7 FórnarmýrinSusanne Jansson 8 Maxímús músíkús, þrautabók Hallfríður Ólafsdóttir / Linda Margrét Sigfúsdóttir / Þórarinn Már Baldursson 9 Sumar í litla bakaríinuJenny Colgan 10 Korkusögur Ásrún Magnúsdóttir / Sigríður Magnúsdóttir 1 Vertu ósýnilegurKristín Helga Gunnarsdóttir 2 Strandaglópur á krossgötumBeka/Marko/Cosson 3 VetrarfríHildur Knútsdóttir 4 VetrarhörkurHildur Knútsdóttir 5 Draugsól – þriggja heima saga 4 Kjartan Yngvi Björnsson / Snæbjörn Brynjarsson 6 Sölvasaga unglingsArnar Már Arngrímsson 7 Valerían, bók 2Mézière/Christin 8 Eleanor og ParkRainbow Rowell 9 Innan múrannaNova Ren Suma 10 Afbrigði, Andóf og ArfleifðRoth Veronica Allar bækur Ungmennabækur Ég er að lesa hann Ragnar Jón- asson, er að lesa Myrknætti og finnst hún mjög góð. Ég byrjaði á að lesa þrjár sein- ustu bækurnar hans í nýju seríunni og svo fór ég að lesa Siglufjarðarbæk- urnar, sem eru mjög skemmtilegar, las síðast Snjóblindu. Ég bíð alltaf spennt eftir nýjum bókum frá Ragnari. Svo les ég mikið af barna- og unglingabókum. Ég vinn á bókasafni og það fylgir. Ég hef verið að lesa bæk- urnar hans Davids Walliams sem eru mjög skemmti- legar. Ég las síðast Grimma tannlækninn. Hún var hryllileg en góð fyrir því. Hann er mjög vinsæll hjá krökkunum. Það var ein- mitt að koma ný bók eftir hann, ég var að fá í hús Verstu börn í heimi 2. Hann er ekkert að skrifa um bestu börnin, en það höfðar alveg til krakka, þeim finnst þetta ekki slæmt og mér finnst það skemmtilegt. ÉG ER AÐ LESA Margrét Aradóttir Margrét Aradóttir er forstöðu- maður Bókasafns Eyjafjarðarsveitar. Fátt spyrst frá Norður-Kóreu nema með vilja ráðamanna. Það vakti því mikla athygli þegar handriti að smásögum eftir ókunnan höfund var smyglað úr landi fyrir fimm árum. Þær sögur hafa nú verið gefnar út í tuttugu löndum, nú síð- ast á Íslandi í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur, og heitir bókin Sakfelling. Höfundurinn skrifar undir dulnefninu Bandi og býr enn í Norður- Kóreu. Á árunum 1989-1995 skrifaði hann í leyni sögur og ljóð þar sem hann gagnrýndi stjórnarfarið í ríkinu og sjö þeirra sagna birtast í Sakfellingu. Angústúra gefur út. Bókin um gleðina – varanleg hamingja í breytilegum heimi heitir bók eftir Dalai Lama og Desmond Tutu. Í bókinni ræða þeir vinirnir hvernig hægt sé að finna gleði og frið þegar þjáningin í heiminum sé svona mikil og miðla af reynslu sinni og boðskap, en þeir hafa báðir þurft að takast á við margvíslega örðugleika, kúgun, útlegð og ofsóknir. Douglas Abrams, vin- ur þeirra beggja og náinn samstarfsmaður Tut- us erkibiskups, skráði bókina sem varð til í framhaldi af fundi þeirra í Dharamsala á Ind- landi. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi, JPV gefur út. Í eina tíð töldu margir á Vesturlöndum að Jiddu Krishnamurti væri Jesús endurborinn, þó hann hafi sjálfur þrætt fyrir það. Í bókinni Frelsi mannsins, sem kom fyrst út 1969, en er nú gefin út í íslenskri þýðingu Kristins Árnasonar, skorar Krishnamurti á lesendur að leggja til hliðar allar fyrirfram mótaðar hugmyndir um málefni á borð við ást, hamingju, ofbeldi, fegurð og dauða og læra að horfast í augu við okkur sjálf eins og við erum í raun og veru. Sæmundur gefur bók- ina út. NÝJAR BÆKUR Í bókinni Amma - draumar í lit rekur Hólmfríður HelgaSigurðardóttir sögu ömmu sinnar og nöfnu, Hólm-fríðar Sigurðardóttur, kennslukonu og skálds, og fléttar saman við sínar eigin minningar og upplifun. Hólmfríður starfar sem blaðamaður á Stundinni, sem gef- ur bókina út, en Amma - draumar í lit er fyrsta bók henn- ar. Í bókinni birtist mynd af sterkum persónuleika og Hólmfríður segir að það sé einmitt sá persónuleiki sem varð til þess að hún vildi segja þessa sögu. „Hún er líka ótrúlega skemmtileg og lifandi manneskja og hefur alltaf frá áhugaverðum hlutum að segja.“ — Nú er það svo að oft þegar mann langar til að heyra sögu ættmenna sinna þá eru þau horfin. „Ég hef einmitt heyrt það frá mörgum í kringum mig og margir sem segja: ég vildi að ég hefði gert það, og mjög margir fara líka að rifja upp sögur af fólkinu sínu. Ég er líka mjög ánægð með að hafa gert þetta núna. Þetta byrjaði þannig að ég ákvað að taka viðtal við hana, bara af forvitni, spurði hana hvort hún væri tilbúin að spjalla við mig um líf sitt. Ég áttaði mig fljótlega á því að hún hafði frá ýmsu áhugaverðu að segja og sagði mér svo margt sem ég ekki vissi um hana, hafði aldrei heyrt talað um. Svo hefur hún líka upplifað margt sem fólk upplifir ekki í dag vegna þess að tímarnir hafa breyst. Hún er í raun og veru svo ofur venjuleg kona og þess vegna fannst henni sjálfri sitt líf ekki vera efni í sögu en það er það samt.“ Í bókinni eru nokkur ljóð eftir ömmu Hólmfríðar Helgu og hún segir að það hafi verið lykilatriði fyrir bókina að hafa þau með. „Þau eru svo mikilvægur partur af ömmu, hún tjáir sig og hugsar í gegnum ljóð og það gefur verkinu mjög mikið að ég skuli hafa fengið að hafa þau með.“ — Þetta er ekki bara bein frásögn hennar, heldur blandarðu sjálfri þér inn í söguna og ferð fram og aftur í tíma. Varstu lengi að finna réttu frásagnaraðferðina? „Það tók mig svolítinn tíma að ákveða hvaða leið væri best að fara í þessari frásögn, ég var komin með svo mörg atriði sem mig langaði að segja frá. Þegar ég fór að hugsa langaði mig að kafa eftir fleiri minningum, var komin með nokkrar sem mér fannst varpa áhugaverðu ljósi á hana og svo datt mér í hug að nota tvær samhliða fyrstu persónu frásagnir, að ég myndi tala í fyrstu persónu líka.“ — Í fjölskyldum verður til viðurkennd mynd af fortíð- inni, viðurkenndar minningar. Stönguðust þær á að ein- hverju leyti við hennar upprifjun? „Það stangaðist ekki beint á við hana, það var frekar að það dýpkaði skilning minn á því sem gerst hafði. Ég var samt mjög meðvituð um að sumt af því sem hún var að rifja upp gerðist fyrir allt að 85 árum og auðvitað eru hennar minningar ekki endilega sannleikurinn og ekki mínar heldur. Ég var líka mjög meðvituð um það að hún á mjög margt fólk í kringum sig sem allt á sínar minn- ingar en ég ákvað að blanda því og minningum þess ekki inn í söguna.“ Ljósmynd/Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir Ofur venjuleg kona Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifaði bók um sögu ömmu sinnar, ofur venjulegrar konu, eins og hún orðar það, sem hefur þó frá mörgu að segja. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Fullkominn ferðafélagi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.