Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Page 40
SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2018 Haustdagskrá Gesta og gangandi hefst á ný á mánudag- inn en þetta samstarfsverkefni Rauða krossins í Reykja- vík og Ferðafélags Íslands hófst í apríl 2017. Farið er í stuttar göngur í nágrenni Reykjavíkur en það er Róbert Marshall sem hefur leitt göngurnar frá upphafi. „Markmið verkefnisins er að flóttafólk og íslenskir göngugarpar fái tækifæri til að skoða náttúruna og upp- lifa saman þá einföldu ánægju sem hafa má af útiveru,“ segir Sigrún Erla Egilsdóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í Reykjavík. Hún segir að göngurnar hafi gengið mjög vel og þátt- takendur hafi notið þess að fara saman út í náttúruna til að skoða og njóta. „Gönguferðir eru tilvalin leið fyrir fólk af ólíkum uppruna til að tengjast og eiga stund saman,“ segir Sigrún Erla. Haustdagskráin nær yfir næstu fimm vikur og verða göngurnar á mánudögum kl. 17. Safn- ast er saman við hús Rauða krossins, Efstaleiti 9, þar sem bíllausir fá far hjá þeim sem hafa pláss. Fyrsta gang- an verður á Valahnúka en næstu áfangastaðir á eftir eru Gálgahraun, Hafravatn, Hvaleyrarvatn og farinn verður Varmárhringur. Upplýsingar er að finna í Facebook-hópnum „Gest- ir og gangandi - Welcome hikes“. Sigrún Erla leggur áherslu á að all- ir séu velkomnir. „Þátttakendur hafa verið allt frá þriggja ára til sjötugs, þannig að allir geta tekið þátt. Það eina sem þarf er hlý föt, þægilegir skór, smávegis nesti og góða skapið. Við getum alltaf notað bílstjóra, svo að ef fólk getur komið á bíl er það vel þegið.“ Myndin er frá fyrri göngu en fyrsta gangan í haust verður á mánudaginn. Gestir og gangandi Sigrún Erla Egilsdóttir Gönguferðir eru tilvalin leið fyrir fólk af ólíkum uppruna til að tengjast og eiga stund saman, segir Sigrún Erla Egilsdóttir hjá Rauða krossinum. Í Morgunblaðinu fyrir réttum sextíu árum, 23. september 1958, var þátturinn „Hlustað á útvarp“, þar sem Þorsteinn Jónsson fór vítt og breitt yfir sviðið. Skáld og rithöfundar voru greinilega fyrirferðarmikil í dagskrá Ríkisútvarpsins á þess- um tíma, þeirra á meðal Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson skáld, sem talaði um daginn og veginn, „vel og skynsamlega, að vanda“. Talaði hann fyrst um haustið, mikinn annatíma, og komandi vetur, sem margir kvíða. Þá ræddi hann um skólana og kvað eitthvað bogið við skóla okkar og fræðslukerfi. „Fjöldi fólks kemur úr skólum þannig mennt- að, að það er ekki sendibréfs- fært og reikningskennsla í barna- skólum er allt of þung fyrir meirihluta barna. Íslenzk mál- fræði flókin í nútímakennslu og lítt skiljanleg.“ Hvað ætli Vilhjálmi þætti um skólakerfið í dag? Kímnisaga vikunnar, Prest- urinn á Bunuvöllum, var flutt af Ævari Kvaran, og var hún ágæt. „Ekki las Ævar söguna eins vel og afi hans, Einar H. Kvaran, gerði eitt sinn, er ég hlustaði á. Var það á skemmtun í Bárunni.“ GAMLA FRÉTTIN Ekki sendi- bréfsfært Skólabörn upp úr miðri síðustu öld. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar með beinum hætti og ekki liggur fyrir hvar eða hvenær hún er tekin. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Rupert Grint leikari Ed Sheeran tónlistarmaður Valdimar Guðmundsson söngvari DUCA Model 2959 L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,- L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,- TRATTO Model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 295.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,- MENTORE Model 3052 L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 299.000,- L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 329.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.