Morgunblaðið - 04.10.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Veður víða um heim 3.10., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 9 rigning
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk 0 snjóél
Þórshöfn 6 rigning
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Helsinki 6 rigning
Lúxemborg 14 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 13 rigning
London 17 skýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 12 skúrir
Berlín 13 heiðskírt
Vín 15 skýjað
Moskva 9 skúrir
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 24 heiðskírt
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 3 rigning
Montreal 10 alskýjað
New York 17 þoka
Chicago 24 þoka
Orlando 30 rigning
4. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:46 18:48
ÍSAFJÖRÐUR 7:54 18:50
SIGLUFJÖRÐUR 7:37 18:33
DJÚPIVOGUR 7:16 18:17
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Norðlæg átt 8-15 m/s, en lægir þegar
líður á daginn. Léttir víða til, en éljagangur um land-
ið norðaustanvert fram eftir degi. Ört kólnandi veður
og frost víða 0 til 8 stig um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG N-lægur vindur og rigning eða slydda N-til, en snjókoma til fjalla, hvassast
við N-ströndina. Úrkomulítið S-til og hægari vindur S- og A-lands. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það eiga örugglega eftir að bætast við fleiri
jólatónleikar í sölu nú í október,“ segir Hrefna
Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tix.is.
Tímabil jólatónleika er að renna upp og kepp-
ast tónleikahaldarar um hylli miðakaupenda.
Lausleg yfirreið Morgunblaðsins á miðasölu-
vefjum leiðir í ljós að nú geta þeir valið úr 115
tónleikum. Ljóst er að sú tala á eftir að hækka á
næstu vikum. Bæði á eftir að setja einhverja
tónleika í sölu en þar að auki bæta margir við
aukatónleikum ef salan gengur vel.
Hrefna kveðst ekki treysta sér til að meta
hvort umfang jólatónleika er meira nú en í
fyrra.
„Mér fannst þetta alla vega ná hámarki í
fyrra. En salan byrjar núna fyrr en áður. Það
eru margir byrjaðir af krafti í september og
reyna að ná markaðnum,“ segir hún.
Venju samkvæmt eru nokkrir stórir aðilar
áberandi á jólatónleikamarkaðinum. Baggalúts-
menn seldu fljótt og vel upp á 18 tónleika sína.
Björgvin Halldórsson verður með sína Jólagesti
á fimm sýningum og Bubbi heldur ferna Þor-
láksmessutónleika. Þá er Friðrik Ómar stórtæk-
ur og þau Hera Björk og Eyþór Ingi halda bæði
fjölda tónleika um allt land. Að þessu sinni
blandar Egill Ólafsson sér líka í slaginn með
stórtónleikum annan í jólum.
„Svo verður Ari Eldjárn með sínar áramóta-
sýningar. Þær fara í sölu í næstu viku,“ segir
Hrefna sem viðurkennir að mikill áhugi á tón-
leikum Eds Sheeran skyggi nokkuð á söluna á
jólatónleika þetta árið.
„En mér finnst reyndar kauphegðun hafa
breyst. Fólk er ekki endilega að rjúka til og
kaupa sér miða strax. Af því framboðið er svo
mikið þá leyfir fólk sér að bíða aðeins og sjá
hvað verður í boði. Viðburðahöldurunum finnst
þetta ekki mjög skemmtilegt.“
8 Friðrik Ómar er stórtækur í jólavertíðinni og setur upp fjölmörg
„show“. Hann mun að troða að minnsta
kosti þrisvar upp í Salnum í Kópavogi
ásamt Garðari Thor Cortes og Margréti
Eiri Hjartardóttur. Þá heldur Friðrik
norður í land og setur upp fimm tónleika
í Hofi á Akureyri. Þar nýtur hann liðsinnis
Siggu Beinteins, Garðars Thors, Diddúar,
Jógvans Hansen og Jóhönnu Guðrúnar.
115 j
ólatón-
leikar verða
haldnir um allt lan
d þetta
árið. Er þá miðað
við þá sem
eru í sölu á Tix.is
og Miða.
is en viðbúið er að
enn
fleiri séu í boði
Erfitt er að henda
reiður á fjölda
gesta en ljóst
að þeir munu
hlaupa á tug-
um þúsunda
Ótrúlegt framboð af jólatónleikum
18 Baggalútsmenneru stórtækastir og
hafa selt upp á 18 tónleika í
Háskólabíói.
157.000.000 Miðaverð á tón-leika Baggalúts er tæpar 9
þúsund krónur og salurinn tekur 970
manns í sæti. Innkoman á tónleikana
18 er því ríflega 157 milljónir króna.
14.990 Miðaverð á jólatónleika er afar mis-jafnt, allt frá þrjú þúsund krónum
og upp í 14.990. Meðal þeirra sem bjóða upp á þessi
dýrustu sæti eru Björgvin Halldórsson, Sissel, Geir
Ólafsson og Egill Ólafsson.
30 Hera Björk Þórhallsdóttir er sömuleiðis stórhuga þetta árið
og hefur bókað 18 tónleika um land
allt. Eyþór Ingi Gunnlaugsson stendur
henni ekki langt að baki og treður upp á
tólf stöðum
um land allt.
Samtals eru þetta 30
tónleikar.
12 Björgvin Halldórs-
son heldur í hefðirnar
og verður með fimm
tónleika í Eldborgarsal
Hörpu. Þetta mun vera
tólfta árið sem hann verður
með Jólagesti sína.
Minnst 115 jólatónleikar í boði
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu
jókst um 1,5% í september. Að mati
Vegagerðarinnar er það minnsta
umferðaraukningin á milli mánaða
það sem af er ári. Þetta er einnig
mun minni aukning en meðatal
septembermánaða á árunum 2005 til
2018. Umferð á talningarsvæðum
Vegagerðarinnar hefur aukist í ár
um 2,7% sem er er rúmlega þrisvar
sinnum minni aukning en á sama
tíma í fyrra.
Um er að ræða þrjú lykilsnið á
höfuðborgarsvæðinu þar sem Vega-
gerðin notar teljara til að mæla um-
ferð. Sniðin eru Hafnarfjarðarvegur
sunnan við Kópavogslæk, Reykja-
nesbraut við Dalveg í Kópavogi og
Nesbraut ofan Ártúnsbrekku við
Skeljung. Umferð um þessi svæði
jókst mest um 4,6% og var það á
milli janúarmánaða 2017 og 2018.
Þegar skoðuð eru lengri tímabil þá
hefur umferð frá árinu 2005 aukist
að jafnaði um 2,9% í septembermán-
uði. Þar af leiðandi er umrædd
aukning ársins í ár einungis helm-
ingur þess sem gerist í meðalári.
Mest jókst umferðin í sniði fyrir of-
an Ártúnsbrekku eða um 3,3% en
dróst saman um 0,8% í sniði á
Reykjanesbraut við Dalveg.
Í síðastliðnum september var
mest ekið á föstudögum, rétt sjón-
armun meira en á fimmtudögum.
Minnst var ekið á sunnudögum.
Hlutfallslega jókst umferðin mest á
miðvikudögum eða um 4,6% en
minnst jókst umferðin á laugar-
dögum eða um 0,8%. Umferð á bíl-
lausa deginum, laugardaginn 22.
sept., var 1,5% meiri en á meðal-
laugardegi í septembermánuði.
Í framtíðarhorfum Vegagerðar-
innar stefnir í að umferð gæti aukist
um 3% það sem eftir er af árinu, sem
yrði svipuð aukning og á árunum
2013 og 2014.
Minnsta aukningin í síðasta mánuði
Morgunblaðið/Hari
Umferð Vegagerðin býst við að um-
ferð muni aukast á næstu mánuðum.
„Vélarvana og dreginn til hafnar“
er tólf sinnum atvikalýsing á mál-
um sem afgreidd voru á fundi
Rannsóknanefndar sjóslysa á föstu-
dag.
Alls lauk afgreiðslu 32 mála á
fundinum og drög að lokaskýrslu
voru í sjö málum send til umsagnar.
Þar á fyrrnefnd atvikalýsing við í
þremur tilvikum.
Ef lokaskýrslurnar eru skoðaðar
nánar kemur í ljós að í flestum til-
vikum var um að ræða strandveiði-
og handfærabáta sem voru að veið-
um víða við landið í sumar. Ástæður
þess að bátarnir urðu vélarvana og
þurftu aðstoð voru af ýmsum toga.
aij@mbl.is
Margir vélarvana og
dregnir til hafnar
Ung erlend göngukona féll nokkra
metra og slasaðist hátt í Kirkjufelli
við Grundarfjörð um klukkan 18.00 í
gær. Hún lét vita og bað um aðstoð.
Sjúkraflutningamenn úr Grundar-
firði komu fyrstir að konunni um
klukkan 19.30. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sótti hana í fjallið og
flutti á sjúkrahús í Reykjavík.
Hægviðri var en slæmt skyggni,
slydda á jafnsléttu og snjókoma á
fjallinu. „Þeir voru ótrúlega seigir á
þyrlunni að ná að sækja hana. Að-
stæður voru mjög erfiðar. Þeir eiga
allan heiðurinn af að hafa gert þetta
vel,“ sagði Þórður Þórðarson hjá
lögreglunni á Snæfellsnesi. Konan
mun hafa hlotið beinbrot og var orð-
in köld en með meðvitund. Hún virð-
ist hafa verið ágætlega útbúin.
Björgunarsveitir á Snæfellsnesi
og Vesturlandi voru kallaðar út.
Þórður taldi að um 50-70 manna
björgunarlið hefði komið á staðinn.
Aðstæður voru mjög erfiðar á fjall-
inu, bleyta, hálka og snjór og erfitt
að fóta sig. Björgunarmenn fóru ró-
lega niður enda þurfti að gæta mik-
illar varúðar. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Kirkjufell Fjallið er mjög bratt og
þykir krefjandi uppgöngu.
Ferðamanni
bjargað úr
Kirkjufelli
Mjög erfiðar að-
stæður í fjallinu