Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Braggi meirihluta borg-arstjórnar og náðhúsið sem hjá
honum stendur eru að verða eitt-
hvert ævintýralegasta klúður í
framkvæmdasögu borgarinnar. Þó
er það svo að hið
mikla náðhús er enn
fjarri því að vera full-
byggt, en kostnaður
er kominn í 46 millj-
ónir króna.
Framkvæmdin öller sem kunnugt er komin yfir
fjögur hundruð milljónir króna og
er víðs fjarri áætlunum.
Ekki hefur komið fram hversvegna náðhús braggans þarf
að kosta slíkar fjárhæðir, en um-
hugsunarvert er að þetta er ekki
fyrsta aðstaðan af þessu tagi sem
meirihlutinn í borgarstjórn fær sér-
stakan áhuga á.
Stutt er síðan önnur náðhúsborgarinnar komust í fréttir
vegna vandræða borgarráðs og
áherslunnar á kynlaus salerni.
Sú umræða var mjög gefandi ásinn hátt en þó ekki jafn ýkt og
framúrkeyrslan í braggamálinu.
Af því máli er það nýjast aðminnihlutinn í borgarstjórn
hefur talið nauðsynlegt og sjálfsagt,
sem von er, að fram fari utanaðkom-
andi óháð rannsókn á klúðrinu.
Meirihlutinn ákvað hins vegar aðinnri rannsókn borgarendur-
skoðunar væri nægilega óháð. Og
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgar-
fulltrúi Viðreisnar, bætti því við að
innri úttekt yrði líka ódýrari en ytri
úttekt.
Ætli sú fullyrðing byggist ásömu áætlunum og bragga-
byggingin?
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Sparað í rannsókn
á braggaklúðri
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Málið hefur ekki verið rætt innan
nefndarinnar en nefndarmenn eru
sammála um mikilvægi þess að það
verði gert,“ segir
Bergþór Ólason,
formaður um-
hverfis- og sam-
göngunefndar Al-
þingis.
Umhverfis- og
samgöngunefnd
hefur óskað eftir
því að fá afhenta
umtalaða áfanga-
skýrslu starfs-
hóps á vegum
samgönguráðherra um Samgöngu-
stofu. Morgunblaðið hefur fjallað ít-
arlega um skýrsluna að undanförnu
og telur Bergþór að rétt sé að taka
efni hennar til umfjöllunar á vett-
vangi nefndarinnar.
„Við höfum kallað eftir aðgangi að
þessari skýrslu og öllu því sem henni
fylgir. Það sem hefur komið fram
hingað til bendir til þess að það sé
eitt og annað sem ástæða er til að
skoða gaumgæfilega. Nú bíðum við
eftir því að samgöngu- og sveitar-
stjónarráðuneytið afhendi okkur
skýrsluna og fylgiskjöl og tökum
hana svo til umfjöllunar,“ segir
Bergþór í samtali við Morgunblaðið.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá skipaði Jón Gunnarsson,
þáverandi samgönguráðherra,
starfshóp sem greina átti verkefni
Samgöngustofu. Starfshópurinn
skilaði af sér áfangaskýrslu í október
árið 2017 þar sem kom meðal annars
fram alvarleg gagnrýni á innri starf-
semi Samgöngustofu og tillögur að
úrbótum. Samskipti Samgöngustofu
og Isavia voru gagnrýnd auk þess
sem athugasemdir voru gerðar við
það hvernig tekið var á erfiðum
starfsmannamálum svo dæmi séu
tekin.
Ræða málefni
Samgöngustofu
Þingnefnd skoðar skýrslu starfshóps
Bergþór
Ólason
Morgunblaðið/Hari
Samgöngustofa Starfsemi stofn-
unarinnar verður rædd í þingnefnd.
Karlmaður sem slasaðist við vinnu í
kísilverksmiðju PCC á Bakka á
Húsavík í fyrradag varð fyrir skoti
úr byssu sem notuð er til að opna
bræðsluofn. Maðurinn gekkst undir
aðgerð á Akureyri síðar um daginn.
Greint er frá þessu á Facebook-
síðu PCC Bakka. Þar kemur fram
að maðurinn hafi ekki hlotið alvar-
legan skaða og gert sé ráð fyrir að
hann nái fullum bata.
Málið er litið alvarlegum augum
og byssan hefur verið tekin úr
notkun á meðan rannsókn fer fram.
Farið verður yfir alla verkferla.
Slasaðist við byssu-
skot í PCC Bakka