Morgunblaðið - 04.10.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Ítilefni þess að 50 ár eru liðinsíðan rokkhljómsveitin LedZeppelin var stofnuð ætla eft-irlifandi meðlimir hennar að
gefa út 400 blaðsíðna bók með
myndum og minningum frá við-
burðaríkum ferli
hljómsveitar-
innar.
Þeir Jimmy
Page, Robert
Plant og John
Paul Jones hand-
völdu hundruð
ljósmynda sem
birtast í bókinni
og skrifuðu
myndatexta í rík-
um mæli og lýsingar á því sem
myndirnar sýna auk þess að minnast
ýmissa atvika og upplifana á þessum
hálfrar aldar ferli hljómsveitar-
innar.
Ljósmyndirnar voru meðal
annars teknar á tónleikum og við-
burðum þar sem Led Zeppelin kom
fram.
Myndir úr Laugardalshöll
Útgefandi bókarinnar, Real Art
Press, hefur staðfest að í bókinni,
sem kemur út þriðjudaginn 9. októ-
ber megi finna þrjár myndir frá tón-
leikunum sem Led Zeppelin hélt í
Laugardalshöll 22. júní 1970.
Kristinn Benediktsson, fyrrver-
andi ljósmyndari Morgunblaðsins,
var á tónleikunum og tók tvær af
þeim myndum sem birtast í bókinni
frá tónleikunum í Laugardalshöll.
Kristinn var ljósmyndari hjá
Morgunblaðinu á árunum 1967 til
1974 og varð síðar fréttaritari og
ljósmyndari blaðsins í Grindavík í
fjölda ára. Kristinn var af-
kastamikill ljósmynd-
ari og ferðaðist víða
um landið til að mynda
tónleika og aðra við-
burði.
Í bókinni Öll mín
bestu ár sem kom út í
nóvember 2015 má
finna myndir Kristins
úr íslensku skemmt-
analífi á árunum 1966
til 1979 en í henni var
ítarlega fjallað um Ís-
landsheimsókn Led
Zeppelin.
Kristinn lést 23.
júní 2012 en hefði orð-
ið sjötugur í dag, 4.
október 2018.
„Eitt af einkenn-
um hans sem ljósmyndara, fyrir ut-
an að vera vandvirkur og mjög
áhugasamur, var hversu mikill sögu-
maður hann var í eðli sínu. Hann leit
mikið á ljósmyndirnar sem verkfæri
til að segja sögu,“ segir Stefán Hall-
dórsson, fyrrverandi blaðamaður og
samstarfsmaður Kristins, í samtali
við Morgunblaðið. Þeir Stefán og
Kristinn voru miklir vinir og voru
nýlega byrjaðir að vinna að útgáfu
bókarinnar Öll mín bestu ár þegar
Kristinn féll frá.
Fangaði stemninguna
Stefán skrifaði um tónleika Led
Zeppelin í Laugardalshöll fyrir
Morgunblaðið á meðan Kristinn sá
um að fanga stemninguna með
myndavélina að vopni.
„Á Led Zeppelin-tónleikunum
tók hann mikinn fjölda ljósmynda og
augljóst að hann
leitaðist við að
fanga ekki ein-
ungis hljóm-
sveitina sjálfa
heldur líka
áhorfendur og
stemninguna.
Það var að
mörgu leyti ein-
kennandi fyrir
hans vinnu í okk-
ar samstarfi, það
var þessi þörf
hans fyrir að
vera sögumað-
ur,“ bætir Stef-
án við.
Led Zeppelin rifjar upp ferilinn
Kristinn Benediktsson
heitinn, sem var ljós-
myndari Morgunblaðs-
ins, á tvær myndir í ljós-
mynda- og minningabók
sem hljómsveitin Led
Zeppelin gefur út til að
minnast þess að 50 ár
eru liðin síðan sveitin
var stofnuð.
Ljósmynd/Kristinn Benediktsson
Öflugur Trommuleikari Led Zeppelin, goðsögnin John Henry Bonham, er
af mörgum talinn besti trommuleikari sögunnar. Hann lést árið 1980.
Ljósmynd/Kristinn Benediktsson
Bassaleikari hljómsveitarinnar John Paul Jones tók þátt í að velja ljós-
myndirnar í bókina, skrifa myndatexta og lýsingar sem þar er að finna.
Kristinn
Benediktsson
Led Zeppelin Bókin ber
sama nafn og sveitin.
Gísli Jónsson dr.med.
Sérgrein hjartasjúkdómar og lyflækningar
hefur flutt læknastofu sína frá Domus Medica
á Álfaskeið 16, Hafnarfirði.
Tímapantanir virka daga 9-17 í s. 517 05 05
Ljósmyndakeppni
Bílablaðs Morgunblaðsins
Kosning og nánari upplýsingar á
Facebook.com/bilafrettir
Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara:
• Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is
• Frestur til að skila inn myndum í keppni október er til kl. 23:59 laugardaginn 6. okt.
• Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn
• Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu
• Keppnin fer fram í fjórum lotum og verður sú síðasta haldin í nóvember.
• Fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru veittar gjafakörfur með
Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum
• Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði
• Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember
Fyrsti vinningur er ferð
fyrir tvo á bílasýning-
una í Genf í mars
í boði Toyota á Íslandi.
www.mbl.is/bill