Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
varðandi notkun og öryggi léttra
bifhjóla. Bæklingurinn hefur verið
sendur á alla grunnskóla landsins
og er einnig aðgengilegur á vefsíðu
Samgöngustofu. Til stendur að gefa
út fræðslumyndband með sömu
upplýsingum. Þá hafa fulltrúar
Samgöngustofu heimsótt grunn-
skóla og verið starfsfólki skóla, for-
eldrum og foreldrafélögum til ráð-
gjafar um forvarnir og fræðslu til
nemenda.
Morgunblaðið leitaði svara hjá
Sjóvá hvernig tryggingamálum er
háttað ef ökumaður létts bifhjóls
slasast eða ef þriðji aðili verður
fyrir hjólinu. Í skriflegu svari frá
Karlottu Halldórsdóttur, verkefna-
stjóra forvarna hjá Sjóvá, segir að
vespur sem teljast létt bifhjól í
flokki I séu ekki vátryggingaskyld-
ar og mismunandi geti verið eftir
tryggingafélögum hvernig vespur
eru tryggðar.
Hjá Sjóvá eru létt bifhjól í flokki
I tryggðar inni í Fjölskylduvernd 2
og 3. Verndin nær yfir slys á öku-
manni, þjófnað á vespunni,
skemmdir á henni og líkams- eða
munatjón þriðja aðila ef til skaða-
bótaábyrgðar kemur. Verndin er
þó háð þeim skilyrðum að ekki hafi
verið átt við hjólið, þ.e. að það kom-
ist ekki hraðar en 25 km/klukku-
stund.
Um tilvik þar sem þriðji aðili
verður fyrir tjóni segir Karlotta að
þá þurfi að leita til ábyrgðartrygg-
ingar sem er innifalin í Fjölskyldu-
verndinni. Í slíkum tilfellum þarf
að liggja fyrir rökstuðningur fyrir
því að ökumaður hafi sýnt af sér
sök eða gáleysi og þá getur mynd-
ast skaðabótaskylda á ökumanninn.
Ef ekki er hægt að færa rök fyrir
því að ökumaður hafi sýnt af sér
sök á þolandinn ekki rétt á bótum
en getur leitað í sína eigin heim-
ilistryggingu ef hún er til staðar.
Karlotta segir að ekki hafi verið
tekið saman hvort slysum, þar sem
létt bifhjól í flokki I koma við sögu,
hafi fjölgað. „En við höfum tilfinn-
ingu fyrir því að þeim hafi fjölgað
talsvert að undanförnu,“ segir hún.
Erfitt er að sinna eftirliti
Karlotta segir að Sjóvá hafi
áhyggjur af því að skráningar-
skylda sé ekki virk. „Það er því erf-
itt fyrir lögreglu að fylgjast með
því hvort bifhjól á gangstéttum eru
í reynd bifhjól í flokki I eða í flokki
II. Nokkuð hefur borið á því að bú-
ið sé að taka hraðatakmörkunar-
búnað úr þessum hjólum og þau því
í reynd orðin létt bifhjól í flokki II
sem ber að tryggja með lögboðinni
ábyrgðartryggingu ökutækja. Með
auknum hraða aukast líkur á tjóni
og alvarlegum slysum.“
Ekki fundið fyrir fjölgun kvartana
Nokkuð hefur borið á því að hraðatakmörkunarbúnaður sé tekinn úr vespum Aukinn hraði
leiðir til fleiri slysa Erfitt að sinna eftirliti Tryggingar á léttum bifhjólum eru mismunandi
Morgunblaðið/Hari
Vespur Leiktæki eða farartæki í umferðinni? Þeim er ekið jafnt á vegum, gangstéttum, stígum og yfir gangbrautir.
Karlotta
Halldórsdóttir
Þórhildur Elín
Elínardóttir
BAKSVIÐ
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Samgöngustofa hefur ekki orðið
vör við fjölgun kvartana vegna
léttra bifhjóla, sem eru m.a. raf-
magns- eða bensínknúnar vespur
sem aka má á gangstígum og
-stéttum auk hjólastíga. Sam-
göngustofa er þó meðvituð um
þann möguleika að hægt er að
breyta hjólunum svo þau komist
hraðar og þá hættu sem breyttum
hjólum fylgir. Þetta kemur fram í
skriflegu svari frá Þórhildi El-
ínardóttur, samskiptastjóra stof-
unnar, við fyrirspurnum Morgun-
blaðsins.
„Ef hjólið kemst hraðar en 25
km/klst. er það komið í flokk II þar
sem krafist er bifhjólaprófs eða
ökuskírteinis. Hjól í flokki II eru
oft kölluð skellinöðrur í daglegu
tali og þarf ökumaður að hafa náð
15 ára aldri,“ segir í svari Þórhild-
ar. Hún tekur fram að foreldrar
þurfi að vera meðvitaðir um að
hægt er að breyta hámarkshraða
hjólanna. Einhver dæmi séu um að
það sé gert án vitneskju foreldra og
ábyrgðarmanna og þar með er hjól-
ið komið í næsta flokk sem felur í
sér mikla hættu fyrir yngri öku-
menn.
Ekki gerð krafa um ökunám
Ekki er gerð krafa um ökunám
eða ökuréttindi til þess að aka létt-
um bifhjólum í flokki I en öku-
maður verður að hafa náð 13 ára
aldri. Skylda er að vera með bif-
hjólahjálm við akstur. Ökumaður
má einungis vera með farþega eftir
að hafa náð 20 ára aldri og ef hjólið
er gert fyrir farþega.
Með breytingum á umferðar-
lögum árið 2015 voru létt bifhjól í
flokki I gerð skráningarskyld. Ekki
er þó búið að virkja skráningar-
skylduna og Þórhildur segir í skrif-
legu svari að „við vinnu við virkjun
skráningarskyldunnar hefur verið
horft til framkvæmdar annars stað-
ar á Norðurlöndum, en m.a. er til
skoðunar hvort nauðsynlegt er að
gera bifhjól í flokki I trygginga-
skyld og skoðunarskyld samhliða
skráningarskyldu“.
Virk fræðsla til unglinga
Þórhildur nefnir sérstaklega í
svari sínu að Samgöngustofa hefur
gefið út bækling til upplýsinga, for-
varna og fræðslu um helstu atriði
„Dyrnar standa opnar og ég
labbaði út í bíl til þess að ná
í sýningareintak af myndavél
sem ég ætlaði að selja, stíg
eitt skref út fyrir búðina og
ranka síðan við mér nokkrum
metrum frá. Ég endaði á
slysadeild og er allur bólginn
og krambúleraður og lélegur
til gangs,“ segir Gylfi Gylfa-
son, framkvæmdastjóri
Radíóbúðarinnar í Bæjarlind
Kópavogi. Atvikið átti sér
stað í síðustu viku þegar
ungur ökumaður á léttu bif-
hjóli ók á Gylfa er hann steig
út úr verslun sinni.
Gylfi segir nauðsynlegt að
taka frekari umræðu um
þessi ökutæki áður en enn
alvarlegra slys eða harm-
leikur verður af völdum
þeirra. „Þetta er ekki for-
svaranlegt að leyfa börnum
án nokkurrar ökukennslu og
í ofanálag óvissu um hvað
varðar tryggingar að aka inn-
an um fólk, t.a.m. gamal-
menni. Ég er heyri kvartanir
undan þessu æ oftar,“ segir
Gylfi. Þá segist hann einnig
vera hugsi yfir því hve marg-
ir hjálmlausir unglingar séu
á hjólunum, en skylda er að
vera með hjálm á léttum bif-
hjólum.
Hann ítrekar í samtali við
Morgunblaðið að hann sé
ekki reiður úti í ökumann
hjólsins heldur frekar út þá
sem leyfa akstur slíkra tækja
á gangstéttum. Mótorhjól
eigi ekki erindi inni á göngu-
stíga, þó geti verið rétt-
lætanlegt að leyfa léttar
vespur á gangstígum en hef-
ur áhyggjur af því að átt sé
við ýmiss létt bifhjól svo að
þau komist hraðar. Það auki
slysahættu á gangstígum
verulega.
Vill frekari
umræðu
um bifhjól
VARÐ FYRIR SLYSI
Ármúla 11
108 Reykjavík
Sími 568-1581
ÞÓR FH
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 9:00 - 18:00
Lokað um helgar
Tölvuverslun - Reykjavík: Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hraðari & hagkvæmari kynslóð af WorkForce
EINLITA EPSON PRENTARI
Helstu kostir:
• Prenthraði (SO/IEC 24734)
Allt að 24 síður á mínútu.
• Mono Bleksprautuprentari
Prentar aðeins í svörtu.
• Miklir tengimöguleikar
USB2, Þráðlaust net, WiFi Direct, NFC og Ethernet.
• Prentun beint úr síma
Ókeypis app til að prenta beint úr síma.
• Hagkvæmprentun
Hægt að velja á milli prenthylkja sem prenta út
allt að 5.þús. síður, 10.þús. síður eða 40.þús. síður.
Einlita (svartur) bleksprautu prentari sem getur prentað út allt að 40þús síður með einu og
sama blekhylkinu. PrecisionCore prenthaus og aðeins svart blekhylki (DURABrite Ultra).
Fyrsta síða út á 4,8 sekúndum og prentar allt að 24 blaðsíður í góðum gæðum ámínútu.
Beinn stuðningur við iPhone/iPad og Android. Hægt er að fá APP til að prenta með iOS og
Android tækjum. Allar helstu skipanir á skjá.
EPSONWORKFORCE PROWF-M5299DW
40. þús. síður 10.þús. síður 5. þús. síður
F
IM
M
TU
DAGSLEIKU
R
•
M
O
RGUNBLAÐ
SI
N
S
•
FINNDU
HAPPATÖLUNA
Í BLAÐINU
– og þú gætir dottið
í lukkupottinn