Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Átta íslenskar stúlkur fóru sigri hrósandi frá
WLDF-danskeppninni sem haldin var í Dublin í
Írlandi um miðjan síðasta mánuð. Um hundrað
dansarar voru skráðir til leiks.
Stúlkurnar eru allar í afrekshópi breska
danshöfundarins Chantelle Carey sem hlaut
Grímuverðlaunin 2017 og 2018 fyrir dans- og
sviðshreyfingar í sýningunum Bláa hnettinum
og Slá í gegn. Markið er sett á að komast á
heimsmeistaramót í ágúst á næsta ári.
Stúlkurnar kepptu í einstaklingskeppni og
sem hópur. Sigríður Ragnarsdóttir keppti í
flokki undir 14 ára þar sem hún hafnaði í fyrsta
sæti. Í flokki undir 16 ára kepptu fjórar íslensku
stelpnanna og skipuðu þær allar efstu fjögur
sætin. Ísabella Tara Antonsdóttir varð í fyrsta
sæti, Rut Rebekka Hjartardóttir önnur, Sandra
Kristjánsdóttir í þriðja og Eydís Gauja Eiríks-
dóttir fjórða. Þá varð Hildur Kaldalóns Björns-
dóttir í fyrsta sæti í flokki eldri en 18 ára.
Kepptu sem víkingar í liðakeppninni
Þá kepptu stúlkurnar átta, ofantaldar auk
þeirra Sóleyjar Agnarsdóttur og Helgu Harðar-
dóttur, sem „víkingar“ í hópdansi eldri en 14 ára
og unnu flokkinn með glæsibrag.
Þá kepptu stúlkurnar allar í frjálsri aðferð
þar sem Rut Rebekka endaði í fyrsta sæti.
„Við náðum fyrsta sætinu í öllum flokkum, og
í þeim flokkum þar sem fjórar stelpnanna
kepptu náðum við efstu fjórum sætunum,“ segir
Chantelle, augljóslega mjög hreykin af íslensku
stelpunum. Hún kom fyrst hingað til lands árið
2014 sem aðstoðarkóreógraf og dansþjálfari í
Billy Elliot-sýningunni í Borgarleikhúsinu. Þar
þjálfaði hún m.a. tvær stúlknanna sem tóku þátt
í keppninni í Dublin.
Chantelle hefur verið með annan fótinn á Ís-
landi eftir að hún starfaði í kringum Billy Elliot
en er búsett í Lundúnum. Hefur hún komið
fram í fjölda söngleikja á West End og víða um
heim, og starfað við listræna stjórnun í söng-
leikjum. Auk Chantelle kom breski ballett-
kennarinn Dilly Greasley, sem starfaði með
Chantelle að dansþjálfun fyrir Billy Elliot, að
þjálfuninni.
Stelpurnar kepptu í ljóðrænum dansi (e.
Lyrical Dance), sem er eins konar blanda af
ballett, djassi og listrænni tjáningu með sögu-
þræði. „Þetta er fyrsta keppnin sem þessi hóp-
ur tekur þátt í og við kepptum í einni tegund af
dansi til að sjá hvernig þær stæðu sig undir
álagi,“ segir Chantelle. „Þær kepptu í flokki ný-
liða en með sigrinum fara þær upp um flokk og
keppa næst við fleiri keppendur í þeirra aldurs-
flokki,“ segir hún. Chantelle segir það hafa ver-
ið frábært að sjá hversu mikinn stuðning stelp-
urnar fengu líka heima fyrir. „Þetta hefði aldrei
gengið upp án foreldra stelpnanna. Foreldrar
þeirra alla fylgdu þeim út og hvöttu þær áfram,
það var ótrúlegt að sjá það,“ segir hún. „Þau
hjálpuðu til við að sauma búningana, sjá um
hárið á þeim og studdu þær alla leið,“ segir hún.
Chantelle segir að undirbúningur sé hafinn fyr-
ir næstu keppni í Bretlandi, þar sem þær geta
unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistara-
móti.
Í fyrsta sæti í öllum aldursflokkum
Íslenskur stúlkna-
hópur sigraði í öllum
flokkum WLDF-dans-
keppnarinnar í Dyflinni
Sigurvegarar Íslensku stelpurnar sigruðu í öllum aldursflokkum í einstaklingskeppninni og í hópdansinum í danskeppninni í Dublin í Írlandi.
Morgunblaðið/Hari
Höfundurinn Chantelle Carey er tvöfaldur Grímuverðlaunahafi fyrir dans- og sviðshreyfingar.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
SPORT-
HALDARI
frá Panache
• Einstök
verðlaunahönnun
• Hámarks stuðningur
• Minnkar hreyfingu
brjósta um 83%
• Ath! Einnig fáanlegur
í svörtu
Nýr
Borgarstjórn samþykkti á þriðju-
daginn að Strætó aki á 7,5 mínútna
tíðni á stofnleiðum á háannatímum
frá ársbyrjun 2020. Jafnframt var
óskað eftir upplýsingum frá stjórn
fyrirtækisins um farþegafjölda á
hverri leið, núverandi kostnað við
hverja leið og mati á því frá stjórn-
inni hve mikið það myndi auka
kostnaðinn að auka tíðnina á hverri
leið.
Í dag ekur Strætó á 10 mínútna
tíðni á stofnleiðum en stefnt er að
því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5
mínútna fresti frá og með ársbyrjun
2020.
Í greinargerð með tillögunni sem
fulltrúar meirihlutans báru fram
segir að aukin tíðni á stofnleiðum
Strætó á hánnatímum sé hagkvæm
til að auka þjónustu á þeim leiðum
þar sem eftirspurnin er hvað mest.
Tillagan gerir ráð fyrir samkomu-
lagi við önnur sveitarfélög sem taka
þátt í rekstri byggðasamlagsins
Strætó þar sem hún krefst fjárútláta
frá sveitarfélögunum og kallar því á
leiðakerfisbreytingar.
Morgunblaðið/Eggert
Strætó Borgarstjórn hefur samþykkt að stefna að aukinni tíðni strætóferða
á þremur stofnleiðum frá og með ársbyrjun 2020.
Þrjár strætóleiðir á
7,5 mín fresti 2020