Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 30

Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 þaðan mun vera aðaluppistaðan í Johnnie Walker Black Label. Stúlk- urnar í versluninni mundu ekki eftir að Íslendingar hefðu komið þangað áður. Þar fengu hinir langt að komnu að bragða á þremur mis- munandi viskítegundum hússins. Á þriðja og síðasta degi var farið til Glenfiddich, þó ekki í sjálfa verk- smiðjuna heldur á matsölustaðinn og í verslunina, fyrirtækið var stofn- að árið 1887 af William Grant og er enn í dag í eigu af komenda hans, og eftir það í skoðunarferð til annars risa á markaðnum, í Glen- livet-verksmiðjuna, og svo litið rétt aðeins á hinn þriðja, Macallan- verksmiðjuna í Craigellachie, sem er að hluta til niðurgrafin í jörð, á afar smekklegan máta, ekki ósvipað og bústaður hobbita í ónefndri kvik- mynd. Og síst var það tilkomuminna sem inni beið. Macallan hefur fram- leitt viskí allt frá árinu 1824. Í þorpinu Tomintoul er meira en hundrað ára gömul búð, The Whisky Castle, þar sem m.a. bauðst að dreypa á nokkrum gæðateg- undum ókeypis, þar á meðal einni sem hvergi er til sölu nema þar. Stórbrotið landslagið á heimleið- inni, rétt eins og í norðurferðinni, kórónaði svo allt. Lærdómurinn Og hvað lærðist svo í reisunni? Jú, eftirfarandi: Möltun, mesking, gerjun, eiming og þroskun eru grunnþættir í framleiðslu á malt- viskíinu. Þegar byggið hefur verið maltað, þ.e. látið spíra að hluta í raka, og síðan malað í heppilega stærð er það látið í vatn í svokölluðu meskikeri, sem er með hringsnú- andi spöðum að innanverðu, og blandan hituð upp að 64°C. Við það brjóta amýlasar kornsins sterkju þess í tvísykrur og aðrar smærri einingar. Eftir um hálfa klukku- stund er seigfljótandi vökvinn þynntur og hitastigið aukið í 85°C og látið vera svo í um 15 mínútur. Hratið er þá skilið frá og vökvinn kældur. Á þessu stigi nefnist hann meski. Það fer í tank og er geri stráð út í. Við það myndast alkóhól, ásamt bragðefnum og koldíoxíði. Þetta tekur um þrjá sólarhringa. Hitastigið er um 35°C. Það sem nú er orðið til inniheldur 5-10% af alkó- hóli og nefnist gambri. Þá tekur við brennsla eða suða, í raun tvö- eða þreföld eiming, í þar til gerðum kop- arkötlum. Þegar áfengisstyrkurinn er kominn í 75% er eimurinn þynnt- ur lítillega með vatni og glærum vökvanum dælt í ámur, þar sem hann er látinn þroskast í a.m.k. þrjú ár og einn dag. Þá loks má fara að kalla afurðina viskí. Að þeim tíma loknum hefur vínandinn gufað upp að hluta, Skotar kalla það engla- skerfinn, en það sem eftir situr drekkur í sig bragð-, ilm- og litar- efni úr viðnum. Best þykir að tunn- urnar séu úr eik og hafi áður inni- haldið amerískt búrbon eða sérrí eða jafnvel koníak. Í fyrstu var tunnan þó bara hugs- uð sem ílát til geymslu og/eða flutn- inga en ekki neitt sem búist var við að hefði teljandi áhrif á bragðið, nema þá helst slæm, að því er lesa má í Viskíhorninu á netinu. Það var ekki fyrr en um miðja 18. öld að áhrif þess að geyma spírann þannig uppgötvuðust. Sagt er að bóndi nokkur hafi fundið ára gamla viskí- tunnu baka til í hlöðu, tunnu sem hann hafði gleymt. Hann taldi nokk- uð öruggt að innihaldið væri hand- ónýtt eftir allan þennan tíma en í stað þess að hella því niður ákvað hann að prófa það og uppgötvaði sér til mikillar ánægju að það smakk- aðist mun betur en áður, algerlega öfugt við það sem hann bjóst við. Við þetta er að bæta að hratið sem eftir verður í meskingunni er unnið í fóðurköggla og selt naut- gripabændum. Það hentar víst ekki sauðfé. Fagmennska og húmor Margt stendur upp úr þegar litið er til baka. Eitt er snyrtimennskan hjá þessum nágrönnum okkar, jafnt í verksmiðjunum sem og bæjunum og eiginlega hvert sem litið var. Að ekki væri leyfilegt að mynda inni þar sem eimingin var í gangi nema í Lindores Abbey-verksmiðjunni í Newburgh var út af eldhættu, engu öðru. Annað sem mætti nefna er leiðsögufólkið, sem var fagmennsk- an uppmáluð og notaði húmorinn óspart, grínaðist jafnvel með spar- semi innfæddra, sem margar gam- ansögur fara jú af. En Englend- ingar voru líka hafðir að skotspæni, ef færi gafst. Okkur var t.d. sagt að akur eins skosku bændanna lægi einn metra eða svo inn yfir ensku landamærin og sá partur fengi að standa óhreyfður því engum dytti í hug að nota byggið sem þaðan kæmi til viskíframleiðslu. Það væri ekki nothæft. Í þessu var reyndar sann- leiksvottur, því ef maltviskíið á að fá að heita skoskt má ekkert hráefn- anna koma utan frá og eiming og þroskun í tunnum verður að gerast innanlands. Og í einni verksmiðjunni, þar sem á 2. hæð var palla- eða gatagólf, mátti, ef litið var af jarðhæðinni upp, sjá allt sem þar gerðist. Enn leiðsögumannanna bað, þegar komið var niður, gesti um að flýta sér út, því annar hópur væri greinilega að koma sömu leið og við þar fyrir of- an, leiðsögumaðurinn kveðst nefni- lega hafa orðið fyrir óbærilegri reynslu eitt sinn, að líta óvart upp undir mann í Skotapilsi, því myndi hann aldrei gleyma og vildi engum að þurfa að upplifa slíkt. Karlarnir hlýddu þessum vinsamlegu til- mælum umsvifalaust en konurnar fóru sér hægar, af einhverjum sökum. Út náðust þær samt að lokum. Bílstjórinn, sem fær hæstu ein- kunn fyrir aksturinn, skemmtileg- heitin og alla fræðsluna um þetta merka land, sögu þess og náttúru, eins og hin öll sem tóku okkur fagn- andi, skilaði erlendum farþegum sínum svo öllum heilum og sérlega glöðum til Edinborgar um klukkan 18 á sunnudeginum. Og til að gleyma nú engu þá var haggisinn einstaklega ljúffengur. Skál. Af viskíleiðangri til Skotlands  Ekið á milli eimingarstöðva og viskíverksmiðja í Skotlandi  Yfir 120 viskíverksmiðjur í landinu Góðar móttökur Svona er tekið á móti gestum sem sækja Dalwhinnie-verksmiðjuna heim. Hún er ekki langt frá upptökum árinnar Spey. Viskíkastalinn Í þessari rótgrónu verslun í þorpinu Tomintoul fengu hinir aðkomnu gestir að súpa á þremur tegundum af skosku eðalviskíi. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Viskíframleiðsla Séð inn í Lindores Abbey-verksmiðjuna, eina þá nýjustu í Skotlandi. Þar, nokkrum metrum frá, er vagga hins görótta drykkjar. Viskí, eða svipaðir drykkir, er framleitt í flestum kornræktarlöndum, en algengast er að viskí sé flokkað eftir annars vegar upprunalandi og hins vegar kornsamsetningu. Maltviskí (e. malt) er eingöngu gert úr malti og er brennt í lauklaga koparkatli. Það getur ýmist verið blandað maltviskí (e. vatted malt), þar sem afurðum nokkurra viskíbrennslna er blandað saman fyrir átöppun, eða óblandað (einmöltungur, e. single malt whisky), það er afurð einnar viskíbrennslu. Einmöltungar geta þó verið settir saman úr nokkrum lög- unum og jafnvel árgöngum nema þeir séu merktir sem eináma (e. single cask), en þá er um að ræða átöppun úr einni og sömu viskíámunni. Kornviskí (e. grain whisky) er gert úr blöndu maltaðs og ómaltaðs byggs, gjarnan ásamt öðru korni, svo sem rúgi eða hveiti. Viskíið er oft- ast soðið í súlulaga eimi og er mest notað í viskíblöndur. Írskt ketilviskí (e. pot still whiskey) er einnig gert úr blöndu byggs og malts, en er brennt í lauklaga koparkatli líkt og skosku maltviskíin. Blönduð viskí (e. blended whisky) eru blöndur maltviskís og korn- viskís. Flest viskí á markaðnum sem ekki eru merkt ákveðinni viskí- brennslu, heldur eingöngu merkt sem scotch whisky eða irish whiskey, eru blöndur. Óþynnt viskí (e. cask strength whisky) eru sjaldséð, en sumar viskí- brennslur setja á markað nokkrar óþynntar flöskur úr sínum allra bestu ámum. Heimild: Wikipedia. Viskí er ekki það sama og viskí MALTVISKÍ, KORNVISKÍ, BLANDAÐ OG ÓÞYNNT SVIÐSLJÓS Sigurður Ægisson sae@sae.is Það var fagurt um að litast í Skot- landi þegar blaðamaður gerði þang- að leið 20. september til að komast að því hvernig maltviskí væri fram- leitt. Með í för héðan voru tveir eldri synir hans, Davíð, sérfræð- ingur í kerfisrekstrardeild Lands- bankans í Reykjavík, og Ísak, kondítor og verkstjóri í Kristjáns- bakaríi á Akureyri. Um var að ræða þriggja daga ferð skipulagða af Rabbie’s Tours, þar sem ekið skyldi á milli nokkurra eimingarstöðva eða verksmiðja í 16 manna rútu og fimm þeirra rannsakaðar til hins ýtrasta. Viskíframleiðslusvæðin þar ytra eru oft talin vera sex: Campbeltown, Eyjarnar, Hálöndin, Islay-eyjan, Láglöndin og Spey-hérað. Í fyrra munu 126 verksmiðjur hafa verið starfandi í landinu og eflaust er það svipað núna. Allar hafa sinn eigin persónuleika, ef svo má að orði komast, og eru afsprengi síns land- svæðis. Einhverra hluta vegna hafði mað- ur búist við haustrigningum á þess- um árstíma en lítið var um úrkom- una, heldur brosti sólin við aðkomu- fólkinu í mestan partinn léttskýjuðu veðri. Lagt var af stað frá Edinborg kl. 9 á föstudagsmorgninum 21. september. Auk Íslendinganna þriggja voru mættir í sömu erinda- gjörðum nokkrir Bandaríkjamenn, Kanadamenn, Svíar og Þjóðverjar. Aðalmarkmið ferðarinnar var að fara um hið rómaða Spey-hérað, en þar eru um 50 verksmiðjur á til- tölulega litlum bletti. Aqua vitae Fyrsti áfangastaður var í raun ekki á útgefinni dagskrá, en mun verða það að ári. Því var ákveðið að bæta honum óvænt við. Þetta var í Newburgh í Fife, þar sem ný verk- smiðja var reist í fyrra, en í Lind- ores-klaustur sem þar stóð á mið- öldum, allt frá árinu 1190 eða þar um bil, er talið að rekja megi upp- hafið. Þar gerðu munkar að beiðni konungs drykk sem gekk undir heitinu aqua vitae, sem myndi út- leggjast sem vatn lífsins, á skosk- gelísku uisge beatha, boðið fram yskkibaha, og átti sá að draga úr þunglyndi og verka yngjandi á þau sem hans neyttu. Elsta ritaða heim- ild fyrir þessu er frá árinu 1494. Með tímanum styttist uisge beatha í uiskie og þegar 18. öldin rann upp voru allflestir Skotar farnir að tala um whisky. Í Lindores Abbey-fabrikkunni var gestum boðið að súpa á því sem heimamenn töldu að kæmist næst hinu upphaflega aqua vitae munk- anna forðum og einnig var ein nú- tíma viskítegund dregin fram, ein týpa af Gragganmore. Næst var ek- ið að bænum Dunkeld og svipast um og þar á eftir farið til Pitlochry í há- degismat. Að því búnu var önnur verksmiðja dagsins skoðuð. Það var Dalwhinnie, sem er ekki langt frá upptökum árinnar Spey. Þaðan var ekið að Grantown-on-Spey. Þar átti að gista næturnar tvær og hafa bækistöð. Á öðrum degi var Benromach- verksmiðjan skoðuð, þarna er um að ræða lítið fjölskyldufyrirtæki þar sem hefðin er rík, allt unnið upp á gamla mátann og fremur hugsað um gæðin en magnið. Ársframleiðslan samsvarar þriggja daga framleiðslu stærstu verksmiðjanna í landinu. Þar voru kverkar vættar örlítið eftir sýningu um húsakynnin og ekið þaðan til Elgin og farið í verslun Gordon & MacPhail, þar sem gaf að líta óteljandi viskítegundir, sumar þekktari en aðrar. Að hádegisverði loknum í Aberlour var lokaákvörð- unarstaðurinn Cardhu, en viskíið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.