Morgunblaðið - 04.10.2018, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
því á seinnihluta 19. aldar og fram að
miðri 20. öldinni. Orrustuskip voru
þó notuð mun lengur í hernaði en
það þó þau hafi hvergi verið lengur
uppistaðan í herskipaflota, en
Bandaríkjamenn notuðu slík skip í
Kóreustríðinu, Víetnamstríðinu og
Persaflóastríðinu. Einu orrustu-
skipin sem til eru í dag eru einmitt
bandarísk en átta slík skip eru nú
söfn víðs vegar um Bandaríkin.
Þeirra á meðal orrustuskipið New
Jersey sem staðsett er í borginni
Camden í New Jersey-ríki og blaða-
maður skoðaði í sumar.
Meðfylgjandi myndir, utan ein
sem er af orrustuskipinu Massachu-
setts, voru teknar í skoðunarferðinni
um New Jersey en skipið liggur við
festar í Delaware-ánni sem skilur að
borgirnar Camden og Fíladelfíu.
New Jersey var tekið í notkun í maí-
mánuði árið 1943 þegar síðari heims-
styrjöldin var í algleymingi. Skipið
er eitt af fjórum systurskipum, af
Iowa-klassanum, sem öll eru enn
varðveitt sem söfn í Bandaríkjunum.
Hin eru Iowa sem staðsett er í borg-
inni Los Angeles í Kaliforníuríki,
Missouri sem er að finna í Perluhöfn
á Havaí og Wisconsin sem er í Nor-
folk í Virginíuríki. Önnur orrustu-
skip sem enn eru til í Bandaríkj-
unum eru Texas, sem er staðsett í
La Porte í Texasríki, Alabama, sem
finna má í Mobile í Alabamaríki,
North Carolina í Wilmington í Norð-
ur-Karólínu og Massachusetts í
borginni Fall River í Massachusetts.
Öll fjögur orrustuskipin af Iowa-
klassanum voru notuð í Kóreustríð-
inu, sem geisaði á árunum 1950-
1953, og New Jersey í Víetnamstríð-
inu sem stóð fram til 1975. Skipin
fjögur voru aftur tekin í notkun á ní-
unda áratug síðustu aldar í tengslum
við áform þáverandi stjórnvalda í
Bandaríkjunum um að byggja upp
bandaríska flotann. Búnaður skip-
anna hafði þá verið færður til nú-
tímalegs horfs, þar á meðal raf-
eindabúnaður þeirra, og þau meðal
annars búin flugskeytum til viðbótar
við upphaflegan vopnabúnað þeirra.
New Jersey tók þátt í aðgerðum í
Líbanon 1983 og 1984 og Missouri
og Wisconsin í Persaflóastríðinu.
Voru mjög stór skotmörk
Líkt og með marga aðra hern-
aðartækni viku orrustuskipin að lok-
um til hliðar vegna framþróunar á
því sviði. Ekki síst vegna framfara í
flugvélatækni en þrátt fyrir að orr-
ustuskipin væru sífellt búin öflugari
loftvarnarbyssum þá breytti það
ekki þeirri staðreynd að þau voru
mjög stór skotmörk. Fleira gerði
orrustuskipin að lokum óþörf. Til að
mynda framþróun í vopnabúnaði.
Drottnarar hafsins til sýnis
Orrustuskipin voru eitt sinn drottnarar hafanna en veldi þeirra lauk með nýrri hernaðartækni
Bandaríkjamenn eiga enn átta orrustuskip sem eru í dag söfn víðs vegar um Bandaríkin
Morgunblaðið/Hjörtur
Vopn Fallbyssurnar á orrustuskipinu New Jersey eru engin smásmíð, en hlaupvídd þeirra er rúmir 40 sentímetrar. Þrjár fallbyssur eru í þremur turnum, tveimur að framan og einum að aftan.
Máttur Hér má sjá eina af minni fallbyssunum á New Jersey.
Orrustuskip til sýnis í Bandaríkjunum
USS Alabama
Mobile, Alabama
USS Missouri
Pearl Harbor, Hawaii
USS Iowa
Los Angeles,
Kalifornía
USS North
Carolina
Wilmington,
Norður-
Karólína
USS
Wisconsin
Norfolk,
VirginíaUSS Texas
La Porte, Texas
USS Massachusetts
Fall River, Massachusetts
USS New Jersey
Camden, New Jersey
SVIÐSLJÓS
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Sú var tíðin að orrustuskipin drottn-
uðu yfir höfunum og þóttu öflugustu
vopnin sem herveldi heimsins áttu í
fórum sínum þegar kom að sjóhern-
aði. Má segja að flotastyrkur her-
veldanna hafi ekki síst verið metinn
eftir því hversu mörgum og hversu
öflugum slíkum skipum þau höfðu
yfir að ráða og kepptust þau lengi
vel við að reyna að skjóta hvert öðru
ref fyrir rass í þeim efnum með sí-
fellt stærri skipum með sífellt stærri
fallbyssum og öðrum vopnabúnaði.
Það má segja að blómatími
orrustuskipanna hafi staðið yfir frá
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Margverðlaunuð baðvifta
Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A)
Innbyggður raka-, hita-
og hreyfiskynjari.
Vinnur sjálfvirkt
3W
F
IM
M
TU
DAGSLEIKU
R
•
M
O
RGUNBLAÐ
SI
N
S
•
FINNDU
HAPPATÖLUNA
Í BLAÐINU
– og þú gætir dottið
í lukkupottinn