Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Samkvæmt samningi sem Reykja- víkurborg og Björgun gerðu í fyrra á fyrirtækið að flytja starfsemi sína úr Sævarhöfða í síðasta lagi í maí 2019. Það var svo í desember 2017 að Reykjavíkurborg gerði samning við Faxaflóahafnir um kaup á 76 þúsund fermetra lóð í Sævarhöfða við Elliðaárvog fyrir 1.098 milljónir króna, þ.e. lóðina sem Björgun hafði haft til afnota. Kaupin eru gerð að undangengnum samningum sem Faxaflóahafnir gerðu við Björgun ehf. um brottflutning og hreinsun svæðisins ásamt gerð hluta þeirrar landfyllingar sem fyrirhuguð er. Hluti svæðisins verður með bygg- ingarhæfar lóðir í upphafi en lengri tíma mun taka að gera lóðir bygg- ingarhæfar á nýrri landfyllingu. Vilyrði hefur þegar verið veitt fyr- ir tveimur lóðum á svæðinu, annars vegar til Bjargs hses. og hins vegar til Búseta. Þær lóðir verða fyrst byggingarhæfar. Sementstankarnir, sem setja mikinn svip á svæðið, fá að standa áfram. Í desember í fyrra var samþykkt að auglýsa deiliskipulag fyrir svæð- ið. Á þeim hluta svæðisins, þar sem unnið hefur verið deiliskipulag, er gert ráð fyrir að rísi 830 íbúðir. Einnig er gert ráð fyrir leik- og grunnskóla fyrir yngri skólastigin og verslun/þjónustu við svokallað Bryggjutorg. Í framtíðinni er síðan reiknað með, samkvæmt rammaskipulagi, að svæðið stækki enn frekar til vesturs á nýrri landfyllingu. Sá hluti hverfis- ins verður næst Elliðaánum, eins og sést á tölvumyndinni, sem fylgir þessari grein. Bryggjuhverfið brátt fullbyggt  Fyrstu húsin risu í hverfinu fyrir 20 árum og nú eru íbúðirnar orðnar 600  Fyrir dyrum stendur að stækka hverfið í vesturátt  Ný byggð mun rísa á svæði Björgunar, að hluta til á landfyllingum Morgunblaðið/Eggert Bryggjuhverfið Fyrir miðri mynd má sjá síðasta húsið í byggingu. Vinstra megin er athafnasvæði Björgunar, þar sem næsti áfangi hverfisins mun rísa. Fullbyggt Í Bryggjuhverfinu eru 600 íbúðir og skráðir íbúar eru nú 1.100 talsins. Sérstaða hverfisins er sú að þar er góð aðstaða fyrir smábáta. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú styttist í að Bryggjuhverfið við Elliðaárvog/Grafarvog verði full- byggt samkvæmt upphaflegum hug- myndum. Fyrstu íbúðarhúsin risu fyrir 20 árum. Fyrir dyrum stendur að stækka hverfið í vesturátt en hin nýja byggð mun rísa á athafnasvæði Björgunar, að hluta til á landfyllingum. Í nýja hverfinu verður í boði þjónusta sem vantað hefur í hverfið til þessa, þ.e. skólar og verslanir. Í Bryggjuhverfinu eru um það bil 600 íbúðir. Uppbygging hverfisins er á lokastigi þar sem nyrsta og síðasta húsið á vesturhluta svæðisins er nú í byggingu. Skráðir íbúar eru nú 1.100, samkvæmt upplýsingum Jóns Halldórs Jónassonar, upplýsinga- fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Ætla má, út frá þessum tölum, að fáar barnafjölskyldur hafi sest að í hverfinu, enda er þar enginn skóli. Þetta mun eflaust breytast þegar hverfið stækkar og þjónusta við íbúana eykst. Nýta nálægðina við hafið Fram kemur á vef Björgunar ehf. að uppúr 1990 hafi nýr kafli í sögu fyrirtækisins hafist. Þá réðst það í stækkun á lóð sinni við Sævarhöfða og uppbyggingu bryggjuhverfis að erlendri fyrirmynd. Björgun og Reykjavíkurborg gerðu samning um þessa uppbyggingu árið 1992. Hugmyndin var þróuð í samvinnu við Björn Ólafs arkitekt í París og var upphafið að þátttöku Björgunar í landaþróunarverkefnum þar sem nálægðin við hafið var nýtt til af- þreyingar og útivistar. Björgun hef- ur síðan, stundum í samvinnu við aðra, lagt fram fjölda hugmynda að sambærilegum verkefnum. Tvö þeirra, Sjáland í Garðabæ og Bryggjuhverfi á norðanverðu Kárs- nesi í Kópavogi, bæði unnin í sam- vinnu við Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf., hafa orðið að veru- leika. Upphaflegt deiliskipulag fyrir Bryggjuhverfið er frá árinu 1997 og fyrstu húsin risu árið 1998. Hverfið byggðist upp hægt og rólega. Árið 2009 var gerð gagnger breyting á skipulagi vesturhluta svæðisins. Sá hluti svæðisins hafði verið hugsaður til verslunar- og þjónustunota en notkunarheimild var breytt í íbúðir ásamt því að fyrirkomulagi byggð- arinnar var breytt. Uppbygging í hverfinu tók mikinn kipp á allra síð- ustu árum. Þannig byggði ÞG-verk alls 280 nýjar íbúðir í hverfinu. Nú hillir undir að þessi hluti hverfisins verði fullbyggður. Tölvumynd/arkis.is Framtíðin Svona sjá arkitektar fyrir sér hvernig Bryggjuhverfið muni þróast. Græni hlutinn er næsti áfangi og lokaáfanginn í framhaldinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.