Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018Ram3500LimitedTungsten
Litur: Red pearl, svartur að innan.
Ein með öllu: Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphi-
tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, 6,7L Cummins.
5th wheel prep og snowplow prep.
VERÐ
9.950.000 m.vsk
2018 F-350 Lariat Ultimate
6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque.
Litur: White platinum metallic, Svartur að innan. 6 manna
bíll með upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart
og trappa í hlera, Driver altert-pakka.
VERÐ
9.950.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Litur: Platinum white / svartur að innan.
LOBO edition, Mojave leður sæti, quad-beam LED
hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga,
fjarstart, 20 felgur o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6) 10-gíra
375 hestöfl 470 lb-ft of torque
Einnig til Red Volcano
VERÐ
11.950.000 m.vsk
2018 Nissan Titan XD PRO4X
Nissan Titan XD PRO 4X
Litur: Dökkgrár, svartur að innan.
með nýrri 5,0L V8 Cummins Diesel (310 hö).
VERÐ
12.840.000 m.vsk
Tókýó. AFP. | Japanska geimfarið Hayabusa 2 sendi
könnunarþjarkann MASCOT á yfirborð smástirnisins
Ryugu í gær til að afla upplýsinga sem talið er að geti
varpað ljósi á upphaf sólkerfisins.
Lending þjarkans gekk að óskum og hann byrjaði að
senda gögn til vísindamanna geimrannsóknastofnunar
Japans. Gert er ráð fyrir að þjarkinn safni umfangs-
miklum upplýsingum um smástirnið sem er í 300 millj-
óna kílómetra fjarlægð frá jörðu. Þjarkinn er með
myndavél, nema og mælitæki sem vonast er til að geti
hjálpað vísindamönnum að svara grundvallarvallar-
spurningum um upphaf alheimsins og lífs á jörðinni, m.a.
hvort efni úr geimnum hafi stuðlað að því að lífið kvikn-
aði. Þjarkinn getur m.a. tekið myndir á mörgum bylgju-
lengdum, rannsakað efni með smásjá, mælt hitann á yfir-
borði smástirnisins og segulsvið þess.
Tíu dögum áður hafði Hayabusa 2 komið tveimur
litlum geimvögnum á yfirborð smástirnisins. Lítið
þyngdarafl þess gerir vögnunum kleift að stökkva um
yfirborðið, færa sig þannig um allt að fimmtán metra í
einu og vera í allt að fimmtán mínútur yfir smástirninu í
hverju stökki.
Vagnarnir eru búnir rannsóknartækjum og eiga að
rannsaka yfirborð smástirnisins í nokkra mánuði.
MASCOT er hins vegar með rafhlöðu sem endist aðeins í
tólf til fimmtán klukkustundir og hættir að senda gögn
þegar hún tæmist.
Síðar í mánuðinum á geimfarið að senda „árekstrar-
far“ sem á að springa yfir smástirninu og skjóta inn í það
tveggja kílóa koparhylki til að búa til lítinn gíg á yfir-
borðinu. Geimfarið á síðan að sveima yfir gígnum og
sækja sýni úr honum með fjarstýrðum griparmi.
Heimildir: DLR, CNES, JAXA
Geimfarið Hayabusa 2 hefur sent könnunarþjarkann MASCOT á yfirborð smástirnisins
Könnunarþjarkinn lenti
á smástirninu eftir 60
metra fall í gær og á að
rannsaka yfirborðið
MASCOT
Stærð:
30 x 30 x 20 cm
Þyngd:
um 10 kg
Japanskt geimfar sendir þjarka á smástirnið Ryugu
Loftnet til að
koma gögnum
til Hayabusa 2
Ending rafhlöðu:
um 12-15 klst.
Jónavél
Loftnet
Sólarrafhlaða
Sýnataki
Myndavél
Segulmælir
Smásjá
MASCOT er með
hreyfibúnað sem gerir
þjarkanum kleift að
snúa sér við og færa
sig nokkra metra
Vegna lítils þyngdarafls var gert ráð fyrir því að MASCOT skoppaði 10 -70 metra frá lendingarstaðnum
Hreyfi-
búnaður
Vél
Smástirnið Ryugu (1999JU3)
Þvermál: um 900 m
Snúningstími: 7,6 klst.
Skotið á loft 3. desember 2014
Kom að smástirninu í júní sl.
Snýr aftur til jarðar í lok ársins 2020
Smástirnið Ryugu rannsakað
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Skattayfirvöld í New York ætla að
hefja rannsókn á ásökun The New
York Times um að Donald Trump
Bandaríkjaforseti hafi hjálpað for-
eldrum sínum að skjóta mörgum
milljónum dala undan skatti. Í frétt
blaðsins kemur einnig fram að
Trump fékk alls 413 milljónir dala frá
föður sínum og fasteignafyrirtæki
hans, miklu meira en forsetinn hefur
sagt. Talsmenn forsetans neita þessu.
Trump hefur í bókum sínum, sjón-
varpsþáttum og ræðum haldið því
fram að hann hafi hafist til auðs og
metorða af eigin rammleik eftir að
hafa fengið milljón dala að láni frá
föður sínum. Forsetinn segist hafa
notað lánið til að byggja upp við-
skiptaveldi sem hann metur á tíu
milljarða dala, jafnvirði rúmra 1.130
milljarða króna. Nokkrir blaðamenn
og ævisöguritarar, sem hafa kannað
viðskiptasögu Trumps, hafa dregið
lýsingar hans í efa og telja að hann
hafi ýkt auð sinn og hæfileika í við-
skiptum.
The New York Times segir að
fréttin byggist á skattframtölum föð-
ur forsetans, Freds Trumps, viðtöl-
um við fyrrverandi starfsmenn og
ráðgjafa föðurins og rannsókn á
100.000 síðna skjölum um fasteigna-
veldi hans.
„Gervifyrirtæki“ og
eignir vanmetnar
Blaðið segir að Donald Trump og
systkin hans hafi tekið þátt í skipu-
legum skattaundanskotum á síðasta
áratug aldarinnar og í sumum tilvik-
um hafi þau verið „hrein skattsvik“.
Meðal annars hafi verið stofnað
„gervifyrirtæki“ til að leyna milljón-
um dala sem Fred Trump og eigin-
kona hans, Mary, gáfu börnum sínum
áður en þau dóu, hann árið 1999 og
hún árið eftir. Skattaundanskotin
hafi einnig falist í því að fasteignir
hafi verið vanmetnar um hundruð
milljóna dala þegar systkinin fengu
þær að gjöf en þær hafi síðan verið
seldar á sextán sinnum hærra verði
um áratug síðar.
The New York Times segir að
Donald Trump og fjögur systkin hans
hafi fengið alls milljarð dala (113
milljarða króna) frá foreldrum sínum.
Þau hafi átt að greiða að minnsta
kosti 550 milljónir dala í skatt af gjöf-
unum en aðeins greitt samtals 52,2
milljónir dala. Blaðið segir að Donald
Trump hafi fengið alls 413 milljónir
dala að núvirði frá foreldrum sínum,
jafnvirði rúmra 46 milljarða króna.
Greiðslurnar frá fasteignafyrir-
tæki föðurins til Donalds Trumps
hófust þegar hann var barn. Þegar
hann var þriggja ára fékk hann
200.000 dali á ári að núvirði og hann
var orðinn milljónamæringur þegar
hann var átta ára. Eftir að hann út-
skrifaðist frá háskóla fékk hann um
milljón dala á ári og um fimm millj-
ónir dala á ári þegar hann var á fimm-
tugs- og sextugsaldri, að sögn The
New York Times.
Blaðið hefur eftir sérfræðingum að
ólíklegt sé að Trump verði saksóttur
fyrir aðild að skattaundanskotum þar
sem sök hafi fyrnst að lögum. Hann
geti þó átt yfir höfði sér fjársekt ef
skattayfirvöld rannsaka ásakanirnar.
Yfirvöld í New York-borg og New
York-ríki segjast vera að rannsaka
málið.
Talsmaður forsetans í Hvíta hús-
inu sagði að frétt The New York Tim-
es væri „villandi“ og einn lögfræðinga
hans sagði að ásakanirnar um skatta-
undanskot og skattsvik væru „100%
rangar og mjög ærumeiðandi“. „For-
setinn átti nánast enga aðild að þess-
um málum,“ sagði hann. „Aðrir í fjöl-
skyldunni sáu um þau og þar sem þeir
voru ekki sérfræðingar reiddu þeir
sig algerlega á þar til bæra fagmenn
til að tryggja að farið yrði fyllilega að
lögum.“
Sakaður um skattaundanskot
Donald Trump sagður hafa fengið 413 milljónir dala frá föður sínum og tekið þátt í því að skjóta fénu
undan skatti Talsmenn forsetans neita þessu Skattayfirvöld í New York-ríki rannsaka ásökunina
AFP
Umdeildur forseti Donald Trump Bandaríkjaforseti kyssir konu sem fylgd-
ist með honum fara frá Hvíta húsinu í þyrlu sem beið hans á grasflötinni.
Háð forsetans gagnrýnt
» Tveir af þingmönnum repú-
blikana, Jeff Flake og Susan
Collins, hafa gagnrýnt Donald
Trump fyrir að hæðast að
Christine Blasey Ford sem hef-
ur sakað dómaraefni hans um
kynferðisárás fyrir 36 árum.
Flake sagði að háðsyrði forset-
ans um konuna væru „hræði-
leg“ og Collins sagði þau „al-
gerlega óviðeigandi“.
» Forsetinn hæddist að vitnis-
burði Ford í fyrrakvöld og sagði
að hún virtist ekki muna eftir
neinu varðandi árásina sem
hún sakar dómaraefnið um.