Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á nau
tið
Marta María
mm@mbl.is
„Síðastliðin fimm ár hef ég verið rit-
stjóri Vikunnar en ég byrjaði í
blaðamennsku á Þjóðviljanum árið
1989 svo ferillinn er orðinn ansi
langur. Ég skrifaði fyrst fyrir Vik-
una árið 1994 en var þá lausapenni.
Sigríður Arnardóttir hafði samband
við mig árið 1998 og bauð mér vinnu
en hún var þá ritstjóri blaðsins og ég
starfaði á Vikunni til ársins 2006 en
tók þá að mér ritstjórn tímaritsins
hann/hún. Ég var svo blaðamaður á
Gestgjafanum þegar mér bauðst að
taka við ritstjórn árið 2013 og hef
verið hér síðan,“ segir Steingerður,
spurð um ferilinn.
Hvernig hefur fjölmiðlaheimurinn
þróast á þessum árum?
„Ja, ef ég á að taka frá byrjun fer-
ilsins þá hefur margt breyst gífur-
lega. Fyrstu greinarnar mínar skrif-
aði ég á ritvél og skilaði inn en mjög
fljótlega komu tölvurnar. Ég man
líka þegar allar myndir voru teknar
á filmu og blaðamaður lá með lúpu á
ljósaborði að velja úr tökunni. Við
fórum einnig alltaf út í bæ til að taka
viðtöl og stundum hitti maður við-
mælandann oftar en einu sinni. Nú
er margt unnið beint í gegnum tölv-
una eða síma og minna um að þessi
nánu persónulegu tengsl myndist
milli blaðamanns og viðmælanda.“
Steingerður segir að fólk hafi líka
breyst og í dag sé fólk miklu opnara
og miklu meira til í viðtöl en áður.
„Stærsta breytingin á starfi
blaðamannsins er áreiðanlega sú
hversu miklu opnara fólk er orðið og
tilbúnara að koma í viðtöl. Þegar ég
byrjaði þurfti stundum að ganga
mikið á eftir fólki til að fá það í viðtal
og margir lögðu blátt bann við að
þeir væru spurðir persónulegra
spurninga. Nú hafa menn og konur
hins vegar samband við okkur og
vilja koma sögu sinni á framfæri.
Margvísleg mál voru sveipuð mikilli
þögn, m.a. ofbeldi, samkynhneigð,
margir sjúkdómar og sjálfsvíg. Önn-
ur voru óskaplega viðkvæm og erfitt
að fá einhvern til að tala um þau.“
Hamhleypa til verka
Ég hef heyrt sögur af því að þú af-
kastir meira en venjulegt þykir og
að þú hafir oft og tíðum eytt restinni
af vinnudeginum í að leggja kapal
því þú varst alltaf búin með öll verk-
efni löngu áður en allir hinir. Er
þetta rétt?
„Já, ég hef alltaf verið mjög fljót
að skrifa og átt auðvelt með að tjá
mig á prenti. Ég var þess vegna iðu-
lega búin með vikuleg verkefni mín
fyrir skiladag og ef ég nennti ekki að
byrja á einhverju eða var hug-
myndasnauð fannst mér gott að
slaka á og leggja kapal í tölvunni.
Það var ekki vel séð af yfirmönnum
og ég fékk ávítur en allt jafnaði það
sig nú. Ég játa það að enn í dag
finnst mér þægilegt undirbúa næstu
grein með því að fara í smástund í
tölvuleik. Þá gerjast eitthvað í
undirmeðvitundinni á meðan.“
Hvaða leik spilar þú?
„Pet Rescue.“
Hver er galdurinn við að halda
alltaf sjó í síbreytilegu fjölmiðlaum-
hverfi?
„Að vera sveigjanlegur og hafa
gaman af fólki. Ég er illa haldin af
atvinnusjúkdómnum forvitni og hef
einfaldlega áhuga á fólki. Mér finnst
alltaf jafnspennandi og forvitnilegt
að kynnast því hverjar eru helstu
ástríður og áhugamál manna, hvern-
ig þeir takast á við vandamál og
hvernig þeir sjá lífið. Mér finnst
maður geta svo mikið lært af þessu
og hef ekki tölu á hve oft ég hef hitt
frábærar manneskjur sem hafa veitt
mér innblástur og opnað mér nýja
sýn á mín eigin viðbrögð og verk-
efni. Það er það besta,“ segir hún.
Þegar Steingerður er spurð að því
hvernig stjórnandi hún sé á hún erf-
itt með að svara.
„Ég veit að minnsta kosti að ég er
ekki mikið fyrir að horfa yfir öxlina
á starfsmönnum mínum og leggja
línurnar fyrir þá í minnstu smáat-
riðum. Ég vil vera leiðbeindandi og
leitast við að vekja áhuga og eldmóð
hjá fólkinu mínu. En með mér vinna
bara svo frábærir og metnaðarfullir
fagmenn að ekki þarf að stjórna
þeim,“ segir hún.
Vinnan er ástríða Steingerðar og
hún veit fátt betra en að fá splunku-
nýtt blað í hendur.
„Þegar fólk hringir í mig til að
þakka fyrir einhverja grein sem hef-
ur skipt sköpum fyrir það eða gefið
því eitthvað verð ég alltaf jafnþakk-
lát.“
Áttu einhver áhugamál fyrir utan
vinnuna?
„Já, drottinn minn, ég er hræði-
legur nörd. Ég hef mikið yndi af ís-
lenskum blómum og hef lagt á mig
mikið erfiði við að leita uppi sjald-
gæf blóm og taka myndir af þeim.
Tengsl jurtanna við þjóðsögur eru
mér líka hugleikin og ég hef flutt
fyrirlestra um það efni. Ég er líka
fuglaskoðari og húki stundum gegn-
köld með Svövu systur minni við ein-
hverja tjörn að bíða eftir sjaldgæf-
um flækingi. Mér finnst mjög gaman
að elda og fá gesti í matarboð, ég les
mikið og elska ljóð, leikhús og
myndlist. Við hjónin njótum þess að
ferðast og höfum þá ofboðslega
gaman af að rýna í sögu áfangastað-
anna. Já, og svo er ég sjúk í dýr.
Missti reyndar hundinn minn nýlega
og er að leggja drög að því að finna
mér nýtt gæludýr. Heillaðist af geit-
um í heimsókn í Geitasetrið að Háa-
felli í sumar svo hver veit nema ég
fái mér kiðling.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að
fjalla um?
„Ég hef óskaplega gaman af að
tengja saman málefni og koma að
þeim frá mörgum hliðum. Mér hefur
þótt mjög skemmtilegt að skrifa
vangaveltur um ástina, vináttu, sam-
skipti og fleira. Ég skrifaði til dæmis
grein um Póstinn í Vikunni í afmæl-
isblaðið og skemmti mér konunglega
við að skoða sögulegt samhengi efn-
isþátta af þessu tagi, gömul bréf og
sambærilega dálka í erlendum blöð-
um. Komst svo að þeirri niðurstöðu
að þeir sem stóðu að baki hafi skilað
ómetanlegu starfi því þeir gátu gefið
góð ráð og upplýst fólk í raunveru-
legri þörf fyrir huggun og skilning.“
Þegar hún er spurð að því hvað
einkenni góðan blaðamann nefnir
hún að viðkomandi þurfi að vera for-
vitinn, umburðarlyndur, hlýr, hafa
skilning og bera virðingu fyrir við-
mælandanum.
„Reynir Traustason sagði ein-
hvern tíma í viðtali að maður yrði að
halda með viðmælanda sínum meðan
maður skrifaði um hann og þannig
er það. Þú verður að bera virðingu
fyrir sögu þess sem þú talar við og
koma henni á framfæri eftir bestu
getu.“
Oft er sagt að konur eigi styttri
líftíma í fjölmiðlaheiminum og leiti á
önnur mið. Hvers vegna heldur þú
að það sé þannig?
„Ég held raunar að það sé að
breytast. Konur voru í miklum
minnihluta í blaðamannastétt lengi
framan af en nú eru margar enn
starfandi sem hafa verið lengi að,
rétt eins og ég. Á prentmiðlum end-
ast konur líka mun lengur, en úti í
heimi var það mjög algengt að konur
væru látnar fara úr sjónvarpi þegar
þær náðu tilteknum aldri. Mér
finnst það alls ekki þannig í dag og
konur á borð við Diane Sawyer,
Christiane Amanpour og Oprah
Winfrey leiða þá byltingu.“
Fólk er miklu opnara í dag
Steingerður Steinars-
dóttir, ritstjóri Vikunnar,
fagnar 80 ára afmæli
tímaritsins með 80
síðna afmælisblaði sem
kemur út í dag. Þeir sem
þekkja Steingerði vita
að hún er hamhleypa til
verka og á tímabili lagði
hún alltaf kapal í tölv-
unni sinni þegar hún var
búin með verkefni vik-
unnar löngu á undan öll-
um öðrum.
Alltaf allt á fullu Steingerður
Steinarsdóttir, ritstjóri Vik-
unnar, er mikill vinnuþjarkur.