Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
✝ Þórey JónínaÞórólfsdóttir
fæddist á Akureyri
17. ágúst 1935.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 22.
september 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Þórólfur
Sigurðsson, bóndi
og skipasmiður, f.
21.4. 1902, d. 28.11.
1973, og Sigurpál-
ína Jóhannsdóttir, húsfreyja, f.
20.8. 1910, d. 11.5. 1988.
Þórey átti átta systkini og af
þeim eru tvö á lífi; María Þór-
ólfsdóttir, f. 27.2. 1952, og Geir
S. Guðgeirsson, f. 25.8. 1933.
Eiginmaður Þóreyjar er
Ævar Hreinn Þórðarson, f. 8.4.
1936, frá Hvítanesi á Akranesi.
Foreldrar hans voru Þórður
Þorsteinsson Þórðarson, f. 23.8.
1966, gift Bjarna Þór Ólafssyni,
f. 19.11. 1964. Börn þeirra eru
Guðrún Ýr, f. 21.4. 1994, í sam-
búð með Daníel Capaul, f. 13.6.
1994, Þórey Petra, f. 18.4. 1997,
og Dagmar Sara, f. 4.1. 1999.
Barnabarnabörn Þóreyjar og
Ævars eru sjö talsins á aldr-
inum frá tveggja til fjórtán ára.
Þórey var betur þekkt sem
Tóta meðal samferðafólks sunn-
an heiða. Hún ólst upp og gekk
í skóla á Akureyri. Tóta var
fyrst á Akranesi til þess að
gæta barna hjá systrum sínum,
þeim Buggu og Völlu, og var
svo alkomin þangað árið 1954.
Hún starfaði fyrst á Hótel
Akranesi og við fiskvinnslu og
síðan í yfir 30 ár á Sjúkrahús-
inu á Akranesi til ársins 2002.
Á Akranesi kynntist Tóta Æv-
ari og þau giftust 2. júní 1956 í
stofunni heima á Bjarkargrund
6, sem nú er Háholt. Þau
bjuggu lengst af á Garðabraut
35 en síðustu árin að Þjóðbraut
1 á Akranesi.
Útför hennar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 4. október
2018, og hefst athöfnin kl. 13.
1899, d. 22.11.
1989, og Sigríður
Guðmundsdóttir, f.
4.2. 1910, d. 11.2.
2012.
Börn Þóreyjar
og Ævars eru: 1)
Pálmi Þór, f. 14.10.
1956, kvæntur
Petrínu Jóns-
dóttur, f. 27.3.
1956. Börn þeirra
eru Jón Ævar, f.
15.5. 1976, kvæntur Þórhildi
Kristinsdóttur, f. 6.12. 1974,
Bjarki Þór, f. 27.4. 1983, og
Hekla, f. 4.12. 1988, gift Steven
Patrick Gromatka, f. 3.7.1988.
2) Sigþóra, f. 1.4. 1964, gift
Heimi Hallssyni, f. 23.8. 1964.
Börn þeirra eru Lára Hólm, f.
29.9. 1988, Þórey Hólm, f. 21.9.
1989, og Harpa Hólm, f. 5.12.
1993. 3) Elva Björk, f. 26.5.
Þá ertu búin að kveðja okk-
ur, elsku mamma.
Þú fæddist á Akureyri og
varst alla tíð svo stolt af því að
vera að norðan enda kom allt
gott þaðan.
Við systkinin fórum á hverju
sumri með þér norður og vor-
um hjá ömmu og afa sem okkur
þótti svo vænt um og eru marg-
ar góðar minningar frá þeim
ferðum.
Ég minnist þess að þið pabbi
hafið alltaf verið til staðar fyrir
okkur systkinin, alltaf tilbúin
þegar við þurftum á að halda,
hvort sem það var bara að hitt-
ast eða gera eitthvað fyrir mig
eða stelpurnar mínar, skutla,
sækja, passa þær og hjálpa
okkur á hvaða veg sem er og er
það ómetanlegt.
Mér fannst þú alltaf svo dug-
leg og klár, alltaf mikill lestr-
arhestur enda veit ég að þér
gekk sérstaklega vel í skóla.
Oft var hægt að leita til þín í
sambandi við námið, þú gast oft
hjálpað mér og stelpunum mín-
um þegar við stóðum á gati,
hvattir okkur áfram og leið-
beindir. Stelpurnar okkar voru
alltaf svo velkomnar til ykkar
pabba og eyddu ófáum stundum
þar.
Það var gott að koma til ykk-
ar, þú varst líka ótrúlega ung
sál, hress og kát og til í að taka
þátt í því sem unga fólkið í fjöl-
skyldunni tók upp á, til í að
hafa gaman með þeim, aldrei
kvartaðir þú en þar leið okkur
vel.
Við höfum alltaf verið í miklu
sambandi og verið saman bæði
heima og á ferðalögum með fína
fellihýsið enda höfðuð þið yndi
af því og sóttuð í að vera í
kringum barnabörnin.
Nú þegar er skrítið að þið
pabbi séuð ekki að koma lengur
saman keyrandi í kaffisopa eða
innlit til okkar. En við munum
passa upp á að pabbi haldi því
áfram.
Það er skrítið að hafa þig
ekki lengur hér. Að ég geti ekki
tekið upp símann og hringt í
þig, fengið góð ráð hjá þér eða
bara fengið enn einn kaffiboll-
ann við gluggann uppi á 7. hæð
með þér og horft á glæsilegt út-
sýnið.
Þú varst dásamleg kona sem
við öll eigum eftir að sakna mik-
ið og minnast ávallt sem ein-
stakrar konu, fallegrar, ljúfrar
og bara þeirrar bestu. Þú varst
stolt fjölskyldunnar og megi
góður guð styrkja okkur stór-
fjölskylduna í sorginni.
Hvíl í friði, elsku mamma og
amma okkar.
Fjölskyldan á Garðabraut-
inni.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
(Bubbi Morthens)
Elva Björk.
Takk, elsku tengdamamma,
takk fyrir einstaka umhyggju
fyrir okkur öllum og endalaust
dekrið.
Minning um þig verður að ei-
lífu, þín er og verður sárt
saknað.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans
fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver
und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta
blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Bjarni Þór.
Í dag fylgjum við Tótu ömmu
minni til grafar. Það er eitthvað
svo undarlegt að hún sé nú
horfin úr þessu lífi þótt það hafi
verið vitað um nokkurn tíma
hvernig veikindi hennar þróuð-
ust. Amma mín var ekki vön að
bera þrautir sínar á torg og
kaus að einblína fremur á já-
kvæðu hliðar lífsins. Hún kvart-
aði ekki og snéri spurningum
um heilsu sína upp í tal um
hvað afkomendur og aðrir, sem
voru henni kærir, væru að fást
við hverju sinni.
Sem barn bjó ég í næsta ná-
grenni við ömmu og afa Ævar
og var hjá þeim löngum stund-
um. Sögur hennar af æskuslóð-
unum voru framandi og veittu
ljóslifandi sýn inn í liðna tíma.
Hún fæddist á Akureyri og var
lítil stúlka á hernámsárunum
þar og lýsti líka sumrunum,
sem hún dvaldi hjá ættingjun-
um frammi í firði. Alla tíð var
tengingin við Eyjafjörð sterk
eftir að amma flutti suður yfir
heiðar.
Amma viðaði að sér fróðleik
úr ýmsum áttum með lestri og
réð krossgátur til að þjálfa hug-
ann eins og hún lýsti tilgang-
inum með þeirri iðju. London
var sögusvið unglingabóka sem
hún las og þekkti borgina eins
og lófann á sér þrátt fyrir að
hafa aldrei komið þangað sjálf.
Efni voru knöpp í þá daga
svo að ekki gafst tækifæri til
lengra náms eins og hana hefur
eflaust dreymt um. Því lengra
sem líður frá því ég sat og
lærði við eldhúsborðið á Garða-
braut 35 átta ég mig á því hve
sterk hvatning hennar var um
að nýta tækifærin sem gæfust.
Alltaf var amma fús að hlýða
yfir.
Best undi amma sér þó í
faðmi sinna nánustu og hún
stuðlaði að sterkum tengslum
innan stórfjölskyldunnar. Sér-
takt dálæti hafði hún á yngstu
kynslóðinni og skapaði fyrir
hana skemmtilegar hefðir og
eftirvæntingu. Ár eftir ár verpti
páskahænan hennar gómsætum
súkkulaðieggjum fyrir barna-
börnin og dró ekkert úr þegar
barnabarnabörnin bættust í
hópinn. Amma hlakkaði mikið
til í aðdraganda ættarmóta og
það er á engan hallað þegar
sagt er að fáir hafi tengt skyld-
fólkið eins vel saman og hún
gerði á þeim mannamótum.
Amma hefur kennt okkur að
taka því sem að höndum ber og
að vera þakklát fyrir það góða
sem lífið gefur. Ávallt bjartsýn
og jákvæð fram á sinn hinsta
dag og þannig mun minningin
um ömmu Tótu lifa.
Jón Ævar.
Mig langar að minnast henn-
ar Tótu frænku með örfáum
orðum.
Hún var reyndar ekki skyld
mér en hún var alltaf Tóta
frænka okkar allra. Hún var
einstaklega kát, jákvæð og
skemmtileg og gaman að vera í
hennar hópi.
Það var oft mikið hlegið við
eldhúsborðið á Háholtinu þegar
þær systur Tóta, Bugga, Valla
og Lilla hittust og rifjuðu upp
bernskudagana á Akureyri. Nú
eru þær allar saman á ný í
Sumarlandinu.
Við Tóta eignuðumst stelpur
á svipuðum tíma og það var
mér mikill styrkur að geta allt-
af leitað til hennar í ráðgjöf, ég
með mitt fyrsta en hún sitt
þriðja,
Hún vissi allt sem ég þurfti
að vita um ungbarn. Árin liðu
og börnin okkar orðin fullorðið
fólk og vináttan alltaf sú sama.
Tóta bar hag vina sinna og
frændfólks fyrir brjósti og það
voru allir alltaf velkomnir til
hennar.
Það var gott að fá að kynnast
þessari tryggu og góðu konu og
margar góðar minningar sem
ég geymi frá okkar gömlu ár-
um.
Elsku Ævar og fjölskylda,
þið hafið misst svo mikið. Við
fjölskyldan sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um elsku Tótu
frænku lifir í hjörtum okkar.
Kristín Eyjólfsdóttir (Stína).
Tóta er fallin frá. Ljúfari og
betri manneskju en hún Tóta
hans Ævars er vandfundin. Nú
er þessi elska búin að fá hvíld-
ina, laus við alla verkina og
veikindin sem hafa hrjáð hana
alltof lengi.
Aldrei kvartaði Tóta, þegar
maður spurði hana hvernig hún
hefði það þá brosti hún bara og
sagði: Ég hef það fínt, og henni
var meira í mun að tala um
annarra heilsufar en sitt. Hún
vildi helst aldrei láta neitt fyrir
sér fara, þessi elska.
Tótu var mjög umhugað um
sína fjölskyldu og var mikill
kærleikur og gott samband á
milli þeirra allra. Tóta og Ævar
hafa alltaf reynst mér vel og
sérstaklega vel eftir að pabbi
minn féll frá og er ég ómet-
anlega þakklát fyrir. Fannst
sérstaklega krúttlegt þegar við
Tóta töluðum saman í síma og
hún var að segja mér frá ein-
hverju varðandi Ævar þá mis-
mælti hún sig oft og sagði
„pabbi þinn sagði“ eða „ ég
sagði pabba þínum“ en leiðrétti
sig svo með þeim orðum: Æ,
Inga mín, mér finnst ég alltaf
eiga þig, ég meinti Ævar.
Tóta var mikil hannyrðakona
og liggja eftir hana ótrúlega
fallegir hlutir það var sama
hvort það var prjón, hekl eða að
mála á postulín, allt gerði Tóta
svo vel og heimilið þeirra Tótu
og Ævars ber þess svo sannar-
lega merki, alltaf gott að koma
til þeirra sama hvort það var á
Garðabrautinni eða nú síðustu
ár á Þjóðbrautina.
Mikill er söknuður fjölskyld-
unnar og þá sérstaklega Ævars
frænda, þau voru búin að vera
gift í sextíu og tvö ár og alltaf
var talað um þau sem eitt þegar
á þau var minnst. Þau fóru allt
saman og gerðu eiginlega allt
saman og voru mjög miklir vin-
ir og félagar.
Elsku Tóta mín, mig langar
að þakka þér fyrir allt sem þú
varst mér í gegnum tíðina, ég
votta fjölskyldunni allri innilega
samúð og minning um yndis-
lega konu mun lifa um ókomin
ár.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ingibjörg.
Þórey Jónína
Þórólfsdóttir
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BÖÐVAR SIGURJÓNSSON
frá Norðurkoti á Eyrarbakka,
lést á dvalarheimilinu Sólvöllum á
Eyrarbakka sunnudaginn 30. september.
Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 6. október
klukkan 14.
Dætur, tengdasynir, afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNÍNA KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést á Hlévangi, Keflavík, mánudaginn
1. október.
Hilmar Bragi Jónsson
Magnús Brimar Jóhannsson Sigurlína Magnúsdóttir
Hanna Rannveig Sigfúsdóttir Ágúst Pétursson
Drífa Jóna Sigfúsdóttir Óskar Karlsson
Sjöfn Eydís Sigfúsdóttir Jóhann Hauksson
Snorri Már Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir mín, systir okkar og frænka,
SIGRÚN JÓNA EYJÓLFSDÓTTIR,
Danmörku,
lést laugardaginn 18. ágúst í
Kaupmannahöfn. Útför hennar fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Aron Kronberg Nielsen
Anna Eyjólfsdóttir
Eyjólfur Eyjólfsson
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
og fjölskylda
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
JÓHANN Ó. BJARNASON.
Svarfaðarbraut 26, 620 Dalvík.
lést fimmtudaginn 20. september á
Sjúkrahúsi Akureyrar. Jarðarförin fer fram
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 6. október
klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Velferðarsjóð barna í
Dalvíkurbyggð, kt. 620598-2089, rkn. 0177-15-200686.
Fyrir hönd okkar allra,
Aðalheiður Kjartansdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
KOLBRÚN JÓHANNESDÓTTIR
veitingakona,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu
föstudaginn 28. september.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. október
klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnaspítala Hringsins.
Linda Ingvarsdóttir Gissur Ísleifsson
Guðmundur Ingvarsson Winut Somri
Ísleifur Gissurarson Erna Kristjánsdóttir
Kolbrún Gissurardóttir
Hrafnkell Gissurarson
Védís Gissurardóttir
Snorri Guðmundsson Auður Kristjánsdóttir
Sara Guðmundsdóttir Bjarki Freyr Arason
Elskulegur bróðir okkar,
SVEINN VALDIMAR JÓNASSON,
Hringbraut 91,
sem lést 24. september, verður jarðaður laugardaginn
6. október. Útförin fer fram í Ljósvetningabúð klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Ingibjörg Jónasdóttir
Sigurrós Soffía Jónasdóttir Þórólfur Jónasson