Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 59

Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 59
Hamar, blað Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Á milli þrítugs og fertugs starf- aði ég í fjármálageiranum, sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, en síðasta áratug hef ég einkum sinnt bókaútgáfu. Öll þessi störf hafa mér þótt skemmtileg.“ Hvernig tekurðu því að vera kominn í hálfleik í lífshlaupinu? „Þessi hái aldur kemur mér mjög á óvart. Mér finnst ég ekki vera deginum eldri en 27 ára. Það er auðvitað mikið fagnaðarefni að ná þessum aldri og vera jafn sprækur og raun ber vitni – eða eins og unglamb, eins og systur mínar segja gjarnan við mig. Nú er seinni hálfleikurinn að hefjast og ég hlakka bara til. Það verður mikið leikið golf og reynt eftir efnum og aðstæðum að tengja þá iðkun við ferðalög til suðrænna landa. Frímúrarafundir verða sóttir betur og einnig Rotary-fundir en ég hef mikla ánægju af hvoru tveggja. Annars líður mér ákaflega vel heima í faðmi fjölskyldunnar eða uppi í bústað. Ég á góða að og er ald- eilis ánægður með það.“ Fjölskylda Jónas er kvæntur Rósu Guð- bjartsdóttur, f. 29.11. 1965, stjórnmálafræðingi, bæjarstjóra í Hafnarfirði og formanni Styrktar- félags krabbameinssjúkra barna (SKB). Rósa er dóttir Guðbjarts Ásgeirssonar Jónssonar, f. 20.7. 1944, d. 16.4. 2002, prentara og Margrétar Lovísu Jónsdóttur, f. 7.4. 1946, ritara. Jónas og Rósa eiga fjögur börn: Sigurgeir, f. 25.3. 1995, nemi í hagfræði við Háskólann í Reykjavík; Bjartmar, f. 13.3. 1998, d. 16.11. 2003; Margrét Lovísa, f. 16.7. 2002, nemi í Versl- unarskólanum, og Jónas Bjart- mar, f. 15.11. 2004, grunnskóla- nemi. Systkini Jónasar eru Ágústa Rut, f. 23.6. 1951, fv. ritari í Reykjavík; Sigrún Margrét, f. 9.10. 1953, bókari á Suðureyri við Súgandafjörð; Halla, f. 29.1. 1961, grunnskólakennari í Hafnarfirði, og Sigurgeir Orri, f. 18.2. 1967, rithöfundur og kvikmyndagerðar- maður, búsettur í Kaliforníu. Jónas er sonur hjónanna Sigur- geirs Jónassonar, f. 4.11. 1928, bryta, og Margrétar Björns- dóttur, f. 25.2. 1930, d. 4.6. 1993, starfsleiðbeinanda.Útgefandinn og bæjarstjórinn Myndarhjónin Jónas Björn og Rósa. Úr frændgarði Jónasar Björns Sigurgeirssonar Jónas Björn Sigurgeirsson Ástríður Jónsdóttir húsfreyja á Þingeyri Ágústa Hjálmfríður Hjartar húsfreyja í Rvík Margrét Björnsdóttir starfsleiðbeinandi í Kópavogi Björn Marinó Björnsson bókbindari í Rvík Jónína Jensdóttir húsfreyja í Rvík Björn Björnsson veggfóðrari í Rvík Hjörtur Bjarnason b. og sjóm. á Þingeyri Ólafur Ragnar Hjartar Hjartarson járnsmiður á Þingeyrum Svanhildur Ólafsdóttir jartar húsfreyja á Ísafirði H Ólafur Ragnar Grímsson fv. forseti Íslands Hjörtur Hjartar framkvæmdastjóri skipadeildar SÍS ónína Sigurjónsdóttir húsfreyja á Byggðar- horni í Flóa JHjördís Geirsdóttir söngkona Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona Jódís Sigmundsdóttir húsfreyja í Kringlu Stefán Gíslason héraðslæknir í Vík í Mýrdal Sigurjón Gíslason b. og fræðim. í Kringlu í Grímsnesi Sigrún Sigurjónsdóttir húsfreyja í Kópavogi Jónas Bjarni Bjarnason byggingam. í Kópavogi Sólveig Jónsdóttir húsfreyja í Vallholti Bjarni Runólfsson skútusjómaður í Vallholti við Sandgerði Sigurgeir Jónasson bryti í Kópavogi ÍSLENDINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 10% afsláttur af öllum trúlofunar- og giftingarhringapörum Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Guðmundur Daníelsson fædd-ist að Guttormshaga í Holt-um 4.10. 1910, sonur Daníels Daníelssonar, bónda þar, og Guð- rúnar Sigríðar Guðmundsdóttur húsfreyju. Daníel var sonur Daníels, bónda á Kaldárholti á Rangárvöllum Þor- steinssonar, og Guðrúnar Sigurð- ardóttur, bónda á Gaddastöðum á Rangárvöllum Guðbrandssonar, bróður Sæmundar, ættföður Lækjarbotnaættar þeirra Bubba og Hauks Morthens. Eiginkona Guðmundar var Sigríð- ur Arinbjarnardóttir og eignuðust þau þrjú börn sem öll hafa stundað kennslu, Iðunni, Heimi og Arnheiði. Guðmundur var í Héraðsskól- anum á Laugarvatni, lauk kennara- prófi 1934, og stundaði framhalds- nám við Lærerhöjskolen í Kaup- mannahöfn 1948-49. Hann var skólastjóri á Suðureyri 1938-43, kenndi á Eyrarbakka 1943-44, skóla- stjóri þar 1945-68 og kennari Gagn- fræðaskólans á Selfossi 1968-73. Guðmundur stundaði ritstörf með kennslu og skólastjórnun og síðan eingöngu frá 1973. Meðal skáld- sagna hans má nefna Bræðurna í Grashaga, 1935; Á bökkum Bola- fljóts, I. og II. bindi, 1940; Blind- ingsleik, 1955; Húsið, 1963; Járn- blómið, 1972, og Vatnið, 1987. Hann samdi sögulegu skáldsögurnar Sonur minn, Sinfjötli, 1961, og Bróðir minn, Húni, 1976, samdi smá- sögur, leikrit, ljóð, ferðalýsingar, endurminningar og viðtalsbækur, og naut heiðurslauna listamanna frá 1974. Guðmundur var ritstjóri Suður- lands 1953-73 og náinn vinur Ingólfs Jónssonar á Hellu. Hann sat í hreppsnefnd Selfoss, í yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis 1959-74, var formaður skólanefndar Héraðsskól- ans á Laugarvatni 1960-72, sat í hreppsnefnd Selfoss 1970-74, for- maður stjórnar Héraðsbókasafns Árnesinga 1970-80, formaður Félags íslenskra rithöfunda 1970-72 og sat í rithöfundaráði 1974-78. Guðmundur lést 6.2. 1990. Merkir Íslendingar Guðmundur Daníelsson 90 ára Edda Jóhannesdóttir Guðbjörg V. Magnúsdóttir Rakel Jóhannesdóttir 85 ára Gunnar Ingibergsson Ingibjörg Ásmundsdóttir Septíma D. Ragnarsdóttir 80 ára Böðvar Bragason Guðmundur V. Sverrisson Hannes Haraldsson Jóna Jónsdóttir Kristófer Valdimarsson Svandís Guðmundsdóttir Þórarinn Karl Sófusson 75 ára Arnbjörg Bjarnadóttir Björgvin Björgvinsson Bylgja R. Aðalsteinsdóttir Gunnhildur Ágústsdóttir Gylfi Þórðarson Inga B. Hólmsteinsdóttir Ingjaldur S. Hafsteinsson Sigríður G. Kristjánsdóttir Þórir Hjálmarsson 70 ára Asya Leskova Hugrún G. Þórðardóttir Sigríður Jústa Jónsdóttir Sæunn Eiríksdóttir 60 ára Aðalheiður Alfreðsdóttir Aðalheiður Gunnarsdóttir Anna Lovísa Bjarnadóttir Bjarnveig K. Jónasdóttir Björn Valdimarsson Eygló Ormarsdóttir Flosi Ásmundsson Helgi Guðjón Steinarsson Hermann Árnason Jakob Viðar Ófeigsson Joris J.F. Rademaker Margrét Sigurðardóttir Ólafía Björnsdóttir Rut Ríkey Tryggvadóttir Sólveig Höskuldsdóttir Þuríður Halldórsdóttir 50 ára Ágúst Kristján Stefánsson Berglind Einarsdóttir Clyde Nicholas Sheppard Guðmundur Baldursson Jakob Sævar Sigurðsson Signý Hreiðarsdóttir Vigdís Björk Agnarsdóttir 40 ára Aðalheiður Eggertsdóttir Delma Macali Reyes Elísabet B. Lárusdóttir Heiða Ólafsdóttir Heiða Steinarsdóttir Honey Lore Sales Kwaku Kuma Asare Margrét Árnadóttir Níels Birgir Níelsson Ómar Djermoun Steingrímur Örn Bárðarson Sveinlaug Ísleifsdóttir Þórdís Elín Kristinsdóttir Þórey Birgisdóttir 30 ára Álfheiður Björgvinsdóttir Bragi Rafn Sigurðarson Halldór Smári Sigurðsson Iðunn Hauksdóttir Jónína Ósk Hansen Kjartan Bragi Valgeirsson Liam John Michael Killa Lilja Guðmundsdóttir Marek Sikora Orri Snær Karlsson Ólafur Magnússon Petra Hola Ruth Þórðar Þórðardóttir Stefán Jón Hrafnkelsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórhalla ólst upp í Hafnarfirði, býr þar og er að ljúka prófum í við- skiptafræði við HR. Maki: Jón Arnar Jónsson, f. 1994, starfsmaður hjá Ölgerð Egils Skallagríms- sonar. Börn: Sigurður Máni, f. 2009, og Baltasar Þór, f. 2015. Foreldrar: Þóra Ragn- heiður Aðalgeirsdóttir, f. 1969, og Sigurður Bjarna- son, f. 1968. Þórhalla Sigurðardóttir 30 ára Kristín ólst upp i Hveragerði en býr í Grindavík og starfar við innritun hjá Icelandair í Leifsstöð. Maki: Aron Daníel Arnar- son, f. 1985, starfsmaður hjá Bílaleigunni Átaki. Börn: Adrian Daði, f. 2008; Aþena Ósk, f. 2011, og Rakel Thea, f. 2015. Foreldrar: Sólveig Elías- dóttir, f. 1956, og Högni Jóhann Sigurjónsson, f. 1956. Kristín Ósk Högnadóttir 30 ára Egill ólst upp á Egilsstöðum í Fljótsdals- hreppi, lauk BSc-prófi í búvísindum frá LBHÍ og er bústjóri hjá Hvann- eyrarbúinu ehf. kennslu- og rannsóknarbúi LBHÍ. Bróðir: Gunnar Gunnars- son, f. 1984, formaður ÚÍA og ritstjóri Austur- frétta. Foreldrar: Gunnar Jóns- son, f. 1948, og Bergljót Þórarinsdóttir, f. 1950, d. 2015. Egill Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.