Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst nauðsynlegt að að-
skilja hug og hjarta í vissum málum. Hug-
myndir um hvernig hægt sé að auka tekjur
eða um nýtt starf koma fram á næstu vikum.
20. apríl - 20. maí
Naut Rólyndi þitt hefur góð áhrif á aðra, en
þú þarft líka á næringu að halda. Fólk bregst
mjög sterkt við útgeislun þinni og glaðværð.
Leyfðu vinum þínum að umvefja þig kærleika.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst þú til í hvað sem er og
ættir að láta það eftir þér að reyna á hug-
kvæmni þína. Þú færð tækifæri til að hefja
samningaviðræður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur fyllstu ástæðu til þess að
vera ánægður með framlag þitt, varastu bara
að láta ofmetnað ná tökum á þér. Vertu
óhræddur við að viðra hugmyndir þínar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Leggðu spilin á borðið og láttu engan
efast um það hvað það er sem þú ætlar þér.
Hafðu varaáætlun tiltæka og gerðu þér grein
fyrir því að þú verður að bjarga þér sjálfur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú kannt að laðast að einhverjum sem
er ólíkur þér hvað varðar bakgrunn og
reynslu. Yfirgangssamir einstaklingar laðast
að þér en þú verður sjálfur að ráða lífi þínu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú veist að í hverju verkefni sem þér er
falið felst æfing sem eykur hæfni þína. Þú
hefur gefið þig allan í starf þitt og sérð nú
fram á betri tíð með blóm í haga.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Loksins hefur þér tekist að fá
einhvern á þitt band í máli sem þú berð fyrir
brjósti. Taktu neikvæðum viðbrögðum ekki
illa, fólk þarf mislangan tíma til að átta sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu duglegur í að afla þér þeirra
heimilda sem þú þarft til að geta klárað verk-
efni þitt. Segðu það sem þér finnst, en
kenndu ekki öðrum um líðan þína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leggðu hönd á plóg þar sem þess
er þörf, hvort sem það er beinlínis í þínum
verkahring eða ekki. Dagurinn í dag er ekki sá
rétti fyrir samningaviðræður af neinu tagi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki eins og þú þurfir að
klára alla skapaða hluti á einu bretti. Hafðu í
huga að þótt leiðin á tindinn sé torsótt þá
getur fallið niður tekið fljótt af.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur ekki frestað því að fram-
kvæma þá hluti sem þú tókst að þér. Þótt þú
hafir í mörg horn að líta máttu aldrei gleyma
því að gera sjálfum þér eitthvað til góða.
Nú á þessu hausti kom út bókin„Skiptidagar, – leiðsögn
handa nýrri kynslóð,“ eftir Guð-
rúnu Nordal. Bókin er mjög vel
skrifuð og efnisrík, þar sem gert er
hvort tveggja í senn að stikla á
mörgu því helsta í íslenskri sögu og
horfa fram á við. Mér þótti bókin
spennandi enda drepið á margt sem
ég sá í nýju ljósi og hafði ekki hug-
leitt. Bókin á svo sannarlega erindi
til þeirra sem unna íslenskri tungu
og sögu þjóðar okkar. Og svo hefur
bókin persónulega skírskotun. Þar
segir: „Í handritum Sigurðar afa
eru t.d. skráðar vísur systranna
Sigríðar Guðmundsdóttur, lang-
ömmu afa, og Rósu Guðmunds-
dóttur og þær settar á svið. Heim-
ildarmaðurinn er föðuramma hans,
Margrét Jónsdóttir, tengdadóttir
Sigríðar:
„Á Sigríði langömmu mína sótti
þunglyndi og hugarangur á seinni
hjúskaparárum þeirra Ólafs. Einu
sinni sótti Rósa systir hennar hana
heim og hafði orð á, að hún væri
döpur í bragði. Þá kvað Sigríður:
Þeir sem reyna þankans meina greinir,
gera ekki að gamni sín
geðs um bekki, systir mín.
Rósa svaraði þegar:
Þrátt ég reyni þankans meina greinir,
geri þó að gamni mín,
svo gefist ró, en setjist pín.““
Guðrún heldur áfram: „Vís-
urnar draga upp áhrifaríka mynd
af tveimur systrum, sambandi
þeirra og ólíku geðslagi. Örlítið
af kveðskap Vatnsenda-Rósu hef-
ur varðveist, en þetta er eina vís-
an sem ég veit um að er kennd
Sigríði formóður minni. Vísurnar
sýna hversu nærtækt það var
fólki að bregða fyrir sig vísum til
að tjá tilfinningar sínar og ná ut-
an um hugsun sína.“
Guðrún P. Helgadóttir segir frá
því að Rósa hafi verið á ferð um
Suðurland með dætrum sínum ,
Pálínu og Sigríði. Þá kvað Rósa:
Öldruð Hekla er að sjá,
ísa hökli búin.
Þekkir eklu ei þoku á
þrifleg jökla frúin.
Pálína kvað:
Gráan skalla geymir hann,
gljáan mjallahökul,
ýtar kalla aldraðan
Eyjafjallajökul.
Sigríður kvað:
Á eyðisandi ektapar,
öllu grandi tapað:
óslítandi einingar
er þeim bandið skapað.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur systra í góðri bók
„ÉG VAR AÐ HRINGJA Í
MEINDÝRAEYÐINN.“
„BÍDDU AÐEINS, ÉG FINN EKKI LYKLANA
MÍNA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hver mínúta
verður einstök upplifun.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG VONA AÐ HANN KVEIKI FYRST Í MÉR! ÓBEINAR REYKINGAR ERU SVO ÓHOLLAR!
ÞAÐ ER ÞESSI EINI VINUR SEM
ER ALLTAF AÐ BENDA Á AÐ HANN
ER YNGRI EN MAÐUR SJÁLFUR
Þú kaupir allt, bara ef Star Wars-merkið er á því!“ sagði fyrrver-
andi frú Víkverji einu sinni við hann.
Hvort sú tilhneiging Víkverja hefur
stuðlað að „fyrrverandi“-titlinum
veit hann ekki en hitt veit hann þó að
því miður hafði hún ekki alfarið
rangt fyrir sér.
x x x
Þannig freistaðist Víkverji til þessá ferðalagi um daginn að kaupa
sér nýjan ferðatannbursta um borð í
flugvélinni. Eini gallinn var sá að
tannburstinn var augljóslega ætl-
aður minni tönnum en þeim sem
Víkverji hefur í skoltinum, auk þess
sem hann var í laginu eins og geisla-
sverð, og gaf frá sér alls kyns óhljóð
og bænir til æðri Máttarvalda. „Ég
er víst fullorðinn!“ sagði Víkverji og
burstaði tennurnar meira og betur
en hann hefur gert í mörg ár.
x x x
Á flugvellinum á leiðinni heim beiðVíkverja síðan ný freisting, en
þar var til sölu ferðataska af minni
gerðinni, þeirri sem má taka með sér
um borð. Allt gott og blessað með
það, nema hvað á töskunni var mynd
af honum Svarthöfða blessuðum,
helsta „vonda gæjanum“ í mynd-
unum (og uppáhaldspersónu Vík-
verja). Eini gallinn var sá að Vík-
verji var þegar með handfarangurs-
tösku með sér, sem hann hafði
fengið að láni frá móður sinni.
x x x
Víkverji skal alveg játa það aðhann velti þeim möguleika fyrir
sér að kaupa Svarthöfða-töskuna,
færa allan farangur sinn úr hinni
töskunni í hana og segja svo móður
sinni að hér hefðu minni hagsmunir
(taskan hennar) fengið að víkja fyrir
meiri (Ég meina, Svarthöfði! Á
ferðatösku!). Hann sá hins vegar
einnig fyrir sér hvað fólk myndi
segja þegar hann myndi arka um
flugvöllinn með Svarthöfða í eftir-
dragi.
x x x
Lesendum (og fyrrv. frú Víkverja)til hugarhægðar skal tekið fram
að Víkverji hélt sönsum og ákvað að
fá sér ekki ferðatöskuna. Í það
minnsta ekki í bili. vikverji@mbl.is
Víkverji
Á því munu allir þekkja að þér eruð
mínir lærisveinar ef þér berið elsku
hver til annars
(Jóh: 13.35)