Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi
gefur út fjölda fjölbreyttra bóka. Á
árinu hafa þegar komið út nokkrar
bækur en væntanlegar eru skáld-
sögur, ljóðabækur, ævisögur og safn
af þjóðlegum fróðleik, svo fátt eitt sé
talið.
Fyrr í haust komu út ævisaga
Helgu Ingólfsdóttur, eftir Kolbein
Bjarnason, og ævisagan Stalín, ævi
og aldurtili, eftir rússneska fræði-
manninum Edvard Radzinskij.
Fyrir stuttu komu einnig út ljóðabók
Matthíasar Johannessen, Enn logar
jökull, og ljóðabók Völu Hafstað,
Eldgos í aðsigi, sem er á íslensku og
ensku. Einnig kom út Katrínarsaga
Halldóru Thoroddsen, saga um ís-
lenska hippa, örlög þeirra og tog-
streitu.
Nú brosir nóttin eftir Theódór
Gunnlaugsson er endurútgefin ævi-
saga Guðmundar Einarssonar refa-
skyttu á Ingjaldssandi, sem er ein af
frægari ævisögum síðari tíma. Í
þessari endurútgáfu er mikið ítar-
efni og þar á meðal er skyggnst inní
þá hluta ævisögu Guðmundar sem
ekki þótti viðeigandi að ræða mikið í
frumútgáfunni.
Væntanleg er sjálfsævisaga
Gunnars Sæmundssonar, bónda í
Hrútatungu þar sem hann bregður
ljósi á líf bóndans og segir um leið
sögu samtaka bænda en hann var
þar lengi í forystusveit. Önnur ævi-
saga er bók þýska fræðimannsins
Ralf Dose sem heitir Magnus
Hirschfeld, frumkvöðull í mannrétt-
indabaráttu hinsegin fólks. Í bókinni
Hér segir frá baráttu hinsegin-
hreyfingarinnar fyrr á árum, en
Hirschfeld var uppi 1868 til 1935.
Einnig er væntanlegt greinasafn
Jónasar Ingimundarsonar píanóleik-
ara sem nefnist Þankar við slag-
hörpuna.
Nýkomin er ljóðabók Helga Ing-
ólfssonar, Kver um kerskni og heim-
sóma, en Helgi er annars þekktur
fyrir skáldsögur sínar og hlaut Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir bókina Letrað í
vindinn: samsærið og Blóðdropann,
hin íslensku glæpasagnaverðlaun
fyrir glæpasöguna Þegar kóngur
kom.
Ljóðabók Bjarna Bjarnasonar fv.
lektors, Í bakkafullan lækinn, er
væntanleg og einnig ljóðabók
Hrafns Harðarsonar bókavarðar
sem heitir Báruleikur að orðum.
Í gær kom út bókin Í Gull-
hreppum eftir Bjarna Harðarson
sem er sjálfstætt framhald bókar-
innar Í skugga drottins sem kom út
á síðasta ári. Sögurnar hverfast um
Skálholt 18. aldar og nærsveitir.
Séra Þórður Jónsson prestur í
Reykjadal er aðalpersóna nýju
bókarinnar.
Finnbogi Hermannsson hefur
skrifað sögulega skáldsögu, Undir
hrauni, um þýska flóttamenn á Ís-
landi á dögum seinna stríðs. Sagan
gerist meðal annars í nágrenni við
Heklu þar sem þýskir skipbrots-
menn vinna kauplítið við húsagerð
fyrir Selsundsbónda.
Guðjón Ragnar Jónasson kennari
sendir frá sér bókina Hin hliðin sem
segir frá lífi samkynhneigðra á Ís-
landi. Bókin er byggð upp á laus-
tengdum örsögum og sögusvið
margra þeirra er næturlíf Reykja-
víkurborgar.
Guðmundur Brynjólfsson rithöf-
undur og djákni sendir frá sér sína
fyrstu sakamálasögu, Eitraða barn-
ið. Sagan gerist á Eyrarbakka um
aldamótin 1900 og við sögu koma
þjóðþekktir menn í bland við hreinar
skáldsagnapersónur.
Sagan Svikarinn eftir Lilju
Magnúsdóttur er harmræn ástar-
saga þar sem helst til margir gista
sama hjónabandið. Svikarinn er
fyrsta bók höfundar.
Þrjú þýdd skáldverk koma út hjá
Sæmundi á árinu. Fyrt er að telja
bók Tapio Koivukari, sem bjó lengi
hér á landi. Bók hans segir af
Strandakonunni Galdra-Möngu sem
flýr sína heimasveit undan ofsókn-
um yfirvalda eftir að faðir hennar og
fleiri Árneshreppingar hafa verið
brenndir á báli. Sagan byggist á
raunverulegum atburðum.
Soralegi Havanaþríleikurinn er
helsta verk kúbverska rithöfund-
arins Pedro Juan Gutiérrez. Bókin,
sem er bönnuð í
heimalandi höf-
undar, segir frá
lífinu í Havana
við fall Sovétríkj-
anna þegar eina
glætan í myrkr-
inu er kynlíf,
romm og mari-
júana.
Þegar er komin
út skáldsagan
Homo Sapína eftir grænlenska höf-
undinn Niviaq Korneliussen. Bókin
segir frá lífi samkynhneigðra
kvenna í grænlenskum veruleika þar
sem fordómar og fastheldni ráða
ríkjum.
Þjóðlegan fróðleik má finna í bók-
inni Heyannir eftir Þórð Tómasson
safnvörð í Skógum þar sem dreginn
er saman fróðleikur víðsvegar að af
landinu. Kambsmálið, engu gleymt,
ekkert fyrirgefið, eftir Jón Hjartar-
son er söguleg frásögn af baráttu fá-
tæklinga gegn hreppsyfirvöldum
norður í Árneshreppi um miðbik 20.
aldar.
Einnig komu út í vor ljósmynda-
bækurnar Fornar hafnir eftir Karl
Jeppesen og Þingvellir, í og úr sjón-
máli eftir ljósmyndarana Pálma
Bjarnason og Sigrúnu Kristjáns-
dóttur en höfundur texta er Harpa
Rún Kristjánsdóttir. Einnig Fornar
reiðleiðir í Vestur-Skaftafellssýslu
eftir Veru Roth sem gefin var út í til-
efni af 20 ára afmæli Kirkjubæjar-
stofu, en í bókinni er að finna margs
konar fróðleik um fyrri alda lífshætti
Skaftfellinga auk lýsinga á helstu
samgönguleiðum héraðsins. Sæ-
mundur gaf einnig út að nýju bókina
Forystu-Flekkur og fleiri sögur,
sem kom fyrst út árið 1950.
Ógetið er endurútgáfu á Pilti og
stúlku sem kemur út í tilefni af því
að 5. október eru 200 ár eru frá fæð-
ingu Jóns Thoroddsen, en í ár er og
150. ártíð Jóns. Bókin er gefin út í
þeirri mynd sem skáldið gekk frá
henni til útgáfu árið 1850 og fyrsta
endurprentun á frumgerð sögunnar,
en Jón breytti sögunni fyrir aðra út-
gáfu hennar 1867. arnim@mbl.is
Ævisögur í aðalhlut-
verki og ljóðabókafjöld
Þjóðlegur fróð-
leikur og héraðs-
sögur, skáldskapur,
ljósmyndabækur og
fleira frá bókaút-
gáfunni Sæmundi
Harpa Rún
Kristjánsdóttir
Helga
Ingólfsdóttir
Halldóra
Thoroddsen
Tapio
Koivukari
Finnbogi
Hermannsson
Niviaq
Korneliussen
Guðjón Ragnar
Jónsson
Guðmundur S.
Brynjólfsson
Matthías
Johannessen
Vala
Hafstað
Bjarni
Harðarson
Á morgun verður Jóns Thorodd-
sens minnst með dagskrá í Safn-
aðarheimili Grensáskirkju, en
þann dag verða liðin 200 ár frá
því skáldið fæddist á Reykhólum.
Sögufélag og Bókaútgáfan Sæ-
mundur efna sameiginlega til sam-
komunnar sem hefst kl. 20 með
erindi Katrínar Jakobsdóttur, for-
sætisráðherra og afkomanda Jóns,
sem fjalla mun um skáldsögur
hans.
Að því loknu flytja María Sól
Ingólfsdóttir og Mattias Martínez
Carranza eldri gerð Vögguvísu og
Búðarvísna úr Pilti og stúlku eftir
Jón Thoroddsen við lög Emils
Thoroddsens.
Eftir stutt hlé fjallar Guð-
mundur Andri Thorsson um ljóða-
gerð Jóns undir yfirskriftinni Af
kvisti’ á kvist ég hoppa hér og
Haraldur Bernharðsson flytur er-
indi sem hann nefnir Gamalt mál
fyrir nýja tíma.
Fundarstjóri er Már Jónsson,
sem jafnframt segir frá nýjum út-
gáfum á bréfum Jóns og frumgerð
skáldsögunnar Pilts og stúlku sem
kom út fyrir stuttu.
Jón Thoroddsen 200 ára
Jón Thoroddsen
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s
Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fös 5/10 kl. 19:30 Frums Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Þri 23/10 kl. 19:30 10. s
Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Lau 20/10 kl. 17:00 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 5/10 kl. 19:30 41. s Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 6/10 kl. 11:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 11:00
Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 20/10 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 12:30
Lau 17/11 kl. 12:30 Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00
Lau 24/11 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30
Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 11:00
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s
Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s
Sun 7/10 kl. 20:00 154. s Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 28/10 kl. 20:00 162.
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 aukas.
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 6/10 kl. 20:00 9. s Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Sun 7/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Fös 19/10 kl. 20:00 15. s
Lau 6/10 kl. 20:00 8. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Sun 7/10 kl. 20:00 9. s Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 aukas.
Besta partýið hættir aldrei!
Hvað er í bíó? mbl.is/bio