Morgunblaðið - 04.10.2018, Qupperneq 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
ICQC 2018-20
Það er sama hvort maður eraðdáandi Helga Björns eðaekki, það er ekki hægtannað en að taka eftir því
hve sérstök rödd hans er. Það er ein-
hver tónn þarna sem skilur hana frá
fjöldanum. Kannski er það leikara-
menntunin, kannski þetta sé bara
meðfætt, en Helgi er að minnsta
kosti algjörlega einstakur í íslenskri
tónlistarflóru og röddin alltaf jafn
pottþétt.
Tónlistin sem
Helgi hefur
fengist við í
gegnum tíðina er
svo alls konar.
Síðari ár hefur
hann verið að
daðra við kántrískotið popp og leysir
það fagmannlega af hendi, líkt og
annað sem hann tekur sér fyrir
hendur. Helgi hefur verið í ný-
bylgjuhljómsveitinni Grafík, í sveita-
ballapoppinu með Síðan skein sól, í
söngleikjum, leikritum og kvik-
myndum, í rokkböndum og svo
sendir hann reglulega frá sér sóló-
plötur. Ég reyndi að finna einhverj-
ar opinberar tölur um það hve mörg-
um plötum Helgi hefur komið frá sér
og gafst upp á að telja í rúmlega
tuttugu. Ég gæti best trúað að það
væri nær þrjátíu, fyrir utan þær fjöl-
mörgu plötur þar sem hann er
gestur. Svo varð Helgi sextugur á
árinu sem hljómar fjarstæðukennt
því hann er enn með orku unglings
og manni finnst að hann sé rétt
hálfnaður með starfsævi sína. Það
getur svo sem vel verið að svo sé, og
þá eigum við eftir að sjá sjúklega
sprækan 120 ára gamlan Helga
Björns sem hrópar sveittur og glott-
andi af sviðinu: „Eru ekki allir
sexí?“. Ég er sko til í það, því mér
finnst nefnilega Helgi eiga heilmikið
eftir.
Eins og ég byrjaði á að segja
finnst mér rödd Helga nær ómót-
stæðileg en hann nýtur sín alls ekki
eins vel í öllum tegundum tónlistar.
Nýja platan er alls ekki heildstæð,
með einum hljómi og lögum sem
vinna saman að einu markmiði.
Fremur mætti lýsa henni sem
blöndu af vel unnum og útsettum
lögum með pælingartextum í bland
við poppsmelli sem maður fær
stundum á tilfinninguna að hafi verið
til í banka Helga af lögum frá eldri
verkefnum. Lög eins og „Villingar“
og „Strax í dag“ eru í sannleika sagt
lög sem Síðan skein sól hefði getað
verið stolt af en fölna í samanburði
við bestu lög plötunnar. Og bestu lög
plötunnar eru meira að segja ólík
innbyrðis. Titillagið „Ég stoppa
hnöttinn með puttanum“ er skot-
heldur diskódívupopphittari með
rándýrri strengjaútsetningu frá Þóri
Baldurssyni. „Bankarán“ er lokalag
plötunnar og það er töffararokk með
geggjuðum, stónsaralegum krók og
ádeilutexta.
Ágengasta lagið er þó að mínu
mati „Ástin sefar“, með alveg mögn-
uðu viðlagi, ævintýralegum milli-
kafla, stórkostlegum hljóðfæraleik
og einni eftirminnilegustu raddút-
setningu síðari ára. Þarna tekst
Helgi á loft og flýgur og gleymir sér.
Rokk-Helgi, popp-Helgi og kántrí-
Helgi hafa ekki roð við þessum. Það
er helst að mér detti Nick Cave í hug
til að geta borið saman við eitthvað,
samt er þetta bara Helgi sjálfur,
hann er nóg. Ég fer innst inni að
óska mér að til væri heil plata sem
væri full af slíkum lögum. En slík
plata á örugglega eftir að koma út.
Það er ekkert sem Helgi getur ekki
gert.
Fyrir aðdáendur Helga Björns er
þessi plata fullkomin, því það er auð-
vitað meira en nóg að hafa átta ný
lög með orku hans, nálgun og töff-
aralegum söng. Fyrir aðra er þessi
plata langt yfir meðallagi en dregst
svolítið niður í poppuðustu og létt-
ustu lögunum. Helgi er nefnilega
alls ekki poppari, hann bara kann
allt of vel að fást við slíka tónlist.
Hann er hins vegar miklu, miklu
dýpri en svo.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sextugur Helgi Björns hélt upp á sextugsafmælið nýverið með veglegum tónleikum og nýrri plötu.
Meira en nóg
Popp
Helgi Björns – Ég stoppa hnöttinn
með puttanum bbbbn
Alda music gefur út plötu Helga
Björnssonar sem inniheldur átta lög.
Lög: Helgi Björnsson, Guðmundur
Óskar og Pétur Benediktsson. Textar:
Helgi Björnsson og Atli Bollason.
Útgáfuár 2018.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
„„Ást er líkt við …““: Reynsla er-
lendra kvenna af ástarsamböndum
í íslensku samfélagi í ljósi #MeToo“
nefnist fyr-
irlestur sem
Brynja E. Hall-
dórsdóttir flytur
á vegum RIKK í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns
Íslands í dag kl.
12. Markmið fyr-
irlestursins er að
draga fram
reynslu erlendra
kvenna, greina frásagnir þeirra,
setja þær í ákveðið samhengi og
skoða þá m.a. margbreytilegar
menningarhefðir, skyldur og vænt-
ingar. Brynja lauk doktorsprófi frá
Minnesota-háskóla árið 2012 í al-
þjóðamenntunarfræðum með
áherslu á fjölmenningu og jafnræð-
ishugmyndir fyrir jaðarhópa í skól-
um og þjóðfélögum. Hún starfar
sem lektor á Menntavísindasviði
Háskóla Íslands.
„Ást er líkt við…“
Brynja E.
Halldórsdóttir
Gavin Morrison
hefur verið ráð-
inn forstöðu-
maður Skaftfells
myndlistarmið-
stöðvar Austur-
lands. „Stjórn
Skaftfells er
mikil ánægja að
bjóða til starfa
Gavin Morrison
og telur það mik-
inn akk fyrir stofnunina að fá til
liðs við sig manneskju með svo yfir-
gripsmikla þekkingu á myndlist-
arheiminum. Auk þess að hafa
mikla alþjóðlega reynslu á sviði
sýningarstjórnar þá hefur Gavin
reynslu af störfum með fjölmörgum
íslenskum listamönnum. Stjórninni
þótti áhugavert að fá manneskju
með slíka reynslu til að útvíkka og
styrkja alþjóðleg tengsl stofnunar-
innar,“ segir í tilkynningu.
Tekur við Skaftfelli
Gavin
Morrison
Hanna Dóra Sturludóttir mezzó-
sópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór
og Snorri Sigfús Birgisson píanó-
leikari koma fram á hádegistón-
leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag kl. 12. Tónleikarnir eru hluti af
tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í
Fríkirkjunni. Á efnisskránni eru lög
úr Jónasarlögum Atla Heimis
Sveinssonar auk þess sem flutt
verða þýsk ljóð. Tónleikarnir hefjast
kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur og
eru miðar seldir við innganginn.
Ekki er tekið við greiðslukortum.
Jónasarlög Atla Heimis í Fríkirkjunni
Glöð Hanna Dóra og Snorri.
Í tengslum við sýninguna Allra
veðra von verður haldið málþing í
Hafnarborg í kvöld kl. 20. Allra
veðra von er áttunda sýningin í
haustsýningaröð Hafnarborgar þar
sem hugmynd sýningarstjóra er
valin úr innsendum tillögum. Á sýn-
ingunni eru verk eftir Höllu Birgis-
dóttur, Ragnheiði Hörpu Leifs-
dóttur, Ragnheiði Maísól Sturlu-
dóttur, Sigrúnu Hlín Sigurðar-
dóttur og Steinunni Lilju Emils-
dóttur, en sýningarstjóri er Marta
Sigríður Pétursdóttir. Þátttak-
endur málþingsins eru Eiríkur
Valdimarsson þjóðfræðingur, Har-
aldur Ólafsson veðurfræðingur og
Marta sýningarstjóri. Fundarstjóri
er Marteinn Sindri Jónsson heim-
spekingur og aðjúnkt við hönn-
unar- og arkitektúr-deild Listahá-
skóla Íslands. Listakonurnar Halla,
Ragnheiður Harpa, Ragnheiður
Maísól, Sigrún Hlín og Steinunn
Lilja taka þátt í umræðum.
Málþing um Allra veðra von í kvöld
Sýningarstjóri Marta Sigríður
Pétursdóttir stýrir sýningunni.