Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 TOWER kollur. Ýmsir litir. 5.995 kr. Kómedíuleik- húsið frumsýnir leikritið Sigvaldi Kaldalóns í leik- stjórn Þrastar Leós Gunnars- sonar í Hann- esarholti í kvöld kl. 20. Leikurinn fjallar fyrst og fremst um ár Sig- valda í Ármúla í Ísafjarðardjúpi þar sem hann starfaði sem læknir í ein ellefu ár. Á þeim tíma samdi hann um hundrað lög. Undir lok tímabils- ins varð hann að leita sér lækninga til Danmerkur vegna berkla. Flytj- endur eru Sunna Karen Einarsdóttir og Elfar Logi Hannesson. Næsta sýning er sunnudaginn 7. október kl. 16.00. Miðasala er á tix.is. Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti í kvöld FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Dominos-deild karla í körfuknatt- leik hefst í kvöld en í íþróttablaðinu í dag er farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á liðunum og rætt við Finn Frey Stefánsson aðstoðar- landsliðsþjálfara um hvernig deild- in gæti þróast. Ólíklegt er að nokk- urn tíma áður hafi jafn margir öflugir íslenskir leikmenn farið á milli liða í körfunni hérlendis. 2-3 Miklar breytingar á lið- unum í körfunni ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Selma Björnsdóttir er gestur Jóns Ólafssonar á spjalltónleikunum Af fingrum fram í Salnum í kvöld kl. 20.30. Selma á að baki glæsilegan feril sem söng- og leikkona auk þess að vera afkastamikill danshöf- undur og leikstjóri. Síðasta leik- stjórnarverkefni hennar er Ronja ræningjadóttir á fjölum Þjóðleik- hússins. Selma fer í gegnum fjölbreyttan ferilinn allt frá Eurovision-lögum til kántrýtónlistar með skvettu af Grease í bland. Á milli samtala brestur hún reglulega í söng. Af fingrum fram með Selmu Björnsdóttur Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Myndlistarmaðurinn Sigurþór Jak- obsson situr ekki auðum höndum. Helsta verkefni hans þessa dagana er að ljúka við mynd af knattspyrnu- kappanum Þórólfi Beck, sem lést 1999 og hefði orðið 80 ára 2020. Sigurþór, sem býr og málar á Vesturgötu 7 í Reykjavík, hefur reglulega verið með sýningar í stiga- ganginum auk þess sem nokkrar myndir eftir hann hanga uppi á 3. hæð. „Mér finnst indælt að geta haft hluta af verkum mínum hérna til skoðunar, með leyfi húsráðenda, og birtan er góð, kemur að ofan, eins og prestarnir segja,“ segir hann. Yfirleitt er Sigurþór með nokkur málverk í vinnslu. Hann segist samt undanfarið hafa verið upptekinn við að fullvinna nokkur verk, sem legið hafa ókláruð, sum hver í mörg ár. „Ég byrjaði á myndinni af Þórólfi 2006 vegna sýningarinnar „Bolta- menn“ á Akranesi 2007, gat samt ekki lokið við hana og gafst upp. Hef ekki lagt í að halda áfram með hana fyrr en nú eftir að ég fór að vinna aft- ur í myndröðinni „Málaðar minn- ingar“ að ég sótti hana upp á geymsluloft.“ Besta knattspyrnumyndin Sigurþór lék sem vinstri kantmað- ur og var samherji Þórólfs hjá KR og í landsliðinu. Eftirminnilegt er þegar hann skoraði glæsilegt mark fyrir KR með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig á móti danska Sjálandsúrvalslið- inu SBU á Laugardalsvellinum 1965. „Þórólfur lék með okkur sem gestur, margir komu til þess að sjá hann, en hann varð því miður að yfirgefa völl- inn í síðari hálfleik. Í staðinn fengu þeir að sjá þetta mark,“ rifjar Sigur- þór upp. „Mig minnir að boltinn hafi fest í mannshæð í netmöskvanum.“ Sigurþór segir að eftir að Þórólfur hafi fengið tilboðið frá St. Mirren hafi ljósmyndari komið á æfingu og tekið nokkrar myndir af verðandi at- vinnumanninum. „Hann tók meðal annars mynd sem sýnir Þórólf í vinkli að sparka bolta. Þetta er ein besta knattspyrnumynd sem ég hef séð og mitt málverk, sem ég kalla „Myndatakan“, byggist á þessari upplifun minni á KR-svæðinu sum- arið 1961.“ Sigurþór leggur áherslu á að Þór- ólfur hafi verið einstakur leikmaður. „Hann var mín fyrirmynd og margra annarra enda var hann sá besti. Bolt- inn var sem límdur við hann, leik- skilningur og sendingar eins og hans voru meðfæddar og höfðu ekki sést áður. Þjálfararnir þurftu ekkert að kenna honum. Eiður Smári Guðjohn- sen hefur líklega fengið mest frá guði almáttugum en Þórólfur var líka mikið náttúrubarn.“ Morgunblaðið/RAX Myndatakan Rómantíkin svífur yfir vötnunum og Sigurþór Jakobsson fínpússar málverk af Þórólfi Beck. Birtan kemur að ofan og Þórólfur fær nýtt líf  Myndlistarmaðurinn Sigurþór Jakobsson og minningarnar MMálaðar… »24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.