Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 FRÉTTASKÝRING Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons hf., sagði árið 2011 að það væri bæði „fáránlegt“ og „absúrd“ að hann væri að taka lán til að borga skuldir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar við Glitni banka í tengslum við Aurum-málið svokallaða. Einn milljarður króna af lánsfjárhæðinni frá Glitni, sem fór í gegnum FS38 hf., eignalaust félag sem keypti hlut Fons hf. í skartgripafélag- inu Aurum Holding Limited, fór í að borga 705 milljóna króna yfirdrátt Jóns Ásgeirs. Þetta kemur fram í skýrslutöku Pálma hjá sérstökum saksóknara hinn 8. ágúst 2011 sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þar segir Pálmi m.a. að hefði hann vitað af þessari ráðstöfun hefði hann aldrei tekið þátt í þessum viðskiptum. Hann hafi komist að því einu til einu og hálfu ári seinna, þegar hann fór að vinna í greinargerð sinni í málinu, að Jón Ásgeir hafi notað millj- arðinn í að greiða yfirdrátt sinn. Við skýrslutökuna var Pálmi með réttarstöðu sakbornings en hann er vitni í málinu í dag. Aurum-málið hefur nú verið í rúm sex ár í réttarkerfinu og hafa verið kveðnir upp 10 dómar og úrskurðir því tengdir. Lárus Welding, fv. banka- stjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arn- grímsson, fv. framkvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs Glitnis, voru sakfelldir fyrir umboðssvik í héraðsdómi 2016, en bankinn lánaði sex milljarða króna til félagsins FS38 til að kaupa 25,7% hlut Fons hf. í Aurum. Bókfært virði hlut- arins hjá Fons hf. var undir tveimur milljörðum en Pálmi segist hafa fært virðið niður sjálfur. Jón Ásgeir var ákærður fyrir hlut- deild í brotum Lárusar og Magnúsar með því að hafa beitt sér sem stærsti eigandi bankans fyrir lánveitingunni, sem hann hagnaðist persónulega á. Jón Ásgeir var sýknaður í héraði en dómsuppkvaðning í Landsrétti er væntanleg í þessum mánuði. „Alveg geggjuð hérna viðskiptatækifæri“ Pálmi segir í skýrslutöku sinni að hann taldi sig hafa keypt skuldabréf í félaginu Þú Blásól ehf. fyrir milljarð- inn sem Jón Ásgeir fékk í tengslum við Aurum-málið. Samningur á milli Jóns Ásgeirs [Þú Blásól ehf.] og Pálma [Fons hf.] segir að það hafi átt sér stað 18. júlí 2008, tveimur dögum eftir und- irritun Lárusar á láni Glitnis til FS38 ehf. Í samningi þeirra segir að „hinn 18. júlí sl. greiddi Fons til Blásólar kr. milljarð og var gefið út skuldabréf í tengslum við greiðsluna. Nú hafa að- ilar komið sér saman um að fjárhæðin hafi verið notuð til greiðslu Blásólar og hluta af enska formúlu 1-kappakst- ursliðinu Williams en Blásól hefur unnið að kaupum á liðinu“. Í samningnum kemur einnig fram að forsvarsmaður Blásólar [Jón Ásgeir á þeim tíma] fær heimild til að nota fjármunina til fjárfestingar í „öðrum viðskiptatækifærum, sem hann skal þó upplýsa Fons um áður en ákvörðun er tekin“. Pálmi segir í skýrslutökunni að hann hafi ekki verið upplýstur um að féð hafi verið nýtt í önnur viðskipta- tækifæri og gefur lítið fyrir einhver tækifæri sem felist í að borga niður yf- irdrátt Jón Ásgeirs. „Já, þú sérð hvað það er frábært og hvað það var … var það að greiða yfirdrátt í Glitni […] Al- veg geggjuð hérna viðskiptafækifæri. Nei þú veist þú, því miður var það ekki svoleiðis, vegna þess að þá hefði þetta aldrei gerst […]“ Af tölvupóstssamskiptum milli starfsmanna í lánanefnd Glitnis, sem Morgunblaðið hefur einnig undir höndum, virtist bankinn hins vegar fullmeðvitaður um að milljarðurinn sem Jón Ásgeir fengi úr Aurum- málinu myndi fara í að borga yfirdrátt hans. Jón Ásgeir fékk á árinu 2008 sí- fellt að hækka yfirdrátt sinn hjá bank- anum, m.a. á þeim grundvelli að einn milljarður vegna Aurum myndi greiða hann. Í málflutningi í Landsrétti tók Ólafur Þór Hauksson héraðssaksókn- ari fram að vegna kaupa Glitnis á eig- in hlutabréfum, eignarhlut Stím ehf. í bankanum, væri hlutur Jón Ásgeirs og félaga tengdra honum í bankanum nærri 54% og réði því í reynd yfir bankanum og meirihluta stjórnar hans. Lausafjárkrísa ársins 2008 er vel þekkt í dag en í eigin þjóðhagsspá Glitnis frá maí 2008 segir að lausa- fjárkrísa ársins myndi gera það að verkum að aðgengi að lánsfé yrði þrengra en áður. Af lestri tölvupósts- samskipta innan úr Glitni verður ekki annað séð en lausafjárkrísan hafi haft veruleg áhrif á Jón Ásgeir, sem hækkar ítrekað yfirdráttinn til að greiða ýmsa gjalddaga hjá sér eða tengdum félögum. Hærri upphæð en flestir eignast alla sína lífstíð Jón Ásgeir byrjar snemma árið 2008 að sækjast eftir láni hjá bank- anum. Bjarni Jóhannesson, fyrrver- andi viðskiptastjóri Glitnis og við- skiptastjóri Jóns Ásgeirs, sendir hinn 1. febrúar 2008 póst á starfsmenn lánanefndar um að „lán 101 Capital ehf. er með vaxtagjalddaga í dag ca. 220 mkr. á langtímaláni. Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur, eiganda 101 capital ehf., hefur óskað eftir því að hann fái yfir- drátt að fjárhæð allt að 220 mkr á reikning sinn nr. 680 í Skútuvogi til 2ja vikna og nota hann til að greiða vaxtagjalddagann. Óskað er eftir því að þetta verði samþykkt milli funda (í dag)“. Erlendur Magnússon, fram- kvæmdastjóri hjá Glitni, sem átti sæti í efnahagsnefnd bankans á hluta ákærutímabilsins og vitni í Aurum- málinu, er meðal þeirra sem sam- þykkja yfirdráttinn að því gefnu að „JAJ er ráðandi hluthafi í Gaumi, þá þarf þetta að rýmast innan marka Baugs-samstæðunnar“. Bjarni bendir Erlendi á að hingað til hafi Jón Ásgeir ekki verið með í samstæðu Baugs og viðrar Erlendur þá efasemdir um lán- veitinguna „[…] þegar einstaklingur biður um lán upp á 220m kr. (það er hærri upphæð en flestir íbúar þessa lands munu eignast yfir alla sína lífs- tíð), þá getum við vart haldið áfram að telja fjármál hans alls ótengd Gaumi og Baugi – eða hvar myndum við vilja draga mörkin, yfir milljarð? […]“ Hann samþykkir engu að síður yfir- dráttinn en minnir starfsmenn á að „við verðum að halda okkur við þær reglur sem okkur eru settar og leysa mál innan þeirra“. Hinn 10. febrúar 2008 sendir Jón Ásgeir póst á Bjarna með titlinum „getum við klárað PH-málið í dag need to get that out of way“. Bjarni svarar að hann muni hitta PH [Pálma Haraldsson] daginn eftir og málið verði tekið fyrir á miðvikudag en spyr Jón Ásgeir jafnframt: „Ætlardu ad nota tennan pen til ad greida 101 og mism i innlan? Kvedja BJ.“ Svarar Jón Ásgeir honum sama dag: „Ég legg nú ekki í vana minn að segja hvað ég ætla að gera við peninga mína. PH hefur rúllað þessu á undan sér í of langan tíma. Ég get sagt þér að 800 af þessum 1000 lenda hjá þér og 101 verður klárað. Klára á morgun. Kv. JÁJ“ Sama dag sendir Bjarni póst á Lár- us þar sem hann segir „JAJ“ og „PH“ vera „aggressífa“ og spyr Lárus hvort þeir séu ekki sammála um að þeir þurfi tryggingar ef þeir eiga að lána Fons meiri peninga. Á fundi áhættunefndar Glitnis nr. 650, hinn 13. febrúar 2008, segir í fundargerð, að Fons eigi óuppgerð við- skipti við Jón Ásgeir að fjárhæð kr. einn milljarður. Fons óskar eftir láni til að gera þessi viðskipti upp og að Jón Ásgeir myndi lána 101 capital til að standa skil á vaxtagreiðslu sem gjaldféll í byrjun mánaðar. Skuldabréf milli Pálma og Jóns er þó ekki undir- ritað fyrr en mörgum mánuðum seinna. Í skýrslutöku kannast Pálmi ekkert við að skulda Jóni Ásgeiri „eitt eða neitt“ þegar hann er spurður um þetta. Hinn 23. júní 2008 sendir Bjarni póst á Jón Ásgeir sem sýnir yfirlit yfir skuldir Gaums [félag m.a. í eigu Jón Ásgeirs] sem standa í 543 mkr. og að yfirdráttur hans hjá bankanum stend- ur í 242 mkr., sem samkvæmt fyrri póstum átti einungis að vera til tveggja vikna. Jón Ásgeir svarar: „Þetta er í lagi ef ég fæ 1 mio frá PH. Þá er ég góður fram á næsta ár.“ Sjö dögum seinna, 30. júní 2008, sendir Jón Ásgeir póst á Bjarna sem ber titilinn „2. júlí“ og segir: „Sæll. Verðum að ganga frá G málum á morgun ég verð að ganga frá þessum persónulegu málum þann 2. júlí og það má ekki klikka, annars fer ég í Jóla- köttinn […] Treysti á þig.“ Næsta dag, 1. júlí 2008 sendir Bjarni póst á Lárus og setur Magnús Arnar í cc þar sem segir: „J er á bak- inu á mér en hann verður að greiða ca. 320 mkr á morgun. Þurfum að hækka yfirdrátt sem því nemur. Það er DD í gangi og áætlað að viðskiptin klárist í júlí/ágúst. Tímafaktorinn er ekki langur.“ Þegar kominn er 2. júlí 2008 sendir Bjarni póst á starfsmenn lánanefndar að nýju og segir: „Þar sem ekki sér fyrir enda á Gullsmiðnum [Aurum Holding] er óskað eftir heimild til að hækka yfirdrátt hjá Jóni Ásgeiri um 320 mkr. Hann stendur nú í 246 mkr., samtals 566 mkr. Yfirdráttinn á að gera upp með 1.000 mkr til JÁ sem á að koma út úr Gullsmiðnum. Það hafa safnast upp ýmsar skuldir hjá honum sem er orðið mjög aðkallandi að greiða. Óskað er eftir að þetta verði samþykkt.“ Hinn 11. júlí 2008 sendir Jón Ásgeir aftur póst á Bjarna sem heitir „must að klára í dag“ og segir: „Frétti að málið væri klárt hjá Einari viltu ganga frá þessum greiðslum í dag annars er ég í mjög djúpum skít. Þegar búið er að klára þetta uppsóp þá ætti ég að vera góður næstu 9 mánuði.“ Bjarni svarar Jóni Ásgeiri með: „Þegar pen- ingar flæða þá fara þeir til Fons og þaðan til Þú Blásól.“ Jón Ásgeir svarar stuttu seinna að peningarnir eigi að ekki að fara inn í Þú Blásól heldur beint inn á ákveðinn reikning. Einungis þremur dögum seinna, 14. júlí 2008, þarf að hækka yfirdrátt Jóns Ásgeirs aftur og sendir Bjarni póst á starfsmenn lánanefndar sem ber titil- inn „Gullsmiðurinn“ og segir: „Sælir. Það er verið að ganga frá pappírs- vinnu. JÁJ þarf að ganga frá greiðslum í dag. Óskað er eftir að yfir- dráttarheimild hans verði hækkuð tímabundið í 720 mkr. (úr 566 kr.)“ Hér ber að nefna að í skýrslutöku Jóns Ásgeirs hjá sérstökum saksókn- ara 4. júlí 2011 neitar hann að svara fyrir tölvupóstssamskipti úr netfang- inu jon.asgeir@baugurgroup.com sem er í þessum samskiptum. Spyr hann saksóknara hvort embættið hafi fengið tölvupóstana úr tölvunni sinni og segir sérstakur að þeir komi úr tölvu Lár- usar Welding. „Ég get ekki sagt hvað fer fram í tölvunni hans Lárusar Welding,“ svarar Jón Ásgeir. Hélt Jón Ásgeir uppi sambærilegum vörnum í Baugsmálinu svokallaða. Í aðal- meðferð á málinu 2007 létu lögmenn Jóns Ásgeirs sérfræðinga sýna dóm- endum hversu auðvelt það væri að falsa tölvupóst. Hefur Jón Ásgeir hýst tölvupósta sína hjá æskuvini sínum, Guðmundi Inga Hjartarsyni hjá tölvu- Morgunblaðið/Styrmir Kári  Aurum Holding-málið hefur verið í sex ár fyrir íslenskum dómstólum  Niðurstaða í Landsrétti er væntanleg Þar sem sakir eru svæfðar Í norrænni goðafræði var Glitnir heimili ássins Forseta, höll þakin gulli og silfri. Glitnir kemur fyrir í bæði Snorra-Eddu og Grímnismálum en oft gleymist að Glitnir var einnig dómsstaður og gengu þeir sem voru í sakarvandræðum þangað inn. Segir í Snorra- Eddu að „allir, er til hans komu með sakarvandræði“ og í niðurlagi Grímnismáls segir að „þar Forseti, byggir flestan dag, og svæfir allar sakir“. Þingfesting Jón Ásgeir í Héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu í Aurum Holding-málinu árið 2013. Meðal tölvupósta sem Morgun- blaðið hefur undir höndum eru samskipti Guðnýjar Sigurðardóttur, fyrrverandi lánastjóra Glitnis, og Pálma Haraldssonar, kennds við Fons hf., frá 15. nóvember 2007. Póstarnir þeirra á milli bera titil- inn „Project Stím“ en þar sendir Guðný samantekt yfir Project Stím og „heildarstrúktúr vegna kaupa á 4.3% láns í GLB [Glitni] og 4.1% láns í FL.“ Lántaki er Stím ehf. (áður FS37 ehf) og er um að ræða senior Mezz- anine lán upp á 1.5 milljarða, junior Mezzanine lán upp á 1 milljarð og tveggja ára kúlulán. Þá er 7% vaxta- álag sem greiðist í lok lánstímans. Í pósti Guðnýjar kemur einn- ig fram að á þessu er 2% „upfront fee“. Pálmi er upphaflega ósáttur við tímalengd- ina á láninu og nefnir að formlega þurfi að taka málið fyrir innan Fons. Stuttu seinna sendir hann síðan Guðnýju póst þar sem hann er afar ósáttur við fyri- framgreiddu 2% í „upfront fee“ og skrifar: „[...] ég get ekki skilið af hverju bankinn þarf 2% upfront. Ég er bara lítill fjárfestir á Suðurgötu. Þið getið gert betur!!!“ Guðný svarar Pálma 2 mínútum seinna og segir: „Nú get ég glatt thig, thu faerd 2% upfront thar sem thu ert lanveitandinn.“ Það líða rúmar 20 mínútur þang- að til Pálmi svarar Guðnýju með að hann hafi áttað sig á þessu um leið og hann „ýtti á takkann“. Lán Glitn- is fór þannig í gegnum félagið FS38 ehf. og er þaðan lánað áfram til Stím ehf. (áður FS37 ehf.). Pálmi fær þannig 2% í fyrirframgreiðslu vegna lántökunnar greidd til sín. „Nú get ég glatt þig [...] þar sem þú ert lánveitandinn“ FW: PROJECT STÍM Jón Ásgeir og Pálmi Haraldsson á aðalfundi FL Group, árið 2008. Auðvelt aðgengi að lánsfé

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.