Morgunblaðið - 10.10.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 25
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smá- og raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Möðrud Fjallakaffi, Fljótsdalshérað, fnr. 217-2755, þingl. eig. Fjalla-
dýrð ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Austurlandi, þriðjudaginn
16. október nk. kl. 10:00.
Möðrudalur /Lóð 1, Fljótsdalshérað, fnr. 229-9145, þingl. eig.
Vilhjálmur Vernharðsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á
Austurlandi og Íbúðalánasjóður og Fljótsdalshérað, þriðjudaginn
16. október nk. kl. 10:30.
Möðrudalur/Baðstofa, Fljótsdalshérað, fnr. 225-8452, þingl. eig.
Fjalladýrð ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Austurlandi,
þriðjudaginn 16. október nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
9. október 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Skarðsá, Dalabyggð, fnr. 137837, þingl. eig. Marina Aleksanders-
dóttir, gerðarbeiðandi N1 hf., þriðjudaginn 16. október nk. kl. 13: 00.
Skarðsá II, Dalabyggð, fnr. 211-8057, þingl. eig. Marina Aleksanders-
dóttir, gerðarbeiðandi N1 hf., þriðjudaginn 16. október nk. kl. 13:15.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
9. október 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins að Borgarbraut 2, Stykkishólmi.
SAILOR, AK, Akranes, (FARÞEGASKIP), fnr. 2854, þingl. eig. AK 2854
ehf., gerðarbeiðendur Tollstjóri og Byggðastofnun, þriðjudaginn
16. október nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
9. október 2018
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi deiliskipulag í Rangárþingi eystra.
Drangshlíðardalur – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til um 3,6 ha af jörðinni Drangshlíðardalur ln 163652 og íbúðarhúsalóðarinnar Drangshlíðardalur 2
ln.178810. Í deiliskipulaginu eru skilgreindar lóðir, byggingarreitir, heimarafstöð með inntaksstíflu og vatnspípu, ásamt nýjum
vegslóða.
Ofangreint deiliskipulag er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa frá 10. október 2018. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 21. nóvember 2018. Athugasemdum skal skila skriflega
á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 3, 860 Hvolsvelli.
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst til kynningar eftirfarandi tillaga að breytingu á
aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.
Hellishólar – Aðalskipulagsbreyting – Kynning á lýsingu
Aðalskipulagsbreytingin tekur til hluta af jörðinni Hellishólar, Rangárþingi eystra. Breytingin felst í því að landnotkun á 6,6 ha
landi jarðarinnar er breytt úr frístundabyggð í íbúðabyggð.
Ofangreind tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa, Austurvegi 3, Hvolsvelli, mánudaginn 15. október 2018 kl. 10:00–12:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á
heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason,
fulltrúi skipulags- og byggingarmála.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30. Jóga 60+ kl. 12.30-13.30. Söngstund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-
15.20. Bókaspjall með Hrafni Jökulssyni kl. 15, gestur Þórarinn
Eldjárn.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið Hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðar-
heimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Byrjum á stólaleikfimi. Skoðum síðan
hluti sem tengjast hestum og rifjum upp notkun þeirra og heiti. Öllum
velkomið að koma með hluti er tengjast hestum, sýna okkur og segja
frá. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffi-
sala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Harmonikkuspil og söngur
kl. 14.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bókband kl. 9-13,
postulínsmálun kl. 9-12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband
kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30,
dansleikur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15, söguhópur kl. 15.30-16.15.
Minnum á ferð á Eldfjallasetrið á Hvolsvelli á morgun, fimmtudag, kl.
12.30. Verð 5.800 kr. og ferðin öllum opin. Enn er hægt að skrá sig í
ferðina ef hringt er í dag og pantað í síma 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Leir í
Kirkjuhvoli kl. 13. Smiðja Kirkjuhvoli opnuð kl. 10, allir velkomnir.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-6. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / pappa-
módel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Velkomin.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samverustund eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14.
Helgistund, upplestur o.fl. Kaffiveitingar. Verið hjartanlega velkomin.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara miðvikudaginn 10. október
kl. 13.10. Helgistund og söngur. Ögmundur Jónasson verður gestur
okkar ,,frjálsar hendur". Síðan verður kaffisopi og meðlæti. Kaffið
kostar 500 kr. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Karl, sr. Leifur Ragnar,
Hrönn og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun / kvennabrids / silfursmíði
kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16. og fyrir byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Bókmenntaklúbbur kl. 10 aðra hverja viku. Línudans kl. 11.
Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.45-11.30. ATH! Línudans fellur niður í
dag. Hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl.9 samdægurs). Zumba-
leikfimi með Auði kl. 13-13.50, kaffi kl. 14.30, tálgun með Valdóri kl.
13.30-16. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Glerlistanámskeið hjá Fríðu kl. 9 í dag í Borgum, laus pláss
ef fleiri vilja taka þátt í námskeiðinu. Ganga kl. 10 frá Borgum og inni í
Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10 og KORPÚLFA-BINGÓ kl. 13 í Borgum
og qi gong með Þóru Halldórsdóttir kl. 16.30 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl. 16.
Seltjarnarnes Gler, glerbræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins við
Suðurströnd kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13.
Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Á
morgun fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkom-
nir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Nýtt 8 vikna zumba gold námskeið fyrir styttra komna / byrjendur kl.
9.45–10.30 á mánu- og fimmtudögum. Hefst 15. október. Skráning á
feb@feb.is.
Félagslíf
Lofgjörðarsamkoma kl. 20
í Kristniboðssalnum. Ragnar
Gunnarsson talar. Allir velkomnir.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Fleiri minningargreinar
um Önnu Guðrúnu
Georgsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
meðfæddan en lágstemmdan
húmor eins og pabbi og alltaf stutt
í glens og grín á heimilinu. Það var
alltaf gestkvæmt hjá Gunnu og
Ragnari og mér fannst það sér-
staklega spennandi að dvelja á
heimili þar sem var stöðugur
straumur fólks. Það var heilmikil
upplifun fyrir einkabarnið sem var
ekki alveg vant svona litríku heim-
ilislífi. Minningarnar eru svo ótal
margar; í berjamó í steikjandi hita
með Gunnu og afa Georg uppi í
Hítardal, eggjatínsla á Mýrunum,
gönguferðir út í eyju og samveru-
stundirnar sem verða æ dýrmæt-
ari eftir því sem tíminn líður.
Það er mikill missir að Gunnu
og ég votta frændsystkinum mín-
um og fjölskyldum þeirra mína
innilegustu samúð. Ég mun alltaf
hugsa til Gunnu í Borgarnesi með
þakklæti og söknuði.
Steinunn Birna.
Móðursystir mín, Gunna
frænka eins og ég kallaði hana
ætíð, er látin. Líkaminn var heil-
mikið farinn að gefa sig, en hug-
urinn var síkvikur og andlega var
hún sterk.
Hugurinn reikar til baka að
Skjálg, þar sem Gunna ólst upp
hjá foreldrum sínum, bræðrunum
Pétri og Ragnari og Immu móður
minni. Ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi mjög ungur að fá að fara í
sveitina til afa og ömmu. Gunna
var alltaf sérlega góð við mig og
tók yfirleitt upp hanskann fyrir
mig þegar ég var ódæll. Ég man
enn hvað mér leið vel og hlakkaði
alltaf mikið til að komast í sveitina.
En syrta tók í álinn þegar ég var
sex ára, þá fór ungur glæsilegur
Borgnesingur, Ragnar Jónsson,
að venja komur sínar að Skjálg og
kyssti jafnvel elsku Gunnu frænku
mína fyrir framan augun á mér.
Ég varð niðurbrotið barn. En
þetta fór allt betur en ég bjóst við.
Gunna og Ragnar giftust og eign-
uðust fimm mannvænleg börn og
glæsilegt heimili. Alla tíð var ég
aufúsugestur í þeirra ranni. Eitt
sumarið þegar ég var í mennta-
skóla var langt verkfall í Reykja-
vík, Gunna hringdi í mig og bauð
mér vinnu á verkstæðinu hjá
Ragnari og er mér það ógleyman-
legt. Oft gisti ég og móðurbræður
mínir hjá þeim hjónum í veiðiferð-
um okkar. Borðuðum við þá oft
lunda úr Knarrarnesi ásamt ýmsu
góðgæti sem rann ljúflega niður
með afbragðs guðaveigum. Einu
sinni bauð Gunna mér að koma
með þrjá vini í heimsókn, gistum
við hjá þeim hjónum í tvær nætur í
góðu yfirlæti, við fórum á sveita-
ball og skemmtum okkur vel, þessi
ferð er mér og vinum mínum ofar-
lega í huga enn í dag.
Eitt sinn þegar ég vann á verk-
stæðinu komu hjón með bilaðan
bíl. Ekki tókst að gera við bílinn
fyrir hádegi, kl. 12 stundvíslega
sagði Ragnar „nú er hád-
egismatur og gjörið þið svo vel
hjón, komið í mat með okkur“.
Við birtumst fjögur í mat til
Gunnu og varð það ekkert mál.
Ég held að svona atvik hafi ekki
verið óalgeng. Gestrisnin var
þeim hjónum sannarlega í blóð
borin. Leti og ódugnaður var ekki
liðinn á heimili Gunnu. Ekki var
mikið um sumarfrí en þó fóru þau
nokkrar ferðir til útlanda. Ferðir
innanlands voru flestar tengdar
því að skoða bíla eða hesta.
Hestamennsku stunduðu þau
hjón um árabil. Alltaf var gaman
að ræða við frænku mína um
heima og geima, var hún hafsjór
af fróðleik og þekkti landið mjög
vel. Mér þótti undurvænt um
frænku mína og kveð ég hana
með söknuði, hún var stór þáttur
í mínu lífi. Hún lifði lífi sínu með
reisn og kvaddi það þannig.
Samúðarkveðjur til fjölskyld-
unnar frá mér og mínum. Far hún
í friði.
Árni Magnússon.