Morgunblaðið - 10.10.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Rannsóknarhópurinn Bellingcat
segist hafa fundið rétt nöfn tveggja
manna sem eru sakaðir um eiturárás
á vegum leyniþjónustu rússneska
hersins, GRU, á Sergej Skrípal,
fyrrverandi rússneskan njósnara, í
enska bænum Salisbury. Rússar
neita enn öllum ásökunum um að
þeir hafi staðið fyrir árásinni.
Bellingcat sagði í fyrradag að ann-
ar mannanna héti réttu nafni Alex-
ander Míshkín og væri læknir í þjón-
ustu GRU. Tveimur vikum áður
kvaðst rannsóknarhópurinn hafa
komist að því að hinn árásarmaður-
inn héti Anatolí Tsjepíga. Vladimír
Pútín Rússlandsforseti er sagður
hafa sæmt báða mennina æðstu orðu
landsins við leynilega athöfn í Kreml
árið 2014.
Voru í uppreisnarhéruðum
Breski blaðamaðurinn Eliot Higg-
ins stofnaði vefsíðuna Bellingcat árið
2014 með það að markmiði að birta
rannsóknir sem byggjast á borgara-
legri blaðamennsku. Hópurinn hefur
birt rannsóknir á atburðum á stríðs-
svæðum, m.a. á meintum glæpum
rússneska hersins og vopnabræðra
hans í Sýrlandi og Úkraínu.
Bellingcat segist hafa fundið rétt
nöfn árásarmannanna með viðtölum
við fólk sem þekki mennina tvo,
rannsóknum á vegabréfum þeirra og
myndum af þeim og fleiri aðferðum
sem lýst er á vef hópsins, belling-
cat.com. Mískhín er m.a. sagður hafa
farið í nokkrar ferðir undir dulnefni
á vegum GRU til austurhéraða
Úkraínu og héraðsins Transnistríu í
Moldóvu þar sem gerðar voru upp-
reisnir með stuðningi Rússa.
Mönnunum refsað?
Að sögn fréttaskýranda breska
ríkisútvarpsins vekja niðurstöður
Bellingcat spurningar um hversu
auðvelt það hafi verið að fletta ofan
af meintum útsendurum GRU og
grafa undan þeirri fullyrðingu rúss-
neskra stjórnvalda að mennirnir
tveir hafi aðeins verið ferðamenn og
farið til Salisbury í því skyni að
skoða kirkjuturn í bænum. Að sögn
rússneskra fjölmiðla er Pútín mjög
óánægður með frammistöðu leyni-
þjónustunnar í málinu og talinn vera
að undirbúa hreinsun í leyniþjónust-
unni.
Að sögn fréttaveitunnar AFP hafa
breskir sérfræðingar í öryggis-
málum furðað sig á „kostulegu við-
tali“ við mennina tvo í rússneska
ríkissjónvarpinu RT þar sem þeir
sögðust hafa farið til Salisbury
vegna þess að þeir hefðu viljað skoða
turn dómkirkju bæjarins. Ein kenn-
ing breskra leyniþjónustumanna er
að Pútín hafi fyrirskipað að menn-
irnir færu í sjónvarpsviðtalið til að
refsa þeim fyrir að klúðra verkefn-
inu og verða uppvísir að árásinni.
bogi@mbl.is
Rússarnir sem eru sakaðir um eiturárásina á Skrípal
Heimildir: Lögreglan/breskir fjölmiðlar/rannsóknastofa breska hersins/BellingcatLjósmyndir: Lögreglan í London
Kom til Bretlands undir
nafninu Alexander Petrov
Anatolí Tsjepíga Alexander Jevgenjevítsj
Míshkín
Kom til Bretlands undir
nafninu Rúslan Boshírov
Var sæmdur æðstu orðu
Rússlands við leynilega
athöfn í Kreml árið 2014
Niðurstöður Bellingcat
Sergej Skrípal
Atburðarásin í Bretlandi
skv. upplýsingum lögreglunnar í London
Rannsóknarhópurinn Bellingcat hefur nafngreint tvo menn sem yfirvöld í Bretlandi saka um að hafa
reynt að myrða Sergej Skrípal, fyrrverandi rússneskan njósnara, með eitri í enska bænum Salisbury
Föstudagur
2. mars 2018
Laugardagur
3. mars
Sunnudagur
4. mars
Fóru með flugvél
til London frá
Moskvu,
dvöldu í
London
Voru í tvær klukku-
stundir í Salisbury
síðdegis,
fóru aftur til
London
Héldu til Salisbury
um morguninn, fóru
þaðan síðdegis,
fóru með flugvél
til Moskvu um kvöldið
Er ofursti að tign í leyniþjónustu
rússneska hersins, GRU
Læknir í þjónustu
leyniþjónustu hersins
Var um tíma skráður til
heimilis í höfuðstöðvum
GRU í Moskvu þar til í
september 2014
Var ofursti í leyniþjónustu
rússneska hersins,
GRU
Gekk á mála hjá bresku
leyniþjónustunni MI6 á síðasta
áratug aldarinnar sem leið
Herréttur dæmdi hann í 13 ára
fangelsi fyrir njósnir í þágu MI6
Fór til Bretlands í njósnara-
skiptum eftir að þáverandi
forseti Rússlands, Dmítrí
Medvedev, náðaði hann
Fannst meðvitundarlaus í
Salisbury ásamt 33 ára dóttur
sinni, Júlíu, 4. mars
Bresk yfirvöld segja að
Skrípal-feðginin hafi veikst
skyndilega af völdum tauga-
eitursins novítsjok
Nöfn árásar-
manna birt
Rússar neita enn sök í Skrípal-málinu
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa sam-
þykkt beiðni tyrkneskra yfirvalda
um að fá að leita í húsakynnum
ræðismanns landsins í Istanbúl þar
sem sádiarabíski blaðamaðurinn
Jamal Khashoggi hvarf í vikunni
sem leið. Khashoggi hafði gagnrýnt
stjórnvöld í Sádi-Arabíu og segja
tyrkneskir embættismenn að grunur
leiki á að hann hafi verið myrtur eða
að honum hafi verið rænt í byggingu
ræðismannsins. Ríkisstjórn Moham-
meds bin Salmans, krónprins Sádi-
Arabíu, neitar því.
Khashoggi hefur meðal annars
gagnrýnt hernað Sáda í Jemen og
verið í útlegð í Bandaríkjunum frá
því í fyrra þegar hann forðaði sér frá
Sádi-Arabíu eftir að nokkrir vina
hans voru handteknir. Hann hefur
skrifað greinar sem hafa verið birtar
í The Washington Post, komið fram í
arabískum og vestrænum sjónvarps-
stöðvum og er með rúmlega 1,6 millj-
ónir fylgjenda á Twitter.
Sást aldrei fara út
Khashoggi fór á skrifstofu ræðis-
mannsins í Istanbúl til að sækja vott-
orð um að hann væri skilinn við fyrr-
verandi eiginkonu sína til að hann
gæti kvænst tyrkneskri unnustu
sinni, Hatice Cengiz. Hún segist hafa
beðið eftir honum fyrir utan bygg-
inguna í ellefu klukkustundir og
hann hafi aldrei komið út úr henni.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu segja að
Khashoggi hafi farið út úr skrifstof-
unni tæpri klukkustund eftir að hann
fór þangað. Tyrkneska lögreglan
segir hins vegar að hann hafi ekki
sést fara þaðan, eftir að hafa skoðað
myndir úr eftirlitsmyndavélum tyrk-
neskra öryggisvarða við bygging-
una. Tyrknesk yfirvöld hafa krafist
þess að Sádar sanni að blaðamaður-
inn hafi farið út úr byggingunni.
Rannsókn tyrknesku lögreglunn-
ar beinist meðal annars að bílum,
sem ekið var frá byggingunni, og
fimmtán Sádum sem komu til Istan-
búl með tveimur einkaflugvélum
daginn sem Khashoggi hvarf og fóru
þaðan aftur til Sádi-Arabíu síðar um
daginn.
Að sögn fréttaveitunnar AFP er
tyrkneska lögreglan meðal annars
að rannsaka þann möguleika að
Khashoggi hafi verið rænt og hann
hafi síðan verið fluttur úr landi með
annarri flugvélanna. Tyrkneskir fjöl-
miðlar segjast hafa heimildir fyrir
því að lögregluna gruni einnig að
Khashoggi hafi verið myrtur á skrif-
stofu ræðismannsins og líkið hafi
verið sundurlimað og flutt úr landi í
ferðatöskum. Stjórnvöld í Sádi-
Arabíu hafa sagt að þessar grun-
semdir séu „algjörlega tilhæfu-
lausar“.
Grunur um morð eða mannrán
Tyrkir rannsaka mál útlægs Sáda
sem hvarf á skrifstofu ræðismanns
AFP
Saknað Stuðningsmenn Jamals Khashoggis halda á myndum af honum í
Istanbúl, þ.á m. jemenski friðarverðlaunahafinn Tawakkol Karman (t.h.).