Morgunblaðið - 10.10.2018, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
✝ Erna Arnarfæddist í Nes-
kaupstað 21.
september 1930.
Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Ísafold 20.
september 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Bernhard
E. Björnsson Arn-
ar kaupmaður og
Rannveig Þór-
arinsdóttir Arnar.
Erna lauk prófi frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík og vann
eftir það við skrifstofustörf
þar til hún gekk í hjónaband
og varð þá heimavinnandi þar
til börnin uxu úr
grasi.
Börn Ernu eru
Rannveig, Bern-
hard Örn og Há-
kon.
Erna stofnaði
og rak Myndamót
hf. með eigin-
manni sínum, Páli
Vígkonarsyni.
Erna var félags-
maður Kven-
félagsins Hringsins lengst af
og tók þátt í mörgum nefndar-
störfum.
Útför fer fram frá Garða-
kirkju í dag, 10. október 2018,
klukkan 13.
Það er svo margt sem ég get
sagt um ömmu mína. Hún hafði
óviðjafnanlegan styrk. Hún var
svo falleg og greind. Ávallt
tignarleg og umhyggjusöm.
Hún var matríarkur fjölskyld-
unnar, leiðtogi í samfélaginu, og
var full af lífskrafti. Jafnvel eft-
ir að hún varð líkamlega veik-
burða, þá sýndi hún mikinn
styrk. Hún miðlaði vísdómi til
nánast allra sem urðu á vegi
hennar og lærði ég mikið af
henni og því fordæmi sem hún
setti. Ég á erfitt með að lýsa því
hversu þakklát ég er fyrir það
stóra hlutverk sem hún lék í
mínu lífi. Ég get kannski best
útskýrt þakklæti mitt með því
að deila bréfi sem ég byrjaði að
skrifa til hennar tveimur dögum
eftir að hún féll frá. Bréfið var
mín tilraun til að takast á við þá
erfiðu staðreynd að ég gat ekki
hitt hana áður en hún hvarf á
braut.
Elsku amma, þú hjálpaðir að
móta mig að þeirri manneskju
sem ég er í dag og ég vil þakka
þér fyrir allt sem þú gerðir fyr-
ir mig og fjölskyldu okkar. Mér
þykir það sárt að ég gat ekki
verið hjá þér þegar þú yfirgafst
þennan heim vegna þess að þú
varst alltaf til staðar fyrir mig
þegar á reyndi. Ég velti því fyr-
ir mér hvort tilfinningar þínar í
lokin hefðu verið svipaðar þeim
sem ég upplifði þegar ég beið
eftir að fæða síðari son minn.
Ég var hrædd við hið óþekkta,
en ég vissi að fæðing var óhjá-
kvæmileg, og henni fylgdi sárs-
auki og óvissa, en að ég myndi
finna til innri friðar að fæðingu
lokinni. Þú hvarfst á braut í
sömu viku og Troy Arnar fædd-
ist. Ég upplifði hringrás lífsins
á fáeinum dögum, og að þrátt
fyrir þá ólgu sem henni fylgdi,
þá fylgdi líka innri friður.
Þú sýndir okkur hvernig á að
lifa með reisn og virðingu, jafn-
vel við erfiðustu aðstæður. Þú
kenndir okkur öllum hvað skil-
yrðislaus ást er. Nærvera þín
geislaði ávallt hlýju, jákvæðum
bylgjum, og engum leið sem
óvelkomnum í návist þinni. Ást
sú sem þú barst til afa setti full-
komið fordæmi um þann grunn
sem ber uppi hamingjusamt
hjónaband. Það var mikill heið-
ur að geta verið vitni að bæði
þeirri djúpu ást og vináttu sem
þið báru hvort til annars. Það
hjálpar til við að létta þeirri
sorg sem fylgir fráfalli þínu að
vita af því að afi bíður þín hin-
um megin.
Ást sú sem þú barst til barna
þinna setti fullkomið fordæmi
fyrir því hvað er að vera frábær
móðir. Sú endalausa ást sem þú
sýndir barnabörnum þínum
setti annað fordæmi um mikil-
vægi ástar og umhyggju í ham-
ingjusamri tilveru.
Takk fyrir að vera þú sjálf.
Þakka þér fyrir að setja okkur
öllum fordæmi um hvað það
þýðir að vera óhrædd við að
sýna óhefðbundið og sjálfstætt
hugarfar. Þú ferðaðist út um
allan heim með hamingju-
sömum anda óvæntra ævintýra.
Andi sem var ávallt með þér,
jafnvel þegar þú heimsóttir mig
í Kaliforníu í fyrrahaust á háum
aldri. Þú varst hugrökk,
óhrædd. Hæfileikar og náð
geisluðu frá þér á hverri
stundu, sem vekur undrun mína
enn til þessa dags. Ég mun
hitta þig og afa á ný og þangað
til er ég þakklát þér fyrir allar
þær stundir sem við áttum sam-
an.
Ég elska þig meira en allar
stjörnur himinsins. Þar til við
hittumst á ný.
Ást og hlýja,
Shireen Maria.
Elsku amma, það voru
dapurlegar fréttir sem mamma
færði mér um miðnætti 20.
september er hún tilkynnti mér
andlát þitt.
Það var alltaf svo notalegt og
gaman að heimsækja þig, hvort
sem það var nú undir það síð-
asta eða í Sjálandið og að sjálf-
sögðu í Aratúnið. Það er mér
mjög minnisstætt hversu
spennt við systkin vorum sem
börn þegar planað var að heim-
sækja ykkur afa í Aratúnið. Það
var ekki að ástæðulausu þar
sem hjá þér var allt til alls fyrir
okkur krakkana. Betri gest-
gjafa er ekki hægt að hugsa sér.
Ég á margar góðar minning-
ar um samveru okkar, hvort
sem það voru ferðir á golfvöll
eða gestrisni ykkar afa þegar
ég fékk að búa hjá ykkur í Ara-
túninu eða síðar þegar ég var
við nám í Svíþjóð og ég fór að
hitta ykkur afa í Kaupmanna-
höfn. Þar fórst þú með okkur
bræður í Jónshús, út að borða
og í skemmtilegan göngutúr þar
sem þú fræddir okkur um töfra
borgarinnar.
Ég á ótal fleiri góðar minn-
ingar um þig, elsku amma mín.
Ég þakka þér fyrir allan þann
tíma sem við áttum saman. Guð
veri með þér og varðveiti þig.
Þinn dóttursonur,
Sveinn Júlíus.
Þegar ég, stráksnáði að
vestan, flutti í Silfurtúnið í
Garðabæ var stór frændgarður,
fæddur upp úr 1930, búsettur á
höfuðborgarsvæðinu. Nágrann-
ar okkar í Aratúninu, þau Páll
frændi Vígkonarson og Erna,
bárust eilítið meira á en aðrir.
Dæmigerð um ameríska draum-
inn, byggðu upp fyrirtæki sitt,
Myndamót, af dugnaði og fram-
sýni.
Um miðjan aldur gaf frændi
mér kost á að ganga í Odd-
fellow-regluna sem var mitt
gæfuspor. Hann átti þar glæst-
an feril og vann okkar mann-
úðarstarf af kostgæfni. Erna
valdi sér annan vettvang, Kven-
félagið Hringinn, og lagði þar
stóran skerf til Barnaspítalans.
Í seinni tíð umgengumst við Ás-
dís þau töluvert og kynntumst
þar hinni einlægu og ráð-
deildarsömu konu. Hún var ekki
einungis veitandi, heldur kunni
hún að þiggja, en það er ekki
síður mikilsverður eiginleiki.
Vissulega stjórnsöm, en bar
virðingu fyrir öðrum, en ekki
síst sjálfri sér. Ávallt vel tilhöfð
og til þess var tekið að alla tíð,
einnig þau mörgu ár sem þau
bjuggu tvö, lagði hún ávallt á
borð í stofu. Á golfmótum hafði
hún skipt um föt áður en sest
var til borðs að kvöldi.
Það er sjónarsviptir að þess-
um heiðurshjónum. Það má
segja að hún hafi lokað golf-
hringnum, þegar hún dvaldi fá-
eina daga undir lokin á Ísafold,
í hlaðvarpanum að heimili
þeirra.
Við sjáum fyrir okkur þegar
Páll tekur á móti henni. Allt
skal með myndarbrag, hann
víkur sér að Sankti Pétri og fær
lánaðan hjá honum stóran
búkett til að gleðja Ernu sína.
Saman leiðast þau í átt að sólar-
laginu.
Hafið þökk fyrir allar góðu
stundirnar, fjölskyldu og vinum
vottum við hluttekningu okkar.
Ásdís og Össur.
Elsku Erna.
Í dag kveð ég þig hinstu
kveðju. Við höfum þekkst í
hartnær 50 ár og verið ná-
grannar í Aratúninu í 40 ár. Það
er langur tími. Nágrennið í
Aratúninu var gott, margt gott
fólk í kringum okkur.
Eftir að Erna flutti sig um
set í Garðabæ varð samband
okkar ennþá nánara. Við töl-
uðum saman í síma nánast dag-
lega. Fórum í bæinn saman, á
kaffihús eða út að borða.
Erna var höfðingi heim að
sækja, veisluborðin hennar voru
rómuð og vel tekið á móti manni
þegar maður rak inn höfuðið
Erna var sátt við lífið og hún
sagði stundum að nú væri kom-
ið nóg.
Ég þakka þér, Erna mín,
fyrir allar góðu stundirnar.
Þín vinkona,
Birna.
Mér þykir vænt um að geta
með nokkrum orðum, minnst
góðrar vinkonu sem ég hef að-
stæðna minna vegna, því miður
ekki getað sinnt eins og ég hefði
óskað, nú undanfarið.
Kynni okkar Ernu spanna
nokkuð langan tíma en eigin-
menn okkar, Páll Vígkonarson,
sem nú er látinn, og Ásgrímur
Jónasson, áttu góða tengingu
gegnum bræðralag Oddfellow-
reglunnar. Árið 1996 bauðst
Erna til að mæla með mér til
starfa í kvenfélaginu Hringnum
þar sem við höfum síðan átt
margar góðar stundir saman við
störf og félagslíf og styrkti það
enn betur vináttu okkar.
Skömmu fyrir aldamótin keypt-
um við Ásgrímur hús í smíðum.
Seljandi hússins stóð ekki við
samninga um afhendingu, en
það varð til þess að við urðum
húsnæðislaus um tíma. Páll og
Erna brugðust heldur betur vel
við þessum aðstæðum okkar og
buðu okkur að brúa þetta bil í
lítilli íbúð í húsi sínu. Þessi tími
sem þarna tók við var gefandi
og skemmtilegur. Þarna bjugg-
um við saman, rétt eins og ein
samhent fjölskylda. Málsverðir
voru sameiginlegir og sá Erna
að mestu um þá. Kvöldstund-
irnar liðu oftast við létt rabb
um daginn og veginn. Við lékum
saman golf á hinum nýja fallega
golfvelli Oddfellowreglunnar í
Urriðavatnsdölum, en þar höfð-
um við öll örlítið lagt hönd á
plóginn við undirbúning. Erna
mín. Nú er lífsganga þín á enda.
Ég þakka þér innilega fyrir þær
stundir sem við nutum saman.
Far þú í friði.
Vert þú sæl, mín kæra Erna Arnar,
ég þakka okkar, saman leiðir farnar.
Tímans rás, hún telur okkar stundir,
er töltum saman okkar koppagrundir.
Þórey Sveinbergs.
Erna Arnar
Ástkær dóttir mín, systir okkar og
mágkona, stjúpmóðir og frænka,
MARÍA GUÐNADÓTTIR
tölvu- og kerfisfræðingur,
Sóltúni 28,
lést 20. september á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Edda Magnúsdóttir
Dagný Guðnadóttir Brynjólfur Jónsson
Selma Guðnadóttir Karl I. Rosenkjær
Jón Ólafur Guðnason
Edda Ýr Guðnadóttir Árni Davíðsson
Bergljót Gyða Guðmundsdóttir
Kolbrún María Guðmundsdóttir
Kristján Páll Guðmundsson
og frændsystkin
Ástkær sonur minn og bróðir,
ÁSGEIR EINAR STEINARSSON,
Bugðulæk 2, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans
laugardaginn 6. október.
Útför auglýst síðar.
Steinar Freysson
Jón Freyr Steinarsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN HELGA GÍSLADÓTTIR,
Krummahólum 6, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum föstudaginn
28. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Valgerður Hjartardóttir
Sigurður Jón Hjartarson Þórunn Óskarsdóttir
Kristín Jórunn Hjartardóttir Egill Eðvarðsson
börn og barnabörn
Elsku hjartans mamma okkar,
tengdamamma, amma, dóttir, systir,
mágkona og frænka,
INGIBJÖRG ÆVARSDÓTTIR,
Miklagarði,
Eyjafjarðarsveit,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi mánudaginn
1. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 15. október klukkan 10.30.
Ólafur Haukur Arnarson Sunna Valdimarsdóttir
Heiðbjört Arnardóttir Grímur R. Lárusson
Telma Rós Ingibjargardóttir Hafþór A. Sigrúnarson
Hallgrímur Ævar Kristjáns.
Heiðbjört Hallgrímsdóttir Ævar Kristinsson
Hallgrímur Ævarsson Hrönn A. Björnsdóttir
ömmubörn og frændsystkini
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓHANN EMILSSON
frá Stíflu í Landeyjum,
lést 20. júlí
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hanna Björk Guðmundsd.
Jóhann Emil Guðmundsson Erika Gustafsson
Brynjar Þór Guðmundsson Emelie Olsson
Elvar Ingi Guðmundsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGMAR KARL ÓSKARSSON,
Grænumörk 2, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 4. október.
Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju föstudaginn 12. október
klukkan 14.
Ingimunda G. Þorvaldsdóttir
Katrín Sigmarsdóttir Örn Tryggvi Gíslason
Sólveig Sigmarsdóttir
Anna Snædís Sigmarsdóttir Snorri Þórisson
Þorvaldur Nóason Anne Strøm
Jón Sólberg Nóason Steinunn Geirmundsdóttir
Hulda B. Nóadóttir Eiríkur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BENEDIKT HANS ALFONSSON,
skólastjóri Siglingaskólans,
Vatnsholti 8, Reykjavík,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund
laugardaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn
15. október klukkan 13.
Katrín Jónsdóttir
Guðleif Hlíf Benediktsdóttir Jan Lönnqvist
Jón Atli Benediktsson Stefanía Óskarsdóttir
Kristín Benediktsdóttir Jón Pétur Friðriksson
Anna Þóra Benediktsdóttir
Helgi Benediktsson María S. Norðdahl
Kjartan Benediktsson Lísa Anne Libungan
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, sonur og afi,
ODDUR MAGNI GUÐMUNDSSON,
andaðist 3. október á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja. Útför verður frá
Landakirkju Vestmannaeyjum föstudaginn
12. október klukkan 13.
Auður Finnbogadóttir
Bergvin Oddsson
Hafsteinn Oddsson
Rósa Oddsdóttir
afabörn og fjölskyldur