Morgunblaðið - 10.10.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Auðunn Pálsson er sextugur í dag. Hann fæddist á Borg í Mikla-holtshreppi og ólst upp á Snæfellsnesi. Hann lærði húsasmíðiog er með meistararéttindi og byggingastjóraréttindi og sér
um uppbyggingu fasteigna og tækja fyrir allar Bónusverslanirnar.
„Ég sé m.a. um uppsetningu á nýjum búðum og tækjum um allt
land. Þetta er mjög gefandi og skemmtilegt starf og það er sérstak-
lega gaman að fara út á land í búðirnar þar,“ en Bónusbúðirnar eru
alls 32.
„Við Jóhannes í Bónus vorum miklir vinir og ég fór að vinna fyrir
hann, fyrst við að skipuleggja vörudreifingu í verslanir, en núna er
helsti samstarfsmaðurinn minn Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss.“
Áður en Auðunn hóf störf hjá Bónus var hann bóndi á Borg, búi for-
eldra sinna, Páls Pálssonar og Ingu Ásgrímsdóttur. Fyrst í félagsbúi
við þau, síðan byggði hann nýbýlið Borg 2 og tók svo við búi foreldra
sinna. Enn fremur var hann hreppstjóri í Miklaholtshreppi og gegndi
fjölda annarra trúnaðarstarfa í hreppnum. Hann sat í hreppsnefnd í
átta ár, í byggingarnefnd, skólanefnd, sat í stjórn björgunarsveit-
arinnar og íþróttafélagsins og var formaður félagsheimilisins í mörg
ár. Hann var stefnuvottur, umboðsmaður skattstjóra og úttektar-
maður fyrir Brunabótafélag Íslands og síðar VÍS. Hann lagði jafn-
framt stund á húsasmíðar. „Núna er ég í Oddfellow, í stúku nr. 3,
Hallveigu sem er í Vonarstræti í Reykjavík. Það er aðaláhugamálið í
dag fyrir utan fjölskylduna og barnabörnin.“
Sambýliskona Auðuns er Hrefna Ingólfsdóttir, MBA. Dætur
Auðuns með fyrrverandi eiginkonu sinni, Rósu Einarsdóttur, eru
Alma viðskiptafræðingur, gift Pétri Guðna Ragnarssyni, og eiga þau
tvær dætur, Bríeti Ingu og Elvu Kristínu, og Anna Björg Auðuns-
dóttir, BA í kvikmynda- og bókmenntafræði.
Hreppstjórinn í Bónus verður með heitt á könnunni í allan dag í
Skeifunni 11 frá kl. 7 til 16.
Afmælisbarnið Auðunn í Bónus.
Hreppstjórinn í Bónus
Auðunn Pálsson er sextugur í dag
Barnabörnin Bríet og Elva.
M
atthías E. Halldórs-
son fæddist í
Reykjavík 10.10.
1948 og ólst upp við
Unnarstíginn í
Vesturbænum, rétt vestan við
Landakot: „Auk foreldra minna og
systkina bjó þar einnig hálfsystir
mömmu, Rósa Þórarinsdóttir. Hún
var 30 árum eldri en mamma og hafði
tekið hana að sér þegar móðir hennar
lést, sem hafði tekið mömmu okkar
að sér þegar móðir hennar lést úr
spænsku veikinni 1918. Við kölluðum
Rósu alltaf ömmu og hún var okkur
krökkunum einstaklega góð.
Við vorum kaþólsk, nema pabbi,
sem var sonur Matthíasar Eggerts-
sonar, þjóðkirkjuprests í Grímsey.
Við fjögur systkinin, stelpa elst og
svo þrír bræður, gengum öll í Landa-
kotsskóla. Ég þjónaði í messum um
tíma á hverjum morgni með góðum
vinum mínum, t.d. Ólafi H. Torfasyni
listamanni, sem er nýlátinn. Við vor-
um krúttlegir og sætir í messuskrúð-
anum og sumir prestanna líka á því
máli, en nóg um það.
Á sumrin vann ég hjá Vita- og
hafnamálastofnun, fyrst sem verka-
maður en síðar við vísindalegar
dýptarmælingar hringinn í kringum
landið. Kynntist þá vel höfnunum, en
líka sveitaböllunum og stelpunum.
Það var mjög góður tími.“
Matthías var í Gaggó Vest, lauk
stúdentsprófi frá MR 1967, embætt-
isprófi í læknisfræði frá HÍ 1974, var
kandídat á Akranesi og í Reykjavík,
stundaði sérnám í heimilislækningum
og tók diplómapróf í lýðheilsufræðum
í Svíþjóð, lauk MSc-prófi í skipulagn-
ingu og fjármálum heilbrigðisþjón-
ustunnar frá LSE 1990 og Doctor of
Science í heilbrigðisþjónusturann-
sóknum frá Erasmusháskólanum í
Hollandi 1999. Hann hefur sérfræði-
réttindi í fjórum greinum; heimilis-
lækningum, embættislækningum,
heilbrigðisstjórnun og geðlækn-
ingum.
Matthías var heilsugæslulæknir og
sjúkrahúslæknir á Hvammstanga í
áratug, sat þar í sveitarstjórn tvö
Matthías Halldórsson læknir – 70 ára
Gifting Talið frá vinstri: Theódóra Gísladóttir með Arneyju Lilju, afmælisbarnið, Theódóra yngri, brúðurin, Odd-
freyr Atlason, sonur Atla, Atli Rúnar Sigurþórsson, og foreldrar hans, Magndís og Sigurþór.
Sér fram á mikinn
lestur næstu 30 árin
Grúskað í tölvunni Matthías og
Arney Lilja á kafi í tölvuverkefni.
Reykjavík Hermann Jóhanns-
son fæddist 18. júní 2018.
Hann var 54 cm að lengd og
3.650 g að þyngd. Foreldrar
Hermanns eru Louisa Sif
Jóhannesardóttir og Jóhann
Hermannsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.