Morgunblaðið - 10.10.2018, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningin Barnabókaflóðið var opn-
uð í Norræna húsinu 29. septem-
ber síðastliðinn og stendur yfir til
30. apríl á næsta ári. Listrænn
stjórnandi hennar er Kristín
Ragna Gunnarsdóttir, rithöfundur
og teiknari, og segir hún að mark-
miðið hafi verið að gera sýningu
fyrir börn, unga fólkið sem eigi
eftir að sækja Norræna húsið heim
í náinni framtíð, sýningu sem byði
upp á þátttöku barna og sýndi að
þau væru velkomin í húsið og allt
sem það hefði upp á að bjóða.
Sýningin er í kjallara hússins
þar sem er stór sýningarsalur og
segist Kristín hafa lagt til að tek-
inn væri sá vinkill að barnabækur
væru hafðar í sviðsljósinu.
„Ég tel mjög mikilvægt að þær
séu í umræðunni, að það sé ekki
bara þannig að við ætlumst til að
börn lesi en sýnum svo bókmennt-
um þeirra ekki áhuga, ræðum ekki
um þær. Það er lítið fjallað um
þær annars staðar en í nánasta
umhverfi, skólans jafnvel. Þannig
að þarna eru barnabækur í brenni-
depli og allt sem barnabækur hafa
upp á að bjóða og það er svo
margvíslegt. Til dæmis auðga þær
víðsýni, samkennd og bjóða börn-
um upp á að ferðast til annarra
heimshluta í öryggi herbergis síns.
Þau fá að kynnast lífsháttum ann-
arra barna og líka að fara á flug í
hugarheimum barnabókahöfund-
anna, fara inn í ævintýralendur og
upplifa þar allt mögulegt,“ segir
Kristín.
Reyna á tilfinningasviðið
Kristín segir að við lestur
barnabóka fái börn að lifa sig í inn
í ævintýri sem reyni á tilfinninga-
sviðið. „Börn fá að upplifa tilfinn-
ingaskalann en samt í öryggi og
skjóli barnabóka. Þau fá margs
konar reynslu í heimi barna-
bókmenntanna sem er algjörlega
einstök. Ég held að í dag, í sam-
félagi þar sem við erum t.d. með
umræðu um flóttamenn og að-
komufólk o.s.frv. sé þetta alveg
sérstaklega mikilvægt, að auka
samkennd og meðlíðan og barna-
bækurnar eru kjörinn vettvangur
til þess. Og Norræna húsið hefur
lagt mikið upp úr því að bjóða öll
börn velkomin, frá mörgum lönd-
um og mörgum menningar-
svæðum.
Þannig að Barnabókaflóðið er
vettvangur til að gera þetta á
mjög skemmtilegan hátt. Þau
koma þarna inn á sýningu og búa
sér til sitt eigið vegabréf, fara svo
með það í gegnum sýninguna og
stimpla í vegabréfið á leiðinni og
leysa ákveðin verkefni sem snúa
að sögugerð. Þau eru að búa sér
til sínar eigin sögupersónur út frá
því að hetjur eru alls konar. Síðan
skoða þau kort og búa sér til sitt
eigið sögusvið, teikna kort, semja
svo sína eigin sögu og sitt eigið
ljóð upp úr sagnabrunni Þórarins
Eldjárns, fara svo í ævintýrasigl-
ingu. Það er búið að smíða heilt
víkingaskip fyrir þau þar sem
hægt er að lesa fyrir þau sögur og
þau geta svo leikið sér og búið til
sín eigin ævintýri. Í lok sýningar-
innar er svo hægt að fara inn í lít-
ið leyniherbergi, horfa upp í
stjörnuhimininn og láta sig
dreyma og teikna svo sín eigin
stjörnumerki út frá stjörnukorti
sem Sævar Helgi Bragason hefur
lagt til,“ segir Kristín.
Höfundur Goðheima meðal
gesta Mýrarinnar
Sýningin er mjög fjölbreytileg
eins og heyra má og svo eru auð-
vitað margar barnabækur á henni.
Á veggjunum má sjá texta úr þeim
barnabókum sem tilnefndar hafa
verið fyrir Íslands hönd til Barna-
og unglingabókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs og bækurnar má
einnig lesa á staðnum, að sögn
Kristínar. „Síðan eru myndir eftir
myndhöfunda sem eru að fara að
koma á hátíðina Úti í mýri sem
byrjar núna í vikunni, 11. október,
og lýkur þann 14. Þarna hef ég
valið inn myndir eftir myndhöf-
unda sem eru gestir sýningarinnar
og þær hafa verið málaðar á vegg-
ina,“ segir hún.
Úti í mýrier barnabókmennta-
hátíð og á henni verður boðið upp
á vinnustofur, upplestra, málþing
og barnabókaflóð um allt hús, svo
að segja, en nákvæma dagskrá má
finna á myrin.is. Heiðursgestir há-
tíðarinnar í ár verða Sigrún og
Þórarinn Eldjárn og verður loka-
dagur hátíðarinnar, sunnudagur-
inn 14. október, helgaður þeim og
verkum þeirra.
Meðal erlendra gesta sem heim-
sækja hátíðina er hinn danski Pet-
er Madsen, sem þekktastur er fyr-
ir teiknimyndabækur sínar um
Goðheima sem gefnar hafa verið
út hér á landi og rithöfundurinn
Malene Sølvsten, höfundur þrí-
leiksins Hvísl hrafnanna um ung-
lingsstúlkuna og sjáandann Önnu.
Mikil og spennandi glíma
Kristín lærði grafíska hönnun
og er einnig með BA-próf í al-
mennri bókmenntafræði og ritlist
og MA-próf í ritlist frá Háskóla
Íslands. Hún hefur bæði skrifað
barnabækur og myndskreytt og
einnig myndskreytt fyrir aðra höf-
unda og í tvígang hlotið Dimma-
limm – íslensku myndskreytiverð-
launin. Þá hefur hún verið tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna, Fjöruverðlaunanna og
Barna- og unglingabókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Blaðamanni leikur forvitni á að
vita hvað varð til þess að Kristín
ákvað að reyna fyrir sér sem
barnabókahöfundur. „Ég hef alltaf
haft mjög mikinn áhuga á barna-
bókmenntum og ég varð svo hrifin
af bókmenntum og listum við að
lesa barnabækur sem barn. Þess-
ari lestrarupplifun sem ég varð
fyrir sem barn vil ég gjarnan geta
miðlað til annarra. Það var sú þörf
og sú löngun sem kom mér af stað
og mér finnst þetta orðið mjög
brýnt í dag, þó það hafi ekki rekið
mig af stað í byrjun heldur þessi
sterka tilfinning sem ég varð fyrir
sem barn við að lesa og skoða
myndir, teikna og skapa sjálf,“
svarar Kristín.
Hún segir texta og myndmál
saman skapa skemmtilegan miðil
sem bjóði upp á alls konar til-
raunir. „Það finnst mér vera mikil
áskorun sem höfundur og teikn-
ari,“ segir Kristín. „Þetta er mikil
glíma og ótrúlega spennandi.“
Auka víðsýni og efla hugmyndaflug
Barnabókaflóðið nefnist gagnvirk sýning í Norræna húsinu Barnabækur kjörinn vettvangur til
að auka samkennd og meðlíðan, segir listrænn stjórnandi hennar Þekktir gestir á Úti í mýri
Morgunblaðið/Hari
Töfraheimur Kristín Ragna Gunnarsdóttir á sýningunni Barnabókaflóðið en hún er listrænn stjórnandi hennar.
Dagskrá Úti í
mýri er í
stuttu máli
þessi, skv. vef
Norræna húss-
ins:
Á morgun,
fimmtudag,
verður dag-
skrá fyrir
skólahópa
með upplestr-
um og vinnustofum fyrir börn á
öllum skólastigum. Föstudagur
er málþingsdagur. Íslenskir og
erlendir höfundar og fræðimenn
ræða málefni á borð við endur-
sköpun menningararfsins í nor-
rænum barna- og ungmennabók-
um, hvort illska sé jafn sjálfsagt
umfjöllunarefni í barnabók-
menntum og fyrsti kossinn eða
fótboltamót, í málstofu sem ber
titilinn Barnabókmenntir í
norðri.
Á laugardaginn verða haldnir
fyrirlestrar, boðið upp á upp-
lestur, vinnustofur og málstofu.
Af vinnustofum má nefna Dýra-
fimi og ljóðanudd en í henni
nudda börn og foreldrar hvert
annað við hljóð og takt dýraljóð-
anna úr bókinni Djur som ingen
sett utan oss eftir Ulf Stark.
Benjamin Chaud frá Frakklandi
stýrir vinnustofu þar sem gestir
munu fá innsýn í hvernig sögur
hans verða til
á sama tíma
og hann teikn-
ar ný ævintýri
við undirleik
lifandi tónlist-
ar og hægt
verður að taka
þátt í Furðu-
fuglaskoðun
með höf-
undum bókar-
innar Fuglar, Hjörleifi Hjartarsyni
og Rán Flygenring. Heiðursgestir
hátíðarinnar eru Sigrún og Þór-
arinn Eldjárn og verður lokadag-
ur hátíðarinnar, sunnudagurinn,
helgaður þeim. Margrét Tryggva-
dóttir, Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson og Áslaug Jónsdóttir
spjalla við þau um verk þeirra
og feril og Ragnheiður Gröndal
og Guðmundur Pétursson flytja
tónlist. Þá mun Sævar Helgi
Bragason leiða þátttakendur í
allan sannleika um stjörnumerk-
in í Geimvinnustofu og kenna
börnum að búa til sín eigin
stjörnumerki og semja um þau
sögur og teikna myndir af þeim.
Ókeypis er á alla viðburði nema
málþingsdaginn, sem kostar
3.500 krónur og er innifalinn há-
degisverður og kaffiveitingar.
Skráning er nauðsynleg á flesta
viðburði á myrinfestival@gmail-
.com.
Málþing, vinnustofur og fleira
DAGSKRÁ BARNABÓKAHÁTÍÐARINNAR ÚTI Í MÝRI
Sigrún
Eldjárn
Þórarinn
Eldjárn