Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 Erna Elínbjörg Skúladóttir myndlistarmaður hlaut fyrstu verðlaun á leir- listar- og keramíktvíæringnum European Glass and Ceramic Context sem opnaður var í Bornholm í Danmörku 15. september síðastliðinn og lýkur 11. nóvember. Verðlaunin hlaut Erna fyrir verkið „Still Waters“ og er verðlaunafé 10.000 evrur, jafnvirði um 1,3 milljóna króna. Á tvíæringnum eru tvær sýningar, annars vegar sýning með verkum umsækjenda, Open Call, og hins vegar sýning sem er stýrt af sýningarstjóra, Curated. Fjórir listamenn tóku þátt fyrir hönd Íslands í sýningunni, tveir í hvorri sýningu: Erna Elínbjörg Skúladóttir og Hildigunnur Birgisdóttir í Curated-sýningunni og Kristín Sigfríður Garðarsdóttir og Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir í Open Call-sýningunni. Samtals tóku 100 manns þátt í sýningunum sem er ætlað að sýna það besta og áhugaverðasta sem er að gerast í leir- og keramíkheiminum í Evrópu nú um stundir. Önnur verð- laun á tvíæringnum hlaut Sam Baker frá Englandi fyrir verkið „Of Beauty Reminiscing“. Erla segir í tilkynningu að það sé bæði mikill heiður fyrir hana og viðurkenning að hljóta þessi verðlaun. Hlaut fyrstu verðlaun á tvíæringi Erna Elínbjörg Skúladóttir Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Nýjasta ljóðabók Ísaks Harðarsonar, Ellefti snertur af yfirsýn, er sú ell- efta í röðinni frá því hann sendi frá sér sína fyrstu, Þriggja orða nafn, ár- ið 1982. Sú næstnýjasta, Rennur upp um nótt, frá árinu 2009 var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Þótt tilnefningin hefði vissulega átt að verða honum inn- blástur til að halda áfram að yrkja ljóð er Ísak engin launung á að hann hafi ekkert verið sérstaklega frjór síðan þá. „Ég var búinn að vera svo frjór í tvo áratugi þar á undan að kannski var bara eðlilegt að ég væri orðinn svolítið tómur,“ segir hann. Ljóðin í Ellefti snertur af yfir- sýn urðu enda til á löngum tíma. Ísak kveðst ein- faldlega ekki hafa verið inn- blásinn andagift nema stöku sinnum og þá sjaldan það gerðist hafi hann sest niður og slegið ljóðin inn í tölvuna sína. „Stundum er maður marandi í hálfu kafi þar til manni finnst nóg komið og skýtur hausnum upp úr fletinum þegar mað- ur þykist vera kominn með einhverja yfirsýn. Bara svona eins og gengur og gerist í lífinu – maður er misátt- aður, finnst lífið dularfullt og botnar á tímabilum ekkert í því,“ segir Ísak og heldur áfram: „Síðan er eins og líf- ið ljúkist upp fyrir manni og maður áttar sig, eða þykist að minnsta kosti skilja eitthvað sem maður skildi ekki áður.“ Ljóðin mynduðu heild Fær yfirsýn eða kannski hug- ljómun? „Já, eða lærir bara af reynslunni og það getur tekið langan tíma. Hver ljóðabók, eða bók, sérstaklega ef hún er persónuleg, fjallar um eitthvert ákveðið tímabil höfundarins, sem hann segir skilið við með því að gefa hana út.“ Er nýja ljóðabókin því marki brennd? „Hún er reyndar svolítið öðruvísi en fyrri bækurnar mínar, sem ég gekk í að vinna eins og hver önnur verk. Ljóðin söfnuðust upp í tölvunni minni þar til í fyrra að ég fór að líta á þau og gerði mér grein fyrir að þau mynduðu heild og kröfðust þess eig- inlega bara sjálf að birtast í ákveðinni röð. Ég lét undan og afraksturinn er þessi ljóðabók.“ Ísak er þeirrar skoðunar að skáld eigi ekki að segja lesendum sínum hvernig þeir eigi að skilja ljóð og bækur, því aðalsköpunin verði í huga lesandans. „Lesandinn á að túlka ljóðin á sinn hátt, fremur en að hætti höfundarins,“ segir hann, en lætur þó tilleiðast þegar hann er beðinn um að lýsa þeim sem heild; rauða þræðinum í þeim með öðrum orðum. „Maðurinn og skynjun hans á umhverfinu. Manninum finnst heimurinn hafa hrunið. Hann stendur í rústunum og reynir að raða saman brotunum – eins og ég fór loksins að gera við ljóð- in mín frá síðastliðnum níu árum. Þá sá ég að í þeim var framvinda, allt frá angist til sáttar og bjartsýni í lokin.“ Brotin raðast saman Smella brotin þá saman hjá mann- inum? „Það ræðst af því sem fólk les út úr ljóðunum, kannski er það öfugt og brotin raða manninum saman.“ Ert þú þessi maður? „Örugglega að einhverju leyti, þessi ljóð eru persónulegri en oft áður.“ Hins vegar leikur enginn vafi á að Ísak er að öllu leyti maðurinn sem hefur, auk ljóðabókanna, sent frá sér smásögur, söngtexta, skáldsöguna Mannveiðihandbókina árið 1999, endurminningabók og þýtt kynstrin öll af alls konar bókum í áranna rás, þ. á m. Taumhald á skepnum eftir breska höfundinn Magnus Mills. „[…] má í ljóðum hans oft finna djúpstæða örvæntingu og svartsýni sem dansa undarlegan skottís við skopskynið og kraftmikið ljóðmál,“ skrifaði Andri Snær Magnason rit- höfundur í inngangi í Ský fyrir Ský, safnriti með ljóðum Ísaks, sem kom út árið 2000. Árinu áður hafði hann skrifað bók, Maður undir himni, sem fjallar um trú og guðsmynd í ljóðum Ísaks. „Hún fjallar að minnsta kosti um lífstrúna,“ svarar Ísak þegar hann er spurður hvort Ellefti snertur af yfir- sýn sé á trúarlegum nótum. Krossinn sem orðið „ósegjanleikann“ (í þolfalli) myndar og birtist eftir fyrsta ljóðið í bókinni, segir hann geta táknað jafnt dauða og endalok eða punktinn þar sem allt kemur saman og allt rennur út frá. Fyrsta ljóðið í bókinni fjallar um dreng sem öllu hafði verið sviptur og ekkert átti. „Honum er gefinn kraft- ur sem verður til þess að í stað þess að gefast upp tekst hann á við hlut- ina; orðin sem hann hefur kastað út í ósegjanleikann. Hann ákveður að halda áfram að lifa og orða ósegjan- leikann og til þess hefur hann bara orð sín og skilning,“ útskýrir skáldið. Bókstaflega ólgandi Mörg ljóðin eru aðeins örfá orð, önnur lengri, til dæmis líkist síðasta ljóðið í bókinni, Ástarljóð til 33-A, frekar örsögu. Eins og ljóðin eru brotin um virðast þau á stundum bókstaflega ólga, orðin eru á víxl með hástöfum og lágstöfum, jafnvel lóð- rétt í miðju ljóði, línurnar óreglu- legar, stundum eins og tröppur svo fátt eitt sé nefnt. Orðin eru með stæla. Uppsetningin er algjörlega samkvæmt fyrirmælum Ísaks og því vitaskuld ekki út í bláinn. Stælarnir hafa tilgang. „Drengurinn eða ljóðmælandinn fer í mikinn rússíbana eftir þetta hrun, hann þeytist upp og niður, í all- ar áttir og að sama skapi stafirnir og orðin.“ Og úr því að Ísak nefndi hrun – á hann við íslenska bankahrunið 2008 eða andlegt hrun drengsins? „Hvort tveggja. Lesandinn verður bara að ákveða þetta allt saman sjálfur,“ svarar skáldið. Ljósmynd/Skarphéðinn Bergþóruson Skáldið „Lesandinn á að túlka ljóðin á sinn hátt,“ segir Ísak Harðarson. Orðin í ósegjanleikanum  Ísak Harðarson sendi nýverið frá sér ljóðabók eftir níu ára hlé  Ellefti snertur af yfirsýn er ellefta ljóðabók hans » Ljóðin söfnuðust upp í tölvunni minni þar til í fyrra að ég fór að líta á þau og gerði mér grein fyrir að þau mynduðu heild og kröfðust þess eiginlega bara sjálf að birtast í ákveðinni röð. Ronja Ræningjadóttir (None) Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Ég heiti Guðrún (Kúlan) Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 17:00 Auka Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Insomnia (Kassinn) Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 12:30 Lau 17/11 kl. 12:30 Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30 Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 11:00 Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Fös 12/10 kl. 22:00 Fös 19/10 kl. 22:00 Daður og dónó Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Athugið, sýningum lýkur í byrjun nóvember. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tví-skinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00 Sing-a-long Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Besta partýið hættir aldrei!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.