Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingumumáhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is Dolorin 500mg töflur - 20 stk og 30 stk Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is V irðing og skilningur þarf alltaf að vera leiðarljós í aðstoð við fólk sem stendur höllum fæti. Stuðningurinn þarf sömuleiðis og alltaf að miðast við aðstæður hvers og eins og horfa verður til langs tíma, því það tekur fólk mislangan tíma að komast á beina braut,“ segir María Rún- arsdóttir, for- maður Félags- ráðgjafafélags Íslands. Alþjóð- legur baráttu- dagur gegn fá- tækt var síðastliðinn mið- vikudag, 17. október, og af því tilefni vakti félag- ið athygli á skeytingarleysi stjórn- valda í garð fólks og hópa sem búa við fátækt og eru jaðarsettir í ís- lensku samfélagi. Efnt var til hlaups og seinna til upplestrar þar sem skeytingarleysi var inntaks- orðið og boðskapur. Styðja fólk til valdeflingar Starf félagsráðgjafa er marg- þætt en meðal verkefna þeirra sem starfa hjá félagsþjónustu sveitarfé- laga er stuðningur við efnalítið fólk. Lögum samkvæmt ber sveitarfélög- unum, til að mynda Reykjavíkur- borg, að tryggja fólki lágmarks- framfærslu og annað eftir atvikum, svo sem húsnæði. „Við þekkjum vel hvar skórinn kreppir, hverjir eru í mestri hættu að festast í fátæktargildru sem oft leiðir af sér að fólk dettur úr virkri þátttöku í samfélaginu. Það er hlut- verk okkar félagsráðgjafa að koma til móts við þetta fólk og styðja til valdeflingar í eigin lífi. Eitt af því er að sjónarmið þessa afskipta hóps heyrist og honum gáfum við rödd,“ segir María sem tiltekur að um þessar mundir sé margt gott að gerast í málum er lúta að velferð og félagslegum stuðningi. Skýrsla um velferðarmál, sem Árni Páll Árnason, fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra, vann fyrir nor- rænu ráðherranefndina, var kynnt sl. fimmtudag. Þar segir að alls staðar á Norðurlöndum sé vandi til staðar þegar samræma þarf til dæmis heilbrigðismál, vinnumarkað og svo mennta- eða húsnæðismálin. María segir margt athyglisvert koma fram í þessari skýrslu og efni hennar sé gott veganesti í um- ræðuna. „Margar af erfiðustu félagslegu áskorununum sem við stöndum nú frammi fyrir stafa af margþættum orsökum. Við sjáum félagslega ein- angrun og einmanaleika í stór- auknum mæli í samfélaginu öllu frá barnæsku til efri ára. Við sjáum dæmi þess að félagslegt misrétti og félagsleg einangrun erfist milli kyn- slóða,“ segir í skýrslunni og í endursögn mbl.is. Lásu mikilvæg skilaboð Hlaupið sem félagsráðgjafar stóðu fyrir hófst við Útvarpshúsið í Efstaleiti en í þeirri byggingu er ein þjónustumiðstöðva Reykjavíkur- borgar. Þaðan var svo haldið í mið- borgina og að Laugavegi 77, þar sem önnur þjónustumiðstöð á veg- um borgarinnar er til húsa. Þaðan lá svo leiðin í Fógetagarðinn í Kvos- inni, þar sem félagsráðgjafar lásu upp reynslusögur fátæks fólks. „Sögur þessa fólks eru allt í kringum félagsráðgjafa í okkar dag- lega starfi. Við erum hins vegar bundin trúnaði og fundum því sögur til upplestrar, til dæmis á netinu, í fjölmiðlum, skýrslum, bókum og víðar. Oft er fólk þarna að lýsa mjög erfiðum aðstæðum sem oft má snúa til betri vegar. En til þess að svo megi verða eru orð til alls fyrst og umræðan er mikilvæg. Þetta eru líka mikilvæg skilaboð sem stjórn- málamenn verða að taka til sín og og standa við gefin loforð, svo sem um úrbætur í bóta- og skattkerfinu og að fara í ýmsar félagslegar um- bætur. Af hálfu samfélagsins er aldrei valkostur að sýna fólki í jaðarsettri stöðu skeytingarleysi,“ segir María Rúnarsdóttir. Skeytingarleysi er ekki valkostur Afskiptur hópur fær rödd. Félagsráðgjafar lásu sög- ur skjólstæðinga sinna og vilja að stjórnvöld og aðr- ir styðji fátækt fólk með félagslegum umbótum. Við þekkjum vel hvar skórinn kreppir, segir for- maður Félagsráðgjafa- félags Íslands. Félagsráðgjafar Hópurinn sem las og hlýddi á hér í Fógetagarðinum í Kvosinni, en á þeim slóðum er deigla mannlífs í borginni og fólk í ýmsum aðstæðum. María Rúnarsdóttir Þátttaka Líf og fjör í Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ fyrr á þessu ári. Hef ekki fulla heilsu „Ég er á örorku vegna afleiðinga krabbameins. Ég var í námi eins og ég gat á meðan ég var að jafna mig eftir krabbameinið, fékk undan- þágur og slíkt og tókst að klára nám og er komin með starfsréttindi í mínu fagi. Ég hef ekki fulla heilsu en einhverja og hef verið að vinna með bótunum til að geta náð end- um saman. Auk þess langar mig að vinna … er að reyna að koma mér út á vinnumarkaðinn og get það von- andi eftir því sem heilsan batnar.“ Meðvirkni hverfur „Hef sjaldan nennt að reyna að biðja um aðstoð því þegar ég hef bryddað upp á því er hent framan í mig að hann sé sko að borga með- lag og ætli ekki að taka þátt í neinu öðru. Barnsfaðir minn er fyrrver- andi fíkill, ofbeldismaður með greinda siðblindu. Ég hef alltaf komið til móts við hann, reddað honum þegar illa gengur, sleppt honum við meðlag, afsakað hegðun hans. En sem betur fer er með- virknin að hverfa hratt.“ Pasta og núðlur „Maður getur líka verið fátækur með maka. Bara kaupa ódýrt sem dugar í marga skammta … pasta, spagettí og núðlur duga lengi. Nota eina bringu til að blanda við. Þá færðu eitthvert kjöt. Reyna að leggja til hliðar vegna læknis- kostnaðar sem gæti komið fyrir. Keyra sem minnst og bara nota það sem nauðsynlegt er. Reyna frekar að labba í búðina. Skemmtun: Göngutúrar og reyna að fylgjast með hvað er frítt. Ég á þrjú börn og hef alltaf náð að gera það besta úr því litla sem við foreldrarnir höfð- um.“ Gera það besta úr litlu SÖGUR SEM FÉLAGSRÁÐGJAFAR LÁSU Í FÓTGETAGARÐINUM Lestur Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, t.v., og Þórey Guðmundsdóttir félagsráðgjafar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.