Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 24

Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Gert er ráð fyrir því að geimflauginni BepiColombo verði skotið á loft í dag og að hún komi að Merkúr eftir sjö ár. Leiðangurinn er samstarfsverkefni ESA, Geimvísinda- stofnunar Evrópu, og JAXA, Geimvísindastofnunar Jap- ans. Geimflauginni verður skotið á loft frá Kourou- geimhöfninni í Frönsku Gvæjana á norðausturströnd Suður-Ameríku. Í flauginni eru tvö brautarför sem eiga að losna frá henni við komuna til Merkúrs sem er minnsta reiki- stjarnan í sólkerfi okkar og sú sem er næst sólinni. Merkúr er á meðal þeirra reikistjarna sem hafa verið rannsakaðar minnst. Geimvísindastofnun Bandaríkj- anna hafði áður sent tvö geimför að Merkúr; Mariner 10, sem var skotið á loft árið 2004, og Messenger sem var á braut um reikistjörnuna á árunum 2011 til 2015. Geimvísindamenn vonast til þess að brautarför Bepi- Colombo varpi ljósi á leyndardóma Merkúrs og auki einnig þekkingu manna á því hvernig sólkerfið mynd- aðist. Rannsóknirnar gætu jafnvel hjálpað þeim sem leita svara við því hvort líf geti þrifist á reikistjörnum ut- an sólkerfis okkar, að því er fram kemur á fréttavef breska blaðsins The Guardian. Á yfirborði Merkúrs getur verið allt að 180 stiga frost og allt að 430 stiga hiti. Geislunin frá sólinni er svo mikil að lífverur eins og á jörðinni geta ekki þrifist þar, að því er fréttaveitan AFP hefur eftir vísindamönnum ESA. Nálægðin við sólina hefur einnig torveldað rannsóknir frá jörðinni á Merkúr vegna þess að birtan þar er svo mikil. Þannig getur Hubblessjónaukinn til dæmis ekki beint sjóntækjum sínum að Merkúr vegna hættu á skemmdum, að því er fram kemur á Stjörnufræði- vefnum, stjornufraedi.is. Gert er ráð fyrir að geimflaugin komi að Merkúr í desember 2025. bogi@mbl.is Ferð BepiColombo til að rannsaka leyndardóma Merkúrs Leiðangurinn er sameiginlegt verkefni Geimvísindastofnunar Evrópu, ESA, og japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA Heimild: *Geimvísindastofnun Evrópu, ESA MARKMIÐ 7 ára ferð 9 milljarðar km Flogið verður nálægt reikistjörnum til að nýta þyngdarafl þeirra: 1 Jörðin 2 Venus 6 Merkúr Tvö brautarför eiga að rannsaka segulsvið reikistjörnunnar, innri byggingu og yfirborð hennar. Talið er að íslög kunni að vera á gígóttu yfirborðinu Flutnings- far Brautarfar - ESA* Sólarhlíf og tengi- búnaður í segulhvolfinu Reikistjarnan sem er næst sólinni Hiti: -180°C til 430°C Mjög þunnt gufuhvolf Snúningstími: 58,6 jarðdagar Umferðartími um sólu: 88 jarðdagar Brautarfar sem rannsakar segulhvolfið - JAXA 1 1 2 2 Merkúr MERKÚR MERKÚR Jörðin SólinVenus Aðdráttarafl sólar torveldar ferðina, veldur því að meiri orku þarf en í ferð til Plútós Braut faranna Tvö brautarför losna frá flutningsfarinu Hámarksfjarlægð BepiColombo’s frá jörðu: 240 milljónir km Segulsvið Merkúrs Evrópsk og japönsk geimflaug heldur í sjö ára ferð til Merkúrs Amritsar. AFP. | Að minnsta kosti 60 manns biðu bana og 100 slösuðust í gær þegar lest ók á miklum hraða á hóp fólks sem tók þátt í trúarhátíð hindúa í borginni Amritsar á norð- vestanverðu Indlandi. Fólkið stóð á járnbrautarteinum og var að fylgjast með flugeldasýn- ingu á hátíðinni Dussehra þar sem hindúar fagna sigri góðs á illu. „Það var mikill hávaði því að flugeldar og púðurkerlingar sprungu og svo virð- ist sem fólkið hafi ekki heyrt í lest- inni þegar hún nálgaðist,“ sagði lög- reglumaður á staðnum. „Fólkið hljóp skelfingu lostið í allar áttir og allt einu ók önnur lest á hópa fólks.“ Engir öryggisverðir eru við hundruð brautamóta á Indlandi og algengt er að slys verði þar. Á ári hverju deyja nær 15.000 manns á járnbrautum Indlands, samkvæmt skýrslu sem stjórnvöld á Indlandi gáfu út árið 2012. Stjórnvöld í Punjab-ríki hafa fyrirskipað rannsókn á slysinu. Tugir dóu er lest ók á fólk  Voru að fylgjast með flugeldasýningu AFP Mannskætt slys Hópur fólks safnaðist saman við lík þeirra sem fórust. IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2018Ram3500LimitedTungsten Litur: Red pearl, svartur að innan. Ein með öllu: Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphi- tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, 6,7L Cummins. 5th wheel prep og snowplow prep. VERÐ 9.950.000 m.vsk 2018 F-350 Lariat Ultimate 6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque. Litur: White platinum metallic, Svartur að innan. 6 manna bíll með upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakka. VERÐ 9.950.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Platinum Litur: Platinum white / svartur að innan. LOBO edition, Mojave leður sæti, quad-beam LED hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20 felgur o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6) 10-gíra 375 hestöfl 470 lb-ft of torque Einnig til Red Volcano VERÐ 11.950.000 m.vsk 2018 Nissan Titan XD PRO4X Nissan Titan XD PRO 4X Litur: Dökkgrár, svartur að innan. með nýrri 5,0L V8 Cummins Diesel (310 hö). VERÐ 12.840.000 m.vsk Snjóblásarar ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.