Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Kína er eitthelstaefnahags-
veldi heims og
stendur aðeins
Bandaríkjunum að
baki. Efnahagur
landsins vex og
dafnar. Lætur sennilega
nærri lagi að daglegur vöxtur
kínversks efnahags nemi hér
um bil þjóðarframleiðslu Ís-
lands.
Kínverjar láta að sér kveða
um allan heim. Samkvæmt
bandarísku hugveitunni Am-
erican Enterprise Institute
námu fjárfestingar og þátt-
taka Kínverja í framkvæmd-
um erlendis 1.870 milljörðum
Bandaríkjadollara á tíma-
bilinu 2005 til 2018.
Kínverjar hafa undanfarin
misseri gert tilkall til forustu í
efnahagsmálum í heiminum.
Þar af hafa 298 milljarðar
dollara farið í framkvæmdir í
Afríku. Hafa Kínverjar lánað
meira fé til framkvæmda þar
en Þróunarbanki Afríku, Evr-
ópusambandið, Alþjóða-
fjárfestingastofnunin (sem er
hluti af Alþjóðabankanum) og
G8-löndin samanlagt.
Kínverjar áttu frumkvæði
að stofnun og hafa lagt lang-
mest fé í Innviðafjárfestinga-
banka Asíu, sem Íslendingar
eru aðilar að og á að styrkja
uppbyggingu innviða í álfunni.
Þessi upptalning sýnir að
Kínverjar hegða sér ekki eins
og þróunarríki heldur for-
kólfur í efnahagslífi heimsins.
Það vakti athygli þegar
Donald Trump Bandaríkja-
forseti tilkynnti að hann
myndi að óbreyttu draga
Bandaríkin út úr Alþjóðapóst-
sambandinu. Trump hefur
gagnrýnt Kínverja harðlega
fyrir óprúttna viðskiptahætti.
Hann hefur jafnframt sýnt að
séu alþjóðasáttmálar honum
ekki að skapi sé hann tilbúinn
að láta þá róa.
Í fjölmiðlum var yfirlýsingu
Trumps lýst sem hluta af
efnahagsstríði hans við Kína.
Kínverjar hafa reynt að láta
líta út fyrir að í þeirri viður-
eign séu þeir rödd skynsem-
innar, sem vilji sem mest
frelsi í alþjóðlegum við-
skiptum.
Ekki er þó allt sem sýnist.
Kínverjar hafa notað Alþjóða-
póstsambandið til að maka
krókinn svo um munar.
Sambandið var stofnað árið
1874 í Sviss í þeim tilgangi að
móta alþjóðlegar reglur í
póstmálum, eins og fram kom
á viðskiptasíðu Morgunblaðs-
ins í gær. 192 lönd
eiga aðild að sam-
bandinu og er því
einnig ætlað að
ýta undir jafnræði
milli landa í þess-
um efnum.
Kínverjar hafa
notið góðs af því. Hjá sam-
bandinu eru Kínverjar skil-
greindir sem þróunarríki.
Fyrir vikið fá þeir 70-80% af
póstkostnaði niðurgreidd.
Kínverjar hafa verið mjög
atkvæðamiklir í póstverslun á
netinu. Segja Bandaríkja-
menn að niðurgreiðslurnar
skekki samkeppnisstöðu inn-
lendra fyrirtækja í póst-
verslun svo um munar.
Staða Kínverja hefur einnig
gríðarleg áhrif hér á landi. Í
Morgunblaðinu í gær kemur
fram að í skýrslu Copenhagen
Economics frá þessu ári komi
fram að tap Íslandspósts
vegna erlendra sendinga sé
um 475 milljónir á ári. Net-
verslun fari vaxandi og því
megi búast við að sá kostn-
aður muni halda áfram að
aukast.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu, hefur vakið
athygli á að vegna þessa séu
skilyrði í samkeppni ójöfn í al-
þjóðlegri netverslun. Hann
lýsir því í samtali við Morgun-
blaðið hvernig reynt hafi verið
að fá alþjóðapóstsamninginn
endurskoðaðan í sumar, en
það hafi ekki náð fram að
ganga. Næst verði hægt að
taka samninginn til endur-
skoðunar árið 2021, eftir heil
þrjú ár.
Kínverjar eru augljóslega
sáttir við óbreytt fyrirkomu-
lag í þessum málum og láta sig
engu varða þótt forsendur
hafi breyst verulega frá því að
þeir voru settir í niður-
greiðsluflokk þróunarríkja
hjá Alþjóðapóstsambandinu.
Hvað er þá til ráða? Trump
hefur tekið þá afstöðu að
þessu verði ekki unað og frek-
ar muni Bandaríkjamenn
ganga úr sambandinu en búa
við þetta áfram. Bandaríkja-
menn muni einfaldlega gera
tvíhliða eða marghliða samn-
inga þar sem tekið verði tillit
til þeirra sjónarmiða. Verði
samningar Alþjóðapóst-
sambandsins hins vegar
endurskoðaðir séu þeir til-
búnir að draga tilkynninguna
um úrsögnina til baka og vera
áfram í sambandinu.
Augljóst er að Íslendingar
eiga samleið með Bandaríkja-
mönnum í þessari deilu.
Kínverjar líta ekki á
sig sem þróunarríki
en hafa ekkert á
móti forskoti með
niðurgreiðslum}
Niðurgreiddur
efnahagsrisi
Á
sama tíma og kúariða greinist í
Skotlandi og fréttir berast frá
Evrópusambandinu um að til
standi að draga eigi úr eftirliti
með sjúkdómum í kjúklingi þá
lýsir landbúnaðarráðherra því yfir að ekkert
hrófli við EES-samningnum. Á sama tíma hef-
ur ráðherrann ekki hugmynd um hvernig hann
ætlar að verja íslenska neytendur eða íslensk-
an landbúnað fyrir sjúkdómum sem berast
munu til landsins með hráu kjöti eða þá hvernig
hann ætlar að berjast gegn auknu sýklalyfja-
ónæmi sem ógnar heilsu manna. Kannski
treystir hann á að Félag atvinnurekenda setji
neytendur fyrst og svo gróðann.
Ýmsa löggjöf höfum við fengið í gegnum
EES-samninginn en margt er líka óþarfi og
passar ekki Íslandi. Marga góða löggjöf höfum
við einnig fengið frá Norðurlöndunum án þess þó að vera
gert skylt að innleiða þá löggjöf. EES-samningurinn er
gamall samningur sem ber að endurskoða teljum við
ástæðu til þess og nú er ástæða til þess. Það getur verið að
einhverjir skammsýnir menn muni komast að því að betra
sé að fórna íslenskum landbúnaði í stað ferðafrelsis en að
þora ekki að meta samninginn er dapurt.
Ótakmörkuð ást ráðherrans á EES-samningnum er
ekki það eina undarlega við embættisfærslur hans undan-
farið. Nýlega fréttist að hann hefði lagt niður landbún-
aðardeildina í ráðuneytinu og fært verkefnin á alþjóðasvið.
Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins hefur ósk-
að eftir því að ráðherra mæti á fund Atvinnuveganefndar
til að skýra þessa ákvörðun. Ráðherrann mæt-
ir hins vegar ekki og lætur þau boð berast að
hann ætli að ræða málið annarsstaðar. Ráð-
herranum ber að mæta svo alþingi geti rækt
eftirlitshlutverk sitt. Hann getur tafið það að
mæta með málefnalegum ástæðum en ekki
bara af því bara!
Tveir hópar bænda, sauðfjár- og loðdýra-,
hafa beðið eftir viðbrögðum frá ráðherra við
erindum þeirra og beðið lengi. Báðir þessir
hópar skipta miklu fyrir þjóðina hvor á sinn
hátt. Landbúnaður er ein af undirstöðum
hverrar þjóðar m.a. vegna fæðuöryggis, orku-
þarfar, gjaldeyrissparnaðar os.frv. Það er því
hlutverk ráðherra á hverjum tíma að gera allt
sem hann getur til að treysta og efla starfsum-
hverfi greinarinnar. Það er ekki gert með því
að draga lappirnar í að svara erindum eða
finna lausnir við vandamálum nema skilningurinn sé sá að
greinin sé ekki svo merkileg. Ég þekki ekki til neinnar
þjóðar sem vill ekki eiga öflugan landbúnað.
Að lokum. Haustið 2016 ákvað ég að fiskeldissvið Haf-
rannsóknastofnunar yrði á Ísafirði frá árinu 2018. Það var
gert eftir fundi með forstjóranum og embættismönnum
ráðuneytisins. Það var því ótrúlegt að heyra ræðu ráð-
herra sl. mánudag er hann upplýsti að forstjóri stofnunar-
innar vildi ekki gera þetta og hann réði! Nei, kæri ráð-
herra, þú ræður, þannig eru lögin.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Pistill
Er landbúnaðarráðherra úti á túni?
Höfundur er alþingismaður Suðvesturkjördæmis og varafor-
maður Miðflokksins. gunnarbragi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þrátt fyrir að loðnuleið-angur í síðasta mánuði hafiverið umfangsmeiri helduren í áratugi var niðurstaðan
sú að lítið fannst af loðnu. Nýliðun í
stofninum hefur yfirleitt verið slök
síðustu fimmtán ár, en á sama tíma
hefur hitastig sjávar hækkað. Breyt-
ingar hafa orðið á útbreiðslu loðnunn-
ar allt æviskeiðið og í auknum mæli er
hún farin að
hrygna fyrir norð-
an land. Hvaða
áhrif það hefur á
ungviði loðnunnar
er ekki vitað, en
unnið er að rann-
sóknum á áhrifum
breyttrar hrygn-
ingar.
Eins og stað-
an er núna verður
ekki gefinn út
loðnukvóti fyrir vertíðina, sem annars
hefði átt að byrja í janúar. Því til við-
bótar fannst lítið af ungloðnu, sem
þýðir að óvissa er um vertíðina í byrj-
un árs 2020.
„Í leiðangrinum í september var
bæði farið norður og suður úr dreif-
ingu loðnunnar, við Grænland var
nánast farið upp í harða land og einn-
ig langt austur á bóginn. Sannast
sagna veit ég ekki hvar við ættum að
leita ef ekki á þessu svæði,“ segir Þor-
steinn Sigurðsson, sviðsstjóri upp-
sjávarlífríkis Hafrannsóknastofn-
unar. Í skýrslu um leiðangurinn segir
að almennt hafi fundist lítið af loðnu á
leitarsvæðinu og engin loðna austan-
vert í Íslandshafi eða við Jan Mayen.
Talið er að tekist hafi að fara yfir
þekkt útbreiðslusvæði stofnsins.
Spurður hvort það kæmi honum
á óvart ef loðna gysi upp fyrir norðan
land í janúar segir Þorsteinn að í leið-
angrinum í haust hafi fundist 238 þús-
und tonn af loðnu úr veiðistofni, sem
komi þá til hrygningar í vetur. Vist-
kerfið fái því einhverja innspýtingu,
en hann segist telja allar líkur á að
hrygningarstofninn verði undir var-
úðarmörkum eða 150 þúsund tonnum.
Fátt sem kemur á óvart
„Annars er það orðið fátt, sem
kemur okkur orðið á óvart þegar
kemur að loðnunni, en við byggjum
okkar ráðgjöf á þeim mælingum sem
við teljum áreiðanlegastar hverju
sinni,“ segir Þorsteinn. „Haustið 2015
mældum við mjög lítið af ungloðnu og
þess vegna var viðbúið að lítið fyndist
af fullorðinni loðnu ári síðar. Þegar
kom fram yfir áramótin 2017 fannst
hins vegar talsvert af loðnu og úr varð
vertíð.
Við þurftum því að éta ofan í
okkur það sem við höfðum áður sagt
og glöddumst eins og aðrir yfir því að
stofninn var ekki hruninn. Við skoð-
uðum eldri gögn gaumgæfilega í
framhaldinu en fundum ekki skýr-
ingar á þeim mun sem var milli mæl-
inga. Því var líklegasta skýring okkar
sú að loðnan hefði verið á öðrum
svæðum, en við hefðum farið yfir.
Bæði í ár og í fyrra höfum við
hins vegar leitað á mun stærra svæði
þannig að þær skýringar sem við gáf-
um þá gætu vart haldið aftur, ef eitt-
hvað verulega meira kemur í leitirnar
í janúar. Það er í raun enn ráðgáta
hver skýringin er á ástæðu þess sem
við sáum fyrir tveimur árum. Ef það
er einhvers staðar verulega meira af
loðnu þá er eitthvað vitlaust í því sem
við erum að gera.
Meðal breytinga á dreifingu
loðnunnar segir Þorsteinn að hún sé
hætt að vera fyrir norðan land sem
ungfiskur. Í staðinn finnist hún að
stærstum hluta norðar og vestar við
Grænland. Lífsbarátta loðnunnar sé
greinilega erfið í því hlýviðrisástandi
sem verið hefur alla þessa öld sem
sjáist í því hversu lítið virðist ná að
lifa fyrsta árið í samanburði við það
sem mældist á síðustu öld.
Þorsteinn segir aðspurður að
hann telji ekki að gengið hafi verið of
nærri stofninum með veiðum. Með
nýrri aflareglu hafi meiri varfærni
verið gætt síðustu ár heldur en áður
og meira hefði verið veitt ef eldri afla-
regla væri enn notuð.
Síðustu tíu ár hefur makríll
gengið í miklum mæli inn á íslenskt
hafsvæði. Þorsteinn segir að ekki hafi
orðið vart við mikið af loðnu í maga-
innihaldi makríls og uppistaðan í fæð-
unni hafi verið áta. Vitað sé að síld éti
mikið af loðnuseiðum í Barentshafi,
en hér við land hafi slíkt ekki sést í
magasýnum sem tekin hafa verið.
Tvær loðnuvertíðir
gætu verið í uppnámi
Loðnu-
leiðangur
Bjarni Sæmundsson
Árni Friðriksson EROS
Bergmálsmælingar
á stærð loðnu-
stofnsins dagana
6.-27. september
Júní-sept. Okt.-des. Jan.-mars
1980-1981 2017-2018
Loðnuafli frá 1980
1.500
Þús. tonn
1.000
Vísitala ungfisks 1980 til 2018
1980 2018
Nýliðun loðnu
150
Milljarðar
100
Stofnstærð
» Hrygningarstofn loðnu
var í haust metinn 238.000
tonn.
» Tæplega 100 þúsund tonn
mældust af ungloðnu.
» Veiðistofn loðnu verður
að nýju mældur í janúar/
febrúar 2019.
Þorsteinn
Sigurðsson