Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 37

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 ✝ Sigrún HelgaGísladóttir fæddist í Reykjavík 4. júní 1925. Hún andaðist á Vífils- staðaspítala 28. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Gísli Sigurðsson sjó- maður, f. á Eyrar- bakka 13. ágúst 1900, hann fórst með síðutogaranum Sviða 5. des- ember 1941, og Lilja Guðmunds- dóttir, f. á Hvítárvöllum í Andakíl 5. september 1900, d. 28. nóvem- ber 1926. Fósturforeldrar hennar voru Gísli Gíslason frá Hjalla, f. 15. október 1878, d. 23. apríl 1965, og Jórunn Jónsdóttir frá Hlíðarenda, f. 19. október 1885, d. 8. desember 1987. Uppeldissystir Sigrúnar Helgu var Gunnvör Gísladóttir, f. 13. júní 1910, d. 5. maí 2004. Sigrún Helga átti tvær alsystur, Jónínu S. Gísladóttur, f. 8. desember 1921, d. 18. mars 2008, og Guðrúnu Alfífu Gísla- dóttur, f. 12. ágúst 1923, d. 14. september 2017. Hálfsystur Sig- rúnar Helgu, samfeðra, eru Auð- Theodór Guðlaugsson Chlothier. c) Sigrún Helga Ásgeirsdóttir, f. 29. október 1989. 2) Sigurður Jón, f. 18. september 1954, kvæntur Þórunni Óskarsdóttur, f. 11. októ- ber 1954. Þeirra börn eru: a) Hjörtur, f. 1. apríl 1984, sambýlis- kona hans er Björg Vigfúsdóttir, sonur þeirra er Bjarki. b) Hrefna f. 6. júlí 1989, og c) Snorri Þór f. 13. júlí 1994. 3) Kristín Jórunn, f. 9. ágúst 1960. Sambýlismaður hennar er Egill Eðvarðsson. Börn hennar og Guðmundar V. Frið- rikssonar, f. 15. júní 1960, eru: a) Sigrún Margrét, f. 28. desember 1981, í sambúð með Jóhanni Axel Andersen. Þeirra börn eru Matt- hías Dagur og Soffía Lísbet. b) Gísli Geir Guðmundsson, f. 3. október 1990, í sambúð með Mörtu Rut Guðmundsdóttur, þeirra sonur er Frosti Leó, dóttir Mörtu úr fyrra sambandi er Na- talía Kristín Karlsdóttir. Ung fór Sigrún Helga í Hús- mæðraskóla í Sorø í Danmörku. Þá fór hún snemma að vinna í Sundhöll Reykjavíkur og hún sinnti síðar húsmóðurstörfum ásamt því að vinna lengstan hluta starfsævinnar í Hagkaupum. Sig- rún Helga og Hjörtur voru mikið útivistarfólk, þau stunduðu skíða- íþróttina, hestamennsku og voru óþreytandi að fara með börnin sín í útilegur. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. ur Gísladóttir, f. 16. nóvember 1930, d. í Bandaríkjunum 30. október 2004, og Helga F. Charron, f. 1. ágúst 1936. Sigrún Helga gift- ist 30. desember 1948 Hirti Sigurðs- syni verslunar- manni, f. 8. ágúst 1922, d. 26. júní 1991. Hann var son- ur hjónanna Sigurðar Sigur- þórssonar, f. 10. september 1884, d. 12 mars 1970, og Kristínar Ólafsdóttur, f. 1. október 1888, d. 25. mars 1970. Sigrún Helga og Hjörtur eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Valgerður, f. 12. mars 1951, gift Ásgeiri Hannesi Eiríks- syni, f. 19. maí 1947, d. 14. febr- úar 2015. Börn þeirra eru: a) Sig- ríður Elín, f. 25. febrúar 1976, barnsfaðir hennar er Haukur Már Einarsson, þau eiga dæt- urnar Kolbrúnu Tinnu og Val- gerði. b) Sigurður Hannes, f. 28. febrúar 1982, sambýliskona hans er Sylvía Rúdolfsdóttir, þau eiga dótturina Álfrúnu Völu. Sonur Sylvíu úr fyrra sambandi er Kynni okkar Sigrúnar Helgu hófust fyrir aðeins um ári, ég þá þokkalega stálpaður maður- inn, hún gömul falleg kona. Hafði heyrt ýmislegt um hana. Um að hún væri til dæmis lík- leg til að hafa töluverðan fyrir- vara á kynnum okkar. Já, hafði heyrt að hún hefði nefnt að fyrra bragði við dóttur sína, Kristínu, að það væri kannski óþarfi að búa með þessu þótt maður ætti þetta fyrir vin! Þetta snarlega tilsvar Sigrúnar vakti strax áhuga minn á konunni og hljómaði ögn eins og mamma heitin hefði sagt undir svipuðum kringum- stæðum. Þarf alltaf að vera vín! Nei, hvergi skyldi rasa um ráð fram. Allt þyrfti að skoða vel og vandlega og taka síðan ábyrgar ákvarðanir út frá því. Um fullorðnar, viti bornar manneskjur væri að ræða. Punktur. En kynni okkar Sissu ömmu kviknuðu af sjálfu sér og mátti varla á milli sjá hvort naut bet- ur samvista við hitt. Ég held samt að ég hafi haft vinninginn. Nokkuð viss. Fyrir utan stuttar heimsókn- ir á heimili hennar þar sem hún kynnti mig meðal annars fyrir stóru bleiku rósunum sínum, þykkum myndaalbúmum með upplituðum ljósmyndum af fjöl- skyldunni á ferð; við í Húsa- felli, við í Þórsmörk og við á Þingvöllum, þá voru okkar tímar þó aðallega við sjúkrabeð hennar, ýmist á Hrafnistu, á Landspítalanum eða nú síðast á Vífilsstöðum. Ég skil ekki af hverju þú nennir að heimsækja mig, sagði hún gjarnan. Hvað ætli sé varið í að heimsækja gamla dauðvona kellingu, sem hefur allt á horn- um sér. En því var fljótsvarað. Hér var hvorki um minnstu skyldu- rækni að ræða né vorkunnsemi. Ég heimsótti þessa fallegu gömlu konu einvörðungu vegna þess að mér þótti hún áhuga- verð, mér þótti hún skemmtileg og svo er ég ekki frá því að hún hafi minnt mig ögn á mömmu heitna, sem kvaddi fyrir margt löngu. Og hver voru þá umræðuefn- in, sem tengdu okkur saman þannig að bæði nutu? Jú, voru það ekki stóru mál- in; pólitíkin, fjárhagsstaða borgarinnar og fiskeldið? Nei, ekkert af þessum annars bráð- nauðsynlegu málum, sem taka þarf á, setja í nefndir og útkljá með þjóðarhag í huga, bar á góma. Ekki heldur staða ferða- þjónustunnar. Nei. Okkar umræðuefni hafði með að gera gamla dægurlaga- tónlist, hvort það var Alfreð eða Haukur sem söng Frostrósir, nylonsokkasend- ingarnar 1946 í Kron og Kea, ólíkindatólið Skjóna, Noru Brockstedt, Gunnu systur og Stellu, Gunnhildi vinkonu, ný- tísku uppblásnu rúmdýnuna sem mjúklega aðlagaði sig þreyttum líkamanum eða börn- in, sem hún var svo óumræði- lega stolt af og óskaði að myndu minnast hennar helst með því að halda hópinn. Þykja vænt hverju um annað. Þessi mál og mörg af sömu stærðargráðu voru okkar mál. Mannamál eins og hún kallaði þau gjarnan. Mál, sem skiptu máli. Og hér var hún, ýmist sof- andi, þegar ég bankaði upp á, í lillabláa velúrsloppnum eða les- andi Vikuna og Se og Hör á hlébarðablússunni með hár- spöngina í stíl, 93 ára gömul – og bara rjúkandi smekkleg og smart! Sannarlega til í svo sem eitt staup af hvítvíni fyrir svefninn eftir uppáhaldið sitt. Skraufþurra sandkökuna. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku Sigrún. Þinn Egill Eðvarðsson. Nú þegar mamma er dáin er löngum kafla í lífi mínu lokið – eftir standa minningar um geislandi konu sem var minn besti vinur. Fyrir það er ég þakklát. Valgerður Hjartardóttir (Bíbí). Við systur þökkum fyrir hlýjar minningar og biðjum Guð að geyma ömmu Sissu. Kolbrún Tinna og Valgerður Sólborg Hauksdætur. Soffía Lísbet spurði hvort amma Sissa yrði jörðuð í sjó- ræningjakistu. Það er ekki skrýtið því hún var rosalegur harðjaxl og ólíklegt í huga þriggja ára barns að hún hefði látið í minni pokann fyrir nein- um öðrum en ribböldum og ræningjum úthafanna. Amma Sissa var sennilega hreinasta barnið í Reykjavík, því hún fékk að sulla í sturtu- klefunum í Baðhúsunum á hverjum degi á meðan fóstur- móðir hennar vann þar. Hún var ein glæsilegasta stúlkan í Reykjavík alveg þang- að til hún dó. Svo var hún líka listamaður, sótti námskeið í myndlist og málaði til að slaka á – og skapa. Enda var hún myndræn og frumleg í hugsun og sá alltaf aðeins lengra en hinir. Amma Sissa var töffari, hún var hug- rökk og gafst aldrei upp. Að því búa kynslóðir Sissubarna sem reyna að vera eins og amma. Sigrún Margrét og Gísli Geir. Lítil stelpa kveður ömmu sína með söknuði en fyrst og fremst full þakklætis eftir ríf- lega fjörutíu og tveggja ára samveru. Amma Sissa var sjálfstæð, sterk og stórglæsileg kona sem hafði ákveðnar skoðanir á öllu mögulegu og ómögulegu fram til síðasta dags. Samskipti okkar ömmu voru einlæg og hispurslaus. Okkur fannst ágætt að taka lífið ekki allt of alvarlega og vorum sam- mála um að sólarleysi og skatt- framtöl væru heilsuspillandi. Amma sagðist sátt eftir langt ævistarf og tilbúin að kveðja. Ég kýs að sjá hana fyrir mér ganga til fundar við afa Hjört þar sem hann stendur glottandi og vatnsgreiddur með filters- lausan Camel, sinnhvorn hest- inn, tilbúinn í nýtt ferðalag. Elsku amma Sissa, ég kveð þig eins og þú kvaddir mig. Guð veri með þér. Sigríður Elín Ásgeirsdóttir. Sigrún Helga Gísladóttir Að heilsast og kveðjast það er lífs- ins saga. Í sumar kvöddum við Helgu sem hefði orðið 77 ára í dag ef henni hefði enst aldur til. Ég man ekki hvenær ég hitti hana fyrst, en hún giftist Andrési föðurbróð- ur mínum þegar ég var unglingur og alla tíð síðan hafa verið mikil og góð samskipti á milli fjöl- skyldna okkar. Þegar við Maggi eignuðumst okkar fyrsta barn fékk ég að bíða eftir fæðingunni hjá þeim í Efstalandinu, og tvisv- ar eftir það í sömu aðstæðum. Helga S. Þorkelsdóttir ✝ Helga S. Þor-kelsdóttir fæddist 20. október 1941. Hún lést 8. júlí 2018. Útför hennar fór fram 13. ágúst 2018. Dalalandið varð eins og okkar annað heimili á þessum ár- um og verður seint fullþökkuð öll sú að- stoð og stuðningur sem Helga og Andr- és veittu okkur við veikindi sonar okk- ar sem þurfti snögg- lega að fara á sjúkrahús í London haustið 1979. Helga ákvað að koma með mér og var það mikil gæfa fyrir mig, hún var alvön að ferðast og hugsaði um alla praktíska hluti með mikilli röggsemi. Þetta var mín fyrsta utanlandsferð og í þessum kring- umstæðum bjargaði hún mér al- gjörlega. Hún var listakokkur, allur matur einstaklega góður og smekklega fram borinn, það var eins og stöðug veisla þótt hvers- dagsmatur væri. Enda töfraði hún fram hverja fermingarveisl- una á fætur annarri bæði hjá mér og fleira venslafólki í Dölum á ár- um áður. Vann síðan í mötuneyti banka í fjölda ára og dekraði við starfsfólkið þar. Síðustu ár gekk hún ekki heil til skógar og var það kraftaverki næst að komast heim og eiga góðan tíma, eftir um það bil sex mánaða sjúkrahúsvist og endur- hæfingu fyrir fjórum árum. Þá kom seigla hennar og dugnaður vel í ljós, þótt auðvelt hefði verið að bugast. Komst síðan fyrir tveimur árum í sína síðustu ferð til Þorkels sonar síns og fjöl- skyldu í Bandaríkjunum, þangað sem þau hjón fóru árlega árum saman, til að gæta barnabarna í fyrstu og síðan njóta samvista við þau. Þar héldu þau hjónin upp á 75 ára afmælið hennar með börn- um sínum og barnabörnum og man ég hvað hún var ánægð með þessa ferð, það var henni alltaf svo mikils virði að hafa fjölskyld- una nálægt sér. Mörg samtöl og símtöl áttum við Helga í gegnum árin og það síðasta nokkrum dög- um fyrir andlátið, þá gerði ég mér ljóst að ekki væri langt eftir. Trygglynd og heilsteypt kona er gengin. Elsku Andrés, Þorkell, Nanna Þóra, Laufey og barnabörn, til hamingju með daginn hennar Helgu, megi góðar minningar ylja ykkur í dag og alla daga. Við Maggi minnumst hennar með hlýju og þakklæti fyrir allt. Bára Hjaltadóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Hjartans þakkir til allra sem sýnt hafa okkur hlýhug og samúð vegna andláts eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, HALLDÓRU FRIÐRIKSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns með þökk fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Ingi Sigurðsson Davíð Ingason Matilda Gregersdotter Sigurður Ingason Hafdís Ingadóttir Björgvin Friðriksson og ömmubörn Hjartans þakkir fyrir sýndan hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, SESSELJU SIGURRÓSAR GÍSLADÓTTUR, Settu. Minning hennar lifir í hjörtum okkar. Viggó Vilbogason Reynir Örn Viggósson Berglind Harpa Helgadóttir Rósa Viggósdóttir Emil Sigurður Magnússon Gísli Páll Jónsson og barnabörn Þökkum innilega samúð, hlýhug og vinsemd vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, ÞÓRHILDAR SIGURJÓNSDÓTTUR, Lyngbergi 35, Hafnarfirði. Jón Ólafsson Sigurjón Marteinn Jónsson Berglind Mjöll Jónsdóttir Óskar Sigurðsson Ólafur Már Jónsson Sólrún Hafþórsdóttir og barnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar míns, bróður okkar, mágs og frænda, KRISTJÁNS KETILSSONAR. Innilegar þakkir sendum við fjölskyldu Kristjáns á sambýlinu Hlein, Mosfellsbæ, fyrir mjög góða umönnun og vináttu. Einnig þökkum við öllum þeim sem báru hag Kristjáns fyrir brjósti sér og auðguðu líf hans á einhvern hátt í gegnum árin. Auður Ásta Sigríður Jónasdóttir Bára A. Ketilsdóttir Örn Gunnarsson Írunn Ketilsdóttir Tómas Sigurðsson Steinunn Ketilsdóttir Snorri Þórisson Jónas Ketilsson Sigríður M. Óskarsdóttir frændsystkin og fjölskyldur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, pabba okkar, sonar, bróður, frænda og vinar, GUÐMUNDAR ARNARS HERMANNSSONAR, skipstjóra og útgerðarmanns frá Árskógssandi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk SAk og Heimahlynningar Akureyrar fyrir ómetanlegan hlýhug og umhyggju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafasjóð SAk v/ Barna- & unglingageðdeildar. Anna Guðrún Snorradóttir Sigurlaug Dröfn Guðmundsdóttir Hermann Guðmundsson Hjörvar Blær Guðmundsson Hafrún Mist Guðmundsdóttir Hermann Guðmundsson Margrét Ágústa Arnþórsdóttir Agnes Eyfjörð Arnþór Elvar Hermannsson Heimir Hermannsson Jónína Hafdís Hermannsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.