Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
✝ Guðný ÓlöfKristjánsdóttir
fæddist í Reykjavík
28. desember 1946.
Hún andaðist í
Uppsölum í Svíþjóð
17. ágúst 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ósk Jó-
hanna Kristjáns-
son, f. 8. apríl 1919,
d. 2. apríl 2000, og
Kristján Ólafsson,
f. 4. ágúst 1923, d. 8. janúar
2018.
Bræður Guðnýjar eru: Ólafur
Tryggvi, f. 21.4. 1944, d. 25.3.
2017, Gísli Sigurbjörn, f. 22.12.
terson, f. 5.2. 1944, d. 1.1. 2009.
Þau slitu samvistir. Sonur
þeirra er Kristian, f. 29.4. 1970.
Hann var kvæntur Jennie Ann
Larsson, f. 10.2. 1969. Þau
skildu. Börn þeirra eru Jim, f.
14.7. 2005, Dina, f. 10.5. 2008,
og Lilly, f. 22.1. 2011.
Guðný ólst upp í Reykjavík
og gekk menntaveginn þar.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1966 og síðar kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands. Um tíma
starfaði hún við barnakennslu
og sem flugfreyja hjá Loftleið-
um, áður en hún fluttist til Sví-
þjóðar 1969 og hóf nám í sál-
fræði í Uppsölum. Hún lauk
embættisprófi í sálfræði á átt-
unda áratugnum og starfaði
sem sálfræðingur í Svíþjóð til
æviloka.
Jarðarför Guðnýjar fer fram
í kyrrþey.
1947, Þorvaldur
Kristinn, f. 27.2.
1949, Flosi Albert
Helgi, f. 2.5. 1951,
Sævar Jósef, f.
18.8. 1953, Pétur
Kristinn, f. 8.12.
1955, og Ólafur
Grétar, f. 28.6.
1958.
Guðný giftist
28.5. 1968 Pétri
Axel Péturssyni, f.
18.12. 1945. Þau skildu. Sonur
þeirra er Pétur Jökull, f. 27.5.
1967. Kona hans er Tina Teigen
Pétursson, f. 25.2. 1969. Guðný
var í sambúð með Lars-Åke Pet-
Guðný systir mín var tæpum
tólf árum eldri en ég og kom það í
hennar hlut að annast um litla
bróður til þess að létta verkum af
móður okkar, enda í mörg horn að
líta í tíu manna fjölskyldu. Mér
var sagt síðar að hún hefði beitt
harðneskjulegum uppeldisaðferð-
um til að siða bræður sína, en ekki
rekur mig sjálfan minni til þess.
Ég man ekki annað en ég hafi not-
ið ástúðar og umhyggju frá henni
þau sextíu ár sem við áttum hvort
annað að.
Það var stolt fjölskylda í Mos-
gerði 17 sem fylgdist með systur
okkar ljúka stúdentsprófi frá MR
árið 1966. Framtíðin var óráðin,
en á meðan hún gerði upp hug
sinn starfaði hún sem flugfreyja
hjá Loftleiðum og tók sig einkar
vel út í búningnum sem enn er
varðveittur í fjölskyldunni. Hún
lauk einnig kennaraprófi og starf-
aði við kennslu barna um nokkurt
skeið, en svo lá leiðin til Svíþjóðar
1969 þar sem hún hóf nám í sál-
fræði. Uppsalir urðu hennar
heimabær, þar bjó hún og starfaði
í nærfellt hálfa öld og þar and-
aðist hún í ágúst síðastliðnum.
Guðný öðlaðist réttindi sem
sálfræðingur í Svíþjóð á áttunda
áratugnum og starfaði við fag sitt
fram á síðasta dag. Sérsvið henn-
ar var vinnustaðasálfræði og
hjálpaði hún mörgum að fóta sig í
tilverunni á ný og verða virkir í at-
vinnulífi eftir áföll í lífinu.
Á heimili hennar mátti finna
margvíslegan vitnisburð um
þakklæti skjólstæðinganna fyrir
veitta hjálp.
Guðný flutti sig töluvert milli
staða í Uppsölum, en átti sín
bestu ár í Övre Slottsgatan 12 og
að lokum í Malma Backe þar sem
hún gat sinnt litlum garði og
ræktunarstörfum sem honum
fylgdu. Guðný gekkst upp í
ömmuhlutverkinu og sá ekki sól-
ina fyrir barnabörnunum, Jim,
Dinu og Lilly. Hún varð þeirrar
gleði aðnjótandi að geta boðið
þeim heim til Íslands síðastliðið
sumar og sýnt þeim landið sem
hún elskaði svo mjög.
Um fjörutíu ára bil átti ég þess
kost að heimsækja systur mína í
Uppsölum. Þar naut ég kyrrðar,
góðs atlætis, umhyggju og góðs
matar, en Guðný var afbragðs-
kokkur. Oft lá ég sofandi í sófan-
um með Fantomen-blað ofan á
mér. Þar las ég hin gullvægu orð:
När Fantomen rör på sig står
blixten stilla. (Gammalt jungel-
ordspråk.)
Maður í hvíld og enginn að rexa
í honum. Guðný vissi að það mátti
sýna litla bróður örlitla þolin-
mæði, hann kæmi til með tíman-
um og liðsinnti við heimilisstörfin.
Guðný heimsótti Ísland á
hverju ári og hafði yndi af því að
ferðast um landið, ýmist akandi
eða fótgangandi á ferð með góð-
um vinum. Slíkar heimsóknir
nýtti hún einnig til að fara í leik-
hús eða á sýningar af einhverju
tagi. Hún átti ágætt safn ís-
lenskra bóka og fylgdist vel með
því sem var að gerast í bók-
menntalífinu á Íslandi.
Systir mín var dul manneskja
og leitandi. Hún las mikið og af
bókasafni hennar má merkja að
hún var opin fyrir því að tileinka
sér uppbyggilegar hugmyndir og
viðhorf, sama hvaðan þau komu.
Þar má einnig sjá að hún fylgdist
vel með í sínu fagi og kappkostaði
að kynna sér ávallt nýjustu stefn-
ur og strauma í sálfræðinni.
Ég er stoltur af fallegu, dug-
legu og kláru systur minni og
geymi minningu hennar í hjarta
mér.
Ólafur Grétar Kristjánsson.
Elsku frænka. Enn og aftur
finnst mér ég ekki tilbúin að
kveðja ættingja sem snögglega er
tekinn frá mér. Nærvera þín var
alltaf svo hlý og þægilegt and-
rúmsloft á heimilinu. Öll þau
skipti sem ég heimsótti þig leið
mér eins og ég væri á mínu öðru
heimili. Mætti frá Íslandi með
minn eigin lykil og fékk alltaf alla
efri hæðina út af fyrir mig. Við
lögðum mikið upp úr hverjum
kvöldverði þar sem það var tím-
inn sem við áttum alltaf saman.
Svo eyddum við því sem eftir var
af kvöldi í rólegheitum að spjalla
og horfa á sjónvarpið. Ég mun
alltaf taka til fyrirmyndar hvern-
ig þú lést mér líða hjá þér, ástríkt
heimili þar sem mér leið alltaf vel.
Minningar sem eru mér mjög
minnisstæðar og standa mér
nærri eru þegar ég var yngri og
þú eyddir sumarfríinu þínu í að
fylgja mér á dansnámskeið í
Stokkhólmi á hverjum degi,
beiðst allan daginn og svo fórum
við saman til baka um eftirmið-
daginn.
Ég er þakklát fyrir að hafa get-
að eytt svona miklum tíma með
þér þótt við byggjum aldrei í
sama landi og fyrir allar þær
minningar sem við eigum saman.
Hildur Ólafsdóttir.
Guðný hefur verið hluti af lífi
mínu næstum eins lengi og ég
man. Við kynntumst þegar ég
byrjaði í Breiðagerðisskóla átta
ára, lítil og feimin og þekkti eng-
an. Mér var vísað til sætis við hlið-
ina á Guðnýju og smám saman
tókst með okkur góð vinátta, sem
hefur haldið æ síðan. Við fylgd-
umst að í Réttarholtsskóla, lands-
prófi og loks menntaskóla. Við
fráfall Guðnýjar streyma minn-
ingarnar fram. Skautaferðir á
Tjörninni, sundferðir, unglingsár-
in og fyrstu böllin í Gúttó og Sjálf-
stæðishúsinu. Hvernig við hlup-
um út af böllunum rétt fyrir tólf til
að ná síðasta strætó í Smáíbúða-
hverfið. Eftir að við byrjuðum í
MR var Borgin staðurinn og ég
man enn hvað við vorum spenntar
þegar við komumst í fyrsta sinn
inn á Borgina, þá sextán ára. Eftir
það sóttum við Borgina reglulega,
enda var það aðalsamkomustaður
MR-inga. Þótt skemmtana- og fé-
lagslífið tæki mikinn tíma stund-
uðum við skólann vel. Heimanám-
ið sat að vísu oft á hakanum yfir
veturinn en við unnum það upp
með snörpum próflestri. Þá lásum
við Guðný og Álfheiður vinkona
okkar oft saman. Þetta voru
skemmtileg og áhyggjulaus ár.
Síðan tóku við fullorðinsárin. Við
giftumst allar ungar og eignuð-
umst börn um tvítugt. Álfheiður
hélt utan til náms í Uppsölum
ásamt fyrri manni sínum og ung-
um syni og Guðný fór síðan til
hennar með eldri son sinn Pétur.
Þar kynntist Guðný Lars Åke,
þau hófu sambúð og eignuðust
soninn Kristjan. Guðný hóf nám í
sálfræði við Uppsalaháskóla og
bjó síðan og starfaði sem sálfræð-
ingur í Uppsölum allt til dauða-
dags. Fyrstu árin höfðum við ekki
mörg tækifæri til að hittast, enda
var þá mun dýrara að ferðast milli
landa og ungir námsmenn með
börn gátu ekki leyft sér það. Það
fóru hins vegar mörg bréf á milli
okkar. Seinna fjölgaði ferðum,
Guðný kom oftar heim og ég
heimsótti hana í Uppsölum. Hún
tók mér alltaf fagnandi og þótt
stundum væri langt milli funda
var eins og við hefðum hist í gær.
Það var alltaf gott að tala við Guð-
nýju. Hún kunni að hlusta og mér
fannst ég geta sagt henni allt, al-
veg eins og í gamla daga. Þótt
Guðný byggi erlendis mestan
hluta ævinnar saknaði hún alltaf
Íslands, þar sem hún átti stóra
fjölskyldu og góða vini. Hún hafði
hins vegar skapað sér góðan
starfsvettvang í Svíþjóð, þar voru
synir hennar lengst af og síðan
barnabörnin. Á seinni árum kom
hún oftar til Íslands.
Síðast var hún hér í sumar og
þá áttum við margar góðar stund-
ir saman. Við fórum í sund eins og
í gamla daga, hún kom til mín í
nýju íbúðina og í sumarbústaðinn
ásamt Kristjani og barnabörnun-
um þremur. Nokkrum dögum áð-
ur en Guðný fór aftur til Svíþjóðar
fórum við saman út að borða og
eins og oft áður keyrði ég hana á
Unnarstíginn og við kvöddumst
þar. Það hvarflaði ekki að mér að
þetta yrði síðasta kveðjan.
Við Guðný höfum fylgst að nán-
ast allt lífið og ég hafði vonast til
að eftir starfslok gætum við átt
meiri tíma saman bæði í Uppsöl-
um og hér heima. Það átti ekki
fyrir okkur að liggja, en það er
mér dýrmætt að við skyldum eiga
svo góðan tíma saman í sumar.
Vertu sæl, kæra vinkona.
Guðríður.
Í sumar rættist gamall draum-
ur Guðnýjar um að börn og
barnabörn kynntust og tengdust
Íslandi.
Kristian og barnabörnin þrjú
komu til landsins og hún gat farið
með þau á fjölskylduslóðir, heim-
sótt vini og sýnt þeim staði sem
henni þótti vænt um. Það voru
góðir dagar í sól á Hjalteyri þar
sem börnin undu sér vel með fjöl-
skyldu okkar Villa. Það er erfitt
að trúa því að mánuði síðar yrði
hún öll.
Við kynntumst 16 ára í MR og
vorum bekkjarsystur í fjögur ár
fram til stúdentsprófs 1966 og
urðum góðar vinkonur. Þetta
voru árin þegar fyrstu skrefin til
fullorðinsára voru tekin og vin-
átta verður djúp og helst allt lífið.
Eftir stúdentspróf skildu leiðir
um stund þegar ég flutti til Upp-
sala í Svíþjóð til sálfræðináms. Á
þeim tíma var ekki algengt að
fara á milli landa og á sumrin
unnu því íslenskir námsmenn ým-
is störf. Ég gat útvegað Guðnýju
vinnu sumarið 1969 og hún kom til
okkar með Pétur Jökul tveggja
ára.
Þá var hún fráskilin eftir stutt
hjónaband. Í Uppsölum leist
henni vel á sig og þar kynntist
hún vini okkar Lars-Áke Petter-
son lögfræðingi. Hún flutti svo til
Svíþjóðar og þau eignuðust son-
inn Kristian 1970.
Í Svíþjóð vorum við oft saman
að annast drengina okkar þar til
ég flutti heim til Íslands 1975.
Þá varð hún eftir og hélt ótrauð
áfram í námi og starfi. Við höfum í
öll ár haldið sambandi og þær eru
ófáar bækurnar og bréfin sem
hafa farið á milli okkar.
Guðný lauk embættisprófi í
sálfræði frá Uppsalaháskóla. Hún
hafði mikinn áhuga og metnað
fyrir faginu og menntaði sig alla
tíð. Hún átti gott fagbókasafn og
ég naut góðs af því líka.
Hún sérhæfði sig í klínískri sál-
fræði. Hugur hennar og þjálfun
stóð til að vinna með vanda ein-
staklinga og hún stofnaði fljótlega
sálfræðistofu sem hún rak í félagi
við góða kollega.
Hún var fagleg í starfi og lét
sér mjög annt um skjólstæðinga
sína.
Þó svo að Guðný væri í nær
fimmtíu ár búsett í Svíþjóð var
hún alltaf einlægur Íslendingur
og ræktaði tengslin við landið,
fjölskyldu og vini.
Hún átti stóra fjölskyldu, og
var nátengd föður sínum, en hann
lést í hárri elli á þessu ári. Bræður
hennar voru sjö og þar af sex hér
á landi.
Hún var stóra systirin sem bar
mikla umhyggju fyrir bræðrum
sínum og þeirra fjölskyldum, og
hún gerði sitt besta til að reynast
þeim vel. Hún ræktaði tengslin
með því að koma oft til Íslands og
hún vildi gjarnan fá vini og ætt-
ingja til sín.
Síðustu áratugina fórum við
Guðríður vinkona oft til hennar.
Þá var hún ævinlega búin að
skipuleggja menningarferðir og
hún bauð okkur upp á sælkera-
máltíðir.
Sjálf var ég stóra systir þó að
ég ætti einungis þrjá bræður. Við
sögðum að hún og ég yrðum að
vera systur hvor annarrar því
ekki væri öðrum til að dreifa.
Trygglyndi og vinátta Guðnýj-
ar vinkonu minnar var einstök og
við áttum hvor aðra alltaf að. Það
er mér mjög erfitt að missa hana
og söknuðurinn verður sár um
ókomin ár.
Við Vilhjálmur sendum fjöl-
skyldu hennar og sonunum Pétri
og Kristian, tengdadótturinni
Tinu og barnabörnunum Jim,
Dinu og Lily innilegar samúðar-
kveðjur.
Álfheiður Steinþórsdóttir.
Guðný Ólöf
Kristjánsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100
Húsnæði óskast
Íbúð með sérinngangi
eða sérbýli óskast
Vönduð, vel menntuð hjón með tvær
dætur, óska eftir húsnæði í Reykjavik
eða Kóp. Skilvísum greiðslum heitið,
alger snyrtimennska og reglusemi.
Uppl. h34@simnet.is
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Byggingarstjóri
Byggingarstjóri - 659 5648
Allar byggingarframkvæmdir
sem krefjast byggingaleyfis
verða að hafa löggildan
byggingarstjóra.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Sunnudagur 21. október
Síðumúli 17 (2. hæð)
kl. 13 - 15.30
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent
Frímerki • Póstkort o.fl.
Sala • Kaup • Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG ÍSLANDS
www.mynt.is
Safnara-
markaður
sunnudagur
21. október
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Tunika - Peysa
St.14-28 kr. 4.990
St. S-XL kr. 5900
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com