Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pappelina Boo, gólfmotta 70 x 100 cm Verð 12.500 kr. Veður víða um heim 21.10., kl. 18.00 Reykjavík 3 slydduél Akureyri 3 skýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 6 rigning Ósló 13 alskýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 11 þoka Helsinki 10 skýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Brussel 15 skýjað Dublin 12 léttskýjað Glasgow 11 skýjað London 17 léttskýjað París 16 heiðskírt Amsterdam 14 þoka Hamborg 14 skýjað Berlín 12 heiðskírt Vín 10 skýjað Moskva 6 alskýjað Algarve 22 léttskýjað Madríd 20 léttskýjað Barcelona 22 heiðskírt Mallorca 23 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 6 heiðskírt Montreal 2 skýjað New York 7 þoka Chicago 3 heiðskírt Orlando 25 heiðskírt  22. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:40 17:45 ÍSAFJÖRÐUR 8:54 17:42 SIGLUFJÖRÐUR 8:37 17:24 DJÚPIVOGUR 8:12 17:13 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Fremur hæg breytileg átt, bjart með köflum og hiti 0 til 5 stig. Gengur í suðaustan 8-13 með rigningu um landið sunnan- og vestanvert og hlýnar heldur. Vestan 5-13, hvassast við suðurströndina og rigning eða slydda með köflum. Dregur úr úrkomu með deginum, yfirleitt þurrt í kvöld. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst. „Fjölgun vara- manna á sér eðli- legar skýringar. Við tökum að ein- hverju leyti meiri þátt í alþjóða- starfi og ég þori að fullyrða að ekkert bruðl sé í gangi vegna þess enda erum við oftast með minnstu sendinefndirnar á alþjóða- vettvangi en reynum að taka þátt með sómasamlegum hætti,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, um ástæður þess að 57 vara- menn hafa tekið sæti á Alþingi það sem af er árinu og kostnaður vegna þess kominn í tæpar 23 milljónir, líkt og fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag. Steingrímur segir það ánægjuefni þegar íslenskir þingmenn séu valdir til trúnaðarstarfa í erlendu sam- starfi en slíkt kalli á ferðalög og fjar- veru frá þinginu, auk þess sem veik- indi þingmanna eða alvarleg veikindi í fjölskyldum þeirra kalli á að vara- menn taki sæti á þingi. Steingrímur segir að fjarveru þingmanna vegna alþjóðastarfs ætti að ljúka að mestu í október og allar tölur um kostnað og fjölda vara- manna hafi verið birtar. „Með augun á rekstraráætlun þingsins tók ég það upp við formenn þingflokkanna að forðast að taka inn varamenn ef ekki sé brýn þörf á því,“ segir Steingrímur, sem fullyrðir að vel sé fylgst með því að farið sé eftir reglum um innköllun varamanna. Fjölgun varaþing- manna eðlileg  Aukið alþjóða- samstarf ein skýring Steingrímur J. Sigfússon Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GNA, var kölluð út til að sækja al- varlega slasaðan skipverja flutn- ingaskips í gærmorgun. Skipið, sem er skráð á Filippseyjum, var statt um 60 sjómílur suðaustan við Vestmannaeyjar þegar þyrlu Land- helgisgæslunnar bar að á ellefta tímanum. Var skipið þá á leið til Grundartanga í Hvalfirði. Beiðni um aðstoð frá skipstjóra flutningaskipsins barst kl. eitt í fyrrinótt, en maðurinn hafði fallið úr stiga í skipinu. Þyrlan lenti með skipverjann á Landspítalanum í Fossvogi um eitt- leytið í gær. Slasaður skipverji sóttur með þyrlu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Rigningarkalsi og hvassviðri börðu á bandarísku dátunum sem voru í Þjórsárdal á laugardaginn, þegar þar fór fram hluti heræfingarinnar Trident Juncture. Æfingin er á veg- um NATO og er sú umfangsmesta sem bandalagið hefur efnt til frá árinu 2015. Aukin hernaðarumsvif Rússa hafa leitt til eflds varnar- viðbúnaðar á Norður-Atlantshafi svo og í Noregi, en hermennirnir sem voru á Íslandi síðustu daga eru nú komnir þangað. Stærstur hluti æfingarinnar fer einmitt fram þar. Hermennirnir í Þjórsárdal æfðu í síðustu viku á Reykjanesi, en þeir koma frá Lejeune-herstöðinni í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Alls tóku um 300 manns þátt í æf- ingunni. Þurftum rigningu „Við þurfum að æfa í vondu veðri. Við höfum oft æft í miklum kulda í Bandaríkjunum en aldrei lent í slag- veðursrigningu eins og hér. Og svona veður var það sem við þurft- um,“ sagði Clay Grogan, liðsforingi og talsmaður herliðsins. Í Þjórsárdal fengu hermennirnir meðal annars þjálfun í að reisa tjöld á vikrunum, rétt eins og staddir væru í eyðimörk. Þá marseruðu þeir með samræmdu göngulagi um dal- inn; svo sem af æfingasvæðinu fram á þjóðveg nærri Búrfellsvirkjun. Lögregla hafði talsverðan viðbúnað vegna æfingarinnar og á svæðinu voru meðal annars sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra. „Fyrir mér er nánast áfall að sjá þessa menn klædda í felubúninga æfa sig að tjalda hér og verandi í óþökk íbúa hér í sveitinni,“ sagði Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. Fólk úr samtökunum var í dalnum til að fylgjast með æfingunni og mótmælti henni með táknrænum aðgerðum og samræðum við her- menn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fylking Hermennirnir gengu langa leið undir gunnfána herliðs síns. Æfingin Trident Juncture 2018 er umfangsmikil og þátttakendur skipta þúsundum. Herinn þurfti slagveður  300 manna lið frá Norður-Karólínu æfði í Þjórsárdal  Voru í felulitum  Tjaldað á vikrunum  Hernaðarandstæðingar mótmæltu  Nú til Noregs Hrakningar Blautur og kaldur her- maður eftir baráttu við veðráttuna. Útilega Hermennirnir þurftu meðal annars að reisa tjöld í eyðimerkur- storminum og fá þannig þjálfun í að lifa af erfiðar aðstæður í stríði. Guttormur Þorsteinsson Clay Grogan Á sama tíma og heræfing fór fram í Þjórsárdal á laugardag nýtti fjöldi fólks tækifærið til að sjá innviði herskips úr banda- ríska skipaflotanum. Herskipið USS Iwo Jima II lá við akkeri við höfnina í Skarfabakka og var boðið upp á ókeypis 45 mínútna skoðunarferð um flugmóður- skipið. Skipið sjálft er 257 metrar að lengd og 32 að breidd, svo ekki vantar á það hin ýmsu skúma- skot til að skoða. Tölur um fjölda gesta sem skipið tók við um helgina liggja ekki fyrir en ljóst er að aðsókn var mikil. Myndaðist löng röð á Skarfabakka þegar mest lét. Fjölmennt í skipaskoðun HERSKIP VIÐ SKARFA- BAKKA YFIR HELGINA Morgunblaðið/Hari Skip Flugmóðurskipið USS Iwo Jima.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.